Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 8
Upplýsingar um uppákomur á að- ventu í Stokkhólmi er að finna á slóðinni www.stockholmtown.com Í TILEFNI af út- komu nýs ferða- bæklings Ferða- skrifstofunnar Emblu verður efnt til svokallaðrar ferðaveislu í Nor- ræna húsinu næst- komandi mánu- dagskvöld, 25. nóvember, kl. 20. Kynntir verða í máli og myndum áfangastaðir Emblu. Ákveðið hefur verið að auka framboð ferða til Suður-Ameríku með Ekvador í broddi fylkingar en landið státar m.a. af Galapagos- eyjum. Í fréttatilkynningu frá Emblu kemur fram að af þessu tilefni kemur til landsins nátt- úrulífsfræðingur, Robby Delg- ado, sem verður leiðsögumaður Emblu í Ekvador, en hann mun kynna landið í máli og myndum. Kynningin hefst með myndasýn- ingu og kynningu á Barbados, Máritíus og Borg- undarhólmi en að því loknu mun Robby Delgado kynna Ekvador og ferð Emblu sem fyrirhuguð er í október á næsta ári. Í kaffihléi gefst kostur á að spjalla við farar- stjóra Emblu en síðan hefst kynning á ferðinni með Austur- landahraðlestinni, um Síberíu, Mongólíu og Kína, en hún verður farin 2. ágúst. Jafnframt verður nýr ferðaklúbbur Emblu kynntur og dregið í ferðagetraun. Kynning á ferðum Emblu  Allar nánari upplýsingar hjá Ferðaskrifstofunni Emblu í síma 511 4080, netfang: info@embla.is eða á heima- síðunni www.embla.is  Í SÍÐUSTU viku var Liseberg-skemmtigarðurinn í Gautaborg í Svíþjóð opnaður sem jólagarður. Þetta er í þriðja skipti sem jólaland er opnað í skemmtigarði Gautaborgarbúa. Milljónir jólaljósa prýða hann, kórar koma og taka jólalög, seldur er sænskur jólamatur og hægt að gæða sér á pip- arkökum og jólaglögg. Opið er í ýmis tæki og hægt að heilsa upp á sænsk húsdýr og jafnvel bregða sér á hestbak. Þá er hægt að fara á skauta og rús- ínan í pylsuendanum er jólamarkaður þar sem hægt er að kaupa jólagjafir, allskonar jólagóðgæti eins og heimalagað sinnep, marsípan, te og krydd og skoða sænskt handverk hjá um sjötíu sölu- aðilum. Jólastemmning í Gautaborg  Frekari upplýsingar um jólalandið í skemmtigarði Gautaborgarbúa er á slóðinni www.liseberg.se  Í BOTANICAL Garden í New York eða grasa- garðinum þar í borg verður opnuð sérstök jólasýn- ing hinn 29. nóvember og stendur hún fram til 5. janúar. Garðurinn verður ljósum prýddur og 29. nóvember verður formlega opnað stórt svæði þar sem litlar lestir líða framhjá smækkuðum, þekktum byggingum í New York. Búið er að setja upp eft- irlíkingar af um 95 byggingum í borginni. Þá er bú- ið að hanna fjöll, fossa, læki og landslag sem fellur að stærð lestanna. Við hönnunina voru notuð efni eins og ber, könglar, kanilstangir, laufblöð, fræ og blóm. Garða- og lestarsýning í tilefni jóla  Nánari upplýsingar fást á slóðinni www.nybg.org  KOMIÐ er út kort af ferða- leiðum sunnan Hofsjökuls. Landsvirkjun lét gera kortið en fjölmargir komu að gerð þess. Kortið er gefið út á íslensku og ensku og annast Hið ís- lenska bókmenntafélag dreif- ingu. Það verður til sölu í bókabúðum og á ferða- mannastöðum sunnanlands og kostar þúsund krónur. Kort af ferðaleiðum sunnan Hofsjökuls TIL stendur að ráðast í viðamiklar framkvæmdir við Geysi í Haukadal í vor en Guðmundur Jónsson arkitekt hefur hannað framtíðarskipulag fyrir svæðið. „Mikil uppbygging hefur átt sér stað við Geysi á undanförnum árum en það þurfti að tryggja framtíðarskipulag sem gerir ráð fyrir enn frekari þróun á þessu svæði,“ segir Guðmundur. „Einn- ig vildum við gera breytingar á bíla- stæðaskipulagi og aðkomunni að Geysi, sem er óhentug, sérstaklega fyrir gang- andi vegfarendur sem þurfa að fara yfir þjóðveginn til að komast að sjálfu hverasvæðinu. Í tillögu minni lagði ég því ríka áherslu á að skilja að gangandi og ak- andi vegfarendur, til dæmis með því að hanna undirgöng undir veginn. Í þess- um göngum er síðan áformað að hafa sýningu um hverasvæðið sem fólk getur skoðað á leiðinni að hverunum.“ Guðmundur segir að sporöskjulagað torg verði hjarta svæðisins og út frá því liggi aðalæðarnar eins og í undirgöngin, á hótelið og á Geysissýninguna. Á torg- inu verður höfðað til náttúrunnar í kring með nútímalegu samspili vatns og gufu. Auk aðkomunnar hefur Guðmundur skipulagt hvernig unnt sé að stækka þær byggingar sem fyrir eru og tengja þær torginu. Þá segir hann hótelið við Geysi kjörið ráðstefnu- og heilsuhótel og hefur einnig lagt til breytingar þar að lútandi. Már Sigurðsson, sem er eigandi Hót- els Geysis, segir að búið sé að kynna skipulagið fyrir ýmsum sem málið varð- ar, þ.á m. ráðuneytum, og almennt ríki mikil ánægja með þessar tillögur Guð- mundar. Hann segir að í þeim hafi kom- ið fram nýstárlegar og skemmtilegar hugmyndir sem muni gjörbreyta staðn- um. Einnig var Oddur Hermannsson landslagsarkitekt Má innan handar við skipulagsvinnu staðarins í heild. „Ég tel líklegt að hafist verði handa við þessar breytingar í vor. Ef þær ná fram að ganga verður gjörbylting á að- komu, þjónustu og fræðslu fyrir bæði innlenda og erlenda ferðamenn.“ Búið að hanna framtíðarskipulag við Geysissvæðið í Haukadal Grafa á undirgöng að hvera- svæðinu Í framtíðarskipulagi Geysissvæðisins er m.a. gert ráð fyrir að hótelið verði ráðstefnu- og heilsuhótel. Torgið verður miðja Geysissvæðisins og út frá því liggur leið í undirgöng, á hótelið, bílastæðin og á Geysissýninguna. Bílaleigubílar Sumarhús í Danmörku og Mið-Evrópu Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975 pr. viku. Innifalið í verð; Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar. (Afgrgjöld á flugvöllum.) Sumarhús eru ódýr kostur haust og vor. Hótel. Heimagisting. Bændagisting.Tökum nú við pöntunum á sumarhúsum/húsbílum og hótelherbergjum fyrir Heimsmót íslenska hestsins í Herning 2003. Fylkir Ágústsson, Fylkir — Bílaleiga ehf. sími 456 3745 netfang fylkirag@fylkir.is heimasíða www.fylkir.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.