Morgunblaðið - 24.11.2002, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 B 9
ferðalög
KOSTAR MINNA
50%
afsláttur
LAGERSALA Á JÓLASKRAUTI,
GJAFAVÖRU, VERKFÆRUM,
BÚSÁHÖLDUM OG MÖRGU FLEIRA!
A‹EINS A‹ KEILUGRANDA 1, 200 METRA FRÁ
JL HÚSINU í lagerhúsnæ›i Krónunnar
OPI‹ VIRKA DAGA 12-18 OG 11-16 UM HELGAR
f
a
s
t
la
n
d
-
8
4
3
6
Hvaðan ertu að koma?
Í OKTÓBER fór Hafrún Kristjóns-
dóttir með eiginmanni sínum Sig-
urbergi Kristjánssyni í helgarferð
til Búdapest í Ungverjalandi.
Hvernig fannst þér borgin?
„Þetta er mjög skemmtileg borg
og margar stórkostlegar bygg-
ingar sem prýða hana. Það er auð-
séð að undanfarin ár hafa borg-
aryfirvöld varið fjármunum í að
lagfæra þessar gömlu byggingar.
Það eina sem setur ljótan svip á þær er veggjakrot en það er mjög áber-
andi um alla borg og einnig á þessum gömlu byggingum.“
Fóruð þið í skoðunarferð um borgina?
„Já. Við fórum í ferðina með Heimsferðum og á þeirra vegum var boðið
upp á skoðunarferð. Hún tók um fjórar klukkustundir og fararstjórinn
komst vel frá sínu verki, var fróður um borgina, sögu hennar og staði.
Við fengum svo líka tíma til að skoða okkur um á eigin vegum sem var
fínt.“
Hafrún segir að þau hafi einnig ákveðið að fara í aðra skoðunarferð sem
boðið var upp á en það var í listamannabæ sem heitir Szentendre.
„Þetta er lítill bær sem hefur getið sér orð fyrir lítil listaverkagallerí,
handverksbúðir og lítil kaffi- og veitingahús. Við gengum þarna um mjó
stræti og virtum fyrir okkur ýmiss konar listaverk, handprjónaðar peys-
ur, dúka, jólaskraut og annað í þeim dúr.“
Þið fóruð líka á tvö söfn í bænum. Hvernig voru þau?
„Við skoðuðum þarna mjög sérstakt og skemmtilegt marsípansafn sem
var innaf litlu bakaríi í mörgum litlum vistarverum.
Þarna voru til sýnis listaverk úr marsípani. eins og konungshöllin, popp-
stjörnur, Díana prinsessa og ýmsar furðufígúrur. Listaverkin voru varð-
veitt í glerskápum og það var virkilega gaman að skoða þetta sérstaka
safn.
Þá fórum við líka á vínsafn en þar var hægt að kynna sér ýmsilegt um
vínframleiðslu á þessum slóðum.
Einhverjir úr hópnum fóru í ferð um bæinn með hestakerru en við kom-
umst ekki til þess.“
Er úrval veitingahúsa fjölbreytt?
„Já, það eru margir staðir að velja um. Við fórum til dæmis á villibráð-
arstaðinn Gullna hjörtinn sem var mjög frambærilegur. Eftirminnilegri
var þó kvöldstundin sem við áttum í kastalanum á Gellért-hæðinni. Þar
borðuðum við kvöldmat og það var frekar fámennt þetta kvöld sem við
vorum þar. Fyrir bragðið má segj að við höfum fengið einkafiðlukonsert
og maturinn var hreint frábær.
Hvernig var verðlagið á veitingahúsum?
„Mér fannst það hagstætt.“
Er þetta borg sem þú gætir hugsað þér að dvelja í aftur?
„Já. Ég er ekki viss um að ég færi þangað strax aftur enda á ég eftir að
skoða svo marga staði í heiminum. En ég gæti alveg hugsað mér að
fara þangað aftur seinna og kynnast borginni betur.“
Marsípan og lista-
verk í Ungverjalandi
Í listamannabænum Szent-
endre í Ungverjalandi er
skemmtilegt marsípansafn
sem Hafrún Kristjóns-
dóttir skoðaði nýlega.
Sigurbergur stendur við Dóná og Konungshöllin er í baksýn.
Vefslóð veitingahússins á Gellerthæðinni er: www.citadella-
restaurant.com/index.htm
og frekari upplýsingar um gullna hirtinn er að finna á
http://freeweb.interware.hu/tdsbt/etteremaranyszarvas/
Aranyszarvas.htm
Á marsípansafninu eru mörg listaverk, m.a. þinghúsið í Búdapest.
Hafrún í húsasundi í Szentendre
en í þessum listamannabæ eru
göturnar þröngar og mikið um
svona húsasund.
Árleg aðventuferð
íÞórsmörk
Á vegum Útivistar verður farið í árlega
aðventuferð í Þórsmörk 29. nóvember
til 1. desember. Ekið er í Bása á Goða-
landi á föstudagskvöldi. Laugardeg-
inum er varið til gönguferða og sé
snjór á jörðu segir í fréttatilkynningu
að sjálfsagt sé að taka gönguskíðin
með. Allir taka þátt í að skreyta húsin
síðdegis, eða undirbúa skemmtiatriði
fyrir kvöldvöku. Jólahlaðborð Útivistar
hefur unnið sér hefð, en allir gestir
leggja eitthvað af mörkum á borðið.
Fjölskyldur eða vinahópar geta tekið
sig saman um hvað þau taki með á
hlaðborðið, en einnig er nægt rými fyr-
ir einstaklinga með sína rétti.
Í vetrarferðum er mikið lagt upp úr
kvöldvökum með fjöldasöng og heima-
tilbúnum skemmtiatriðum og lögð er
sérstök áhersla á að börnin fái að
njóta sín. Jólalögin eru rifjuð upp, og
yfirleitt eru einhverjir með hljóðfæri til
undirleiks. Á sunnudag er boðið upp á
létta göngu um Básana. Fararstjórar
verða Anna Soffía Óskarsdóttir og
Ingibjörg Eiríksdóttir.
Sjá nánari upplýsingar á
slóðinni www.utivist.is
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.