Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
bíó
RÖDDIN er dýpri, kinnbeininstærri og skónúmerið hærraen gleraugun þau sömu, svört
og kringlótt. Harry Potter er orðinn
eldri og annað skólaárið í Hogwarts
galdraskólanum að hefjast. En útlit-
ið er dökkt. Fjárans fósturforeldr-
arnir eru nefnilega enn og aftur til
vandræða og gera allt til að koma í
veg fyrir endurfund hans og vina
hans Rons og Hermione. En Harry
verður að komast í burtu. Sumarið
hefur verið erfitt. Ekki einasta hefur
hann þurft að sætta sig við harðræði
Vernons frænda og Petuniu frænku
heldur hefur hann af eðlilegum
ástæðum einnig þurft að bæla niður
galdrakunnáttuna. Og það sem
kannski angrar hann mest: vinir
hans Ron og Hermione hafa ekki
sent honum eitt einasta bréf. Voru
þau kannski búin að gleyma honum?
Svona fljótt? En þá gerist svolítið
undarlegt, rétt eins og alltaf í hinu
stórskrýtna lífi Harrys Potters. Einn
höndum haft yfirumsjón
með klippingu Viskusteins-
ins og undirbúningi Leyni-
klefans. „Í mínum huga var
þetta aldrei eins og að hafa
klárað mynd heldur miklu
fremur eins og hálfleikur,
eða A-hlið á plötu, þar sem
Leyniklefinn er B-hliðin,“
segir Columbus. „Það var
um margt auðveldara að
gera Leyniklefann því stór
hluti sviðsmyndarinnar var
klár og notast var að mestu
við sama tökuliðið. Við lærð-
um auðvitað heilmikið á
reynslunni við að gera
fyrstu myndina.“
Annar kostur við þessa
stífu vinnu var að það hafði
enginn færi á að staldra við
og velta sér uppúr velgengni
Viskusteinsins. Columbus
inn veit hvar er niður kominn. Sé
leyniklefinn opnaður leiðir það af sér
voveiflega atburði. Það hafði gerst
einu sinni og nú virðist sem einhver
hafi opnað leyniklefann á ný og til
þess að bjarga lífi sínu og framtíð
skólans verða Harry og vinir hans að
hafa uppá klefanum, loka gáttum
hans og koma fyrir kattarnef þeim
illu öflum sem þar leynast.
Hálfleikur
Harry Potter og leyniklefinn, önn-
ur bókin um galdrastrákinn vinsæla
eftir J.K. Rowling, kom fyrst út árið
1998 og hefur nú selst í 42 milljónum
eintaka um heim allan. Framleiðslan
á myndinni hófst í Englandi 19. nóv-
ember 2001, einungis þremur dögum
eftir að Harry Potter og viskusteinn-
inn var frumsýnd við áður óþekktar
viðtökur. Hafði leikstjórinn Chris
Columbus þá um sumarið jöfnum
góðan veðurdag stendur lítill og dul-
arfullur þjónustuálfur í herbergi
Harrys sem kallar sig Dobby. Álf-
inum smáa er greinilega mikið niðri
fyrir. Hann ræður Harry eindregið
frá því að snúa aftur í skólann, vilji
hann halda lífi, og viðurkennir að
hafa gert allt sem í valdi hans hefði
staðið til að gera hann afhuga skól-
anum, eins og t.d. að ræna öllum
bréfunum frá skólafélögum hans, til
að láta líta út fyrir að hans væri ekki
saknað. En Harry er hugrakkur
drengur og verður vitaskuld ennþá
æstari í að snúa aftur til Hogwarts,
til þess að freista þess að komast að
því hvað amar að og hver vilji hann
feigan. En hvernig getur hann losn-
að úr klóm fósturforeldranna? Nú,
auðvitað með hjálp Rons sem kemur
aðsvífandi á gamla flugbíl foreldra
sinna. Og þannig hefst það ævintýrið
um Harry Potter og ráðgátuna um
leyniklefann, dularfullan og ógnvæn-
legan stað í skólanum sem nær eng-
Þannig er í
Potter búið
Hann er snúinn aftur á hvíta tjaldið, í annað skiptið af
þeim sjö sem fyrirhuguð eru, töfrastrákurinn Harry
Potter sem vann hug og hjörtu bíóunnenda á öllum
aldri fyrir ári í fyrstu myndinni, sem skráð er sú næst-
tekjuhæsta í sögu kvikmyndanna. Hugrakkur Skarp-
héðinn Guðmundsson hætti sér inn í leyniklefann og
skoðaði hvern krók og kima á nýju myndinni.
Potter kominn inn í sjálfan leyniklefann.
GINNY WEASLEY
Systir Rons og
yngst hinna sjö-
Weasley-systkina
til að ganga í Hog-
wart, þar sem hún
er einu ári á eftir
bróður sínum og
Harry. Leikin af
hinni 11 ára gömlu
Bonnie Wright.
Náði í hlutverk
Ginny með því að
vera hún allan tím-
ann sem hún var í
prufunni, líka þegar
hún átti ekki að vera að leika.
GILDEROY LOCKHART
Leikinn af Kenneth Branagh.
Nýi kennarinn í Hogwart.
Hreint óþolandi sjálfumglaður
spjátrungur sem heillar þó
marga uppúr skónum með per-
LUCIUS MALFOY
Djöfullegur og hátt settur faðir
Dracos, höfuðóvinar Harrys, leik-
inn af hinum 39 ára gamla enska
leikara Jason Isaac, sem klárlega
er orðinn sérfræðingur í að leika
illmenni. Lék vonda Englending-
inn í The Patriot og mun leikar
sjálfan Krók í væntanlegri kvik-
myndagerð Ástralans P.J. Hogan
á Pétri pan.
VALA VÆLUSKJÓÐA
Dularfullur draugur sem býr á
stelpusalerninu í Hogwarts og er
alltaf volandi. Lést dularfullum
dauðdaga á salerninu fyrir löngu
og kveinkar sér voða mikið yfir því
og hversu einmana hún er. Leikin
af Shirley Henderson sem þykir
ein eftirtektarverðasta unga leik-
kona Bretlands um þessar mundir,
skosk að uppruna, 36 ára gömul.
Hefur enda stolið senunni í hverri
myndinni á fætur annarri undan-
farið; Topsy Turvy, Dagbók Bridg-
et Jones, Wonderland og 24 Hour
Party People og nú síðast Once
Upon A Time in the Midlands.
skræka rödd. Þrælslundaður álf-
ur með afbrigðum sem reynir allt
hvað hann getur til þess að koma í
veg fyrir að Harry snúi aftur í
Hogwartsskólann, því hann seg-
ist viss um að það muni kosta
Harry lífið. En Harry veit ekki
hvort hann á að treysta þessum
mikla skaðvaldi, sem segist vera
að reyna að hjálpa honum. Og
hver er þessi illviljaði húsbóndi
Dobbys?
sónutöfrum og hetju-
sögum af sjálfum sér.
Fimm sinnum valinn
Besta brosið af Norna-
blaðinu.
Gárungar vilja
meina að hér sé hinn
margverðlaunaði 42
ára gamli Branagh,
sem á yngri árum var
útnefndur „nýi-Oliv-
ier“, um margt að leika
sjálfan sig en breskir
fjölmiðlar hafa haft
horn í síðu hans ein-
mitt fyrir meinta sjálf-
umgleði. En allir eru
sammála um að auðvelt sé að láta
hann fara í taugarnar á sér og það
fari hann létt með í hlutverki
Lockharts.
ÞJÓNUSTUÁLFURINN DOBBY
Tölvustýrð brúða, lítíl og brún-
fjólublá með leðurblökueyru og
Hverjir eru þeir?
Leikari: Daniel
Radcliffe.
Fæðingardagur: 31.
júlí 1989, 13 ára.
Þjóðerni: Enskur.
Fjölskylda: Einkabarn.
Foreldrar hans eru báðir
umboðsmenn, faðir hans
Alan fyrir rithöfunda en
móðir hans Marcia
fyrir leikara.
Lífið fyrir Harry:
Fékk áhuga á
leiklist 5 ára
gamall. Þrátt
fyrir efasemdir
foreldra sóttist
Radcliffe eftir því að verða leikari sem fyrst
og mamma hans lét það eftir honum þegar
hún sendi mynd af honum til BBC, ríkissjón-
varpsins breska. Það varð til þess að hann
fékk hlutverk hins unga Davids Copperfield í
samnefndum sjónvarpsþáttum. Það leiddi til
fyrsta kvikmyndahlutverksins í The Taylor of
Panama á móti Pierce Brosnan – sem Rad-
cliffe hefur ekki enn séð.
Leyndarmál leikarans: „Ég reyni að hugsa um
eitthvað sorglegt þegar ég þarf að gráta en
þegar ég þarf að hlæja hugsa ég um Simpson-
fjölskylduna.“
Vissirðu? Radcliffe gengur í einkaskóla fyrir
drengi og á tvo hunda sem heita Binka og
Nugget. Hann er mikill prakkari og fór illa
með vin sinn Robbie Coltrane sem leikur
Hagrid þegar hann breytti tungumálinu á
farsíma hans yfir í tyrknesku.
Leikari: Rupert Grint.
Fæðingardagur: 24. ágúst
1988, 14 ára.
Þjóðerni: Enskur.
Fjölskylda: Elstur fimm
systkina, á einn bróður og
þrjár systur.
Lífið fyrir Harry: Hafði
einungis leikið í
skólaleikritum áður
en hann fékk hlut-
verk Rons, sem
hann fékk eftir að
hafa sent inn
myndband af sér
þar sem hann læt-
ur Ron rappa.
Hefur leikið í
einni annarri mynd, fjölskyldumyndinni
Thunderpants sem frumsýnd var fyrr á árinu.
Leyndarmál leikarans: „Ég þurfti ekkert að
leika í atriðunum með köngulónum því ég er í
alvörunni alveg logandi hræddur við þessi
kvikindi.“
Vissirðu? Er nýbyrjaður aftur í skóla eftir að
hafa leikið í myndunum og finnst kennararnir
sleikja mig fullmikið upp. Fannst fínt að
þurfa að gubba sniglum því þeir voru með
súkkulaði, piparmintu og appelsínubragði.
Leikari: Emma Charlotte Duerre Watson.
Fæðingardagur: 15. apríl 1990, 12 ára.
Þjóðerni: Ensk.
Fjölskylda: Foreldrar hennar eru báðir lög-
fræðingar. Þau eru skilin og býr Emma með
móður sinni og yngri bróður.
Lífið fyrir Harry: Hafði aldrei leikið op-
inberlega áður en hún fékk hlutverk Herm-
ione. Lék í skóla-
leikritum og sigraði í
ljóðasamkeppni.
Leyndarmál leik-
arans: „Það hjálp-
aði mér að við
Hermione erum
svolítið líkar. Við
erum báðar
ákveðnar og
trygglyndar.
Ég er
kannski
ekki al-
veg eins
námfús
þó og
hef
meira
gaman
af íþrótt-
um.“
Vissirðu? Emma er námshestur eins og
Hermione og hefur gaman af því að spila
hokkí og taka þátt í ræðukeppnum. Þótt
Hermione sé með brúnt hár þá er Emma í al-
vöru ljóshærð. Helstu fyrirmyndir hennar
eru Julia Roberts og Sandra Bullock.
HARRY POTTER
RON WEASLEY
HERMIONE GRANGER