Morgunblaðið - 24.11.2002, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 B 19
bíó
HVOLPAÁSTIN lá í loftinu við tökur á
Leyniklefanum. Columbus leikstjóri hef-
ur lýst því hvernig hann þurfti að taka í
taumana þegar verið var að skjóta at-
riðin í hátíðarsal Hogwartsskóla. Hann
varð þá var við að krakkarnir voru orðnir
ansi hreint utan við sig og uppteknir við
aðra iðju en að leika í bíómynd, nefnilega
að stinga saman nefjum og lauma litlum
bréfsneplum milli borða. Á endanum
þurfti Columbus að kalla yfir salinn:
„Krakkar, þetta er ekki ástarskóli!!!“
...
Átímabili stóð til að Hugh Grant yrði
boðið hlutverk Kenneths Branaghs.
Grant hefur hinsvegar látið hafa eftir
sér að hann hefði örugglega hafnað því.
„Ég hefði ekki viljað skemma svona fín-
an leikhóp,“ sagði leikarinn breski af
sinni einskæru hógværð.
...
Bandaríkjamanninum Columbus
tókst hið ómögulega að smita bresku
leikarana af hafnaboltaáhuga sínum.
Sérstaklega voru það ungu leikararnir
sem heilluðust með leikstjóra sínum og
létu til sín taka á hafnaboltavellinum
sem hann lét koma upp á tökustaðnum í
Lundúnum. Einna áhugasamastur var
sjálfur Radcliffe og hann var því skilj-
anlega spenntur þegar honum var boðið
ásinn fyrsta alvöru hafnaboltaleik vest-
anhafs í ágúst.
...
Öll atriði með vandræðadraugnum
Peeves í Hogwarts voru klippt út, strax
áhandritsstiginu.
...
Kenneth Branagh gaf út sjálfs-
ævisögu sína þegar hann var 30 ára ...
sem sumir myndu telja fullmikið bráð-
læti.
...
Bíllinn fljúgandi sem Weasley-
fjölskyldan á er blár og af gerðinni Ford
Anglia. Nota þurfti 14 bíla í tökurnar
enda þurfti auminginn að þola ansi mik-
inn barning.
Potter-molarquidditch, sem vakti svo mikla lukkuí fyrstu myndinni, ennþá meira
spennandi og eðlilegan.
Fyrst búið var að hanna og smíða
grunnsviðsmynd skólans gátu Col-
umbus og aðstoðarmenn hans í stað-
inn lagt frekari áherslu á smáatriðin
og þá sérstaklega á vinnustofum pró-
fessoranna og sjálfan leyniklefann
sem er langstærsta sviðsmyndin sem
hefur þurft að smíða fyrir myndirnar
en það þurfti vel á fimmta hundrað
manns til að klára verkið, verka-
menn, teiknara, klæðskera, mynd-
höggvara o.fl.
Meira af öllu
Það er líka óhætt að fullyrða að
ætlunarverk Columbus, að eyða
meiri tíma í tæknivinnuna í þeim til-
gangi að gera heim Harrys trúverð-
ugri, hafi tekist því útlit myndarinn-
ar nýju er í alla staði fínpússaðra,
ítarlegra og betur ígrundað. Það sem
er líka kannski mest um vert er að
útlitið, íburðurinn og brellurnar eru
nú orðin aukaatriði í stað aðalatriða
sem þau voru í fyrstu myndinni.
En hinn ungi Daniel Radcliffe að-
hyllist þó kenninguna um að meira sé
betra: „Það sem mér þykir mikilvæg-
ast að komi fram er að myndin hafi
upp á að bjóða meira af öllu. Fyrsta
var fyndin, þessi er fyndnari. Fyrsta
var spennandi, þessi er jafnvel enn
meira spennandi.“ Og gagnrýnendur
hafa flestir bætt því við að Leyniklef-
inn sé meira ógnvekjandi, rétt eins
og bækurnar sjálfar sem orðið hafa
myrkari og átakanlegri eftir því sem
liðið hefur á söguna og árum Harrys
í Hogwarts-skóla fjölgað.
„Það er meira í Leyniklefann
spunnið fyrir minn smekk,“ segir
Columbus. „Sagan er dýpri, fjölþætt-
ari, myrkari, ógnvænlegri og yfirhöf-
uð meira spennandi.“
Harry sjálfur hafa gleymst svolítið í
öllum hamaganginum í kringum
brautryðjendastarfið sem verið var
að vinna í Viskusteininum og vildi því
bæta honum það upp með því að
setja hann rækilega í forgrunninn að
þessu sinni, þannig að ekki færi milli
mála hver væri söguhetjan eina og
sanna.
Allir leikararnir sem kynntir voru
til sögunnar í fyrstu myndinni – og
héldu lífi – snúa aftir í þeirri annarri.
Daniel Radcliffe, Rupert Grint og
Emma Watson eru sem fyrr í for-
grunni sem Harry, Ron og Herm-
ione, tveimur árum eldri en þau voru
þegar þau léku í Viskusteininum, 13
ára, 14 ára og 12 ára. „Ég held ég
geti leyft mér að fullyrða að krakk-
arnir sýni það í Leyniklefanum að
núna fyrst séu þeir orðnir alvöru
leikarar enda höfðu þau lítið sem
ekkert leikið opinberlega þegar þau
voru upphaflega valin,“ segir Col-
umbus.
Betri brellur
Líkt og Viskusteinninn er Leyni-
klefinn uppfull af tæknibrellum og ef
eitthvað er þá eru þær meira áber-
andi að þessu sinni en um leið trú-
verðugri en Columbus hefur tekið
undir með þeim gagnrýnisröddum að
í þeirri deildinni hefði fyrri myndin
alveg mátt vera betri og vandaðri.
Það eru sem fyrr töframennirnir
hjá ILM, fyrirtæki George Lucas,
sem ábyrgir eru fyrir brellunum sem
beitt var í hvorki fleiri né færri en
950 tökum í myndinni. Furðuverurn-
ar eru enda töluvert fleiri og fyrir-
ferðarmeiri en síðast en meðal þeirra
nægir að nefna þjónustuálfinn
Dobby, Fawkes fönixfugl Dumble-
dore skólastjóra, litlu bláu púkana,
risasnák og köngulærnar með kon-
unginn Aragog fremstan í flokki,
sem vó þrjá fjórðu úr tonni og var
stjórnað af 10 manns, tveimur á
búknum og einum fyrir hvern legg.
Þar að auki lögðu tæknimenn mik-
ið upp úr því að gera kappleikinn
telur að ekki megi vanmeta þá ráðstöfun
því hún hafi haldið mönnum á jörðinni,
sérstaklega ungu leikurunum sem eru á
viðkvæmum aldri hvað alla utanaðkom-
andi athygli varðar. „Þau höfðu mjög
gott af því að njóta velgengninnar saman,
vera í návist hvert annars og þó sérstak-
lega eldri leikara myndanna sem kynnst
höfðu frægðinni og gátu miðlað reynslu
sinni, bent krökkunum á kosti hennar og
lesti.“
Harry gleymdist
Columbus hafði skýra sýn á hvaða
munur yrði á myndunum. „Við eyddum
miklu púðri í að búa til heim Harrys og
kynna til sögunnar helstu persónurnar
og galdrana í Viskusteininum. Í Leyni-
klefanum vindum við okkur beint að efn-
inu og það var markmið mitt að sú mynd
yrði í senn myrkari og fyndnari og sýndi
nýjar og dýpri hliðar á Harry.“ Columb-
us viðurkennir að honum hafi fundist
skarpi@mbl.is
HVER er svo framtíð
Harry Potter-mynd-
anna að afloknum tveim-
ur myndum? Warner
hefur tryggt sér kvik-
myndaréttinn á átta
bókum um galdrastrák-
inn og það meira að
segja þótt Rowling hafi
lýst því yfir að hún sjálf
muni alls ekki skrifa
fleiri en sjö.
Þær eru því fimm eft-
ir. Búið er að ganga frá
flestum lausum endum
varðandi næstu mynd,
sem gerð verður eftir
bókinni Fanginn í Azk-
aban og er gert ráð fyrir að fram-
leiðslan hefjist í mars á næsta ári og
að myndin verði frumsýnd sumarið
2004. Öll hafa þau skrifað undir
samning um að vera með Daniel
Radcliffe, Rupert Grint og Emma
Watson, sem og flestir aðrir eldri
leikaranna, að Richard heitnum
Harris undanskildum vitanlega en
hann féll nýlega frá. Ekki hefur enn
verið ákveðið hver muni taka við hlut-
verki Dumbledore skólastjóra af hon-
um en nöfn þeirra Sir Ian McKellen
og Christophers Lees, sem leika
Gandalf og Sárúman í Hringadrótt-
inssögu, hafa verið þrálátlega nefnd í
því samhengi.
Hinsvegar ætlar Chris Columbus
ekki að leikstýra fleiri myndum held-
ur færa sig upp í sæti framleiðand-
ans. Talsverða athygli vakti þegar í
hans stað var ráðinn mexíkanski leik-
stjórinn Alfonso Cuaron, en sögu-
sagnir herma að hann hafi meira að
segja verið tekinn framyfir sjálfan
Spielberg sem hafði lýst yfir áhuga að
leikstýra einmitt þessum hluta Pott-
er-bálksins. En valið á Cuaron vakti
ekki síður athygli fyrir þær sakir að
síðasta mynd hans, hin rómaða Og
móðir þín líka (Y tu mamá también)
(2001) þótti býsna ögrandi og djörf.
Chris Columbus hafði mikið með val-
ið á Cuaron að gera og hann segir það
ekki byggjast á þeirri mynd heldur
miklu fremur A Little
Princess, fallegri æv-
intýramynd sem hann
gerði 1995. „Í þeirri fal-
legu og ljóðrænu mynd
sýndi hann hversu gott
lag hann hefur á því að
vinna með börnum og
skapa ævintýraheima.“
En hvað svo? Hvað
með fjórðu myndina?
Fyrsta vandamálið
sem menn sjá fyrir sér
er hvernig Steve Klov-
es handritshöfundur
fer að því búa til mynd
upp úr bók sem telur
fleiri en 700 blaðsíður
ef hann þá treystir sér til þess yf-
irleitt. Fyrstu tvær myndirnar voru
gerðar eftir töluvert styttri bókum en
eru þó tveir og hálfur tími að lengd og
búist er við því að sú þriðja verði álíka
löng ef ekki aðeins styttri.
Annað vandamálið eru unga tríóið,
þau Radcliffe, Grint og Watson, og
aldur þeirra. Þeir yfirveguðu hafa
bent á að með hverri bók verði þau
árinu eldri og því sé eðlilegt að þau
haldi einfaldlega áfram að leika hlut-
verk Harrys, Rons og Hermione. En
ef þriðja myndin verður ekki fullbúin
fyrr en 2004 og sú fjórða tveimur ár-
um eftir það þá verður Grint orðinn
18 ára, Radcliffe 17 og Watson 16,
sem margir hafa lýst yfir áhyggjum
sínum af að sé of gamalt miðað við
persónur þeirra í bókunum. Svo ekki
sé minnst á að nú þegar tala sumir
um að Radcliffe, orðinn svona dimm-
raddaður og hávaxinn, henti ekki
mikið lengur í hlutverk Potters. Því
hefur meira að segja verið spáð, og
Columbus gefið það í skyn, að ákveðið
verði að leita að nýjum leikurum í
hlutverkin fyrir næstu mynd, jafnvel
þótt búið sé að ganga frá ráðningu
hinna sömu og í fyrstu tveimur. „Ég
veðja þó á að þau hætti öll þrjú eftir
þriðju myndina.“ Sjálfur segir Rad-
cliffe: „Við verðum pottþétt með í
næstu mynd en hvað gerist eftir það
veit enginn.“
Og hvað gerist svo?
Alfonso Cuarón
GREEN
ww
w.
for
va
l.is