Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.2003, Page 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. FEBRÚAR 2003
Þ
AÐ er án efa vandfundið það
foreldri sem ekki hefur leitt
hugann að því hvaða áhrif at-
vinnuþátttaka foreldra hefur á
börnin. Margir hverjir eru
jafnvel haldnir svo miklu sam-
viskubiti út af fjarverunni frá
börnunum að það hefur slæm
áhrif, beint eða óbeint, á samskipti þeirra
við þau. En er það í raun slæmt fyrir börn
að foreldrar þeirra, feður og mæður, séu
útivinnandi?
Áhrif atvinnuþátttöku
foreldra
Það er í sjálfu sér ekki slæmt fyrir börn
að foreldrar þeirra séu útivinnandi. Hvernig
við vinnum hefur hins vegar áhrif á það
hvernig við sinnum hlutverki okkar sem for-
eldrar. Í því sambandi ber fyrst að nefna
vinnutíma. Gott samband á milli foreldra og
barna myndast ekki án þess að foreldrar
veiti börnum sínum tíma. Eftir því sem
vinnutíminn er lengri hafa foreldrar tak-
markaðri tíma til þess að sinna börnunum
sem getur haft ýmsar – jafnvel alvarlegar –
afleiðingar. Rannsóknir hafa t.d. sýnt fram
á að viðvarandi yfirvinna foreldra hefur m.a.
neikvæð áhrif á málþroska barna og að
fylgni er á milli þess tíma sem börn eyða
með fjölskyldu sinni utan skólatíma og
minnkandi líkum á að þau hefji notkun tób-
aks, áfengis og annarra fíkniefna.
Eðli starfa getur einnig haft neikvæð
áhrif á fjölskyldulíf starfsmanna. Rannsókn
á meðal foreldra í stjórnunar- og sérfræð-
ingsstörfum leiddi í ljós að lengd vinnutíma
viðkomandi foreldra hafði ekki áhrif á hegð-
un barnanna heldur skipti máli að hve miklu
leyti álagið sem störfunum fylgdi hafði áhrif
á fjölskyldulífið. Hegðunarvandamál voru
t.d. algengari hjá börnum sem áttu foreldra
sem tóku slíkt álag með sér inn á heimilið.
Þessi niðurstaða þarf samt sem áður ekki að
þýða að ekki skipti máli hversu langur
vinnudagur viðkomandi foreldra er, því eins
og áður sagði myndast gott samband á milli
foreldra og barna því aðeins að foreldrar
hafi tíma fyrir börnin sín.
Áhrif atvinnuþátttöku
móður
Það er vert að skoða betur niðurstöðu
rannsóknar þess efnis að þátttaka kvenna í
atvinnulífi hafi ekki bein neikvæð áhrif á
samband foreldra við börnin því án efa hef-
ur atvinnuþátttaka valdið konum meira
samviskubiti en körlum í gegnum tíðina. Ef-
laust hefur þar áhrif að lengstum hefur hin
hefðbundna verkaskipting innan fjölskyld-
unnar verið sú að konur annist börn og sjái
um uppeldi þeirra en karlar afli tekna til
framfærslu heimilisins. Viðhorfið hefur
gjarnan verið að eigi konur þess nokkurn
kost skuli þær sinna umönnunarhlutverkinu.
Þá gleymist að konur hafa, ekki síður en
karlar, ánægju af því að vera virkir þátttak-
endur í atvinnulífinu.
Í rannsókninni Ask the Children sem
gerð var af Families and Work Institute í
Bandaríkjunum á árunum 1996–1998 var
kannað hvort atvinnuþátttaka móður hefði
áhrif á viðhorf barna til þess hvernig for-
eldrar sinntu hlutverki sínu. Skoðaðir voru
átta þættir í tengslum við hlutverk foreldr-
anna, m.a. ástúð og umhyggja, athygli, agi,
þátttaka foreldranna í skólastarfi og heima-
námi barnanna og hvort þeir væru til staðar
fyrir börnin þegar um merkisatburði í lífi
þeirra var að ræða og veikindi.
Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að
staða móður á vinnumarkaði hefði á engan
hátt áhrif á viðhorf barna til foreldra sinna.
Ekki skipti máli hvort móðirin vann hluta úr
degi eða allan daginn. Útivinnandi móðir er
annaðhvort til staðar fyrir börnin sín eða
ekki. Það sama gildir um heimavinnandi
móður. Það er persónuleiki móðurinnar og
þau tengsl sem hún myndar við börnin sín
sem skiptir mestu máli.
Nefndir eru þættir á borð við viðhorf
móður, gæði þeirrar umönnunar sem börnin
njóta og væntingar foreldra til barna sinna
sem áhrifaþættir á félagslega og andlega
velferð barna fremur en sú staðreynd að
móðir er heima- eða útivinnandi. Þannig eru
börn sem eiga móður sem líður vel í hlut-
verki sínu, hvort sem hún er heimavinnandi
eða á vinnumarkaðinum, njóta góðrar
umönnunar móður eða þess aðila sem ann-
ast barnið í fjarveru hennar og eiga foreldra
sem hafa heldur meiri en minni væntingar
til barnanna líklegri til að dafna vel.
Gæði vs. magn
samverustunda
Foreldrar sem hafa haft takmarkaðan
tíma til þess að sinna börnunum sínum
kannast eflaust margir við að hafa talið sér
trú um að það séu gæði samverustundanna
sem skipti mestu máli en ekki fjöldi þeirra.
Niðurstaða bandarísku rannsóknarinnar
sýnir fram á að svo er ekki. Bæði gæði og
magn samverustunda foreldra með börnum
sínum skipta máli.
Þrátt fyrir það óskuðu foreldrarnir sem
tóku þátt í rannsókninni sér frekar fleiri
samverustunda með börnum sínum en inni-
haldsríkari stunda. Þeir voru spurðir hvers
þeir myndu óska sér helst ef þeir gætu haft
áhrif á þá þætti sem tengjast vinnu þeirra
og hafa áhrif á börnin. Rúmlega helmingur
útivinnandi foreldra með börn á aldrinum 8–
18 ára sagðist hafa of lítinn tíma með börn-
unum sínum og óskaði sér þess vegna meiri
tíma með þeim – feður í meira mæli en
mæður. Rannsóknin leiddi hins vegar í ljós
að meirihluta barna á aldrinum 8–18 ára
sem eiga útivinnandi foreldra finnst þau
hafa nægan tíma með foreldrum sínum. Ein-
ungis þriðjungur barnanna sagði samveru-
stundir sínar með foreldrunum of fáar.
Börnin upplifðu frekar að þau hefðu of lítinn
tíma með föður sínum en móður – börn á
aldrinum 13–18 ára í meira mæli en börn á
aldrinum 8–12 ára.
Rúmlega helmingur útivinnandi foreldra
átti von á að börn þeirra myndu helst kjósa
meiri tíma með þeim ef þau mættu óska sér
einhvers sem tengdist vinnu foreldranna og
hefði áhrif á líf þeirra. En raunin varð önn-
ur. Æðsta ósk barnanna reyndist vera sú að
foreldrar þeirra fengju hærri laun. Börnin
sögðust jafnframt vilja að foreldrar þeirra
væru almennt ekki eins þreyttir vegna vinn-
unnar og að þeir væru undir minna álagi.
Þreyta og álag voru hins vegar þættir sem
foreldrarnir sjálfir gátu sér í hverfandi mæli
til um að börnin myndu nefna. Dregin er sú
ályktun að börnin setji hærri laun til handa
foreldrunum í fyrsta sæti af því að þau líti
svo á að auknar tekjur myndu létta for-
eldrum þeirra lífið.
Því er eins farið með umönnun og uppeldi
barna eins og svo margt annað í lífinu, s.s.
hjónabandið og vináttuna, að við uppskerum
eins og við sáum. Hvort sem foreldrar hafa
mikinn eða lítinn tíma til þess að sinna
börnunum sínum skiptir öllu máli að þeir
séu til staðar bæði af líkama og sál á þeim
stundum sem ætlaðar eru börnunum. Því
ekkert barn á skilið að foreldrar þess sinni
því af hálfum huga.
Hið gullna jafnvægi vinnu og
fjölskylduábyrgðar
Þegar álag sem fylgir starfi er farið að
hafa neikvæð áhrif á fjölskyldulífið virðist í
fyrstu einfalt að samræma betur vinnu og
fjölskylduábyrgð með því að stytta vinnu-
daginn og skapa þannig aukið svigrúm fyrir
fjölskylduna. Að því gefnu að við höfum efni
á því – hvernig eigum við að láta verða af
því? Er hugsanlegt að sú ákvörðun komi
niður á starfsferlinum í ljósi þess að í sam-
félaginu hefur langur vinnudagur löngum
verið dyggð? Það virðist einfaldlega sið-
ferðilega rangt að segja „ég kæri mig ekki
um of langan vinnudag“.
Starfsumhverfi fyrirtækis ræður því á
endanum, að nokkru leyti, hvaða ákvarðanir
starfsmaður tekur varðandi vinnu og fjöl-
skylduábyrgð. Á vinnustað þar sem tekist
hefur að skapa starfsmönnum gott starfs-
umhverfi líður starfsmanni vel með að bera
upp ósk sína um sveigjanleika í lengd eða
tilhögun vinnutíma. Þá er átt við starfsum-
hverfi sem sýnir starfsfólki stuðning, virð-
ingu, sanngirni og viðurkenningu á þörfum
þess í einkalífi.
Á slíkum vinnustað kemur vinnuveitandi
til móts við þarfir starfsmanna og aðstæður
t.d. með því að gera þeim kleift að draga úr
starfshlutfallinu, minnka yfirvinnu, stytta
vinnuvikuna, leyfa starfsfólki, innan ákveð-
inna marka, að ákveða hvenær dagsins það
hefur störf og lýkur störfum eða með því að
veita starfsfólki leyfi t.d. þegar um páska-,
jóla- og sumarleyfi er að ræða í grunnskóla
barnanna. Betri skipulagning og skipting
verkefna svo og möguleikinn á að vinna
heima fyrir eru ennfremur kostir sem oft
eru skoðaðir í þessu sambandi. Möguleik-
arnir eru margir og henta misvel mismun-
andi fyrirtækjum, starfsemi, einstaklingum
sem og skipulagningu vinnunnar.
Jafnvægi vinnu og fjölskylduábyrgðar
getur orðið að veruleika hjá starfsfólki sem
hefur tekið meðvitaða ákvörðun um betra
samræmi á milli þessara tveggja þátta og
sem jafnframt býr við gott starfsumhverfi.
Skorti viljann til verksins og stuðning af
hálfu vinnuveitanda verður árangurinn
minni. Með góðum árangri er vandamálið þó
ekki úr sögunni. Við munum ávallt standa
frammi fyrir því að á ákveðnum tíma getur
starfið haft forgang fram yfir fjölskyldulífið
og öfugt. Markmiðið er að lágmarka ójafn-
vægi og togstreitu.
ÁHRIF ATVINNUÞÁTTTÖKU
FORELDRA Á BÖRN
Morgunblaðið/Jim Smart
„Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að staða móður á vinnumarkaði hefði á engan hátt áhrif á viðhorf barna til foreldra sinna.“
Niðurstöður nýlegrar
rannsóknar í Bandaríkj-
unum sýna að þátttaka
kvenna í atvinnulífi hafi
ekki bein neikvæð áhrif á
samband foreldra við
börnin en án efa hefur at-
vinnuþátttaka valdið kon-
um meira samviskubiti en
körlum í gegnum tíðina.
Hér er fjallað um samspil
atvinnuþátttöku foreldra
og barnauppeldis.
E F T I R L I N D U R U T B E N E D I K T S D Ó T T U R
Höfundur er rekstrarfræðingur að mennt og starfar
að starfsmannamálum hjá IMG auk þess að ritstýra
vefsvæðinu hgj.is.