Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.2003, Síða 14
L
ISTASAFN Íslands opnar í dag
þrjár sýningar sem allar skír-
skota með ólíkum hætti til stöðu
málverksins og ólíkra hugmynda
um listhugtakið. Yfirskrift sýn-
inganna er Á mörkum málverks-
ins og verða verk eftir Rögnu Ró-
bertsdóttur og Claude Rutault í
efri sölum safnsins og Mike Bidlo í neðri sal.
Ragna Róbertsdóttir færir lausan efnivið
náttúrunnar inn í stífan ramma málverksins
með því að kasta efninu á vegg þar sem það
er ekki alveg landslag, hvorki alveg hlutur
né veggur. Mike Bidlo er bandarískur og
þekktur fyrir verk sín þar sem hann málar
eftir frægustu málverkum 20. aldarinnar í
nýju samhengi þar sem hefðbundnum for-
sendum listsköpunar er snúið á haus. Claude
Rutault, sem er franskur, afneitar málverk-
inu sem eftirlíkingu og flytur þess í stað
verkið út úr rammanum og vekur upp spurn-
ingar um hlutverk og takmarkanir málverks-
ins.
Til þess að fræðast nánar um listamennina
og hvað þeir eiga sameiginlegt leitaði Morg-
unblaðið til Ólafs Kvaran, forstöðumanns
Listasafns Íslands.
Listamaðurinn getur
valið úr því sem er til
„Bidlo tilheyrir þeirri kynslóð listamanna
sem koma fram upp úr 1980, ásamt til dæmis
Richard Prince, Cindy Sherman, Jeff Koons
og Sherrie Levine. Þessi hópur er tengdur
við „appropriation“ list sem við höfum þýtt
sem tileinkun sem felur í sér að listamað-
urinn tileinkar sér hluti eða myndir sem eru
til staðar og endurgerir þá nákvæmlega eða
með smábreytingum. Þetta var einnig eitt
megineikenni popplistarinnar, listamanna
eins og Warhol og Lichtenstein og Sherrie
Levine en Mike Bidlo er tvímælalaust sá
listamaður sem gengur lengst í því að má út
persónu sína og gerir verk sín í 3. persónu,
eða nákvæmar eftirlíkingar af helstu lista-
verkum 20. aldar. Þessi sýning hans hér
heitir Not Picasso, Not Warhol, Not Pollock.
Með þessum kópíum eða eftirlíkingum af
meistaraverkum 20. aldar er jafnframt sett
spurningarmerki við grundvallarhugtök í
myndlist sem varða frumleikahugtakið og
hið listræna sköpunarverk. Einn hefðbund-
inn mælikvarði á gildi verks er til dæmis
frumleiki þess og við tölum um að innra líf
listamannsins birtist í listaverkinu. Það er
sett spurningarmerki við slík atriði og má
rekja til Marcels Duchamp í byrjun aldar-
innar sem sýndi fram á að í listum þarf ekki
að skapa eitthvað nýtt, heldur getur lista-
maðurinn valið úr því sem þegar er til. Bidlo
vinnur út frá þessari hugmynd – en innan
listarinnar. Hann velur sér verkið sem hann
útfærir og tæmir um leið verkið af þeim
sögulegu kringumstæðum sem það er skapað
í. Eitt besta dæmið er mynd hans Stúlkurnar
frá Avignon eftir Picasso frá 1907, sem hann
endurgerir 1984 og rænir þá verkið sinni
upphaflegu merkingu.
Eftirmyndin á sér gríðarlega sterkan sess
í listasögunni. Rómverjar kópíeruðu Grikki
og í allri listmenntun hefur kópían gegnt
miklu hlutverki en list Bidlos hefur snerti-
pukta við kjarnaspurningar í póst-módern-
ismanum um dauða höfundarins. Hún skír-
skotar ennfremur til afstöðu Duchamps um
val listamanns og Bidlo velur úr veru-
leikanum. Hann velur verk úr listasögunni
en ekki landslag eða blómavasa. Picasso er
hluti af þeim verkuleika sem hann velur úr,
samtímis því að varpa kastljósi á lykilhugtök
eins og frumleika og hið listræna sköpunar-
ferli.“
Að loknu málverkinu
Heitið á sýningu Claudes Rutault er Mál-
verkið í sama lit og veggurinn sem það er
hengt á. Hvað er hann að fara?
„Rutault kemur úr allt öðru umhverfi en
Bidlo. Hann er franskur og mér fannst mjög
spennandi að fá verk hans á sýningu hér.
Innsetningar hans fjalla um listaverkið út
frá þeim fyrirmælum sem kaupandinn eða sá
sem pantar verkið fær frá Rutault. Þetta er
nokkuð sem sprottið er úr hugmyndafræði
konseptlistamanna, eins og Laurence Wein-
er, Yoko Ono og fleiri flúxuslistamenn. Rut-
ault hafði verið afstraktmálari í kringum
1960 en út frá verkum Rodschenkos og Mal-
ewitz, sem máluðu einlit verk í upphafi ald-
arinnar, dró Rutault þá ályktun að hinu
hefðbundna málverki væri lokið. Sú viðbót
sem Rutault gerir er að taka málverkið út
fyrir rammann og á vegginn. Instrúksjónir
sem hann setur kaupendum verður raun-
verulega verkið og það má setja upp aftur og
aftur á nýjum stöðum og hann hefur sagt að
verk hans eiga sér mörg, stutt líf.“
En er þá hægt að segja að þetta séu raun-
verulegir málarar?
„Það má spyrja á móti hvað sé raunveru-
legur málari í upphafi 21. aldar. Um mögu-
leika tjáningar, og þá persónulegrar tján-
ingar, hefur verið eitt meginþema
póstmódernismans. Sú heimspekilega um-
ræða sem hefur verið í listaheiminum síðast-
liðin tuttugu ár hefur öðru fremur fjallað um
frumleika, listræna ferlið og endursköpun á
þeim veruleika sem við þekkjum. Svarið við
spurningunni hvað sé raunverulegur málari,
hlýtur að taka mið af þessari umræðu og
þeirri listrænu þróun sem hfur átt sér stað á
undanförnum áratugum. Duchamp svaraði
henni á sínum tíma í upphafi 20. aldar með
því að listamaðurinn „þurfi“ ekki að búa til
nýjan hlut, heldur geti hann valið úr því sem
er til. Bidlo vinnur í þessum anda en gerir
það innan listarinnar og Rutault hefur einnig
snertifleti í list sinni við þessa hefð.“
Er myndlistin þá ekki fremur orðin að
heimspeki en list?
„Stór hluti myndlistarinnar á tuttugustu
öld hefur fjallað um listhugtakið; hvað sé list
og hvað ekki, um frumleikahugtakið og sam-
hengi listarinnar og list Bidlos er ekki aðeins
þau verk sem hann skapar heldur einnig sú
umræða sem þau vekja.“
Landslag fært úr stað
Verk Rögnu Róbertsdóttur á sýningunni
ber heitið Landslag og er gert úr vikri og
muldu glæru gleri sem kastað er á veggina.
Ragna hefur frá því á níunda áratugnum
unnið með náttúruleg og tilbúin form og hef-
ur vinna hennar þróast úr skúlptúrsaðferð
yfir í málverksútfærsluna með ólíku efnis-
vali. Viss gjörningshugsun
fylgir því að flytja vikur úr
íslensku landslagi inn í hús
til að varpa á vegg. Þannig
er landslagið fært úr stað og
sett upp á vegg líkt og mál-
verk af landslagi sem hengt
er upp á vegg. Annars vegar
er þar um að ræða vikur úr
Heklu og hins vegar mulið
gler sem mætti lýsa sem jök-
ullandslagi eða sem beinni
tilvísun í vatnið, eitt af frum-
efnum náttúrunnar. En hvað
á hún sameiginlegt með
þeim Bidlo og Rutault?
„Ástæðan fyrir því að við
völdum verk Rögnu til þess
að sýna með Bidlo og Rut-
ault, er þessi beina og óbeina
skírskotun sem hún hefur í
málverkið,“ segir Ólafur.
„Hún vinnur á veggi, rétt-
hyrndan flöt, og hefur
ákveðna tilvísun í landslagið
og í málverkið. Hraunlands-
lagið í verkum hennar lýsir
fremur frásögn af málverki.“
Verkið birtist sem málverk
Í grein sem listfræðingurinn Eva Heisler
hefur ritað um verk Rögnu segir: „Hraun-
landslag hennar reynir á hversu sýnileg
landslag, byggingarlist og málverk eru …
Verk Rögnu spretta úr reynslu hennar af
einsemd í íslensku landslagi. Listamaðurinn
ver oft mörgum dögum í töluvert líkamlegt
verli við að safna gosefnum og flokka þau.
Að sögn Rögnu eru hraunverkin að nokkru
leyti tilraun til að yfirfæra reynslu hennar af
nándinni við landslagið inn í sýningarrýmið.
Sá verknaður hennar að safna efnislegum
eigindum landslags og koma þeim fyrir inn-
anhúss er bæði einlægur og öfgakenndur, en
jafnframt skondinn og dregur athyglina frá
persónu hennar … Í verkum Rögnu stígur
efniseðlið á yfirborði veggjarins fram sem
málverk. Það má segja að verk Rögnu birtist
sem málverk og þá er átt við að slík birting
sé órjúfanlegur þáttur þess nú á dögum að
við berum kennsl á eitthvað sem „málverk“.
Ólafur bendir á að í þessum texta komi
fram skýringin á því hvernig list hennar
tengist málverkinu. Þetta séu þrír ólíkir
listamenn sem hafi snertiflöt við sömu hug-
myndafræði og bætir við: „Það má segja að
þau séu þrír hnettir á sporbaug kringum
hugtakið málverk.“
Verk eftir Claude Rutault á sýningunni í Listasafni Íslands.
Verk eftir Mike Bidlo.
ÞRÍR HNETTIR Á SPORBAUG
UM HUGTAKIÐ MÁLVERK
Á mörkum málverksins er yfirskrift
þriggja sýninga sem verða opnaðar
í Listasafni Íslands í dag. SÚSANNA
SVAVARSDÓTTIR ræddi við Ólaf
Kvaran, forstöðumann safnsins, um
listamennina þrjá, Rögnu Róberts-
dóttur, Mike Bidlo og Claude Rutault
og hugmyndir þeirra um málverkið. Morgunblaðið/Kristinn
Framlag Rögnu Róbertsdóttur til sýningarinnar.
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. FEBRÚAR 2003