Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.2003, Qupperneq 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. FEBRÚAR 2003
FJÓRIR nýir einsöngvarar hafa verið fast-
ráðnir í vetur við Íslensku óperuna og
þreyta tveir þeirra frumraun sína í hlut-
verkum á sviði óperunnar á frumsýningunni
í kvöld. Það eru þau
Hulda Björk Garð-
arsdóttir, sópran, sem fer
með hlutverk hirðmeyjar
Lafði Macbeth, og Jóhann
Friðgeir Valdimarsson,
tenór, sem fer með hlut-
verk Macduffs. Hvorugt
þeirra er því í aðal-
hlutverkum í Macbeth,
en eru engu að síður í
mikilvægum hlut-
verkum. Hulda Björk er á sviðinu stóran
hluta úr sýningunni og Jóhann Friðgeir
leikur eins konar hetju sýningarinnar –
banamann Macbeths.
Hlutverk Macduffs er fyrsta óp-
eruhlutverk Jóhanns Friðgeirs. „Ég er
mjög sáttur við hlutverkið mitt, ekki of
stórt og ekki of lítið. Macduff er í raun góði
strákurinn,“ segir hann um hlutverkið.
„Mig grunar þar fyrstur manna að það sé
eitthvað gruggugt við Macbeth og morðið á
Duncan konungi. Arían fræga, „Ah, la pa-
terna mano“, sem ég syng í byrjun fjórða
þáttar þegar nýbúið er að drepa alla fjöl-
skylduna mína og börn fyrir tilstilli Mac-
beth, fjallar um sorg mína, hefnd og fyr-
irgefningu Guðs ef ég hefni mín – sem ég
geri í lokin.“
Jóhann Friðgeir segist ekki hafa kynnt
sér Macbeth sérstaklega áður en til þess
kom að hann tæki þátt í óperunni nú. „En
ég vissi alltaf af þessari aríu í henni, þó ég
hefði ekki sungið hana. Og þrátt fyrir að
Macbeth sé ekki ein af þessum topp-tíu óp-
erum, er hún gríðarlega flott – sennilega
vegna þess hve stór hún er og mikið vesen í
kringum uppsetninguna á henni,“ segir
hann og bætir við að óperan reyni í mörg-
um tilfellum sérlega mikið á söngvarana,
sérstaklega hlutverk Elínar og Ólafs Kjart-
ans. „Macbeth er þungavigtar-dæmi í
raun,“ segir Jóhann Friðgeir að lokum.
Leiklist ein hliðin á óperu
Hulda Björk var ráðin við Íslensku óp-
eruna frá 1. janúar síðastliðnum. Hún er þó
ekki alls ókunnug sviðinu í Gamla bíói, þar
sem hún söng með Óperukórnum um tíma
fyrir nokkrum árum. „Það
er skemmtileg tilbreyting
að mæta á fastan vinnu-
stað, komast út úr stof-
unni sem hefur verið mitt
aðal vinnuafdrep und-
anfarið. Henni fylgir visst
öryggi sem margir tón-
listarmenn sækjast eftir,“
segir Hulda Björk um
fastráðningu sína.
Hlutverk hirðmeyjar
Lafði Macbeth er eina kvenhlutverk óp-
erunnar fyrir utan lafðina sjálfa, og þó að
það sé ekki stórt í samanburði, er Hulda
Björk mikið á sviðinu í sýningunni. „Leik-
stjórinn gefur hlutverki mínu stórt vægi,
enda er hlutverkið nokkuð mikilvægt fyrir
framvindu verksins. Hirðmærin verður vitni
að ráðagerðum Macbeths og konu hans –
hún veit að hún er í hættu vegna þess hve
mikið hún veit og blandar því lækninum í
málið.“
Hún segir að hlutverk Lafði Macbeth
myndi ekki henta fyrir sína rödd, enda sé
það skrifað fyrir dramatískan sópran. „Ég
vel aftur á móti lýrískari hlutverk, eins og
Súsönnu úr Brúðkaupi Fígarós, Mimi úr La
Bohéme eða Paminu Töfraflautunnar. En
það skemmtilegasta að undanförnu hefur
verið að takast á við hlutverk Jenufu,“ segir
hún, en hún hefur nýlokið við að fara með
titilhlutverk óperunnar Jenufa eftir tékk-
neska tónskáldið Janácek í Norsku óp-
erunni í Ósló.
Hulda Björk segist telja að Macbeth
komi til með að vekja mikla athygli og
höfða til margra. „Leikrit Shakespeares,
tónlist Verdis og síðan þetta sérstaka útlit á
sýningunni – það er mjög spennandi að fá
að taka þátt í þessu,“ segir Hulda Björk að
síðustu.
Fyrsta hlut-
verkið á ís-
lenska óp-
erusviðinu
Jóhann Friðgeir
Valdimarsson
Hulda Björk
Garðarsdóttir
MACBETH – eða skoska leikritiðsem vegna hjátrúar má ekki nefnameð nafni, að minnsta kosti í leik-húsi – er án efa eitt þekktasta og
vinsælasta leikrit Williams Shakespeares.
Þrátt fyrir að óperan sem Giuseppe Verdi
samdi eftir leikritinu skipi ekki sama sess
meðal verka hans, þykir hún engu að síður ein
af stærri óperum tónlistarsögunnar og er
reglulega á fjölum helstu óperuhúsa heims.
Íslenska óperan ræðst nú til atlögu við þetta
stóra verkefni, með þátttöku um fimmtíu
söngvara. Þetta er í fyrsta sinn sem Macbeth
er færður á svið hinnar íslensku óperu, en
þetta er 45. verkefni Íslensku óperunnar.
Leikstjórinn, Jamie Hayes, kemur nú öðru
sinni til starfa við Íslensku óperuna, en árið
2001 leikstýrði hann La Bohéme með Ólafi
Kjartani Sigurðarsyni, Macbeth kvöldsins, og
Bergþóri Pálssyni í aðalhlutverkum. Þetta er í
fyrsta sinn sem hann tekst á við Macbeth í óp-
eruformi og segir hann að sér lítist vel á.
„Verdi var mikill aðdáandi Shakespeares.
Macbeth er skrifuð frekar snemma á ferli
hans, á undan flestum vinsælustu óperum
hans, eins og La Traviata og Rigoletto. Í lok
ferils síns skrifaði hann tvær aðrar óperur eft-
ir leikritum Shakespeares, Ótelló og Falstaff.
En Macbeth ber það með sér að vera skrifuð
af yngri manni en hinar – þó Verdi hafi verið
um fertugt þegar hann skrifaði hana – hún er
mjög lífleg, eins konar Indiana Jones útgáfa af
Shakespeare,“ segir leikstjórinn. Hann segir
tónlistina alveg lausa við viðkvæmni og bætir
því við að Verdi hafi gefið brassbandi sérstakt
vægi í henni, vegna vinsælda slíkra banda um
miðja 19. öldina, en Macbeth var frumsýnd í
Flórens árið 1874. „Manni vill stundum
bregða í brún þegar brassbandið hljómar. Það
virkar ef til vill dálítið eins og að setja lag með
Björk inn í óperu nú til dags!“
Aðalhlutverkin þrjú
Verdi hélt sig að mestu leyti við leikrit
Shakespeares við gerð óperu sinnar, en í óp-
erunni má þó greina að Lafði Macbeth hefur
fengið talsvert meira vægi á kostnað Mac-
beths sjálfs. „Um miðja 19. öldina snerust óp-
erur fyrst og fremst um sópranhlutverkið,
sem skýrir kannski þessa ákvörðun Verdis,“
útskýrir Hayes. „Lafðin er hið raunverulega
illa afl í óperunni, það heyrir maður um leið og
hennar stef hefst. Macbeth er í raun einungis
gerður að fórnarlambi aðstæðna – og illrar
eiginkonu. Oft á tíðum vorkennir maður hon-
um hreinlega.“
Að sögn Hayes sagði Verdi sjálfur að um
þrjú stór hlutverk væri að ræða í óperunni
Macbeth: Macbeth, Lafði Macbeth og kvenna-
kórinn eða Nornirnar. Nornirnar fá mikið
vægi í uppfærslu Hayes og nokkrar þeirra eru
á sviðinu mestalla sýninguna. „Það kemur
skýrt fram í texta Shakespeares að lafði Mac-
beth er að ákalla hið illa og selja því sál sína –
nokkuð í anda Fást. Til þess að draga það
fram ákvað ég því að hafa sex af nornunum
sem einskonar fylgiskonur hennar, sem hún
einungis sér. Á endanum verður hún geðveik
og deyr, og það eru í raun þær sem drepa
hana, í skiptum fyrir konungdóminn sem þær
veittu henni og manni hennar.“
Óreiðan í sögunni af Macbeth
Heiðurinn af hönnun leikmyndar á hinn
breski Will Bowen. Eins og margt í leikmynd-
inni gefur til kynna, stundaði Bowen dokt-
orsnám í stærðfræði við Oxford-háskóla. Útlit
leikmyndarinnar er byggt að nokkru leyti á
óreiðukenningu stærðfræðinnar og segir Hay-
es það eiga ákaflega vel við söguna af Mac-
beth. „Óreiðukenningin snýst um það að hvaða
lítill hlutur sem er geti hrundið af stað mikilli
atburðarás – sé fiðrildi drepið, geti heimurinn
farist. Á vissan hátt orsaka nornirnar sams-
konar óreiðu í Macbeth – það litla sem þær
segja honum orsakar borgarstyrjöld milli
Englands og Skotlands og mörg morð. Í byrj-
un litum við einungis til óreiðukenningarinnar
sem útgangspunkts, en hún endaði á því að
verða lykilatriði í hönnun sviðsmyndarinnar.“
Á sama hátt og leikmyndin er óhlutbundin
og framúrstefnuleg, eru búningarnir tímalaus-
ir en um leið nútímalegir. Hin lettneska Krist-
ine Pasternaka hefur hannað þá og er leður,
málmur og einföld litasamsetning af svörtu,
hvítu, silfruðu og rauðu áberandi. „Shake-
speare var í raun ekki að skrifa um 11. aldar
Skotland – að baki skrifum hans lá lýsing á
pólitísku ástandi Englands hans tíma – og
sagan á við hvenær sem er. Því fannst okkur
henta best að búningarnir hefðu ekki vísun í
ákveðinn tíma, fyrr né síðar, né ákveðinn stað.
Í raun er umhverfið sem birtist á sviðinu lík-
ast því að hafa orðið fyrir stórri sprengingu,
og búningarnir bera það með sér að notast sé
við það sem eftir er, eftir slíkan atburð,“ út-
skýrir Hayes.
Hayes lætur vel af starfi sínu hérlendis og
segir marga söngvarana hafa raddir á heims-
mælikvarða til að bera. Hann viðurkennir
jafnframt að hann leggi að þessu sinni í mun
djarfari uppfærslu en í La Bohéme fyrir
tveimur árum. „Þá vissi ég ekki alveg hvernig
leiklistarumhverfið væri hérlendis og valdi því
nokkuð örugga leið – eins og þegar maður
þarf að pakka niður fyrir ferðalag og veit lítið
um staðinn, þá getur maður sér til um hvað
maður þarf að hafa meðferðis. Síðan þá hef ég
hins vegar séð þó nokkuð af leikverkum hér-
lendis og fannst margt mjög spennandi og ný-
stárlegt,“ segir Hayes, sem veit því hverju
hann pakkar fyrir þessa ferð. „Það var
ánægjuleg uppgötvun, því slíkt leikhús hugn-
ast mér mjög. Síst af öllu vil ég sviðsetja raun-
veruleikann – við fáum víst nóg af honum í al-
vörunni.“
Morgunblaðið/Sverrir
Hugmyndafræði leikmyndarinnar er sótt í óreiðukenningu stærðfræðinnar. Will Bowen og Jamie Hayes þykir óreiða einkenna söguna af Macbeth.
VERDI VAR MIKILL AÐDÁ-
ANDI SHAKESPEARES
Óperan Macbeth eftir Verdi verður frumsýnd í Ís-
lensku óperunni í kvöld. Óreiðukenningin, nornir og
gæði íslenskra söngvara var meðal þess sem bar á
góma þegar INGA MARÍA LEIFSDÓTTIR sat
rennsli og ræddi við enska leikstjórann Jamie Hayes.
Ópera byggð á samnefndu leikriti eftir
William Shakespeare
Höfundur: Giuseppe Verdi
Höfundur texta: Francesco Maria Piave
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari
Aðstoðarhljómsveitarstjóri: Beat Ryser
Leikstjóri: Jamie Hayes
Aðstoðarleikstjóri: Auður Bjarnadóttir
Leikmynd: Will Bowen
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Búningar: Kristine Pasternaka
Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir
Kórstjóri: Garðar Cortes
Hlutverk: Ólafur Kjartan Sigurðarson,
Elín Ósk Óskarsdóttir, Guðjón Ósk-
arsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
Hulda Björk Garðarsdóttir, Snorri Wi-
um, Manfred Lemke, Jón Leifsson, Þór
Jónsson, Fjölnir Ólafsson, Ásgerður
Ólafsdóttir og Kór Íslensku óperunnar.
Macbeth
ingamaria@mbl.is