Morgunblaðið - 10.02.2003, Síða 3

Morgunblaðið - 10.02.2003, Síða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 B 3  OLGEIR Sigurgeirsson, knatt- spyrnumaður frá Vestmannaeyjum, er genginn í raðir 1. deildarliðs Breiðabliks. Olgeir, sem er tvítugur, kom inn í lið ÍBV á síðasta ári og spil- aði 13 leiki með því í úrvalsdeildinni.  KEPPT var í nýrri „grein“ á stjörnuhelgi NBA-deildarinnar í Atl- anta um helgina þar sem leikstjórn- andi New Jersey var hlutskarpast- ur. Um var að ræða „keppni í grundvallaratriðum leiksins“ og voru keppendurnir fjórir, allir leik- stjórnendur, þar sem Gary Payton varð annar.  KEPPNIN fólst í því að keppend- ur áttu fyrst að skora úr sniðskoti, rekja knöttinn í gegnum hindranir, gefa brjóstsendingu, skora úr 3 stiga skoti, senda knöttinn á ný áður en skorað var úr sniðskoti. Sá sem náði besta tímanum og gerði fæst mistök sigraði. „NBA-deildin er að gera rétt með slíkri keppni sem sýnir það að leikurinn er mun meira en að troða og skora sem mest. Ég er aðeins góður í grundvallaratriðum leiksins og það er það mikilvægasta þegar upp er staðið,“ sagði Kidd eftir sig- urinn.  DAVID Stern og samtök leik- manna NBA-deildarinnar hafa kom- ist að samkomulagi um að fjölga leikjum í 1. umferð úrslitakeppninn- ar og tekur breytingin gildi í úr- slitakeppninni sem hefst í apríl nk. Þar með þurfa lið að vinna fjóra leiki í fyrstu umferð í stað þriggja áður og þar með geta leikirnir orðið sjö í stað fimm áður. FÓLK PEJA Stojakovic frá Sacramento Kings varði titil sinn í þriggja stiga skotkeppninni sem haldin er samhliða hinum árlega stjörnu- leik í NBA-deildinni í körfuknatt- leik. Keppnin fór fram í Atlanta á laugardag þar sem sömu menn kepptu til úrslita að þessu sinni og í fyrra. Wesley Person frá Memphis Grizzlies varð annar og Brent Barry frá Seattle Sonics þriðji með 17 stig. Stojakovic fékk 22 stig af 30 mögulegum í úr- slitarimmu sinni við Person en báðir voru með 20 stig að lokinni fyrstu umferð. Stojakovic fékk reyndar að reyna sig tvisvar í úr- slitaviðureigninni því í fyrstu til- raun fékk hann merki um að tím- inn væri útrunninn löngu áður en tíminn rann út. Eftir að merkið heyrðist misnotaði Stojakovic tíu skot í röð og var greinilega brugðið við mistökin sem áttu sér stað. Áhorfendur bauluðu á dóm- ara keppninnar sem vildu láta Stojakovic klára að skjóta en eftir umhugsunartíma var ákveðið að hann fengi að endurtaka leikinn. Þetta er í fimmta sinn á átján ár- um sem leikmaður ver titil sinn í þriggja stiga skotkeppninni. Pat Garrity, Orlando varð þriðji með 13 stig, David Wesley, New Orleans fjórði með 12 stig og Ant- oine Walker, Boston fimmti með 7 stig. Stojakovic varði þriggja skota titilinn NORSKI skíðakappinn Kjetil Andre Åamodt skráði nafn sitt í sögu- bækurnar þegar hann hreppti silfurverðlaunin í bruni á heimsmeist- aramótinu á skíðum sem nú stendur yfir á St. Moritz í Austurríki. Þetta voru tólftu verð- laun Åamodts á heims- meistaramóti og hefur engum skíðamanni tekist að næla í fleiri verð- launapeninga. Gullin er fimm talsins, silfrin fjög- ur og bronsin þrjú. Landi Åamodts, Lasse Kjus, hefur á sínum ferli unnið til ellefu verðlauna á HM sem og Marc Gir- adelli frá Lúxemborg. Úrslitin í bruninu urðu óvænt því Austurrík- ismaðurinn Michael Walchhofer varð hlut- skarpastur og vann þar með sinn fyrsta sigur á stórmóti en fjórum sinn- um á þessu tímabili hef- ur annað sætið orðið hlutskipti á heimsbik- armótunum. Åamodt hafnaði í öðru sæti og Svisslendingurinn Bruno Kernen varð þriðji. Åamodt í sögubækur Reuters Kjetil Andre Åamodt NÍTJÁN Íslendingar hafa til- kynnt þátttöku í Vasagönguna á skíðum, sem fer fram í Svíþjóð 2. mars. Þar í hópi er einn 70 ára göngugarpur, Rúnar Sigmunds- son. Akureyringurinn Stefán Jónasson tekur þátt í göngunni í tíunda skipti. Nokkrir kunnir skíðagöngumenn verða meðal þátttakenda, eins og Fljótamað- urinn knái, Trausti Sveinsson, Magnús Eiríksson og Ingþór Bjarnason. Um 40 þúsund þátttakendur hafa skráð sig í gönguna og ganga þeir 40 km. Aston Villa komst yfir strax á 3.mínútu en íslenski landsliðs- maðurinn braut af sér á þeirri 13. og dæmd var víta- spyrna sem Fulham nýtti sér. „Bakvörðurinn okkar var búinn að eiga í vandræðum með Morte á kantinum og hann var sjálfur á rass- inum úti við auglýsingaskiltin þegar ég ætlaði að hjálpa til og „ná hon- um“. „Ég rann of langt á lélegum vellinum og strangt til tekið átti að dæma vítaspyrnu,“ bætti Skaga- maðurinn við og sagði liðið hafa leik- ið illa í heild gegn Fulham. „Þeir skoruðu reyndar „draumamark“ sem tryggði þeim stigin þrjú og lítið hægt að gera við því marki.“ Jóhannes hefur komið sér vel fyrir í úthverfi Birmingham ásamt unn- ustu sinni, Jófríði Guðlaugsdóttur, en þau bíða eftir „stóra leiknum“ sem er á dagskrá eftir um fimm vik- ur þegar von er á frumburði þeirra í heiminn. „Félagið hefur staðið sig frábærlega í að aðstoða okkur við flutninginn frá Spáni. Það er kona á skrifstofu félagsins sem hefur séð um allt sem viðkemur okkur og nú er allt klappað og klárt,“ sagði Jóhann- es, en hann er sáttur við lífið og til- veruna í ensku úrvalsdeildinni. Hann segir að það hafi verið lítið mál að læra nöfnin á félögum sínum í Aston Villa enda hafi hann spilað mikið tölvuleiki þar sem hann bregð- ur sér í hlutverk knattspyrnustjóra. „Ég kunni nánast öll nöfnin þegar ég kom en þekkti engan þeirra per- sónulega. Það eru kynlegir kvistir í þessum hópi líkt og í öðrum liðum. Það er mikil samkeppni í liðinu en leikmenn á borð við framherjann Juan Pablo Angel eru ekki í leik- mannahópnum þessa stundina,“ sagði Jóhannes en Angel kostaði „aðeins“ um 1,1 milljarð ísl. kr. er hann var keyptur til félagsins. „Á þessum stutta tíma sem ég hef verið hjá félaginu er tyrkneski varnar- maðurinn Ozalan Alpay án efa hættulegasti maðurinn á æfingum liðsins. Það er leikið fast á æfingum en menn eru ekki að sparka í menn að óþörfu og í raun hefur það komið mér á óvart hve skemmtilegar æf- ingarnar eru. Menn sem hafa verið hér lengi segja að Graham Taylor hafi aldrei áður „leyft“ mönnum að spila eins mikinn fótbolta á æfing- um.“ Jóhannes skoraði mark beint úr aukaspyrnu í fyrsta leik sínum með liðinu á útivelli gegn Middlesbrough og bjóst hann við því að fá fleiri tæki- færi þegar fram liðu stundir. „Ég mun taka þær spyrnur sem henta réttfættum leikmanni en Þjóðverj- inn Thomas Hitzlsperger tekur þær sem henta örvfættum. „Ég hef feng- ið óskabyrjun sem leikmaður og mætti til leiks með því hugarfari að sanna mig sem leikmaður í ensku úr- valsdeildinni. Hugarfarið hér er mun líkara því sem við eigum að venjast frá Íslandi og allt aðrar áherslur í ensku knattspyrnunni en t.d. á Spáni sem hafði aðra kosti. Mér líkar betur við ákefðina og hraðann sem boðið er uppá í Englandi,“ sagði Jóhannes, en markmið liðsins er að ná a.m.k. 51 stig á leiktíðinni. „Taylor gerir þær kröfu að við bætum okkur sem lið og gerum alltaf betur. Í fyrra fékk liðið 50 stig og það er stefnt að því að gera betur. Við erum að ég held í 12. sæti með 35 stig og það eru 33 stig enn eftir í pottinum.“ Um framhaldið vildi Jóhannes lít- ið ræða þar sem hann ætlaði sér að- eins að einbeita sér að því að leika sem best og sjá svo til hvað gerist í framhaldinu. „Ástandið á leik- mannamarkaðinum hér í Englandi er þannig að það er best að hugsa sem minnst um framtíðina í bili. Ég mun einbeita mér að þessu verkefni og ef ég stend mig opnast mögu- leikar, hér hjá Aston Villa sem og annars staðar,“ sagði Jóhannes Karl, en næsti leikur liðsins er gegn Charlton í London hinn 22. febrúar. „Álagið er ekki búið að vera of mikið en ég á enn eftir að bæta mig mikið á vellinum enda skortir mig leikæf- ingu. Aðrir hlutir eru í stakasta lagi.“ tekið átti að dæma vítaspyrnu,“ segir Jóhannes Karl Guðjónsson JS Sporting Pix ÉG VAR klaufi í leiknum gegn Fulham þar sem ég renndi mér í Boa Morte, snertingin var lítil sem engin en hann lét sig falla eins og stein um leið og hann fékk tækifærið,“ sagði Jóhannes Karl Guð- jónsson í gær, en lið hans Aston Villa tapaði á útivelli, 2:1, gegn Ful- ham í ensku úrvalsdeildinni á laugardag og var það fyrsti tapleikur liðsins frá því að Jóhannes byrjaði að leika með Birmingham-liðinu. ’ Ástandið á leik-mannamarkaðinum hér í Englandi er þannig að það er best að hugsa sem minnst um framtíð- ina í bili. Ég mun einbeita mér að þessu verkefni og ef ég stend mig opnast möguleikar, hér hjá Aston Villa sem og annars staðar. ‘ Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson „Ég var klaufi gegn Fulham“ Jóhannes Karl Guðjónsson, leik- maður Aston Villa, á hér í baráttu við Joseph Job, leikmann Middles- brough, og gefur Jóhannes Karl ekkert eftir. HART BARIST 70 ára Íslendingur í Vasagönguna Dagný í 32. sæti í bruni DAGNÝ Linda Kristjáns- dóttir varð í 32. sæti í bruni á heimsmeistaramótinu í alpa- greinum á skíðum í St. Moritz í Sviss í gær. Dagný var önn- ur í rásröðinni og kom í mark á 1,37,74 mínútum. Melanie Turgeon frá Sviss hrósaði sigri en tími hennar var 1:34,30 mín. Jafnar í 2.–3. sæti urðu Alexandra Meissn- itzer frá Austurríki og Cor- inne Rey-Ballet frá Sviss. 38 keppendur voru skráðir til leiks og luku 36 þeirra keppni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.