Morgunblaðið - 10.02.2003, Side 7

Morgunblaðið - 10.02.2003, Side 7
KÖRFUKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 B 7 SIGURÐUR Ingimundarson, þjálf- ari Keflvíkinga, sagðist lítið hafa spáð í Snæfellsliðið fyrir leikinn og einbeitt sér að því að skerpa á styrk- leika Keflvíkurliðsins. „Það eru að- eins góð lið sem komast í úrslitaleik- inn í bikarkeppninni og við lögðum upp með það í farteskinu þrátt fyrir að hafa unnið þennan leik örugg- lega. Við vanmetum ekki liðin sem mætum í svona úrslitaleik og reynd- um að gera okkar hluti eins vel og við gátum,“ sagði Sigurður og var sérstaklega ánægður með varn- arleikinn gegn Snæfelli sem skoraði 71 stig í leiknum og aðeins 33 í fyrri hálfleik. „Við munum slaka aðeins á núna og njóta augnabliksins enda náðum við einum áfanga sem við settum okkur sem markmið fyrir tímabilið. Það er markmiðið að vinna í deildinni og fagna Íslands- meistaratitlinum í vor en það er stutt í næsta stórleik þegar við mæt- um efsta liði deildarinnar í Grinda- vík í deildinni nk. föstudag,“ sagði Sigurður en vildi ekki viðurkenna að hann hefði séð meira spennandi leiki á æfingum liðsins en þann sem liðið lék gegn Snæfelli. „Ég glími við skemmtilegt vandamál sem þjálfari og hef úr stórum hópi að velja. Það stefna allir að að komast í liðið og það er oft erfitt að velja.“ „Munum njóta augnabliksins“ BÁRÐUR Eyþórsson, þjálfari Snæfells, bar sig vel þrátt fyrir að lið hans hefði ekki staðist væntingarnar sem gerðar voru til þess í bikarúrslitaleiknum. Hann taldi að spennustigið hefði verið of hátt hjá mörgum þeirra þrátt fyrir að lögð hefði verið áhersla á að ná því nið- ur. „Við vorum ekki búnir að ná okkar markmiði eftir undanúrslitaleikinn en ég held að spennan og væntingarnar hafi verið of miklar fyrir okkur. Það vita allir leikmenn Snæfells að liðið lék langt, langt undir getu í þessum leik. Við einfaldlega frusum í leiknum og náðum aldrei að finna taktinn,“ sagði Bárður sem tók þátt í úrslitaleik sömu liða árið 1993. „Auðvitað reynir maður að vinna með þá hluti sem ég upplifði sjálfur í þeim leik og miðla af reynsl- unni. Hins vegar var Keflavík of stór biti fyrir okkur í þessum leik, svo einfalt er það,“ sagði Bárður. „Þeir eru einfaldlega betri“ Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæ- fells, sagði að reynsluleysi í þeirra liði hefði gert vart við sig í síðari hálfleik en hann dró ekkert undan er hann sagði andstæðingana hafa verið sterka. „Þeir eru einfaldlegar með betra lið en við. Við gerðum mörg mistök, hjálp- uðum ekki bakvörðunum að koma bolt- anum í leik og Keflvíkingar eru fljótir að þefa slíkt upp. Þessi leikur er mikil upplifun fyrir alla og ég vil þakka stuðningsmönnum liðsins fyrir stuðn- inginn.“ „Lékum langt undir getu“ Snæfell skorti ekki viljann á upp-hafsmínútum leiksins og höfðu í fullu tré við Keflvíkinga í fyrsta leik- hluta. Á þeim kafla náði Stykkishólmslið- ið að halda hraðanum niðri, þeir luku flest- um sóknum sínum með skoti og bar það góðan árangur. Í liði Keflvíkinga fór lítið fyrir Damon Johnson framan af leik og það var ekki fyrr en eftir „slagsmál“ við Hlyn Bæringsson, framherja Snæfells, undir lok fyrsta leikhluta að Johnson fór almennilega í gang. Segja má að „rimma“ þeirra Johnsons og Hlyns hafi verið hápunktur leiksins því að öllu eðlilegu hefði átt að vísa Damon Johnson út úr húsi eftir að hann hafði sýnt tilburði til þess að slá Hlyn sem hefði einnig getað endað utan vallar eftir þessa skorpu. Dómarar leiksins ákváðu hinsvegar að gefa þeim fé- lögum tæknivíti sem var í raun „Sal- omónsdómur“ því margir úr þeirra stétt sem sátu og horfðu á leikinn töldu refsinguna væga. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, brá á það ráð að beita svæðisvörn í öðrum leikhluta og bar það tilætlaðan árangur því langskotin eru veikur blettur í liði Snæfells. Að auki var leikstjórnandinn efnilegi, Helgi R. Guðmundsson, hvíldur um stundarsakir í öðrum leikhluta og átti Snæfellsliðið í miklum erfiðleikum með það eitt að koma knettinum af varnarhelmingi sínum á þessum kafla. Munurinn var 13 stig á liðunum þegar blásið var til leikhlés og náðu Snæfellingar aldrei að klóra í bakk- ann það sem eftir var leiks og Keflvík- ingar sigruðu með 24 stiga mun, 95:71, og tryggðu sér bikarmeistara- titilinn í fjórða sinn en liðið vann bik- arinn í fyrsta sinn árið 1993 er sömu lið áttust við en lokatölur í þeim leik urðu 115:76. Spennustig íþróttamanna þarf að vera rétt í úrslitaleikjum sem þessum og mátti sjá gott dæmi um hve mikill munur var á liðunum hvað þetta varð- ar. Það var líkt og Keflvíkingar væru ekki búnir að ná réttu spennustigi er leikurinn hófst og leikmenn liðsins voru ekki í þeim ham sem einkennir t.d. grannaslagina við Njarðvík. Ann- að var uppi á teningnum í liði Snæ- fells, þar sem flestir leikmenn liðsins léku undir getu og voru í raun yfir- spenntir þegar leikurinn hófst. Vara- menn liðsins létu lítið að sér kveða og hittu mörg skot þeirra ekki einu sinni í körfuhringinn eða spjaldið, slík var spennan. Breiddin í liði Snæfells er ekki mikil en í þessum leik var hún engin. Leikurinn fer seint í sögubækurnar sem einn af eftirminnilegustu bikar- úrslitaleikjum sögunnar. Snæfelling- ar upplifðu þó stemninguna sem fylgir slíku í annað sinn á áratug en að mati þess sem þetta skrifar höfðu flestir leikmanna liðsins upplifað nóg þegar liðið tryggði sér sæti í úrslita- leiknum eftir sigur gegn Hamars- mönnum í undanúrslitum keppninn- ar. Allt annað var uppi á teningnum í liði Keflvíkinga. Leikurinn var aðeins skref í átt að markmiði vetrarins að vinna alla þá titla sem í boði eru. Að- eins þyrfti að gera það sem gera þurfti til þess að leggja liðið að velli. Edmund Saunders og Damon Johnson voru mest áberandi í Kefla- víkurliðinu og Magnús Gunnarsson átti fínar rispur af og til. Að venju var Sverrir Sverrisson sterkur í vörninni auk þess sem Jón Norðdal Hafsteins- son barðist eins og ljón í vörn sem sókn. Allir leikmenn liðsins komust á blað í leiknum og segir það sitt um breiddina í þeirra liði að fyrirliðinn Guðjón Skúlason skoraði aðeins tvö stig í síðasta bikarúrslitaleik sínum. Í liði Snæfells bar mest á þeim Clifton Bush, Hlyn Bæringssyni og Helga R. Guðmundssyni. Clifton og Hlynur skoruðu mest en Helga var ætlað að koma knettinum í leik gegn pressuvörn Keflvíkinga. Hinsvegar mátti hann sín lítils gegn þremur varnarmönnum í einu og félagar hans litu ekki oft á tíðum upp til þess að leika sig fría og af þeim sökum tapaði Helgi oft knettinum gegn ofureflinu. Lýður Vignisson vaknaði til lífsins þegar úrslit leiksins voru nánast ráð- inn. Stuðningsmenn Snæfells fá hins- vegar rós í hnappagatið því þeir lögðu aldrei árar í bát þrátt fyrir mikinn mun á liðunum og að sama skapi voru stuðningsmenn Keflvíkinga öflugir enda mun fjölmennari. Morgunblaðið/Jim Smart Guðjón Skúlason, fyrirliði Keflvíkinga, hefur bikarinn á loft eft- ir sigurinn á Snæfelli í Laugardalshöll á laugardaginn. Öruggt hjá Keflavík KEFLAVÍK er enn á réttri stefnu hvað varðar markmið vetrarins eftir að liðið lagði Snæfell í úrslitaleik bikarkeppni karla á laugardag í frekar bragðdaufum leik, 95:71. Keflavík hefur þar með sigrað í öll- um þeim mótum sem liðið hefur tekið þátt í á þessu keppnistímbili og var greinilegt að þessi sigur var aðeins áfangi að settu mark- miði. Leikmenn Snæfells virtust margir hverjir vera sáttir við það eitt að upplifa stemninguna í Laugardalshöllinni í fyrsta sinn sem leikmenn. Aðeins fimm úr þeirra liði komust á blað og aðeins tveir af tíu náðu að sýna sitt rétta andlit í leiknum. Þrettán stig skildu lið- in að í hálfleik, 46:33, og mestur var munurinn rúm 30 stig í síðari hálfleik en leikurinn leystist upp í vitleysu á lokakaflanum og bæði lið röðuðu niður stigunum. GUÐJÓN Skúlason, fyrirliði Keflavíkurliðsins, tók á móti sig- urverðlaununum í leikslok og lyfti bikarnum hátt á loft í fjórða og lík- ast til síðasta sinn á hans ferli. Bakvörðurinn snjalli lét lítið fara fyrir sér í úrslitaleiknum sjálfum en sagði að leikurinn hefði aðeins verið skref í áttina að markmiði liðsins. „Þetta er í síðasta sinn sem ég hef þennan á loft sem leik- maður,“ sagði Guðjón og benti á bikarinn en hann hyggst leggja keppnisskóna á hilluna frægu í lok tímabilsins. Guðjón var sammála því að hann hefði leikið eftirminni- legri bikarúrslitaleiki á ferli sínum. „Við vorum með leikinn í hendi okkar frá upphafi til enda þrátt fyrir að hafa ekki hrist þá af okkur fyrr en í síðari hálfleik,“ sagði Guðjón og var þegar farinn að huga að deildarmeistaratitlinum. „Við stefnum á alla titlana sem eru í boði, efsta sætið í deildinni og Íslandsmeistaratitilinn að lok- inni úrslitakeppni. Hópurinn sem er að æfa þessa stundina er gríð- arlega sterkur og menn verða að vera á tánum ætli þeir sér í liðið. Það voru leikmenn sem léku ekki í dag í okkar liði sem eru ekkert síðri en þeir sem valdir voru. Ég sé ekkert annað í stöðunni en að við eigum að geta haldið þessu striki áfram.“ Guðjón taldi að Snæfellsliðið hefði mætt til leiks án þess að trúa því að þeir gætu unnið. „Fyrir það fyrsta hafa þeir aldrei unnið okkur og margir úr þeirra liði höfðu aldr- ei leikið til úrslita áður. Við erum með reynslu í svona leik og nýttum okkur það.“ „Í síðasta sinn sem ég hef bik- arinn á loft“ Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.