Morgunblaðið - 10.02.2003, Qupperneq 9
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 B 9
Í raun átti allt Valsliðið góðanleik, þær spiluðu glimrandi
varnarleik á löngum köflum sem
Haukarnir áttu í
miklum vandræðum
með að eiga við.
Leikurinn var jafn í
byrjun og var jafnt
á öllum tölum þar til staðan var
orðin 5:5, þá tóku Valsstúlkur held-
ur betur við sér, vörnin small sam-
an og Berglind lokaði markinu.
Kolbrún Franklín fann sig vel í
sókninni og Valur skoraði fimm
næstu mörk leiksins og breyttu
stöðunni í 10:5. Haukarnir voru þó
ekki á því að gefast upp og tókst
með góðum varnarleik og mikilli
baráttu að saxa á forskot Vals og
síðustu átta mínútur hálfleiksins
skoruðu gestirnir fimm mörk gegn
einu marki gestgjafanna og staðan
því 11 mörk gegn 10 þegar flautað
var til leikhlés.
Seinni hálfleikur hófst líkt og
hinn fyrri, liðin skiptust á að skora
og jafnt var á flestum tölum. Þegar
staðan var orðin 17:18 fyrir Hauka
tók Valur leikhlé. Það nýttu Vals-
stúlkur greinilega vel því þær
skoruðu 5 næstu mörk leiksins og
breyttu stöðunni í 22:18. Það var
munur sem gestirnir náðu ekki að
brúa og lyktaði leiknum með fjög-
urra marka sigri Vals, 27:23.
Berglind Hansdóttir átti stórleik
fyrir Val, hún varði hvorki fleiri né
færri en 24 skot eins og áður sagði,
og þar af varði hún fjögur vítaskot.
Drífa Skúladóttir og Kolbrún
Franklín áttu einnig glimrandi
leik. Varnarleikur Vals var til fyr-
irmyndar á löngum köflum sem
setti sóknarmenn Hauka í mikinn
vanda. Valsstúlkur virtust hafa
mun meiri vilja til að sigra í leikn-
um og var sigur þeirra sanngjarn.
ÍBV tók Fylki/ÍR í karphúsið
Eyjastúlkur héldu uppteknumhætti á laugardag þegar Fylk-
ir/ÍR kom í heimsókn og sigraði
með tuttugu og
tveggja marka mun.
Það voru þó gest-
irnir sem skoruðu
fyrsta markið en
eftir það sáu þær aldrei til sólar.
Eyjastúlkur skoruðu næstu þrjú og
áður en tíu mínútur voru liðnar var
munurinn sex mörk. Heimamenn
juku enn við forskotið og skoruðu
ellefu mörk í röð og voru yfir í hálf-
leik, 20:8. Þrátt fyrir að nánast allt
byrjunarlið ÍBV hafi hvílt megnið
af seinni hálfleik jókst munurinn
jafnt og þétt og áður en yfir lauk
höfðu Eyjastúlkur skorað 37 mörk
gegn 15 mörkum Fylkis/ÍR. Anna
Yakova lék ekki með Eyjastúlkum
í leiknum og Alla Gorkorian spilaði
ekki nema rétt rúmar tuttugu mín-
útur en varð samt markahæst með
níu mörk. Austurrísku stúlkurnar
Sylvia Strass og Birgit Engl áttu
báðar mjög góðan leik. Hjá gest-
unum bar mest á Heklu Daðadótt-
ur sem skoraði rúmlega helming
marka liðsins. Ásdís Benedikts-
dóttir átti ágætis leik í markinu.
Berglind
hetja Vals
VALUR vann nokkuð óvæntan sigur á Haukum, 27:23, á Íslands-
mótinu í handknattleik kvenna á laugardaginn. Haukar féllu við
þennan ósigur niður í þriðja sæti deildarinnar, eru nú stigi á eftir
Stjörnunni en sex stigum á undan Valsstúlkum sem eru í fjórða
sæti. Lykillinn að þessum sæta sigri Valsstúlkna var í markinu. Þar
stóð Berglind Hansdóttir, en hún átti stórleik er hún varði 24 skot í
leiknum.
Morgunblaðið/Þorkell
Drífa Skúladóttir, leikmaður Vals, sækir að marki Hauka og
skorar eitt af átta mörkum sínum.
Benedikt Rafn
Rafnsson
skrifar
■ Úrslit/B10
■ Staðan/B10
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
Jafnt var fram að 4:4 þegar Vil-hjálmur var rekinn af velli. Þó
að hann hafi bara átt að standa í
vörninni vegna þess
að hann er að jafna
sig eftir meiðsli, virt-
ist brottreksturinn
samt hafa áhrif í
sókninni því félögum hans virtist
nokkuð brugðið auk þess að KA-
menn lásu auðveldlega út sóknartil-
burði. Samt tókst Garðbæingum með
einstaklingsframtaki að hanga í
gestunum fram að níundu mínútu
síðari hálfleiks. Þá fékk KA-maður
rautt spjald fyrir að skjóta í höfuð
markvarðar í hraðaupphlaupi en það
hafði engin áhrif því nú skildu leiðir
og næstu 11 mínúturnar skoraði KA
11 mörk á móti einu og staðan 27:15.
Þjálfari KA skipti þá yngri leik-
mönnum af bekknum inná, þeim
tókst að þrauka.
Garðbæingar hljóta að líta vand-
lega í eigin barm eftir þennan leik.
Vörnin var oft gloppótt og sóknar-
leikurinn afar slakur. Árni Þorvarð-
arson varði vel í byrjun og Þórólfur
Nielsen stóð sig best í einstaklings-
framtakinu.
„Ég átti ekki von á að þetta yrði
svona auðvelt,“ sagði Jónatan Magn-
ússon, fyrirliði KA, eftir leikinn. „Við
unnum með einu marki í fyrri leikn-
um svo að við bjuggum okkur undir
hörkuleik en í þessum leik komum
við vel stemmdir en þeir ekki,“ bætti
fyrirliðinn við en hann, Andreus,
Egidijus Petkevicius og Arnór Atla-
son áttu allir góðan leik.
HK hafði það á hörkunni
Harka sem HK-ingar beittu sjálfasig í síðari hálfleik gegn ÍBV í
Digranesi í gær varð til þess að skila
þeim góðum sigri,
30:27, og 2 stigum í
baráttunni um að
komast í hóp fjög-
urra efstu liða í 1.
deild karla í handknattleik. Þrátt
fyrir ágætan endasprett Eyjamanna
máttu þeir játa sig sigraða og eru
enn utan seilingar við úrslitakeppi
deildarinnar.
Leikurinn var í járnum allan fyrri
hálfleik. Eyjamenn skoruðu fyrsta
markið og leiddu lengst af í hálfleikn-
um þar sem tvö mörk skildu mest að.
Leikurinn var gríðarlega hraður í
byrjun, leikmenn beggja liða gerðu
mörg mistök í sóknarleiknum og
skiluðu á tíðum frá sér óvönduðum
skotum og misheppnuðum. Þrátt
fyrir það náðu markverðir hvorugs
liðs að sýna sitt rétta andlit, Björgvin
Gústavsson, markvörður HK, var þó
öllu skárri og skilaði það HK tveggja
marka forskoti í leikhléi, 15:13.
Leikurinn var heldur hægari eftir
hlé, mistökum fækkaði en aftur var
það markvarsla Björgvins Gústavs-
sonar í marki HK, ásamt virkilega
góðri varnarvinnu, sem skilaði þeim
betri leik og þegar upp var staðið
sigri. En HK-ingar hafa líka ákveðið
það í leikhléinu að stemma sig saman
í varnarleiknum, þeir hrópuðu og
kölluðu stemningsorð í varnarleikn-
um og fögnuðu ógurlega þegar þeir
vörðu skot Eyjamanna. Þetta kann
að hafa haft áhrif á leik Eyjamanna
sem náðu alls ekki sínum besta leik
og náðu ekki að yfirvinna varnarleik
og markvörslu HK-inga. Michael
Lauritzen kom sterkur inn í lið ÍBV í
seinni hálfleik og hafði mjög jákvæð
áhrif á leik þeirra. Þá áttu þeir Sig-
þór Friðriksson og Davíð Þór
Oberman góðan leik í liði ÍBV. Hjá
HK léku þeir Björgvin Gústavsson
markvörður og Jón Bersi Ellingsen
best ásamt hægri hornamönnunum
Elías Má Halldórssyni og Samúel
Árnasyni en þeir skoruðu samtals 10
mörk úr hægra horninu.
Morgunblaðið/Kristinn
Alexandr Pettersons, stórskytta Gróttu/KR-liðsins, er hér tekinn föstum tökum af Haukamönn-
unum Robertas Pauzuolis og Þorkeli Magnússyni á Seltjarnarnesi í gærkvöldi.
Tvö rauð spjöld í
öruggum sigri KA
TVEIR sáu rautt er Stjarnan fékk KA í heimsókn í Garðabæinn í gær
– fyrst Garðbæingurinn Vilhjálmur Halldórsson fyrir gróft brot á 7.
mínútu og það virtist slá félaga hans útaf laginu. Gestirnir gengu á
lagið, voru mun sprækari svo að Stjörnumenn sáu aldrei til sólar og
töpuðu 32:26.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar