Morgunblaðið - 08.05.2003, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 B 5
NÚR VERINU fréttir frá Grænlandi síðustu vikurnar
og miðað við þær geri ég ráð fyrir að
veiðin þar verði talsvert meiri en 10
þúsund tunnur eins og stefnt var að.
Þar hafa sjómenn einnig boðið hrogn
á lægra verði en verið hefur hér á
landi, allt niður í 60 þúsund krónur
fyrir tunnuna.“
Eiríkur bendir einnig á að grá-
sleppuvertíðin við Nýfundnaland sé
ekki hafin. Þó að vertíðin þar hafi
brugðist á síðasta ári, sé fátt vitað um
hvað nú verði. „Ef þar verður einnig
góð vertíð verður framboðið alltof
mikið. Auðvitað er það miður að þurfa
að lækka verðið þegar komið er fram
á vertíðina en við sáum okkur knúna
til að bregðast við þessum markaðs-
aðstæðum,“ segir Eiríkur.
Nú eru þrjár kavíarverksmiðjur
starfræktar hér á landi en auk Vignis
G. Jónssonar framleiða Ora og Sig-
urður Ágústsson hf. í Stykkishólmi
kavíar úr grásleppuhrognum. Eftir
því sem Morgunblaðið kemst næst
hafa þessir framleiðendur einnig
lækkað uppgjörsverð á hrognum í 60
þúsund krónur fyrir tunnuna. Ætla
má að þessir framleiðendur kaupi um
þriðjung þeirra hrogna sem koma hér
á land á vertíðinni.
„ÞAÐ lítur út fyrir að það verði of
mikið framboð af grásleppuhrognum
á vertíðinni og því sjáum við okkur
knúna til að lækka verðið,“ segir Ei-
ríkur Vignisson, framkvæmdastjóri
Vignis G. Jónssonar hf., kavíarfram-
leiðanda á Akranesi, en eins og fram
hefur komið hefur fyrirtækið ákveðið
að lækka uppgjörsverð á grásleppu-
hrognum um 10 þúsund krónur, úr 70
þúsund krónum fyrir tunnuna í 60
þúsund krónur.
Eiríkur segir að nú sé mjög góð
grásleppuveiði í Danmörku og eins
hafi veiðin verið ágæt bæði í Noregi
og hér á Íslandi. „Þá byrjuðu Græn-
lendingar sínar veiðar mánuði fyrr en
venjulega og ætla að verða mánuði
lengur að veiðum. Á Grænlandi eru
fjölmargar nýjar innkaupahafnir, auk
þess sem þar eru nú margir nýir að-
ilar í hrognasöltun og bátum á grá-
sleppuveiðum hefur fjölgað. Það lítur
því út fyrir að það verði mjög mikið
framboð af hrognum frá Grænlandi.“
Bjóða lægra verð á Grænlandi
Eiríkur segir að fyrir vertíðina, sem
hófst hér við land 20. mars sl., hafi
verið erfitt að sjá fyrir hvert fram-
boðið yrði. „Við höfum verið að fá
Stefnir í offram-
boð á grásleppu-
hrognum
Kavíarframleiðendur segjast knúnir til að lækka
hrognaverð vegna breyttra markaðsaðstæðna
SAMKVÆMT upplýsingum frá Land-
helgisgæslu Íslands eru þrjú norsk línu-
veiðiskip að veiðum í íslensku fiskveiði-
lögsögunni vestur af landinu. Þau eru
búin að veiða megnið af þeim kvóta sem
þeim var úthlutað skv. reglugerð sjáv-
arútvegsráðuneytisins nr. 135 frá 26.
febrúar sl. um línuveiðar norskra skipa í
íslenskri fiskveiðilandhelgi árið 2003.
Afli norsku skipanna er orðinn 411
tonn en norskum línuveiðiskipum er
heimilt að veiða í íslensku fiskveiði-
landhelginni samtals 500 tonn af keilu,
löngu og blálöngu miðað við afla upp úr
sjó. Auk þess er þeim heimilt að veiða
alls 125 tonn af öðrum tegundum, þó
ekki meira en 25 tonn af lúðu, 50 tonn af
grálúðu og 50 tonn af karfa miðað við
afla upp úr sjó. Í veiðiferð skal afli í öðr-
um tegundum en keilu, löngu og blálöngu
ekki vera meiri en sem nemur 25% af
samtals afla skipsins í keilu, löngu og
blálöngu. Lúðuaflinn má ekki vera meiri
en sem nemur 5% og afli af grálúðu og
karfa ekki meiri en sem nemur 10% í
hvorri tegund.
Þrjú norsk línuveiðiskip að
veiðum í fiskveiðilögsögunni
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Norskur línubátur á veiðum á Tánni út af Reykjanesi.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins hefur lagt fram
nýja áætlun um verndun þorsk-
stofna í fiskveiðilögsögu ESB. Segir
Franz Fischler, sem fer með sjáv-
arútvegsmál í framkvæmdastjórn-
inni, að grípa þurfi til aðgerða án taf-
ar þar sem þorskur sé í
útrýmingarhættu. Þannig séu þorsk-
stofnar í Norðursjó, Skagerrak og í
sjónum umhverfis Bretland þegar í
verulegri hættu.
Dregið hefur verið úr þorskkvót-
um árlega á undanförnum árum en
samt eru þorskstofnar víða langt
undir hættumörkum. Fischler legg-
ur nú til að í stað þess að skerða
þorskkvóta árlega verði nú gripið til
aðgerða sem nái til langs tíma. Hann
sagði að þótt þeim verði framfylgt til
hins ýtrasta gæti það tekið stofnana
allt að áratug að ná sér þannig að
veiðar úr þeim verði sjálfbærar.
Sjómenn hafa lýst mikilli andstöðu
við niðurskurðaraðgerðir ESB og
segja að þær og mikill kvótasam-
dráttur eða skerðing á sóknardögum
muni ganga að sjávarútvegi dauðum.
Fischler ætlar samt að fara fram á
það við sjávarútvegsráðherra ESB
að fallast á áætlun hans sem gerir
ráð fyrir að veiðikvótar verði áfram
litlir, eftirlit verði hert og sóknar-
dögum fækkað.
„Þetta mun hafa í för með sér erf-
iðleika hjá mörgum í greininni,“
sagði Fischler við blaðamenn og full-
yrti að um 200 þúsund manns sem
starfa við sjávarútveg í ESB geti
reitt sig á styrki frá sambandinu
meðan ástandið verður verst. Talið
er að um 8 þúsund störf tapist nú í
sjávarútvegi á hverju ári. Fischler
áformar einnig að leggja fram svip-
aðar áætlanir fyrir kola og ýsu á
mikilvægum miðum innan lögsögu
ESB.
Í desember tókst sjávarútvegs-
ráðherrum ESB að koma í veg fyrir
að sett yrði veiðibann á þorsk og
gengu þar gegn ráðleggingum vís-
indamanna. Þeir samþykktu jafn-
framt að endurskipuleggja sjávarút-
veg innan ESB.
Enn frekari þorskfriðun í Norðursjó
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Þorskurinn í Norðursjó, Skagerak og
Eystrasalti er talinn í útrýmingarhættu
og mikillar friðunar þörf.
FYRSTI eldis-
þorskurinn frá Hjalt-
landi var seldur til
Bandaríkjanna í apríl.
Hann var alinn hjá
Johnson Sea Farms
og var seldur á veit-
ingahús í Houston í
Texas. Frá þessu er
sagt í Shetland News.
Fyrirtækið, sem
var frumkvöðull í lax-
eldi á níunda áratugn-
um, seldi allan sinn
þorsk, 10.000 fiska, til
Bandaríkjanna, en
hundrað kíló vildu
þeir fá til að byrja með, 6 mánuðum
áður en aðalslátrun hæfist.
Kaupendur vestra leggja mikla
áherzlu á eldisþorskinn, sem þeir
telja einstaka afurð, gjörólíka þeim
þorski sem veiðist í sjónum og hefur
lifað þar á alls konar æti. Þá er eft-
irspurn eftir þorski vestra skýrð
með hruni þorskstofnins á Mikla-
banka við Nýfundnaland fyrir 10 ár-
um.
600.000 seiði
Johnson Sea Farms hóf þorskeldi
fyrir rúmlega ári, þegar verð á laxi
var í frjálsu falli. Fyrirtækið hefur
nú pantað 600.000 seiði frá klakstöð
í Skotlandi, en þau munu ná mark-
aðsstærð á um tveimur árum. Fjár-
málastjóri fyrirtækisins segir að
þeir kjósi heldur að selja fiskinn á
vetingastaði en í stórmarkaði. „Það
eru að minnsta kosti tveir stórmark-
aðir sem geta tekið við öllu sem við
getum framleitt, en það voru stór-
markaðarnir sem rústuðu laxeldinu.
Við leitum því markaða sem borga
hátt verð fyrir hágæðavöru,“ segir
hann.
Nú hefur annað þorskeldisfyrir-
tæki bætzt í hópinn, en það keypti
35.000 seiði í lok marz. Það er að
hætta í laxeldi og fara í þorskinn
vegna erfiðleika í laxeldinu. Gert er
ráð fyrir að þorskur frá þeim fari á
markað í desember 2004.
Hjaltlendingar
selja eldisþorsk
= allt er framkvæmanlegt Umboðsmenn og söluaðilar um land allt. Nánari upplýsingar er að finna á www.ok.is eða í síma 570 1000
Það er ekki að ástæðulausu að mest seldu netþjónar í heimi eru hp proliant.
Sjálfvirkt eftirlit, stöðugleiki og auðveld uppfærsla er meðal þeirra kosta sem
gera hp proliant að fyrsta valkosti hjá fyrirtækjum um allan heim.
Þegar saman fara stærsti framleiðandi tölva í heiminum og reynsla og örugg
þjónusta Opinna kerfa er valið hp proliant.
Kynntu þér málið og tryggðu starfsemi þinni öryggi og afköst með mest selda
netþjóni í heimi.*
hljóðlátur sigurvegari
+++ hp proliant mest seldi netþjónn í heimi +++
*S
am
kv
æ
m
t I
D
C
er
u
pr
ol
ia
nt
m
es
t s
el
du
n
et
þj
ón
ar
í
he
im
iá
rið
2
00
0,
2
00
1
og
2
00
2.
stöðugleiki
afköst
= hp proliant
+
A
B
X
90
30
31
4