Morgunblaðið - 08.05.2003, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 B 11
NFÓLK S
igurborg hefur verið kjör-
in formaður félags um
fjárfestatengsl, FFT,
sem var stofnað fyrir
rúmum þremur vikum.
Til hvers þarf félag um fjár-
festatengsl?
Það hefur vantað vettvang fyrir
faglega umræðu um samskipti fyr-
irtækja og fjárfesta hér á landi. Við
sem stöndum að FFT teljum að
með stofnun félagsins verði hægt að
skapa grundvöll fyrir þessa um-
ræðu og vekja athygli skráðra fyr-
irtækja á mikilvægi þess að huga að
fjárfestatengslum og góðri upplýs-
ingagjöf til fjárfesta og annarra
markaðsaðila. Yfir 30 manns hafa
nú þegar skráð sig í félagið, sem er
mjög gott, en við viljum sjá enn
fleiri ganga til liðs við okkur. Mark-
miðið er að litið verði á upplýs-
ingagjöf frá hendi fyrirtækja með
jákvæðu hugarfari en ekki sem
kvöð.
Í hverju er starf þitt hjá Össuri
fólgið?
Sem deildarstjóri fjárreiðu- og
kynningardeildar sé ég um öll sam-
skipti við fjárfesta, hluthafa, kaup-
höll og aðra markaðsaðila. Ímynd-
armál félagsins gagnvart fjárfestum
og viðskiptavinum á Íslandi heyra
einnig undir mig. Innan minnar
deildar eru einnig daglegar fjár-
reiður, gjaldeyrisviðskipti, ávöxtun,
ferðamál, samskipti við stjórn fé-
lagsins og margt fleira. Þannig að
það er í mörg horn að líta og alltaf
eitthvað nýtt og spennandi á hverj-
um degi.
Hvernig er að starfa hjá Össuri?
Mjög gaman. Það er mikið að ger-
ast, fyrirtækið hefur stækkað hratt
á stuttum tíma og það hefur verið
gaman að vera þátttakandi í því.
Mörg tækifæri hafa skapast sem ég
hef fengið að njóta.
Hvað með áhugamálin?
Oft gefst lítill tími fyrir áhuga-
málin. Vinnan tekur mikinn tíma og
er líka áhugamál þegar maður
starfar við það sem manni finnst
mjög skemmtilegt. Þegar færi gefst
njótum við fjölskyldan þess að vera
saman og gleymum amstri dagsins.
Á sumrin förum við í bústað fjöl-
skyldunnar og njótum þess að hafa
tíma fyrir okkur. Hjá fjölskyldunni
eru föstudagskvöldin hins vegar
ávallt frátekin, en þá fáum við okk-
ur góðan mat og rauðvín og njótum
þess að vera í friði. Eitt af því sem
við gefum okkur alltaf tíma til að
gera er að fara saman í bíó og á
tónleika.
Föstudagskvöldin
ávallt frátekin
Sigurborg Arnarsdóttir fæddist í
Reykjavík árið 1972. Hún lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ 1994 og BA-prófi
í þýsku og sagnfræði frá Háskóla
Íslands 1998. Að námi loknu starf-
aði hún hjá Endurmenntunar-
stofnun HÍ til ársins 1999 er hún
hóf störf hjá fjármáladeild Össurar
hf. Hún hefur verið deildarstjóri
fjárreiðu- og kynningardeildar fyr-
irtækisins frá hausti 2001. Sam-
býlismaður Sigurborgar er Helgi
Ólafsson, skólastjóri Skákskóla Ís-
lands. Þau eiga soninn Ólaf sem er
tveggja ára.
Morgunblaðið/Jim Smart
NÝR línufiskur er eitt besta fáanlega hráefni sem dregið er úr sjó og
því sívinsælt í matseld. Gildir þá einu hvernig fiskurinn er matreiddur,
soðinn eða steiktur. Það er Stefán Hauksson, trillukarl á Sleipni ÁR frá
Þorlákshöfn, sem býður upp á soðningu dagsins þar sem höfuðskilyrðið
er að nota línufisk, hvaða tegundar sem er. Uppskriftina er að finna á
dagatali Landssambands smábátaeigenda fyrir árið 2003 en þar hafa
trillukarlar tekið saman girnilega fiskrétti sem þeir hafa eldað úr afla
sínum. Verði ykkur að góðu!
Steikið lauk og blaðlauk í smjöri, bætið papriku, gulrótum og sveppum
út í ásamt ananaskurlinu og safanum. Látið krauma smástund. Setjið
rjómaostinn og rjómann út í og látið jafnast út. Þá er fiskurinn skorinn í
bita, settur út í og látinn krauma í 8–10 mín. Bætið nú rækjunum út í og
sjóðið í 1–2 mín. Gott er að bera fram með fersku salati, hrísgrjónum og
smábrauði.
Lúxusfiskréttur
S O Ð N I N G I N
AÐFERÐIN
UPPSKRIFTIN
2 gulrætur, sneiddar
½ dós ananaskurl og safi
150 g rjómaostur
1½ dl matreiðslurjómi
½–1 tsk salt
½ tsk pipar eða ½ tsk papr-
ikuduft
1 tsk karrý
1½ tsk súpukraftur
800 g roðflett línuýsa, skötu-
selur eða annar línufiskur
150 g rækja
150 g humar
200 g ferskir sveppir, sneiddir
1 laukur saxaður
½ blaðlaukur, sneiddur
smjör til steikingar
1 græn paprika
1 rauð paprika
Árni Björn Skafta-
son, hefur verið ráðinn
sem sölustjóri umbúða
í Prentmeti. Hann var
innkaupastjóri hjá Hag-
kaupum 1979–1983,
starfaði sem inn-
kaupastjóri og síðar
sem forstöðumaður í
Miklagarði 1983–1991, var hjá Fyrirtæki
og fjármálum 1991–1996, vann við
sölu- og markaðsmál í Kassagerðinni
1996–2002. Árni Björn er kvæntur Bryn-
dísi Erlingsdóttur sjúkraþjálfara og eiga
þau tvö börn.
Benedikt Sigurðs-
son hefur verið ráðinn
sem prentsmiður í
filmudeild. Benedikt
lauk sveinsprófi í
prentsmíði frá Iðnskól-
anum í Reykjavík
1997. Hann starfaði í
Prentsmiðjunni Odda
1988–2003. Sambýliskona Benedikts
er Jóhanna K. Guðmundsdóttir.
Björn Ægir Val-
geirsson hefur verið
ráðinn sem bókbindari
í bókavinnslu. Björn
lauk sveinsprófi í bók-
bandi árið 2001. Hann
starfaði við bókband í
Félagsbókbandinu Bók-
felli frá 1999 þar til í
mars 2003 er Prentmet keypti rekstur
Bókfells.
Einar Ingvar Eg-
ilsson hefur verið ráð-
inn sem verkstjóri í
bókavinnslu. Einar lauk
sveinsprófi í bókbandi
árið 1963. Hann starf-
aði við bókband í Gut-
enberg 1959–1963,
var verkstjóri í Guten-
berg 1972–1975 og í Félagsbókbandinu
frá 1. mars 1975. Hann keypti Fé-
lagsbókbandið ásamt Leifi Gunnarssyni
1975 og síðan Bókfell 1988. Hann
stofnaði og rak einnig fyrirtækið Mappa
ehf. Hann var forstjóri Félagsbókbands-
ins-Bókfells þar til í mars 2003 er Prent-
met keypti reksturinn. Einar er kvæntur
Höllu Svanþórsdóttur bókagerðarmanni
og eiga þau tvær dætur.
Emelita Ordonez Nocon hefur verið
ráðin sem starfsmaður í bókavinnslu og
frágangi á prentverki í
Prentmeti. Emelita
lauk námi í iðjuþjálfun
árið 1971. Hún starf-
aði við bankastörf hjá
Union Bank í Banda-
ríkjunum 1980–1989,
sem saumakona árin
1993–1997 og við
bókavinnslu hjá Félagsbókbandinu-
Bókfelli frá 1997 þar til í mars 2003 er
Prentmet keypti rekstur Bókfells. Emel-
ita er gift Ólafi Ingólfssyni prófarkales-
ara og eiga þau tvö börn.
Garðar Kristinn Snorrason hefur verið
ráðinn sem vélamaður á límingarvél.
Hann lauk prófi í vélvirkjun frá Héðni hf.
árið 1967 og árið 1970 í vélafræði.
Garðar var vélstjóri hjá Eimskip árin
1970–1977, viðgerðamaður hjá SÍS
1977–1983 og vélamaður á líminga-
vélum í Kassagerðinni 1983–2003.
Garðar er kvæntur Svölu Þórhallsdóttur
og eiga þau tvær dætur.
Helga Perla Guðmundsdóttir hefur
verið ráðin sem starfs-
maður í bókavinnslu
og frágangi á prent-
verki í Prentmeti.
Helga Perla vann sem
starfsmaður í bóka-
vinnslu hjá Fé-
lagsbókbandinu-
Bókfelli frá 1992 til
mars 2003, þegar Prentmet keypti fyr-
irtækið. Helga Perla er gift Marteini Þór
Viggóssyni prentmiðlara og eiga þau
fjögur börn.
Hilmar Halldórsson hefur verið ráðinn
sem sölufulltrúi hjá
Prentmet. Hilmar vann
sem hönnuður í Prent-
met árin 1993–1997,
var framkvæmdastjóri
Gullna hliðsins (Argus-
GH) 1997–2002 og
sölufulltrúi Carol-
Canada í Vancouver í
Kanada 2002–2003. Hilmar er kvæntur
Kolbrúnu Ólafsdóttur bókara og eiga
þau fjögur börn.
Hörður Sigurbjarnason hefur verið
ráðinn sem prentari í Prentmeti. Hörður
lauk sveinsprófi í offsetprentun árið
1986 og fékk meist-
araréttindi 1991. Hann
stundaði nám við
Grafonom í Grafisk tek-
nik og Okonomi í Dan-
mörku og hefur sótt
námskeið í gæða-
stjórnun við Háskóla
Íslands. Hörður vann
sem offsetprentari í Prentsmiðjunni
Odda 1982–1988, við blaðaprentun í
Blaðaprenti hf. 1988–1990 og við off-
setprent í Prentsmiðjunni Eddu 1990–
1991. Hann vann í Plastos 1990–1995
sem prentari og verkstjóri. Árin 1995–
1997 vann hann við offsetprentun í Not-
ex tryk & Design í Danmörku og í Staf-
rænu prentstofunni (Leturprent) 2000–
2001 og sem prentari í Kassagerðinni
2001 til 2003. Hörður er kvæntur Ernu
B. Guðlaugsdóttur og þau eiga þrjú
börn.
Ingi Örn Haf-
steinsson hefur verið
ráðinn sem bílstjóri í
Prentmet. Ingi Örn lauk
meiraprófi B, C, D og E
árið 1994. Hann vann
sem bílstjóri hjá Veli
hf. 1998–2000, bíl-
stjóri í BM Vallá 2001–
2002 og hjá Ferskum
kjötvörum 2002–2003.
Kristinn Valdimarsson hefur verið ráð-
inn sem gæðastjóri og
sölufulltrúi umbúða í
Prentmet. Kristinn lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1970 og
lauk B-ed kennaraprófi
frá Kennaraháskóla Ís-
lands 1974. Kristinn
vann sem kennari í Barna- og unglinga-
skólanum á Þingeyri 1970–1971, í
Hagaskóla 1973–1975 og við Héraðs-
skólann á Núpi 1975–1977 og sem
skólastjóri við Grunnskóla Mýrahrepps á
Núpi 1977–1981. Hann var fram-
kvæmdastjóri Fjölritunarstofu Daníels
Halldórssonar frá 1982–2001 og vann
sem gæðastjóri og sölumaður í Kassa-
gerðinni frá 2001–2003. Kristinn er
kvæntur Guðrúnu Ínu Ívarsdóttur hjúkr-
unarfræðingi og ljósmóður og eiga þau
þrjár dætur.
Leifur Gunnarsson
hefur verið ráðinn sem
bókbindari í bóka-
vinnslu hjá Prentmeti.
Leifur lauk sveinsprófi
í bókbandi árið 1974
frá Iðnskólanum í
Reykjavík. Hann vann
sem bókbindari í Fé-
lagsbókbandinu 1970–1988, en fjöl-
skylda Leifs átti og rak Félagsbókband-
ið. Árið 1975 keypti Leifur, ásamt Einari
Egilssyni, Félagsbókbandið og árið
1988 Bókfell. Félagsbókbandið og Bók-
fell voru sameinuð undir nafninu Fé-
lagsbókbandið – Bókfell og Leifur vann
sem verkstjóri í bókbandi þar til í mars
2003 þegar Prentmet keypti reksturinn.
Lovísa Sæmundsdóttir hefur verið
ráðin sem starfsmaður í bókavinnslu hjá
Prentmeti. Hún starf-
aði hjá Félagsbókband-
inu-Bókfelli frá 1989
þangað til í mars 2003
þegar Prentmet keypti
reksturinn. Lovísa er í
sambúð með Haraldi
Gylfasyni vélsmiði.
Lárus Óskar Lár-
usson hefur verið ráð-
inn sem prentari í
Prentmeti. Hann lauk
sveinsprófi í offset-
prenti árið 1998. Lár-
us vann í Prenttækni
1995 til 1998 og í
Gutenberg árin 1998
til 2003. Lárus er í sambúð með Valdísi
Jónsdóttur og eiga þau eitt barn.
Ólöf Ásta Karls-
dóttir hefur verið ráðin
sem starfsmaður í frá-
gangsdeild og í ræst-
ingar hjá Prentmeti.
Ólöf vann við ræst-
ingar hjá ISS og Sec-
uritas 1996–2001 og
sem ræstingastjóri hjá
Ræsti ehf. og Bónbræðrum frá 2001.
Ólöf Ásta er í sambúð með Hermanni
Þorsteinssyni smiði og eiga þau eitt
barn. Ólöf Ásta á tvö börn af fyrra hjóna-
bandi.
Rafn Árnason hefur
verið ráðinn sem verk-
efnisstjóri í plötutöku
hjá Prentmeti. Rafn tók
sveinspróf í setningu
árið 1967. Hann nam
vélsetningu í Prenthúsi
Hafsteins Guðmunds-
sonar árið 1967, filmu-
setningu og -vélaviðgerðir í Lithoprenti
(Monotype-skólanum í London) 1969.
Rafn vann í Félagsprentsmiðjunni Eddu
og Lithoprenti 1968–1972, í Prentsmiðj-
unni Odda 1971–1986 og hjá Auglýs-
ingastofu Kristínar Þorkelsdóttir 1986–
1990. Hann stjórnaði grafískri tölvuvæð-
ingu umbúða í Kassagerð Reykjavíkur
1990–1994, hafði umsjón með prent-
vinnslu og hönnun lyfjaumbúða hjá
Delta frá 1994, var stundakennari við
bókagerðardeild Iðnskólans í Reykjavík,
við tölvukennslu atvinnulausra (hjá FBM)
o.fl. Rafn var formaður sveins-
prófsnefndar í setn-
ingu 1981–1990 og
prófnefndar í prent-
smíði frá upphafi
1990. Hann var í
stjórn Prenttæknistofn-
unar 1994–1996.
Rafn á fjögur börn .
Rúnar Gils Hauks-
son hefur verið ráðinn sem bókbindari í
bókavinnslu í Prentmeti. Rúnar tók
sveinspróf í bókbandi árið 1975 og
danskennaraprófi 1979. Rúnar vann
vann sem bókbindari í Trykeri Balder í
Stokkhólmi árið 1977, sem bókbindari
við Félagsbókbandið 1972–1988 og hjá
Félagsbókbandinu-Bókfelli frá 1988 þar
til í mars 2003 þegar Prentmet keypti
reksturinn. Rúnar starfaði einnig sem
danskennari við Nýja dansskólann árin
1980–1992.
Rúnar Gunnarsson
hefur verið ráðinn sem
sölufulltrúi í Prentmeti.
Hann vann sem sölu-
maður í Formprenti frá
árunum 1983 til
2003. Rúnar er kvænt-
ur Sigríði Guðmunds-
dóttur afgreiðslukonu
og þau eiga tvö börn.
Sigrún Jóna Leifs-
dóttir hefur verið ráðin
sem prentsmiður í um-
brotsdeild hjá Prent-
meti. Hún lauk sveins-
prófi í prentsmíði árið
1988 frá Iðnskólanum
í Reykjavík. Sigrún
vann í sem aðstoð-
armanneskja í prentsmiðjunni Stein-
marki árin 1982–1986 og sem prent-
smiður í Myndamótum 1986–1988, í
Prentsmiðju Friðriks Jóelssonar 1988–
1989, í Prentsmiðjunni Odda 1989–
1993 og í Ísafoldarprentsmiðju 1993–
2002. Sigrún Jóna á eitt barn.
Soffía G. Ólafsdóttir
starfsmaður í frágangs-
deild, f. 13.06. ’56,
vann við aðstoðarstörf
hjá Hólum hf. 1973–
1975, hjá Ísafold-
arprentsmiðju 1975–
1983 og í Bókavirkinu
1997–2002. Soffía er
í sambúð með Jóni Emil Kristinssyni og
eiga þau fjögur börn.
Þorkell Máni Jóns-
son hefur verið ráðinn
sem starfsmaður í
stafrænni prentdeild.
Þorkell Máni lauk
sveinsprófi í prent-
smíði frá Iðnskólanum
í Reykjavík árið 1984
og í vefsmíði árið
2001. Hann vann í Svansprenti 1982–
1990 við skeytingu og plötugerð, við
umbrot í Prentlist 1990–2001 og sem
aðstoðarmaður prentara í Kassagerðinni
2001–2002. Þorkell Máni er kvæntur
Svanhvíti S. Ólafsdóttur myndgreini og
eiga þau þrjú börn.
Nýir starfs-
menn hjá
Prentmeti ehf.