Morgunblaðið - 13.05.2003, Qupperneq 6
KNATTSPYRNA
6 B ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
0 1# Úttektorgunblaðsins
Stofnað: 1935.
Heimavöllur: Grindavík-
urvöllur.
Aðsetur félags: Austurvegur 3,
240 Grindavík.
Sími: 426-8605.
Fax: 426-7605.
Netfang: umfg@centrum.is
Heimasíða: www.umfg.is.
Framkvæmdastjóri: Ingvar
Guðjónsson.
Þjálfari: Bjarni Jóhannsson.
Aðstoðarþjálfari: Guðmundur
Valur Sigurðsson.
Liðsstjóri: Ragnar Ragnars-
son.
Sjúkraþjálfari: Tjerk Bartlena.
Formaður knattspyrnudeild-
ar: Jónas Þórhallsson.
Íslandsmeistari: Aldrei.
Bikarmeistari: Aldrei.
Ungmenna-
félag
Grindavíkur
Ólafur Gottskálksson ver mark
Grindvíkinga í sumar og er óhætt að
segja að koma hans í Suðurnesjaliðið
sé mikill og góður liðsstyrkur. Ólaf-
ur er klárlega í hópi bestu mark-
varða landsins, með mikla reynslu,
litríkur og ákaflega snjall, hvort sem
það er á milli stanganna eða að
sækja knöttinn út í teig.
Sinisa Kekic mun stjórna vörn
Grindvíkinga í sumar en þessi snjalli
Júgóslavi, sem verið hefur í herbúð-
um Grindvíkinga undanfarin ár,
sýndi í fyrrasumar að hann er ákaf-
lega útsjónarsamur og öflugur varn-
armaður. Gestur Gylfason verður
með Kekic í miðvarðarstöðunni og í
bakvarðarstöðunum er líklegt að Óð-
inn Árnason leiki, en þar er á ferð
ungur og efnilegur varnarmaður
sem kom til Grindvíkinga frá Þórs-
urum, og Jóhann Benediktsson sem
er fjölhæfur leikmaður.
Grindvíkingar eru vel mannaðir á
miðsvæðinu. Ólafur Örn Bjarnason
verður þar í lykihlutverki ásamt
Skotanum Paul McShane, sem hefur
þó átt í meiðslum, og Óla Stefáni
Flóventssyni. Grindvíkingar binda
miklar vonir við Lee Sharp en koma
hans í liðið er krydd í íslenska knatt-
spyrnu og fróðlegt verður að sjá
hvernig honum reiðir af.
Grétar Ólafur Hjartarson sýndi og
sannaði í fyrra að hann er einn skæð-
asti sóknarmaður landsins og sókn-
arleikur Grindvíkinga mun að miklu
leyti byggjast á því hvernig honum
tekst upp en Grétar varð marka-
kóngur Íslandsmótsins á síðustu
leiktíð.
GRINDVÍKINGAR fögnuðu í fyrra
sínum besta árangri frá upphafi en
það var kannski helst skortur á
breidd sem olli því að Grindvíkingar
náðu ekki að veita KR og Fylki nægi-
lega harða keppni um titilinn. Á
þessu hafa Grindvíkingar ráðið bót
að einhverju leyti. Þeir hafa fengið
Englendinginn Lee Sharp til liðs við
sig sem fróðlegt verður að fylgjast
með í sumar enda leikmaður sem í
þrígang hefur orðið enskur meistari
með Manchester United og þá hefur
Suðurnesjaliðið fengið varnarmenn-
ina Óðin Árnason og Jóhann Bene-
diktsson, sterka stráka sem auka
breiddina í liðinu. Einn reyndasti
markvörður landsins, Ólafur Gott-
skálksson, er kominn í raðir Grind-
víkinga eftir áralanga útlegð í at-
vinnumennsku og enginn vafi leikur
á því að koma hans í liðið er Grind-
víkingum mikill hvalreki. Það hefur
gengið upp og ofan hjá Grindavík-
urliðinu á undirbúningstímabilinu.
Liðið hefur á köflum sýnt mjög
skemmtileg tilþrif en hefur þess á
milli dottið niður í meðalmennskuna.
Þegar leikmannahópur Grindvíkinga
er borinn saman við önnur lið í deild-
inni leikur enginn vafi á að Bjarni Jó-
hannsson, þjálfari Grindvíkinga, er
með sterkt lið í höndunum sem er vel
mannað út um allan völl og skemmti-
leg blanda leikmanna.
Umgjörð knattspyrnunnar Grind-
vík er glæsileg. Metnaður forráða-
manna Grindvíkinga er mikill og
miðað við árangur undangenginna
ára hlýtur að vera markmið þeirra
gulklæddu að gera atlögu að Íslands-
meistaratitlinum. Miðað við mann-
skapinn sem þeir hafa yfir að ráða er
það raunhæft markmið. Grindvík-
ingar hafa fest sig vel í sessi sem eitt
af betri liðum landsins og ef allt
gengur að óskum verður engin
breyting á því í ár.
Morgunblaðið/Garðar Vignisson
Lee Sharpe, Ólafur Gottskálksson og Óðinn Árnason.
Albert Sævarsson til B68
Atli Knútsson hættur
Heiðar Ingi Aðalgeirsson til Sindra
Jóhann Helgi Aðalgeirsson til Sindra
Scott Ramsay til KR
Vignir Helgason hættur
Helgi Már Helgason frá Reyni S.
Jóhann R. Benediktsson frá Keflavík
Lee Sharpe frá Exeter
Óðinn Árnason frá Þór
Ólafur Gottskálksson frá Brentford
... að Grindvíkingar hafa einu sinni skorað 13
mörk í deildaleik? Það gerðu þeir í gömlu 3.
deildinni árið 1987 þegar þeir sigruðu Aftureld-
ingu, 13:2, í lokaumferðinni. Júlíus Pétur Ing-
ólfsson, sem lék lengi með Skagamönnum, skor-
aði 6 mörk fyrir Grindvíkinga í leiknum.
Ólafur Gottskálksson
Óðinn Árnason
Sinisa Kekic
Gestur Gylfason
Jóhann Benediktsson
Ólafur Örn Bjarnaon
Paul McShane
Lee Sharpe
Ray Anthony Jónsson
Grétar Ó. Hjartarson
Óli Stefán Flóventsson
Líklegt
byrjunarlið
,#
(
M
B
=
-
- )
,$ )
' .
* + -
(
# =
. B
* >
*O
(#
, %
#
B*
+, ) * ,
)#
*
J (
&
/010
/030
/010
/025
/028
/024
/026
/025
/037
/032
/03/
/037
/036
/031
/024
/030
/031
/033
/026
/37
/7
/51
/7
/1
3
5
64
//3
34
5
/57
/58
2
4
60
/5
18
5
6
5
80
5
/
5
5
/
88
0
5
/7
/6
5
5
/
/
43
5
/395
/795
/29/
095
//9/
695
5
/79/
/293
/398
5
/294
/195
295
495
//9/
/59/
/29/4
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
2
//
5
5
5
5
5
/
5
& E
A + G : -#-: . *:
O- ==
Q Q : #: E
:
:
> : > - :
): + ,
> - : < -: NR /
/8
/1
E (#
+ '
*
E#
8
4
6
//
/2
3
2
/5
/6
8/
80
7
1
0
/7
/0
88
84
87
=H--
/012
/024
/026
> - I
=, #J /36
5
5
5
5
5
5
5
5
0
5
5
#-: " : #: +: ;): )
+ ,
: #:
-
&
?" B: #B: ?"B
N -
#: > ; # - -K
8558
9 ) K
„MIÐAÐ við árangurinn í fyrra
og undanfarin ár setjum við okk-
ur það markmið að verða í topp-
baráttunni frá byrjun en ekki í
lokin eins og verið hefur uppi á
teningnum hjá okkur síðustu ár,“
segir Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Grindvíkinga.
„Við höfum einsett okkur að
mæta sterkari til leiks í byrjun
mótsins og það er krafa frá mér
til liðsins að það hali inn fleiri
stig á heimavelli en í fyrra því að
heimavöllurinn er grunnurinn að
góðum árangri. Ég tel hópinn
okkar að mörgu leyti sterkari en
í fyrra en deildin er að sama
skapi orðin sterkari og bestu lið-
in eru að mínu mati miklu betur
mönnuð og skipuð sterkari ein-
staklingum en mörg undanfarin
ár. Ég er bjartsýnn fyrir hönd
míns liðs og hlakka mikið til sum-
arsins.“
Bjarni Jóhannsson
„Verða í topp-
baráttunni
frá byrjun“
Bjarni Jóhannsson