Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 10
KNATTSPYRNA 10 B ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ 2Stofnað: 1929. Heimavöllur: Kaplakriki. Aðsetur félags: Íþróttahúsið Kaplakrika, 220 Hafnarfjörður. Sími: 565-0711. Fax: 555-3840. Heimasíða: www.fhingar.is. Stuðningsmannasíða: this.is/fh Framkvæmdastjóri: Pétur Ó. Stephensen Þjálfari: Ólafur Jóhannesson Aðstoðarþjálfari: Leifur S. Garðarsson Liðsstjórar: Steinar Stephen- sen og Ólafur H. Guðmunds- son. Sjúkraþjálfari: Gunnar Vikt- orsson Formaður knattspyrnudeild- ar: Guðmundur Árni Stefáns- son Íslandsmeistari: Aldrei. Bikarmeistari: Aldrei. Fimleikafélag Hafnarfjarðar Úttekt orgunblaðsins FH-liðið hefur ekki tekið miklum breytingum frá því í fyrra en þá lenti Hafnarfjarðarliðið í sjötta sæti eftir að hafa verið í fallbaráttu megnið af sumrinu. Hilmar Björnsson, einn besti maður liðsins undanfarin ár, er þó horfinn á braut og verður spurn- ing hvernig FH-ingum tekst að fylla skarð fyrirliða síns. Á undirbúnings- tímabilinu hefur allt gengið FH-ing- um í mót. Þeir hafa ekki náð að stilla saman strengi sína en þó eru líkur á að breyting sé að verða til batnaðar hjá þeim eftir að þeir fengu allan sinn mannskap. FH, sem varð deildabikarmeistari á síðustu leiktíð, lenti í neðsta sæti í sínum riðli í vor og tókst aðeins að innbyrða einn sig- ur í keppninni, gegn grönnum sínum í Haukum. Líklega er það sjálfs- traustið í leikmannahópnum sem Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH- inga, þarf með öllum ráðum að berja inn í sitt lið en slæmt gengi á und- irbúningstímabilinu hefur orðið þess valdandi að sjálfstraust leikmanna er ekki ýkja mikið. Markaskorun hefur verið eitt helsta vandamál FH- liðsins á undirbúningstímabilinu og á því þarf liðið að vinna bug ef ekki á illa að fara. Skarðið sem Hörður Magnússon skildi eftir sig í framlínu FH-liðsins hefur ekki tekist að fylla en FH-ingar stóla á að Daninn Allan Borgvardt verði á skotskónum og eins hefur Jónas Grani Garðarsson verið iðinn við að finna netmöskvana í gegnum árin. Ef marka má leiki FH-inga í vor og ef leikmannahópurinn er brotinn til mergjar er líklegt að þeir verði í fallbaráttu í sumar en takist liðinu vel upp í byrjun mótsins og sjálfs- traust leikmanna kemst á hærra stig er aldrei að vita nema þeir geti lyft sér ofar á töfluna. Morgunblaðið/Stefán Stefánsson Dönsku leikmennirnir Tommy Nielsen og Allan Borgvardt. Daði Lárusson hefur varið mark FH-inga undanfarin ár og eru Hafn- firðingar vel settir hvað þessa stöðu varðar. Daði er hávaxinn, með gott grip og sterkur maður á móti manni. Líklega kemur til með að mæða mik- ið á Daða í sumar og því mikilvægt fyrir FH-inga að hann standi vaktina vel líkt og hefur gert síðustu árin. Varnarleikur FH-liðsins er talsvert spurningarmerki. Hilmar Björnsson er horfinn á braut og Freyr Bjarna- son hefur átt við meiðsli að stríða og getur ekki verið með í fyrstu leikjum FH-inga. Daninn Tommy Nielsen, sem FH-ingar hafa fengið til liðs við sig, mun fara fyrir vörn FH-liðsins í sumar en við hlið hans í hjarta varn- arinnar kemur Sverrir Garðarsson, ungur og efnilegur leikmaður, til með að spila. Ásgeir Ásgeirsson get- ur spilað í vörninni líkt og á miðjunni og sömu sögu er að segja um Guð- mund Sævarsson. Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH, mun ráða ferðinni á miðsvæðinu og gengi FH-inga kemur til að ráðast mikið af því hvernig honum tekst upp. Baráttujaxlinn Baldur Bett verður með Heimi í slagnum á miðj- unni ásamt Jónasi Grana Garðars- syni en allir munu þeir gegna lyk- ilhlutverki með FH-ingum í sumar. Í fremstu víglínu verða Atli Viðar Björnsson og Daninn Allan Borg- vardt, dúett sem gæti vel smollið saman, og Jón Þorgrímur Stefáns- son á eftir að skapa færi fyrir þá með hraða sínum og leikni á kantinum. Jónas Grani er ávallt duglegur að stinga sér í sóknina og var marka- hæstur FH-inga síðastliðið sumar með 8 mörk. Daði Lárusson Ásgeir Ásgeirsson Sverrir Garðarsson Tommy Nielsen Freyr Bjarnason Jón Þ. Stefánsson Baldur Bett Heimir Guðjónsson Allan Borgvardt Emil Hallfreðsson Atli Viðar Björnsson Líklegt byrjunarlið Allan Borgvardt frá AGF Hermann Albertsson frá Leiftri/Dalvík Hrafnkell Kristjánsson, byrjaður aftur Sverrir Garðarsson frá Molde Tommy Nielsen frá AGF Benedikt Egill Árnason í Stjörnuna Davíð Ellertsson í Hauka Guðjón Skúli Jónsson í Árborg Hilmar Björnsson í KR Jóhann Georg Möller í Val Valdas Trakys til Litháens  ... FH er eina liðið sem hefur verið taplaust í næstefstu deild án þess að komast upp í þá efstu? Þau voru örlög FH-inga sumarið 1972 þegar of mörg jafntefli komu í veg fyrir að þeir skákuðu ÍBA. Eini ósigur FH var úrslitaleikur bik- arkeppninnar en þeir töpuðu gegn ÍBV, 2:0.            / /8 E  ' >    *    E# 3 0 /3 88    2 /5 // /4 /6 85 8/ 87 82     8 6 7 1 /1 /2 /0 86 83    =H-- /034 /026 > - I    =, #J 43 5 5 5 /295 5 5 5 B    :  > ; #  - -K 8558   9 ) K  % !     N, E  = ,    M     M         )"     > #  + "   %  '      44 5 43 68 5 5 7 80 5 5 5 / 8 5 5 5 / 5 /795 5 /695 /19/ 5 5 695 /595 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 )= ;): : &  E   :  > # 9': '  /02/ /038 /033 /025 /024 /024 /024 /034 /024 /025 /010 /037 /02/ /032 /026 /02/ /026 /037 48 852 23 /5 86 5 6 7 88 / /0 /7 8 4 5 5 8 7 /395 /79/ /494 /598 /294 5 695 798 5 5 1 5 5 5 5 5 5 5 )" - ;): +: ): N F B* : :  #:  "  )" - -  -         & #  C &     - H              #  #             - M $   )      ) - /034 /024 /025 /025 81 3 /0 5 /4 5 2 5 /392 195 097 5 5 5 5 5    ' )= „VIÐ ætlum að reyna að spila skemmtilegan og vonandi árang- ursríkan fótbolta í sumar og um- fram allt hafa gaman af því sem við erum að gera,“ segir Ólafur Jó- hannesson, þjálfari FH-inga, sem aftur er kominn í slaginn hjá Hafn- arfjarðarliðinu eftir nokkurra ára hlé. „Það hefur ekki gengið sem skyldi hjá okkur á undirbúnings- tímabilinu en ég held að þetta horfi til betri vegar. Ég fékk allan hópinn seint saman svo það hefur tekið sinn tíma að slípa hann saman. Við ætlum að reyna að forðast fallbar- áttuna en gerum okkur grein fyrir því að hver einasti leikur verður strembinn þar sem við verðum að hafa mikið fyrir hlutunum,“ segir Ólafur. Ólafur Jóhannesson „Hafa gaman af því sem við erum að gera“    

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.