Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 11
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 B 11 Stofnað: 1946. Heimavöllur: Akranesvöllur. Aðsetur félags: Jaðarsbakkar, 300 Akranes. Sími: 431-3311 (völlur: 433- 1123). Fax: 431-3012. Netfang: gunnars@olis.is Heimasíða: www.ia.is/kia Stuðningsmannasíða: www.gulir.is Þjálfari: Ólafur Þórðarson. Aðstoðarþjálfari: Alexander Högnason. Liðsstjóri: Hafsteinn Gunnars- son. Læknir: Guðjón Guðmundsson. Sjúkraþjálfari: Georg Janus- son. Formaður knattspyrnufélags ÍA: Hörður Helgason. Formaður rekstrarfélags mfl. karla: Gunnar Sigurðsson. Íslandsmeistari: (18) 1951, 1953, 1954, 1957, 1958, 1960, 1970, 1974, 1975, 1977, 1983, 1984, 1992, 1993, 1994, 1995, 1996, 2001. Bikarmeistari: (8) 1978, 1982, 1983, 1984, 1986, 1993, 1996, 2000. Knattspyrnu- félag ÍA Úttekt orgunblaðsins SKAGAMENN mæta til leiks að venju með það eitt að markmiði að vinna alla leiki sem liðið tekur þátt í. Handbragð Ólafs Þórðarsonar, þjálf- ara liðsins, leynir sér ekki þar sem barátta og vinnusemi hafa verið ein- kenni þess. Á sama tíma fyrir ári var útlitið slæmt í herbúðum liðsins þar sem margir leikmenn voru meiddir en nú eru flestir lykilmenn þess heilir. Töluverðar breytingar hafa orðið á leikmannahópi ÍA. Alls hafa átta leikmenn horfið á braut frá liðinu frá því í fyrra og ber þar hæst að Bjarki Gunnlaugsson er nú í KR og Hálfdán Gíslason í Val líkt og Ólafur Þór Gunnarsson markvörð- ur. Bræðurnir Stefán og Þórður Þórð- arsynir hafa bæst í hópinn og styrkja þeir liðið til muna auk þess sem frændi þeirra bræðra, Unnar Val- geirsson, hefur tekið fram skóna á ný eftir eins árs fjarveru. Á Akranesi er bjart yfir stuðnings- mönnum liðsins og menn tala um að væntingarnar séu svipaðar og árið 2001er liðið fagnaði Íslandsmeistara- titlinum nokkuð óvænt – en verð- skuldað. Samkeppnin er mikil um stöður í liðinu og allt eins líklegt að leikmenn sem hafa verið í lykilhlutverki hjá lið- inu undanfarin ár verði minna í sviðs- ljósinu þetta árið. Ólafur hefur notað 4:4:2-leikað- ferðina í vor með ágætum árangri og hefur Stefán Þórðarson breytt miklu í framlínu liðsins þar sem hann er lík- amlega sterkur og getur haldið knett- inum ef svo ber undir. Garðar Gunn- laugsson er líklegur til þess að leika við hlið Stefáns í fremstu víglínu. Grétar Rafn Steinsson og Guðjón Sveinsson hafa leikið vel í vorleikjum liðsins. Baldur Aðalsteinsson er á batavegi eftir erfið meiðsl á hné og í vörninni er tvíeykið Reynir Leósson og Gunnlaugur Jónsson – eitt besta miðavarðapar landsins. Ekki má gleyma hlutverki Pálma Haraldssonar á miðjunni en hann hef- ur verið ein styrkasta stoð liðsins undanfarin ár. Skagamenn mæta brattir til leiks að þessu sinni og 4:1- sigur liðsins gegn KR í deildabikarn- um á eftir að færa þeim aukið sjálfs- traust á komandi vertíð. Morgunblaðið/Árni Torfason Bræðurnir Þórður og Stefán Þórðarsynir leika á ný með Skaga- mönnum og eru þeir liðinu mikill styrkur. Þórður Þórðarson mun standa í marki Skagamanna í sumar en hann er reyndur leikmaður sem veit hvað þarf til þess að ná árangri. Ólafur Þór Gunnarsson er horfinn á braut í raðir Valsmanna en Þórður á eftir að fylla skarð hans af kostgæfni. Eyþór Frímannsson verður varamarkvörð- ur liðsins en hann er lítt reyndur í efstu deild. Vörnin hefur verið sterk hjá Skaga- mönnum undanfarin ár og hafa þeir Reynir Leósson og Gunnlaugur Jónsson verið kjölfestan í vörninni. Samvinna þeirra er með því besta sem þekkist í úrvalsdeildinni. Andri Karvelsson hefur vaxið sem leik- maður í vorleikjum liðsins sem vinstri bakvörður og Unnar Val- geirsson hefur komið á óvart í stöðu hægri bakvarðar, en Hjálmur Dór Hjálmsson má því vart misstíga sig mikið í sumar. Grétar Rafn Steinsson og Pálmi Haraldsson verða í lykilhlutverki á miðjunni. Grétar er kraftmikill leik- maður með gríðarlega yfirferð en hefur ekki verið eins sókndjarfur og sumarið 2001 er liðið fagnaði meist- aratitlinum. Pálmi er vanmetinn leikmaður sem ávallt skilar sínu en úti á vængjunum verða þeir Kári Steinn Reynisson og Guðjón Sveins- son og Ellert Jón Björnsson mun blanda sér í þá baráttu. Stefán Þórðarson er á ný í gula bún- ingnum en hann lék með Stoke áður. Hann kemur með aðrar víddir í sóknarleik liðsins. Hjörtur Hjartar- son verður ekki með í lokakafla mótsins þar sem hann heldur til náms í ágúst og eflaust mun Garðar Gunnlaugsson fá fleiri tækifæri af þeim sökum. Garðar býr yfir miklum hraða sem nýtist vel við hliðina á Stefáni. Hins vegar gæti brugðið til beggja vona í sókninni þar sem Stef- án hefur verið lengi frá vegna veik- inda og stöðugleikinn hefur ekki ein- kennt framherja Skagaliðsins. Þórður Þórðarson Hjálmur Dór Hjálmsson Reynir Leósson Gunnlaugur Jónsson Andri Karvelsson Kári Steinn Reynisson Pálmi Haraldsson Grétar Rafn Steinsson Guðjón Sveinsson Stefán Þórðarson Garðar Gunnlaugsson Líklegt byrjunarlið Eyþór Ó. Frímannsson frá Bruna Unnar Örn Valgeirsson frá Bruna Þórður Þórðarson frá KA Stefán Þórðarson frá Stoke Bjarki B. Gunnlaugsson til KR Hálfdán Gíslason til Vals Hermann Geir Þórsson til Víkings Ó. Jón Þór Hauksson til Aftureldingar Ólafur Þór Gunnarsson til Vals Páll Gísli Jónsson til Breiðabliks Sturla Guðlaugsson til Aftureldingar Sturlaugur Haraldsson hættur  ... Skagamenn skoruðu 10 mörk í leik í efstu deild fyrir 30 árum og aftur fyrir 10 árum? Teit- ur Þórðarson skoraði 6 mörk í 10:1 sigri á Breiðabliki árið 1973 og Alexander Högnason gerði þrennu í 10:1 sigri á Víkingi árið 1993. ) - > -"         + ,  >  <              '       .J   %       - )   .  -  M%   %   *    (# &    J  +#        .J  .J   &          # &  &      + ,  &           ) -J  *   #$   *   /030 /036 /030 /033 /026 /028 /026 /028 /025 /036 /021 /028 /017 /028 /025 /024 /026 /036 /037 /036 /024 /024 /024 /021 8/ 03 2/ 41 5 45 / 45 78 /74 5 /2 /21 62 81 8 5 18 42 /65 5 /3 5 5 5 8 5 5 5 / 5 6 6 2 5 5 82 2 / 5 5 83 /8 81 5 8 5 5 195 /195 /295 5 5 /39/ /95 /296 /89/ /495 5 695 /95 /398 /195 895 5 /291 5 /494 5 /198 5 5 5 /8 5 5 5 5 5 5 8 5 5 5 38 / 5 5 5 5 7 5 5 5 5 5 < -  :     "  =, : >, :     :   ( :     : < -  :   :  :   > #   < -  :   :  ":  * A   : >   / /8 E  &   &    ,$  ( =  E# 0 /5 // /0 8/ 84 83    7 3 2 /4 /6 /7 /1 /2 81 82     4 6 1 /3 85 88 87    =H-- /038 /032 > - I    =, #J /88 5 5 5 /295 5 / 5 ): : EO  :  MM > ; #  - -K 8558   9 ) K „VIÐ stefnum á eitt af þremur efstu sætunum og teljum okkur vera í stakk búna til þess að gera hvaða liði sem er skráveifu,“ segir Ólafur Þórðarson þjálfari deildameistara- liðs ÍA. Hópurinn er að mestu laus við meiðsli, það er samkeppni um flestar stöður í liðinu.“ Ólafur taldi að stemmningin væri fín á Akranesi, væntingum til liðs- ins væri stillt í hóf en samt sem áð- ur vissu allir að kröfurnar væru ávallt þær sömu. „Evrópusæti er það sem allir vilja og síðan verðum við að sjá til hvernig hlutirnir þróast. Við höfum verið að leika 4- 4-2 með ágætum árangri og getum einnig leikið 4-3-3. Ég er bjartsýnn á sumarið og tel okkur með sterk- ara lið en í fyrra,“ sagði Ólafur. Ólafur Þórðarson Eitt af þremur efstu sætunum Ólafur Þórðarson             

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.