Morgunblaðið - 28.05.2003, Blaðsíða 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
L
exus RX300 hefur breyst á alla kanta.
Fyrir það fyrsta hefur bíllinn lengst
umtalsvert, 16 cm, og er auk þess
orðinn 3,5 cm breiðari. Þá er bíllinn
kominn með xenon-ljós með háþrýstispraut-
um, tvívirkri loftkælingu og mörgu öðru.
En mestu munar um útlitsbreytingar,
jafnt að utan sem innan. Bíllinn var straum-
línulagaður en núna má jafnvel segja að yf-
irbyggingin sé orðin „sleikt“ og með nýrri
hönnun yfirbyggingarinnar hefur Lexus náð
vindstuðlinum niður í 0,33 sem er með því
besta í flokki jeppa. Þá er komin aflmeiri út-
færsla af V6-vélinni, 204 hestöfl í stað 201
hestafls áður, auk sem bíllinn er nú boðinn
með nýrri fimm þrepa sjálfskiptingu með
handskiptimöguleika, sem áður vantaði í
þennan bíl. Fyrir vikið nær bíllinn nú 200 km
hámarkshraða sem áður var takmarkaður
við 180 km/klst en engu að síður hefur eyðsl-
an minnkað úr 13 lítrum í 12,2 lítra á hundr-
aðið í blönduðum akstri, miðað við uppgefnar
tölur frá Lexus.
Vel byggður borgarbíll með stíl
Lexus RX300 sver sig í ætt sportjeppa,
þ.e.a.s. bíla sem eru á margan hátt skyldari
fólksbílum en jeppum. Þeir eru með sam-
byggða yfirbyggingu og undirvagn og sí-
tengt fjórhjóladrif án millikassa. Samskonar
bílar eru t.d. BMW X5 og Volvo XC90. Bílar
af þessari gerð hafa notið mikilla vinsælda
hjá þeim sem kjósa traustleika og aksturs-
öryggi fjórhjóladrifsbíla en þurfa síður á því
að halda að komast í óbyggðir á bílum sín-
um. Þetta eru því fyrst og fremst vel byggðir
borgarbílar með öllum þægindum og tals-
verðum stíl.
Bíllinn er boðinn í tveimur útfærslum og
eingöngu með V6-bensínvélinni og fimm
þrepa sjálfskiptingu. Gerðirnar eru RX300
og RX300 EXE. Það sem þarna skilur á milli
er að í EXE bílnum er aukalega leðurinn-
rétting, rafdrifið stýrishjól, minni fyrir raf-
stýrð framsætin, stýri og spegla, regnskynj-
ari, sjálfvirk opnun á afturhlera og 18"
álfelgur í stað 17". Sem sagt hlaðinn búnaði.
Við prófuðum bílinn í EXE-gerðinni.
Að innan blasir við laglega hannað inn-
anrými og efnisval og frágangur er eins og
hann gerist bestur. Áður var millistokkur
milli sætanna plastlegur og stakk í stúf við
annan frágang. Nú er kominn nýr millistokk-
ur klæddur leðri og viðarklæðningu með
hirslum og hann er færanlegur að og frá
sjálfu mælaborðinu. Leðrið í sætunum er
mjúkt og sömuleiðis er leðurklæðning á
hurðarspjöldum, stýri og gírhnúð. Við fram-
sætin eru stillanlegir armpúðar og sætin eru
með rafstýrðri stillingu. Í EXE-gerðinni er
minni fyrir stillinguna. Fyrir miðju mæla-
borðinu er 7" upplýsingaskjár sem sýnir úti-
hita, eyðslu og aðgerðir fyrir tölvustýrða og
tvívirka miðstöðina og loftkælinguna. Fyrir
neðan eru hljómtækin, geislaspilari með
geymslu fyrir sex diska og kassettutæki.
Átta hátalarar sjá um að miðla hljómnum
sem er tær og aflmikill. Þeim sem krefjast
enn meiri hljómgæða stendur til boða magn-
að Mark Levinson hljómkerfi fyrir 200.000
kr. Í EXE er líka rafstýring á veltu og að-
drætti stýrishjólsins.
Sjálfvirk opnun á afturhlera
Mikið fóta- og höfuðrými eru í aftursæt-
unum en þótt gólfið sé slétt fer ekki vel um
fullorðinn farþega í miðjusætinu sem er
minna en hin tvö. Þarna eru að sjálfsögðu
þrír hnakkapúðar og þrjú þriggja punkta
belti. Í miðjum aftursætisbekknum er út-
draganlegur armpúði sem hefur í sér glasa-
haldara og hirslu. Aftursætisbökin má fella
niður á margvíslega vegu, t.d. 100%, 80%,
60%, 40% eða 20% þegar einungis miðbakið
er fellt niður til að koma fyrir veiðistöngum
eða skíðum. Aftursætin eru jafnframt á sleða
sem má renna aftur til að auka enn á þæg-
indi aftursætisfarþeganna, eða fram til að
stækka farangursrýmið.
Frágangur og lausnir eru til fyrirmyndar í
farangursrýminu. Fyrir það fyrsta er aft-
urhlerinn með rafstýrðri opnun frá fjarstýr-
ingunni í EXE-gerðinni sem eykur þægindin
þegar verið er að koma úr kjörbúðinni hlað-
inn pinklum. Síðan nægir að þrýsta á hnapp í
hleranum til að hann lokist sjálfvirkt. Hönn-
uðir bílsins völdu þá leið að færa varadekkið
í lokaðan kassa undir bílinn og auka og bæta
notkunargildi farangursrýmisins í staðinn.
Þetta hefur augljósa kosti í för með sér en
líka ókosti því það er talsvert meira umstang
að ná dekkinu úr aurugum eða rykugum
kassa undir bílnum en undan hlíf í farang-
ursrýminu.
Lætur vel að stjórn
Sem fyrr býðst bíllinn einvörðungu með
3,0 lítra, V6 vél en það hefur verið tekið
meira afl út úr vélinni en áður. Vélin er með
breytilegum opnunartíma á ventlum, VVT-i,
og breytilegu flæði á soggrein. Hún skilar
miklu afli og upptaki sem er vel viðunandi í
þetta stórum bíl, 9 sekúndum úr kyrrstöðu í
100 km, sem er bæting upp á 0,2 sekúndur
frá fyrri gerð. Vélin er hljóðlát og eftirtekt-
arvert er hve vel hefur tekist til með hljóð-
einangrun bílsins. Bíllinn er með drif á öllum
hjólum, sítengt aldrif, með tregðulæsingu.
Hann lætur vel á vegi og býður upp á
mjög fólksbílalega aksturseiginleika. Stýrið
er nákvæmt og sjálfvirkur búnaður sér um
að þyngja það, (eða létta), eftir eftir að-
stæðum hverju sinni. Öflugir diskahemlar
eru öllum hjólum.
Gott verð í samanburði
Lexus RX300 er lúxusbíll sem býður upp á
laglega hönnun, mikil þægindi og aflmikla
vél. Ein af sterkum hliðum bílsins er þægi-
legt verð. Lexus hefur haft þá stefnu að
verðleggja bíla sína í raun undir sannvirði
meðan fyrirtækið er að ná fótfestu á mark-
aði. Þetta var gert í Bandaríkjunum þar til
Lexus náði þar ásættanlegri stöðu og þá um
leið fóru bílarnir að hækka í verði. Lexus
hefur hins vegar ekki náð almennilegri
markaðsstöðu í Evrópu og þess njóta bíl-
kaupendur í verði. Þrátt fyrir umtalsverðar
breytingar til batnaðar í nýrri gerð RX300
er verðhækkunin innan eðlilegra marka.
Luxury í eldri gerðinni kostaði með leðri
5.300.000 kr. en grunngerð nýja bílsins með
leðri 5.440.000 kr. og er sá bíll umtalsvert
betur búinn. Í EXE-gerðinni er verðið komið
upp í 5.640.000 kr. Keppinautar eru BMW
X5 3.0 með 230 hestafla vél sem kostar
6.440.000 kr., Mercedes-Benz ML 350 með
235 hestafla vél kostar 5.750.000 kr. Volvo
XC90 2,5 210 hestafla kostar 5.490.000 kr. og
VW Touareg V6 220 hestafla kostar
5.470.000 kr. Allir eru þessir bílar án leð-
urinnréttingar.
Vel heppnaðar breytingar og meiri búnaður
Morgunblaðið/RAX
Lengri og breiðari — sportlegur og aflmikill.
Laglegur frágangur að innan og mikið af tæknibrellum.
Allt að 50 kg. hurðir
Verð kr. 16.900,-
Bílskúrshurðaropnari TILBOÐ Bílskúrshurðaropnari
Allt að 70 kg. hurðir
Verð kr. 29.000,-
Borgartún 26
sími 535 9000