Morgunblaðið - 23.06.2003, Qupperneq 1
mánudagur 23. júní 2003 mbl.is
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Fasteignablaðið
// Fallegir munir
Sýning fjögurra íslenzkra hönnuða á hús-
gögnum og fleiri munum í Bella Center í
Kaupmannahöfn hefur kallað fram jákvæð
viðbrögð erlendis. 2
// Gæði loftsins
Það er hægt að mæla gæði andrúmsloftsins.
En það er ekki aðeins maðurinn, sem mengar
loftið. Það gera flest efni einnig, þar á meðal
þau efni sem eru á gólfum og í lofti. 38
// Útsýnishús
Hjá fasteign.is er nú til sölu endaraðhús við
Bakkastaði 121. Húsið lagar sig að landslag-
inu og stórir gluggar, opnanlegir að hluta,
snúa til vesturs með miklu útsýni. 40
// Klæðningar
Flotlagnir ehf. í Mosfellsbæ hafa hafið inn-
flutning á múrklæðningum frá enska fyr-
irtækinu Weber SBD. Nota má þessar klæðn-
ingar á hvers konar byggingar. 42
Góðar lausnir,
vandaðar vörur
! " #
$
$
! # "
&'() (
)
*
+,-
. )/
0 *
1 2
3 (4
3 (4
#( '
3 (4
3 (4
55
6
6
65
$
$7
66 %5
$$
$5
6$
65
%
6
8
8
555
6$55
6555
$55
555
$55
!"
!
#
$"
%
$!%
!"
& '
6766
5$ 67
6 (
( (
)
)
( $
6 Á FÖSTUDAGINN kemur rennur
út frestur til þess að skila kaup-
tilboðum í byggingarétt í fyrsta
áfanga Norðlingaholts. Þar er um
að ræða sex lóðir fyrir fjölbýlishús
með samtals 200–217 íbúðum, tvær
lóðir fyrir samtengd tvíbýlishús
með samtals 26 íbúðum og 22 lóðir
fyrir einbýlishús. Samtals tæplega
300 íbúðir.
Norðlingaholt liggur fyrir austan
Seláshverfi, í austurjaðri borgar-
innar. Í næsta nágrenni eru vinsæl
útivistarsvæði eins og Elliðaárdal-
ur, Rauðhólar og Heiðmörk, auk
Elliðavatns og Rauðavatns.
Skipulag hverfisins er unnið af
Tark Teiknistofunni ehf. fyrir
Reykjavíkurborg og Rauðhól ehf.,
sem eru í samstarfi um skipulag og
uppbyggingu hverfisins.
Í hverfinu fullbyggðu verða rúm-
lega 900 íbúðir, grunnskóli, leik-
skólar, verslun og önnur þjónusta
fyrir hverfið. Þá er gert ráð fyrir
atvinnuhúsnæði meðfram Suður-
landsvegi og Breiðholtsbraut, sem
jafnframt því að nýta öflugar teng-
ingar við þessar stofnbrautir, mun
einnig skýla íbúðabyggðinni og
skerma hana af.
Gert er ráð fyrir að bygginga-
rétti í hverfinu verði ráðstafað á
næstu 3–4 árum. Í fyrsta áfanga
eru boðnar lóðir fyrir einbýlishús
sem marka suðausturhluta hverf-
isins og liggja næst ánni Bugðu,
auk lóða fyrir samtengd tvíbýlishús
og fjölbýlishús.
Gatnagerð vegna 1. áfanga
hverfisins er þegar hafin og reikn-
að er með að lóðir í þessum áfanga
verði byggingahæfar fyrir lok
þessa árs.
Samkvæmt framansögðu skal
skila kauptilboðum í fyrsta áfanga
til skrifstofu borgarverkfræðings
fyrir kl. 16 föstudaginn 27. júní nk.
og fyrir sama tíma skulu bjóðendur
hafa greitt tilboðstryggingu sem er
150.000 kr.
Lóðir fyrir nær 300
íbúðir í Norðlingaholti
Gatnagerð vegna 1. áfanga stendur nú sem hæst og er gert ráð fyrir, að lóðir þar
verði byggingarhæfar fyrir lok þessa árs. Í þessum áfanga eru boðnar út sex
lóðir fyrir fjölbýlishús með samtals 200–217 íbúðum, tvær lóðir fyrir samtengd
tvíbýlishús með samtals 26 íbúðum og 22 lóðir fyrir einbýlishús.
UPPBYGGINGIN í 1. áfanga Valla í
Hafnarfirði stendur nú sem hæst,
en þetta hverfi er rétt fyrir ofan
Reykjanesbraut, skammt frá
íþróttahúsi Hauka.
Í þessum áfanga er gert ráð fyrir
rúmlega 200 íbúðum. Stutt er síð-
an fyrstu íbúðirnar fóru í sölu, en
viðbrögð hafa verið góð. „Það er
mjög breiður hópur sem sækist eftir
þessum íbúðum, enda er þarna um
mjög fjölbreyttar íbúðir að ræða,“
segir Þorbjörn Helgi Þórðarson hjá
fasteignasölunni Hraunhamri.
„Þetta eru 2ja, 3ja og 4ra herb.
íbúðir og einnig stórar íbúðir á
tveimur hæðum. Sumar íbúðirnar
eru án bílskúrs, sumar með bíl-
skýlum og enn aðrar með bíl-
skúrum.
Í sumum fjölbýlishúsunum er
sérinngangur en stigagangur í öðr-
um. Það má því segja, að flestir geti
fundið íbúðir við sitt hæfi í þessum
fyrsta áfanga Valla, þrátt fyrir mis-
munandi smekk og óskir.“ 26
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Vellir í
Hafnarfirði