Morgunblaðið - 17.08.2003, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 2003 C 5
Atvinna í boði
Melabúðin - Þín Verslun, Hagamel 39,
óskar eftir fólki til afgreiðslustarfa
Um er að ræða almenn afgreiðslustörf, vinnu
við pökkun, afgreiðslu í kjötdeild, umsjón með
mjólkur- og ostakælum og afgreiðslu á köss-
um.
Einungis 18 ára einstaklingar eða eldri koma
til greina.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar er hægt
að fá hjá verslunarstjóra í síma 551 0224 eða
í versluninni kl. 10-16.
Melabúðin var valin fyrirtæki ársins í flokki
minni fyrirtækja í skoðanakönnun Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur 2003.
Fulltrúi
Félagið óskar að ráða til starfa fulltrúa
á skrifstofu frá og með 1. september.
Um er að ræða hlutastarf.
Starfssvið
Almenn skrifstofustörf s.s. símavarsla, rit-
vinnsla o.fl.
Þjónusta við félagsmenn s.s. undirbúningur
móta, sumarhúsaleiga o.fl.
Er tengiliður félagsins í Evrópuverkefnum
sem félagið tekur þátt í.
Hæfniskröfur
Góð kunnátta í íslensku, ensku og helst einu
Norðurlandatungumáli.
Æskilegt kunnátta í íslensku táknmáli og þekk-
ingar á sögu og menningu heyrnarlausra.
Góð tölvukunnátta.
Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt,
sýnt frumkvæði og vera góð(ur) í mannleg-
um samskiptum.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Gísladóttir,
framkvæmdastjóri í síma 561 3560/896 3445.
Umsóknum skal skilað fyrir 21. ágúst nk. á
skrifstofu Félags heyrnarlausra, Laugavegi 103,
105 Reykjavík, merktar „fulltrúi".
Styrktarfélag
vangefinna
Yfirþroskaþjálfi
Ertu tilbúinn að takast á við skemmti-
legt og krefjandi starf?
Yfirþroskaþjálfi óskast
á Vinnustofuna Ás.
Styrktarfélag vangefinna óskar eftir
yfirþroskaþjálfa í 100% starf. Vinnutími
er frá 8.30 til 16.30 á virkum dögum.
Vinnustofan Ás er verndaður vinnustað-
ur, staðsettur í Brautarholti 6. Þar starfa
um 42 fatlaðir starfsmenn.
Yfirþroskaþjálfi hefur m.a. umsjón með
innra starfi í samráði við for-
stöðuþroskaþjálfa. Starfsreynsla er æsk-
ileg og viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Við leitum að yfirþroskaþjálfa sem:
Hefur góða samstarfshæfileika.
Er sveigjanlegur og tilbúinn að tileinka
sér nýjungar.
Hefur góða skipulagshæfileika og sýnir
sjálfstæði í starfi.
Býr yfir almennri tölvukunnáttu
Við bjóðum:
Góðan stuðning og ráðgjöf.
Ágæta starfsaðstöðu.
fjölbreytt og spennandi verkefni.
Ábyrgð og tækifæri til að vaxa í
starfi.
Umsóknir þurfa að berast til Ás eða á
skrifstofu félagsins í Skipholti 50c fyrir
27. ágúst nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum
Þroskaþjálfafélags Íslands og Styrktar-
félags vangefinna.
Nánari upplýsingar gefur Halldóra Þ.
Jónsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma
562 1620.
Einnig gefur Erna Einarsdóttir, starfs-
mannastjóri Styrktarfélagsins, upplýs-
ingar í síma 551 5941 milli 10.00-14.00.
Hægt er að nálgast upplýsingar um
Styrktarfélagið á heimasíðu þess
http://www.styrktarfelag.is
Kjötsel hefur verið starfrækt í
um 45 ár og framleiðir fjölbreytt
úrval kjötvara fyrir verslanir
Samkaupa hf. og aðra
þjónustuaðila. Í Kjötseli starfa
15 manns.
Við leitum að
rekstrarstjóra
Laust er til umsóknar starf forstöðumanns
kjötiðnaðardeildar Samkaupa hf. í Kjötseli,
Reykjanesbæ.
Kjötsel býður réttum manni traust og öruggt starfsumhverfi, góð kjör og góða
vinnuaðstöðu.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 23. ágúst nk.
Númer starfs er 3153.
Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Netfang: thorir@hagvangur.is
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri.
Innnkaup, framleiðsla og önnur almenn dagleg störf í
kjötiðnaðarfyrirtæki.
Menntun og hæfniskröfur:
Nauðsynlegt að viðkomandi hafi menntun í kjötvinnslu.
Leitað er að traustum, ábyrgum einstaklingi með ríka
þjónustulund.
Starfsreynsla í stjórnun við sambærilegan rekstur er
æskileg.
Skógarhlíð 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • Bréfasími 520 4701 • www.hagvangur.is
Afgreiðslustarf
Olympia undirfataverzlun í Kringlunni, óskar
eftir líflegri og reglusamri starfsstúlku til af-
greiðslustarfa, á aldrinum 20-45 ára.
Heilsdagsstarf/framtíðarstarf.
Umsækjendur komi í viðtal á skrifstofu verzlun-
arinnar, Auðbrekku 24, Kópavogi mánudag
og þriðjudag kl.10—14. Umsóknir einnig mót-
teknar á olympia@olympia.is.
Auðbrekku 24, 200 Kópavogur
Sími: 564-5650 olympia@olympia.is