Morgunblaðið - 17.08.2003, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 2003 C 19
TINDFJALLAJÖKULLrís upp af Fljótshlíð inn-anverðri. Tindar hansog hnúkar standa upp úrhjarnbreiðunni og er
Ýmir þeirra hæstur, 1462 m. Úr
skriðjöklum Tindfjallajökuls falla ár
og heitir sú Valá er fellur um Aust-
urdal niður í Eystri-Rangá. Aust-
urdalur er nánast lokaður dalur,
yfirskyggður staður, en fagur og
gróðursæll. Guðmundur frá Miðdal
segir í árbók F.Í 1960, Suðurjöklar,
að Austurdalur sé ,,afareinkennileg-
ur og fagur. Þar hafa skriðjökull,
jökulár og klettarið háð sína baráttu
um aldir, skilið eftir öldur, urðir og
stórgrýti.“
Laugardaginn 19. júlí síðastliðinn
fór Ferðafélag Íslands í fyrstu
skipulagða ferð sína í Austurdal og
má af því marka að dalurinn er fá-
farinn. Fararstjórinn, Gunnar Sæ-
mundsson, er Rangæingur og hafði
komið fyrst í dalinn sem ungur
drengur og varð það upphafið að
gönguferðum hans um landið. Slíkur
er máttur Austurdals. Hann sagði
okkur að flest örnefni þar byrjuðu á
Val. Hann vakti sérstaka athygli á
Saxa, dökku fjalli sunnan við Tind-
fjallajökul efst í Austurdal en Saxa
verður síðar getið. Leiðin lá inn á
Fjallabaksleið syðri við Hafrafell og
síðan ekið af leið yfir Eystri-Rangá í
Lambadal sem liggur í um 300 m
hæð. Slóðin var slæm síðasta spöl-
inn og rútan ruggaði í ánni.
Stóra-Valagil
Gangan hófst klukkan ellefu eftir
þriggja tíma akstur úr bænum. Sól
hló í heiði. Leiðin lá fyrst upp á
Klofninga meðfram Stóra-Valagili,
hrikalegu gljúfri með hamraveggj-
um, og hlykkjast Valá eftir því. Gilið
er um tvo km á lengd en það nær að
Valafelli, sem lokar nálega Austur-
dal. Eftir nokkra göngu opnast sýn
inn grænan dalinn, en fyrir botni
hans rís hvítur Tindfjallajökull á
bláum feldi og sér í Ými fyrir miðju.
Tvær kvíslar að Valá falla hvor frá
sínum skriðjökli. Línur landsins eru
frá þessum sjónarhól ávalar og
mjúkar. Suðurhlíð á hægri hönd og
Valafell nær, Norðurhlíð á vinstri
hönd og Valahnúkur nær. Einn
ferðafélaginn sagði frá því að hann
hefði staðið uppi á jöklinum fyrir
nokkrum vikum og horft niður í dal-
inn og óskað sér að hann mætti
komast niður í hann. Hann var að
vonum glaður að ósk hans hafði
ræst.
Gamall skriðjökulsfarvegur
Fyrir rúmum fjörutíu árum stóð
Guðmundur frá Miðdal uppi á Saxa
og athugaði umhverfið. Sjónarhorn
hans var vissulega annað og stór-
brotnara en okkar sem horfum inn
dalinn. Lýsing hans í árbók 1960
hefst svo: ,,Verður þá litið norður af
brúninni, en þar er hengiflug ofan á
skriðjökulinn, sem gengur ofan í
Austurdal. Skriðjökullinn hefur
sorfið norðurhlið fjallsins, svo að
víða slútir bergið fram yfir jökulinn,
en dalurinn er gamall skriðjökuls-
farvegur, alldjúpur, barmar víða
snarbrattir. Hið efra eru klettahjall-
ar og malarurðir í dalbotninum, og
hefur jökulsporðurinn gengið tals-
vert til baka í seinni tíð. Neðar í
dalnum er gróður nokkur, og rennur
Valá fram með brúnum beggja meg-
in.“
Niðri í dalnum óðum við Valá í
miðja kálfa en héldum síðan áfram
göngunni með syðri kvíslinni upp
undir jökul. Vestast er dalurinn í um
530 m hæð en hækkar þegar austar
dregur. Hann er um fimm km á
lengd og tvo á breidd. Innar í daln-
um falla fossar í gljúfri og dvöld-
umst við þar nokkra stund.
Við jökulrætur
Við rætur jökulsins er urð og
grjót og hvítfyssandi foss. Þangað
lögðu nokkrir leið sína. Af hæðinni
kul frá jökli og sá til Þríhyrnings í
fjarska. Síðan var haldið til baka
með nyrðri kvíslinni. Í miðjum daln-
um við ána vöktu sérkennileg setlög,
skálög, athygli okkar. Þar hjá voru
nokkrar kindur á beit. Þegar við óð-
um Valá var hringnum lokað. Upp
sandölduna, Klofninga, var haldið og
brátt hvarf dalurinn fagri sjónum
okkar eins og tjald væri dregið fyrir.
Sýningunni lokið. Nú var haldið
stystu leið í rútuna sem hafði beðið
okkar í Lambadal. Þangað komum
við eftir tæplega sjö tíma göngu.
Hitinn hafði verið mikill um daginn
og á leiðinni heim sáum við að fé
hímdi í skugga undir rofabörðum.
Í Austurdal við
Tindfjallajökul
Austurdalur
er afar ein-
kennilegur og
fagur dalur
við Tindfjallajökul. Nýlega
fór hópur frá Ferðafélagi Ís-
lands dagsferð þangað og
var það fyrsta hópferð fé-
lagsins á þær slóðir. Gerður
Steinþórsdóttir segir frá
ferðinni og lýsir stað-
háttum.
Morgunblaðið/Gerður
Skemmtileg setlög framarlega í Austurdal.
Foss innst í Austurdal, við jökulræturnar.
Gengið inn Austurdal með Valá á hægri hönd. Fyrir miðju Tindfjallajökull og Saxi næst honum til hægri.
Höfundur hefur setið í
stjórn Ferðafélags Íslands.