Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 6
KNATTSPYRNA
6 B MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ENN syrtir í álinn hjá Teiti Þórðarsyni og
lærisveinum hans í Lyn. Þeir töpuðu fyrir
Molde, 0:2, á heimavelli í mikilvægum fall-
slag í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
í gær og sitja eftir í þriðja neðsta sætinu.
Helgi Sigurðsson og Jóhann B. Guð-
mundsson voru í liði Lyn en Jóhann fór af
velli í hálfleik og Helgi þegar 5 mínútur
voru eftir. Undir lokin átti Lyn skot í stöng
og þverslá en í stað þess að liðinu tækist að
jafna náði Molde að skora sitt annað mark
á síðustu sekúndunum. Ólafur Stígsson var
varamaður hjá Molde en kom ekki við sögu
og Bjarni Þorsteinsson var ekki með frek-
ar en undanfarið vegna meiðsla.
Fjórir Íslendingar komu við sögu þegar
Lilleström vann stórsigur á Bryne, 4:0.
Indriði Sigurðsson lék í stöðu vinstri bak-
varðar allan tímann og hinir þrír komu all-
ir inn á sem varamenn. Fyrst Ríkharður
Daðason, þá Gylfi Einarsson og loks Davíð
Þór Viðarsson. Félögin höfðu sætaskipti
með þessum úrslitum og Lilleström komst
upp í sjöunda sætið.
Hannes Þ. Sigurðsson lék síðustu 5 mín-
úturnar með Viking sem gerði jafntefli,
3:3, við Brann á heimavelli. Viking féll við
það niður í fimmta sæti deildarinnar.
Rosenborg er áfram með 11 stiga for-
ystu og vann nú Ålesund, 2:0, á útivelli.
Árni Gautur Arason sat á varamannabekk
Rosenborg og kemur því úthvíldur í lands-
leikinn í Færeyjum.
Tryggvi Guðmundsson er enn fjarri
góðu gamni hjá Stabæk vegna meiðsla en
lið hans tapaði, 3:1, fyrir Bodö/Glimt.
Lyn komið í alvar-
lega fallhættu
LOKEREN tapaði, 1:0, fyrir Standard Liege í
belgísku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöld
og hefur ekki náð að skora mark í tveimur
fyrstu umferðunum. Arnar
Grétarsson nýtti ekki gullið færi
til að bæta úr því, en hann náði
ekki að skora úr vítaspyrnu.
Lokeren hafði ekki tapað fyr-
ir Standard í Liege í sex ár og
lék sterkan varnarleik þar. Rúnar Kristinsson
fékk að líta gula spjaldið strax á 5. mínútu fyrir
að nöldra í dómaranum. Þegar ein mínúta var
eftir af fyrri hálfleik var Rúnar felldur í vítateig
Standard og dæmd vítaspyrna. Arnar Grétars-
son tók hana, enda skoraði hann úr 8 víta-
spyrnum Lokeren á síðasta tímabili. Carini,
markvörður Standard, náði að koma fingrunum
í boltann og slá hann í horn. Leikmenn Standard
áttu í mestu erfiðleikum með að komast í gegn-
um varnarmúr Lokeren í síðari hálfleik. Þeir
fengu þó vítaspyrnu en skutu hátt yfir markið.
En þegar allt stefndi í jafntefli náði Aliyu að
koma boltanum í mark Lokeren og tryggja
Standard sigurinn.
Marel Baldvinsson og Arnar Þór Viðarsson
unnu vel í leiknum en Marel virðist eiga í erfið-
leikum með að spila sem fremsti maður. Arnar
Þór er í mjög góðri æfingu og var bestur Íslend-
inganna. Arnar Grétarsson gerði margt gott en
er ekki kominn í sömu æfingu og í fyrra, enda
búinn að vera mikið meiddur og missti talsvert
úr á undirbúningstímabilinu. Rúnar virtist
þreyttur í leiknum og komst aldrei almennilega
í gang en hann var með Marel í fremstu víglínu.
Vítaspyrna Arnars varin
og Lokeren tapaði
Kristján
Bernburg
skrifar frá
Belgíu
Það var mikið fjör á upphafsmín-útunum og á fyrstu sex mín-
útunum hefðu hæglega getað komið
þrjú mörk. Heima-
menn voru nálægt
því að komast yfir
eftir aðeins 30 sek-
úndur en þá komst
Alfreð Jóhannsson einn inn fyrir
vörn FH, eftir varnarmistök hjá
Tommy Nielsen, en hann skaut í
stöngina. Stuttu síðar komst Atli
Viðar Björnsson í upplagt færi.
Hann komst einn á móti Helga Má,
markverði Grindvíkinga, en skot
Atla var ekki nægilega fast og Ólaf-
ur Örn Bjarnason náði til knatt-
arins rétt áður en hann fór yfir
marklínuna. Á 6. mínútu var Atli
aftur nálægt því skora þegar hann
komst í upplagt færi eftir fallega
sókn gestanna en Helgi varði frá-
bærlega skot Atla. Eftir að Grinda-
vík komst yfir fengu FH-ingar tvö
góð færi til að skora áður en þeir
jöfnuðu metin en Helgi varði í bæði
skiptin mjög vel. Stuttu fyrir hálf-
leik fékk Ray Anthony Jónsson
ágætt tækifæri til að koma Grinda-
vík yfir en hann skaut í hliðarnetið
af stuttu færi.
Það var jafnræði með liðunum í
fyrri hálfleik en eins og oft áður í
sumar komu FH-ingar mjög
ákveðnir til leiks í síðari hálfleik.
Hafnfirðingar gerðu út um leikinn á
fyrstu fimm mínútunum í síðari
hálfleik þegar þeir skoruðu tvö
mörk. Eftir að staðan var orðin 1:3
áttu heimamenn aldrei möguleika á
að ná í stig og gestirnir voru frekar
nær því að bæta við mörkum en
Grindavík að minnka muninn. Á 60.
mínútu sluppu Suðurnesjamenn
með skrekkinn þegar Ólafur Örn
Bjarnason skallaði í eigin markslá
eftir aukaspyrnu frá Heimi Guð-
jónssyni. Sjö mínútum síðar hefði
Allan Borgvardt átt að gera fjórða
mark FH en hann lét Helga verja
frá sér í upplögðu færi. Þegar tut-
tugu mínútur voru til leiksloka
ákvað Bjarni Jóhannsson að setja
Sinisa Kekic í sóknina en það bar
lítinn árangur og sóknarleikur
Grindavíkur var áfram máttlaus.
Á 72. mínútu átti Allan Borgv-
ardt fast skot sem fór rétt framhjá
markinu en Allan hefði getað skor-
að nokkur mörk ef heppnin hefði
verið með honum í gær. Á 77. mín-
útu vildi Kekic fá vítaspyrnu eftir
að honum virtist hafa verið hrint í
vítateignum en Kristinn Jakobsson
sá ekkert athugavert og lét leikinn
halda áfram. Eftir þetta gerðist
ekkert markvert og FH-ingar gátu
fagnað því í leikslok að hafa fengið
sex stig í viðureignum sínum við
Grindavík í sumar.
Grindvíkingar náðu sér ekki á
strik og þrátt fyrir að þeir hafi ver-
ið meira með boltann en FH náði
liðið ekki að skapa sér marktæki-
færi og sóknarmenn liðsins náðu
sér engan veginn á strik. Vörn
heimamanna var mjög slök og gest-
irnir áttu ekki í erfiðleikum með að
komast í gegnum hana. Það var að-
eins fyrir góða markvörslu Helga
að Grindavík slapp með tveggja
marka tap.
Morgunblaðið/Sverrir
Óli Stefán Flóventsson,
Grindvíkingur, og Sverrir
Garðarsson, FH-ingur, í bar-
áttu um boltann.
Sannfær-
andi sigur
FH-inga
FH sigraði Grindavík 3:1 á útivelli í úrvalsdeild karla í gær. Sigur FH-
inga var mjög sanngjarn en Hafnfirðingar voru mun betri en Grind-
víkingar. FH er komið í þriðja sæti deildarinnar og liðið á góða
möguleika á að ná Evrópusæti. Grindavík er í fimmta sæti en Suð-
urnesjamenn hafa tapað þremur leikjum í röð í deildinni.
Atli
Sævarsson
skrifar
Grindavík 1:3 FH
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeildin,
14. umferð
Grindavíkurvöllur
Sunnudaginn
17. ágúst 2003.
Aðstæður:
Mjög góðar, sólskin og 16°C
hiti. Smávindur í fyrri hálfleik
en annars logn. Góður völlur.
Áhorfendur: 450
Dómari:
Kristinn Jakobsson,
KR, 5
Aðstoðardómarar:
Erlendur Eiríksson,
Einar Sigurðsson
Skot á mark: 11(4) - 15(10)
Hornspyrnur: 5 - 1
Rangstöður: 3 - 6
Leikskipulag: 4-4-2
Helgi Már Helgason M
Óðinn Árnason
(Eysteinn Húni Hauksson 67.)
Eyþór Atli Einarsson
Ólafur Örn Bjarnason
Sinisa Kekic
Mathias Jack
Paul McShane
Guðmundur A. Bjarnason
Ray Anthony Jónsson M
Alfreð Elías Jóhannsson
(Jerry Brown 67.)
Óli Stefán Flóventsson
Daði Lárusson
Magnús Ingi Einarsson
Freyr Bjarnason M
Tommy Nielsen M
Sverrir Garðarsson M
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson M
(Víðir Leifsson 82.)
Baldur Bett M
Heimir Guðjónsson M
(Heimir Guðmundsson 90.)
Guðmundur Sævarsson M
Allan Borgvardt M
Atli Viðar Björnsson
(Jónas Grani Garðarsson 75.)
1:0 (15.) Alfreð Elías Jóhannsson fylgdi eftir föstu skoti Rays Anthonys Jóns-
sonar og skoraði af stuttu færi en Daði Lárusson, markvörður FH,
varði skot Rays út í vítateiginn en þar var Alfreð staðsettur.
1:1 (32.) Eftir töluverðan atgang í vítateig Grindavíkur barst boltinn til Ásgeirs
Gunnars Ásgeirssonar sem skoraði með föstu skoti af 13 metra færi,
óverjandi fyrir Helga Má Helgason.
1:2 (47.) Ásgeir Gunnar sendi boltann fyrir markið frá vinstri kanti á Guðmund
Sævarsson sem renndi knettinum í netið af stuttu færi.
1:3 (51.) Guðmundur Sævarsson komst einn inn fyrir vörn Grindavíkur eftir frá-
bæra sendingu frá Allan Borgvardt og renndi boltanum á Ásgeir Gunn-
ar sem skaut að marki en Helgi varði glæsilega en Ásgeir var heppinn
og náði frákastinu og skoraði í annarri tilraun.
Gul spjöld: Paul McShane, Grindavík (10.) fyrir brot. Sverrir Garðarsson, FH (25.) fyrir
brot. Mathias Jack, Grindavík (54.) fyrir mótmæli.
Rauð spjöld: Engin.
ÁSGEIR Gunnar Ásgeirsson var
FH-ingum mikilvægur í gær en
hann skoraði tvö mörk fyrir
Hafnfirðinga í sigri þeirra í
Grindavík. „Við erum komnir í
þriðja sætið og nú þýðir ekkert
annað en að halda því. Við ætl-
um okkur að leika í Evrópu-
keppninni næsta sumar. Hins-
vegar er deildin rosalega jöfn
og það er ekki langt í botninn
og því verðum við að halda okk-
ur á jörðinni en þriðja sætið er
takmarkið. Við spiluðum vel í
dag og eins og venjulega kom-
um við mjög öflugir til leiks í
síðari hálfleik og skoruðum tvö
mörk sem gerðu út um leikinn.
Við hefðum getað skorað fleiri
mörk og Allan fékk nokkur
dauðafæri en hann var óheppinn
í dag. Ég er loksins kominn aft-
ur á miðjuna og það var virki-
lega gaman að skora tvö mörk,“
sagði Ásgeir í samtali við Morg-
unblaðið.
Heimir Guðjónsson, fyrirliði
FH, fannst FH leika einn sinn
besta leik á tímabilinu. „Mér
fannst við vera betri aðilinn
nánast allan leikinn. Við hefðum
getað skorað tíu mörk en við
vorum mjög duglegir að koma
okkur í góð færi. Þetta var mjög
góður leikur hjá okkur og það
er langt síðan við höfum leikið
jafnvel og í dag. Það eru fjórir
leikir eftir og nú stefnum við að
því að halda þriðja sætinu sem
veitir okkur rétt til að leika í
Evrópukeppninni á næsta ári.“
Þreyta í liðinu
eftir Evrópuleikinn
Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Grindavíkur, sagði að einbeit-
ingarleysi í upphafi síðari hálf-
leiks hafi gert útslagið. „Menn
voru sofandi í upphafi síðari
hálfleiks og það kostaði okkur
leikinn. Við vorum meira með
boltann en FH í síðari hálfleik
en við náðum ekki að skapa okk-
ur færi. Það var greinileg
þreyta í liðinu eftir Evrópuleik-
inn og varnarleikurinn var slak-
ur hjá okkur, sérstaklega á
miðjunni. Vörnin var alltof flöt
og FH-ingar fengu of mörg góð
færi eftir að hafa komist auð-
veldlega í gegnum vörnina hjá
okkur. Okkur gengur erfiðlega
að komast yfir 20 stiga múrinn
en við verðum bara að halda
áfram að vinna okkar vinnu og
innbyrða fleiri stig,“ sagði
Bjarni í samtali við Morgun-
blaðið.
Ólafur Örn Bjarnason, fyrir-
liði Grindavíkur, sagði að fall-
baráttan væri hlutskipti Grinda-
víkur. „Menn voru þreyttir eftir
Evrópuleikinn í Austurríki og
eftir að við lentum undir var
þetta mjög erfitt. Staða okkar í
deildinni sýnir að fallbaráttan er
okkar hlutskipti og við verðum
einfaldlega að taka því.“
Stefnan er að ná
Evrópusætinu