Morgunblaðið - 29.09.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.09.2003, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA 4 B MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ STUTTGART hefur enn ekki feng- ið á sig mark eftir sjö umferðir í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu. Gamla félagið hans Ásgeirs Sig- urvinssonar hefur hreiðrað um sig á toppi deildarinnar og vann sann- færandi sigur á 1860 München á laugardaginn, 3:0. Johan Micoud, franski miðjumað- urinn, skoraði eitt mark og var í að- alhlutverki hjá Werder Bremen sem vann botnliðið Köln, 4:1, á úti- velli. Bremen er í öðru sætinu, stigi á eftir Stuttgart. Leverkusen vann sinn fyrsta útisigur á Wolfsburg í sögunni, 1:0, með marki frá Bernd Schneider og er jafnt Bremen að stigum. Meistarar Bayern München dóla á eftir í fjórða sætinu og hinn hol- lenski Roy Maakay ætlar að reynast þeim vel. Hann skoraði sig- urmarkið í Rostock, 2:1, þegar að- eins fjórar mínútur voru til leiks- loka. Þórður Guðjónsson kom inn í byrjunarlið Bochum á ný þegar lið hans gerði jafntefli í Mönchenglad- bach, 2:2. Honum var hinsvegar skipt af velli í leikhléi en hafði þó fengið eina marktækifæri Bochum í fyrri hálfleik á lokamínútu hans, átti þá skalla sem markvörður heimamanna varði. Bjarni Guð- jónsson sat á varamannabekk Boch- um en kom ekki við sögu. Stuttgart hefur ekki fengið á sig mark ROSENBORG varð í gær norskur meistari í knattspyrnu tólfta árið í röð og í átjánda skiptið samtals á síðustu 36 árunum. Rosenborg vann næstefsta lið deildarinnar, Bodö/Glimt, 5:4, á heimavelli sín- um í Þrándheimi og náði þar með sautján stiga forystu þegar fjór- um umferðum er ólokið. Reyndar munaði litlu að Rosen- borg missti unninn leik niður í jafntefli því eftir að liðið komst í 5:1 slakaði það á og gestirnir voru ekki langt frá því að jafna í lokin. Árni Gautur Arason var á vara- mannabekk Rosenborg eins og áður í ár. Hann hefur aðeins spil- að einn deildaleik sem er ekki nóg til að fá verðlaunapening. En hann er eftir sem áður meistari með félaginu sjötta árið í röð, og væntanlega það síðasta.  Lyn komst úr fallsæti deild- arinnar í gær með því að sigra Sogndal á útivelli, 2:1. Sig- urmarkið kom úr vítaspyrnu í blálokin. Helgi Sigurðsson kom inn á sem varamaður hjá Lyn snemma í síðari hálfleik en Jó- hann B. Guðmundsson var ekki í leikmannahópnum. Óskar Örn Hauksson var varamaður hjá Sogndal og kom ekki við sögu.  Gylfi Einarsson lék allan leik- inn með Lilleström sem tapaði, 2:1, fyrir Ålesund.  Tryggvi Guðmundsson var í fyrsta skipti í byrjunarliði Sta- bæk frá því hann fótbrotnaði í júlí, þegar lið hans gerði jafntefli, 2:2, við Vålerenga. Tryggvi fór af velli 20 mínútum fyrir leikslok.  Ólafur Stígsson hafði ekki heppnina með sér þegar Molde tapaði, 3:2, fyrir Brann. Hann átti skalla í stöng snemma leiks og var rétt búinn að jafna eftir hornspyrnu undir lokin. Bjarni Þorsteinsson lék síðustu 25 mín- úturnar með Molde. Tólfti titill Rosenborg í röð í norsku knattspyrnunni FÓLK  DAVID Beckham meiddist á hægri ökkla í leik Real Madrid og Valencia á laugardaginn. Fullvíst er talið að hann verði ekki með Real Madrid gegn Porto í Meist- aradeild Evrópu í knattspyrnu á miðvikudaginn. Englendingar hafa áhyggjur af því að þátttaka hans í úrslitaleiknum gegn Tyrkjum í undankeppni EM hinn 11. október geti verið í hættu.  VALENCIA vann leikinn, 2.0, með mörkum frá Mista og Oliv- eira, og Real Madrid beið þar sinn fyrsta ósigur á tímabilinu. Val- encia komst á topp deildarinnar með þessum sigri.  PABLO Aimar, argentínski leik- stjórnandinn hjá Valencia, réð ríkjum á miðjunni fyrsta hálftíma leiksins og lagði upp markið fyrir Mista, en þurfti þá að fara meidd- ur af velli.  DEPORTIVO La Coruna, sem hafði unnið fjóra fyrstu leiki sína, beið lægri hlut fyrir Osasuna, 3:2, og er stigi á eftir Valencia. Þar gerði Osasuna sér lítið fyrir og komst í 3:0 með því að skora þrisv- ar á fjórum mínútum um miðjan fyrri hálfleik.  ENRIQUE Romero, varnarmað- ur Deportivo La Coruna, varð fyr- ir óvenjulegum meiðslum á leið sinni í leikinn gegn Osasuna. Þeg- ar leikmenn liðsins voru á leið inn í flugstöðvarbygginguna í Pampl- ona sáu þeir snák á brautinni og fóru að huga að honum. Romero hætti sér of nærri og snákurinn beit hann í höndina með þeim af- leiðingum að varnarmaðurinn þurfti að dvelja á sjúkrahúsi um nóttina til öryggis.  TVEIR leikmenn Barcelona, Philip Cocu og Thiago Motta, fengu að líta rauða spjaldið í gær- kvöld þegar lið þeirra gerði markalaust jafntefli við Atletico í Madríd. Áhorfendum var bætt upp markaleysið með tólf gulum spjöldum, og þar af var bæði Cocu og Motta sýnt það í tvígang.  HANNA Ljungberg skoraði tvö mörk í gærkvöld þegar Svíþjóð tryggði sér sæti í átta liða úrslit- um heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu með því að sigra Níg- eríu, 3:0. Sænska liðið mætir því brasilíska í 8-liða úrslitunum. Norður-Kórea hefði reyndar getað sett strik í reikning Svía en átti ekki möguleika gegn bandarísku heimsmeisturunum og tapaði, 3.0.  FRAKKAR, sem eru í riðli með Íslendingum í Evrópukeppninni, féllu úr keppni eftir jafntefli, 1:1, gegn Brasilíu. Marinette Pichon jafnaði fyrir Frakka á lokamínútu leiksins. Rússnesku konurnar, sem eru líka í Íslandsriðlinum, voru hinsvegar komnar í 8-liða úrslit áður en leikur þeirra gegn Kína hófst í nótt. Alex Ferguson, knattspyrnu-stjóri Manchester United, hældi van Nistelrooy á hvert reipi eftir leikinn. „Ég held að uppákom- an í síðustu viku hafi alls ekki gert útslagið fyrir hann í þessum leik. Hann þarf ekkert að sanna, hann sannar sig í hverjum leik með því að sýna að hann er heimsklassaleik- maður sem elskar að skora mörk,“ sagði Ferguson og taldi að frammi- staðan gegn Leicester hefði verið sú besta hjá liðinu á tímabilinu. Roy Keane skoraði fyrsta markið í leiknum, hans fyrsta í 41 leik fyrir United. „Ég var steini lostinn þeg- ar mér var bent á þetta eftir leik- inn. Ég vissi að það væri hægt að finna einhvern galla í hans leik,“ sagði Ferguson. Paul Scholes lék með United á ný eftir fjarveru vegna nárameiðsla. Hann spilaði vel og lagði upp tvö markanna. Chelsea þótti ekki sýna sannfær- andi takta þegar liðið vann Aston Villa, 1:0, á Stamford Bridge. Jimmy Floyd Hasselbaink skoraði markið rétt fyrir hlé – hans sjötta á tímabilinu. Eiður Smári Guðjohn- sen var ekki í leikmannahópnum að þessu sinni, Hasselbaink og Adrian Mutu voru í fremstu víglínu og Hernan Crespo sat á varamanna- bekknum allan tímann. Birmingham hefur komið liða mest á óvart það sem af er og sigr- aði nú Portsmouth, 2:0. Strákarnir hans Steve Bruce eru taplausir í fjórða sæti deildarinnar. Wolves var nálægt fyrsta sigrin- um, komst yfir gegn Bolton á úti- velli en mátti sætta sig við jafntefli, 1:1. Jóhannes Karl Guðjónsson sat á varamannabekk Wolves allan tím- ann en Ívar Ingimarsson var ekki í leikmannahópnum. Southampton beið hinsvegar sinn fyrsta ósigur á tímabilinu, 0:1 á heimavelli, gegn Middlesbrough, sem ekki hafði byrjað vel. Malcolm Christie skoraði sigurmarkið með glæsilegu einstaklingsframtaki. Lisbie lagði Liverpool Kevin Lisbie, sóknarmaður Charlton, lék vörn Liverpool grátt hvað eftir annað og skoraði öll mörk liðsins þegar það vann góðan sigur, 3:2, í „Dalnum“ í gær. Mörk- in skrifast þó að nokkru leyti á reikning Jerzy Dudeks, markvarð- ar Liverpool, sem hefði getað kom- ið í veg fyrir þau öll. Dudek hafði aðeins fengið á sig fjögur mörk á tímabilinu þegar flautað var til leiks í London í gær. Hermann Hreiðarsson var enn fjarri góðu gamni hjá Charlton vegna meiðsla og hefur misst af öllum þremur leikjum liðsins síðan hann lék með landsliðinu gegn Þjóðverjum 6. september. Steve Watson skoraði þrennu fyrir Everton sem vann auðveldan sigur á Leeds í gær, 3:0. Leicester réð ekkert við van Nistelrooy RUUD van Nistelrooy, hollenski markaskorarinn hjá Manchest- er United, lét lætin í kringum leikinn gegn Arsenal á dög- unum ekki trufla sig þegar lið hans sótti Leicester heim í ensku úrvalsdeildinni á laug- ardaginn. Van Nistelrooy sýndi enn og aftur snilli sína í vítateig andstæðinganna og skoraði þrennu í öruggum sigri Man- chester United, 4:1. Meist- ararnir eru því í þriðja sætinu, stigi á eftir Arsenal en jafnir Chelsea sem á leik til góða og hefur því tapað fæstum stigum í deildinni til þessa. Reuters Ruud van Nistelrooy fagnar einu af þremur mörkum sínum gegn Leicester. ■ Úrslit/B10 ■ Staðan/B10 Lokeren mátti þola enn einnósigurinn í belgísku 1. deild- inni í knattspyrnu í gær þegar liðið beið lægri hlut fyrir Westerlo á heima- velli, 1:3. Lokeren situr því áfram á botni deildarinnar með aðeins tvö stig. Framlína Lokeren var bitlítil og er hreint óskiljanlegt að sjá til liðs- ins nú miðað við hvernig það spilaði í fyrra. Rúnar lagði upp markið fyr- ir Davy De Baule en þá var West- erlo þegar komið í 3:0. Rúnar Arnar Grétarsson og Arnar Þór Viðarsson léku allan leikinn með Lokeren og fengu Arnar Þór og Rúnar báðir gula spjaldið. Marel Baldvinsson kom inn á sem varamaður eftir hálftíma leik og náði að sýna sitt rétta andlit í síðari hálfleiknum. Indriði Sigurðsson lék sinn fyrsta leik með Genk eftir að hann var keyptur til félagsins um síðustu mánaðamót. Hann kom inn á sem varamaður gegn Lierse á útivelli, 20 mínútum fyrir leikslok, þegar staðan var 3:2, heimaliðinu í vil. Genk átti frábæran endasprett og stóð uppi sem sigurvegari, 5:3. Lið- ið er í þriðja sæti, næst á eftir stór- veldunum Anderlecht og Club Brugge. Enn tapar bit- laust lið Lokeren Kristján Bernburg skrifar frá Belgíu ÍSLENSKA drengjalandsliðið í knattspyrnu gerði marka- laust jafntefli við Rússa í síð- asta leik sínum í undanriðli Evrópukeppninnar í Litháen í gær. Rússar unnu þar með rið- ilinn á betri markatölu en bæði liðin fara í milliriðil sem verður leikinn síðar í vetur. Ís- land hafði áður sigrað Albaníu 3:1 og Litháen 5:1. Þar verður Ísland í riðli með Englandi, liðinu í öðru sæti 3. riðils, sem verður leikinn um næstu helgi, en í honum eru Ungverjaland, Noregur, Skot- land og San Marino, og sig- urliðinu í 7. riðli sem verður spilaður í lok október. Í hon- um eru Búlgaría, Holland, Serbía-Svartfjallaland og Armenía. Jafntefli gegn Rússunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.