Morgunblaðið - 13.10.2003, Side 1
2003 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
BÆTTU FYRIR MISTÖKIN 1966 Á WEMBLEY / B6
ÞORLÁKUR Árnason hætti í gær störfum sem
þjálfari knattspyrnuliðs Vals eftir að hafa stýrt
því undanfarin tvö ár. Í fyrra unnu Valsmenn
öruggan sigur í 1. deildinni undir hans stjórn en
í haust féllu þeir á ný úr úrvalsdeildinni þrátt
fyrir að þeir fengju 20 stig. Þorlákur sagði við
Morgunblaðið í gær að hann myndi halda áfram
að þjálfa en óráðið væri í augnablikinu hvar
það yrði. Þrjú félög úr úrvalsdeildinni hafa ekki
gengið frá sínum málum, Fylkir, Fram og
Grindavík, en Þorlákur vildi ekkert segja um
hvort hann væri á leið til einhvers þeirra.
„Ég skil við Valsmenn í algjörri sátt og það
er engin misklíð á milli mín og þeirra. Ég tel
mig skila góðu búi, enda þótt ég sé að sjálf-
sögðu ekki ánægður með niðurstöðu sumarsins.
Vonandi tekst Val að komast aftur í hóp þeirra
bestu þar sem félagið á að vera.“
Þorlákur er
hættur með Val
á ferðinni og menn voru lengi að átta
sig á vellinum. Það var allt annað að
sjá til leikmanna í byrjun seinni hálf-
leiksins og við náum að jafna, en öll-
um til undrunar dæmdi dómarinn það
af. Ég gat ekki séð neitt athugavert
við markið. Upp úr því skora Þjóð-
verjar sitt annað mark og það má
Logi sagði að eftir að strákarnirhöfðu sofnað á verðinum þegar
Þjóðverjar skoruðu fyrsta markið í
byrjun leiksins, hefðu
þeir verið nokkuð
lengi að koma sér inn
í leikinn. „Það var
ákveðin taugaveiklun
segja að það hafi drepið okkur. Eftir
það tökum við ákveðna áhættu, enda
vissum við að tap og jafntefli gæfu
okkur ekkert. Við það riðlast leikur
okkar og Þjóðverjar ná betri tökum á
leiknum og skapa sér nokkur góð
marktækifæri – og nýttu eitt þeirra til
að skora þriðja mark sitt.“
Það sást í leiknum að þú og Ásgeir
voruð ekki sáttir við dómarana. Þú
lést austurríska eftirlitsmanninn
heyra það?
„Jú, við vorum afar óhressir með
hvernig samvinna dómara og aðstoð-
ardómara var. Dómarinn dæmdi af
okkur löglegt mark og annar aðstoð-
ardómarinn sleppti að veifa nokkrum
sinnum á leikmenn Þýskalands er
þeir voru rangstæðir innan við vörn
okkar er þeir fengu knöttinn. Stund-
um veifaði aðstoðarmaðurinn, en lét
síðan fánann snöggt niður. Þetta voru
óþolandi vinnubrögð – já, fyrir neðan
allar hellur. Svona á ekki að sjást í
landsleikjum í Evrópukeppni, eða í
neinum leikjum. Það var sárt að sjá
dómarann dæma markið af Her-
manni.“
Logi sagði að þrátt fyrir tapið væri
hann ánægður með margt í leik ís-
lenska liðsins. „Það sást að leikmenn
okkar höfðu sjálfstraustið og báru
ekki virðingu fyrir Þjóðverjum á
þeirra heimavelli. Það var ákveðin
spenna hjá strákunum í upphafi leiks-
ins. Þeir voru þónokkra stund að átta
sig á vellinum, sem er erfiður – mikil
ljónagryfja. En strákarnir voru mjög
yfirvegaðir og rétt stemmdir. Við get-
um ekki sagt við neinn að hann hafi
ekki lagt sig fram.
Við getum ekki lokað augunum fyr-
ir því að við vorum að leika við þjóð
sem var númer tvö á síðasta heims-
meistaramóti. Þjóð sem hefur tugi
milljóna íbúa – á móti 280 þúsund íbú-
um. Þó að það sé alltaf súrt að tapa,
þá getum við ekki annað en verið sátt-
ir við framlag okkar manna á vellin-
um.“
Hvað er framundan hjá landslið-
inu?
„Nú bíðum við spenntir eftir að
dregið verði í riðla í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar í Þýska-
landi 2006. Það verður gert fimmta
desember.
Þá sjáum við hverjir verða mót-
herjar okkar og um leið hefst und-
irbúningur fyrir að mæta þeim. Þá
brettum við upp ermarnar og spýtum
í lófana, ákveðnir að gera betur,“
sagði Logi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vonbrigðin leyna sér ekki í svip Eiðs Smára Guðjohnsen fyrirliða og Loga Ólafssonar eftir tapið fyrir Þjóðverjum á AOL Arena í Hamborg, vitandi það að Skotar unnu á
sama tíma á heimavelli og skutust þar með upp fyrir íslenska liðið og tryggðu sér um leið sæti í umspili í nóvember fyrir Evrópumótið á næsta ári.
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari var ekki ánægður með þátt dómarans frá Rússlandi
Vonlaus vinnubrögð
„ÉG verð að viðurkenna það að fréttirnar frá Glasgow voru ekki þær
ánægjulegustu sem komu í kjölfarið á tapinu hér í Hamborg. Nei,
þar voru ekki gleðifréttir sem komu þaðan. Eftir á að hyggja þá
misstum ekki af tækifærinu til að komast áfram hér, heldur heima á
Laugardalsvellinum þar sem við náðum ekki að nýta okkur þau
tækifæri sem við fengum gegn Þjóðverjum, sem höfðu þá heppnina
með sér í jafnteflisleik,“ sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari sem
var ekki ánægður með framgöngu dómaranna frá Rússlandi í leikn-
um í Hamborg – sagði vinnubrögð þeirra hafa verið fyrir neðan allar
hellur. Þjóðverjar fengu 18 stig í riðlinum, Skotar 14 og Íslendingar
13. „Með sigri á Þjóðverjum í Reykjavík hefðum við verið með fimm-
tán stig, sem hefði gefið okkur annað sætið,“ sagði Logi.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
frá Hamborg