Morgunblaðið - 20.10.2003, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.10.2003, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTIR 2 B MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ var mikið í húfi fyrir þjálfara Lokeren, Paul Put, þegar Lokeren mætti Hausden Zolder í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu á laug- ardagskvöldið. Tap hefði þýtt að Lokeren hefði rekið Put en liðinu tókst að vinna sinn fyrsta sigur á leiktíðinni og gerði það sannfær- andi, 3:0. Rúnar Kristinsson kom Lokeren á bragðið eftir sex mínútna leik. Rúnar fékk sendingu frá Arnari Grétarssyni, lék á fjóra leikmenn Zolden og skoraði með góðu skoti í bláhornið. Rúnar fagnaði markinu með því að hlaupa til þjálfarans og faðma hans. Bence Aristide, fram- línumaður frá Burkina Faso, bætti tveimur mörkum við fyrir Lokeren sem komst með sigrinum úr botn- sæti deildarinnar. Arnar Þór Viðarsson og Arnar Grétarsson léku allan leikinn fyrir Lokeren og stóðu sig vel, Rúnar lék einungis fyrri hálfleikinn en hann var hálfveikur, var bæði með bein- verki og kvef. Marel Baldvinsson leysti Rúnar af hólmi í síðari hálf- leik. „Leikmenn mínir gerðu allt sem þeir gátu til að bjarga mér og ég er þeim þakklátur,“ sagði Paul Put, þjálfari Lokeren, eftir leikinn. „Það var mjög mikilvægt að ná að skora fljótlega í leiknum,“ sagði Rúnar Kristinsson. Rúnar Kristinsson kom Lokeren á bragðið í Belgíu Rúnar SERGUEI Ziza var í aðal- hlutverki hjá rússneska liðinu Stepan en hinn leikreyndi leik- stjórnandi þekkir líka til í ís- lenskum handknattleik, lék með KA fyrir 6 árum. „Þetta var skemmtilegur leikur, við tókum fast á þeim og þeir á okkur – létu finna fyrir sér og börðust eins og víkingar, sem er skemmtilegt að mínu mati. Árni er sigurvegari Ég þekki þjálfara þeirra, Árna, síðan ég var hjá KA og ég held að hann hafi komið með hugsun sigurvegara til liðsins. Ég tel HK gott lið sem getur gert góða hluti í næstu umferð,“ sagði Zisa eftir leik- inn og hann taldi góðar líkur á að sigra og slá HK út úr keppninni. „Heimaleikur er alltaf auðveldari því aðstæður eru erfiðari fyrir gesti og við höfðum fulla trú á að við gæt- um unnið þennan leik. Vantaði fjórar mínútur Við vorum einbeittir allan leikinn. Fyrri hálfleik lékum við ekki eins og við gerum best en í seinni hálfleik vorum við enn betur einbeittir. Okkur vantaði fjórar mínútur til að ná úrslitum, sem dugðu okkur til að halda áfram í keppninni en eitthvað brást í vörninni, sem var nóg,“ sagði Serguei Ziza en hann skoraði alls þrjú mörk í leiknum í Digranesi. Ziza sagði að HK- menn hefðu bar- ist eins og víkingar Leikurinn var harður og mikilskemmtun enda voru áhorf- endapallar þétt setnir – reyndar tæplega mikið setið þegar HK missti nið- ur sex marka forystu í upphafi síðari hálf- leiks. Þá var eins og HK-menn teldu björninn þegar lagð- an að velli en það var öðru nær og og gestirnir komust í eins marks for- ystu áður en Elías Már stökk fram á sviðið. „Það kom slæmur kafli í seinni hálfleik og Rússarnir komast yfir en þá tók þjálfari okkar leikhlé og sagði okkur að hysja upp um okk- ur buxurnar, við hefðum tíu mínútur til að gera út um leikinn og annars væri draumurinn úti - hvort við vild- um hætta í dag. Við vöknuðum við það enda kann hann sitt fag og hans besta hlið að lesa yfir mönnum þegar þeir standa sig illa,“ sagði „hetjan“ Elías Már eftir leikinn. „Að mörgu leyti var þetta erfiðari leikur en í Rússlandi. Við vorum með fólkið með okkur í dag en í Rússlandi voru þeir á móti okkur og margt að kljást við. Það var því þægilegra að und- irbúa sig fyrir leikinn núna en þá líka jafnvel meiri pressa á okkur. Við þurftum að sanna okkur og urðum að vinna í dag, ekkert annað kom til greina.“ Undir orð Elíasar tekur Björgvin Páll Gústavsson markvörður, sem stóð sig mjög vel og sinnti sínum skyldum allan leikinn, líka þegar hans menn voru ekki alveg vakandi á vaktinni í vörninni. „Það var bara ekki hægt að fara tapa þessu hérna fyrir fullu húsi, það kom ekki til greina,“ sagði hinn 18 ára markvörð- ur eftir leikinn. „Ég lýg því ekki að ég hafi ekki verið svolítið stressaður þegar Rússarnir komast yfir en hafði samt alltaf trú á að okkur tækist að vinna. Rússar eiga það til að hrynja þegar á móti blæs en þessir héldu áfram og veittu góða mótspyrnu. Við mættum tilbúnir í hvað sem er í báða leikina svo að ekkert kom okkur á óvart. Það skiptir öllu hvernig lið koma undirbúin í hvern leik og allt sem við lögðum upp með í leiknum gekk upp, vörnin small saman og þetta var hrein snilld. Það er mikil lífsreynsla að taka þátt í þessari keppni og fara nú í annan Evrópu- leik. Við spiluðum ekki nógu vel í fyrri leiknum en hleyptum Rússun- um samt ekki mikið fram úr okkur og gerðum síðan út um málið hérna heima.“ Morgunblaðið/Þorkell Elías Már Halldórsson var hetja HK og skorar hér eitt marka sinna. Elías Már Halldórsson gulltryggði sigur HK á Stepan Razin frá Rúss- landi í Evrópukeppni bikarhafa og Kópavogsliðið er komið áfram Einhver varð að skjóta – heppni að það var ég „EINHVER varð að skjóta og ég var heppinn að fá tækifærið. Annað hvort yrði maður skúrkur eða hetja, það var ekkert þar á milli og ég varð að láta reyna á það, það heppnaðist í dag og frábær upplifun að skora og hvílíkur léttir,“ sagði Elías Már Halldórsson, sem skor- aði tvö síðustu mörk HK í 20:18 sigri á rússneska liðinu Stepan Raz- in í Digranesi á laugardaginn. Fyrri leik liðanna lauk með 23:22 sigri Rússanna svo að HK er komið í 2. umferð í Evrópukeppni bikarhafa. Stepan Razin er í dag í 4. sæti rússnesku deildarinnar og líklega á leið í 6-liða úrslitakeppni þar í landi. Stefán Stefánsson skrifar „ÉG hélt að við værum að missa leikinn frá okkur, en HK-hjartað er stórt, slær ört og dugði til að gera út um leikinn,“ sagði Vilhelm Gauti Bergsveinsson, fyrirliði HK, eftir Evrópuleikinn. Hvað telur hann að hafi gerst þegar munurinn fór úr sex marka forskoti í eitt mark undir. „Ég held að við höfum farið út í að halda forystu okkar. Komnir með sex mörk og áfram í keppninni en þá blundar í mönnum að halda því og greinilegt að við þurfum að grafa okkur upp úr þeirri gryfju því við eigum það til að halda ekki áfram komnir með forystu. Þetta hafðist nú. Ég held að þeir hafi ekki spilað eins og þeir besta geta í fyrri leiknum og sýndu í dag að þeir eru með gríðarlega öflugar skyttur enda komu flest mörk þeirra utan punktalínu. Við spiluðum sjálfir mjög góða vörn en sóknin var ekki alltof góð og forskot okkar kom eftir hraðaupphlaup. Það var ekki svo mikið vandamál að fara í leik- inn og þurfa að vinna upp eins marks forskot, jafnvel þægilegra ef munurinn hefði verið meiri því þá hefðum við sótt meira, við vor- um oft of staðir í sókninni,“ sagði Vilhelm Gauti og kominn með hug- ann í íslenskan veruleika. „Nú munum við njóta þess að vera til, en á miðvikudag er leikur við FH, sem við verðum að vinna, annars erum við vondum málum í deild- inni. Evrópudraumurinn heldur samt áfram og það er jákvætt en það þarf að sýna í deildinni hvers vegna maður kemst í Evrópu- keppni.“ HK-hjartað stórt og slær ört

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.