Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 B 7
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka,sagði fyrir leikinn að markmiðið
væri að gera betur en á móti Barce-
lona og vissulega tókst Haukum það.
Haukarnir áttu hins vegar við ofur-
efli að etja enda Magdeburg með frá-
bært lið sem hefur alla burði til að ná
langt í Meistaradeildinni í ár.
Magdeburg hóf leikinn af krafti og
komst í 3:1 en Haukar svöruðu með
fjórum mörkum í röð og eftir tíu
mínútna leik var staðan, 7:4, Hauk-
um í vil. Alfreð Gíslasyni var ekki
skemmt á varamannabekk Magde-
burg en hann náði að stappa stálinu í
sína menn og með skrautfuglinn
Stefan Kretszchmar í broddi fylk-
ingar náði Magdeburg að jafna í 8:8
og tókst í kjölfarið að síga fram úr.
Haukunum gekk illa að finna smug-
ur á geysisterkri 6:0 vörn Þjóðverj-
anna og tókst ekki að skora nema
fjögur mörk á síðustu 20 mínútum
hálfleiksins meðan Magdeburg skor-
aði grimmt úr hraðaupphlaupum auk
sem Kretszchmar gerði Haukum líf-
ið leitt en hann skoraði öll sjö mörk
sín í leiknum í fyrri hálfleik.
Magdeburg var ekkert á því að
slaka á klónni í upphafi síðari hálf-
leiks. Vörn þeirra, með Sigfús Sig-
urðsson í lykilhlutverki, hafði öll ráð
sóknarmanna Hauka í hendi sér og
þegar níu mínútur voru liðnar af síð-
ari hálfleik var munurinn orðinn 11
mörk, 23:12. Þetta var mesti munur
liðanna í leiknum en Haukunum til
hróss náðu þeir að rétta sinn hlut áð-
ur en leikurinn var úti. Aliaksandr
Shamkuts átti góða innkomu á lín-
una og Haukum tókst að minnka
muninn mest niður í sjö mörk, 31:24,
en átta mörk skildu liðin að þegar
rússnesku dómararnir flautuðu til
leiksloka.
Líkt og í leiknum við Barcelona
léku Haukar ágætlega í fyrri hálfleik
en þó einkum og sér í lagi framan af.
Um leið og Magdeburg fann hins
vegar taktinn í vörninni var ekki að
sökum að spyrja. Þýska liðið náði að
brjóta niður sóknarleik Haukanna
og um leið og Haukar gerðu sig seka
um sóknarfeila var þeim refsað með
hárbeittum hraðaupphlaupum. Ro-
bertas Pauzuolis og Ásgeir Örn Hall-
grímsson komust best frá leik
Hauka, Shamkuts átti góða innkomu
í síðari hálfleik en menn eins og Hall-
dór Ingólfsson og Darius Vacikev-
icius náðu sér ekki á strik. Þá var
markvarsla Birkis Ívars Guðmunds-
sonar fremur slök.
Lið Magdeburg er feiknasterkt lið
og aðalstyrkur þess liggur í öflugum
varnarleik og markvörslu en Jo-
hannes Bitter, rúmlega tveggja
metra hár sláni sem Alfreð krækti í
frá Wilhelmshavener fyrir tímabilið,
var Haukum afar erfiður en hann
varði 20 skot, þar af þrjú vítaköst.
Stefan Kretszchmar dró vagninn
fyrir Magdeburg í fyrri hálfleik en
auk hans voru pólski landsliðsmað-
urinn Grgorz Tkaczyk og franski
landsliðsmaðurinn Joel Abati skæðir
og Sigfús Sigurðsson átti mjög góð-
an leik. Hann var mjög fastur fyrir í
vörninni og nýtti þau færi vel sem
hann fékk úr að moða hvort sem það
var á línunni eða úr hraðaupphlaup-
um.
Haukar réðu ekki við
varnarmúr Magdeburg
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka sóttu ekki gull í greipar Magdeburg í
öðrum leik sínum í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í Þýska-
landi á laugardaginn. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar unnu átta
marka sigur, 34:26, eftir að hafa haft fimm marka forskot í hálfleik,
16:11.
AP
Ásgeir Örn Hallgrímsson, leikmaður Hauka, sækir að marki
Magdeburg-liðsins, þar sem hinn litríki þýski landsliðsmaður
Stefan Kretzschmar stendur vaktina í vörninni.
AP
us
Sigfús kom að nýju inn í lið Magde-burg eftir að hafa verið frá vegna
hnémeiðsla í tvær vikur. Hann átti
góðan leik, lék stórt
hlutverk í vörninni og
nýtti færi sín vel í
sókninni en hann
skoraði fjögur mörk í
leiknum. „Við vorum ekkert að æsa
okkur yfir hlutunum þó við lentum
þremur mörkum undir. Þetta var
spurning hjá okkur um að standa vörn-
ina og ná hraðaupphlaupunum og það
var það sem gerði gæfumuninn þegar
á fyrri hálfleikinn leið,“ sagði Sigfús.
Var eitthvað í leik Hauka sem kom
þér á óvart?
„Nei í rauninni ekki. Við vissum að
Pauzuolis þarf mikið pláss og nánast
flugbraut til að komast í loftið og um
leið við gengum út í hann þá náði
hann ekki að koma sér í loftið. Við
lögðum áherslu á að stoppa skyttur
Haukaliðsins og miðjumaðurinn sá
litháíski komst ekkert áleiðis og þar
með áttu Haukar erfitt uppdráttar
gegn vörn okkar.“
Það var ekki að sjá á leik þínum að
þú værir að skríða saman eftir
meiðsli?
„Ég er búinn að vera verkjalaus í
viku í hnénu en þeir vildu ekki að ég
spilaði fyrr en nú. Ég var búinn að ná
að æfa vel fyrir leikinn og ég vissi að
ég var alveg klár í slaginn.“
Sigfús segist hlakka til leiksins við
Barcelona sem háður verður á heima-
velli Magdeburg hinn 8. nóvember.
„Það er uppselt á leikinn og það verð-
ur mikið fjör. Við gerum okkur vel
grein fyrir því að lið Barcelona er
geysilega sterkt en Börsungarnir fá
ekkert gefins hjá okkur og við ætlum
að taka hressilega á þeim. Lykilatriði
er að hleypa þeim ekki í hraðaupp-
hlaupin og við verðum að stöðva þau í
fæðingu með því að taka Masip og
Nagy föstum tökum en oftar en ekki
eru það þeir sem stjórna hraðaupp-
hlaupunum þeirra. Ég held að við eig-
um alveg ágæta möguleika á að vinna
Barcelona en til þess þurfum við auð-
vitað að spila mjög vel.“
Sigfús segir að helsta breytingin á
liði Magdeburg nú og á síðasta tímabili
sé sú að vörnin sé miklu betri og þá
fékk liðið góðan liðsstyrk með komu
markvarðarins, Johannesar Bitter.
„Bæði ég og Pólverjinn erum á
okkar öðru ári og það tekur sinn tíma
að finna taktinn. Bitter hefur komið
mjög sterkur og það er ekki árenni-
legt fyrir mótherjana að mæta honum
enda engin smásmíði, en ég held að
hann sé 2,05 metrar á hæð.“
Sigfús Sigurðsson átti góðan leik
„Small sam-
an hjá okkur“
„ÞETTA voru úrslit eftir bókinni.
Um leið og við náðum að finna
taktinn í vörninni small þetta
saman hjá okkur,“ sagði Sigfús
Sigurðsson, leikmaður Magde-
burg, við Morgunblaðið eftir
sigurinn á Haukum í Meist-
aradeildinni í handknattleik.
Sigfús Sigurðsson
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
GUÐJÓN Valur Sigurðsson og fé-
lagar hans í þýska liðinu Essen
eru komnir í 2. umferð í Evr-
ópukeppni bikarhafa í handknatt-
leik. Essen sigraði eistneska liðið
Polva Serviti í tveimur leikjum í
Þýskalandi um helgina. Essen
hafði yfirburði í fyrri leiknum
þar sem lokatölur urðu, 32:17.
Guðjón Valur skoraði 6 mörk fyr-
ir Essen í þeim leik. Guðjón skor-
aði svo 3 mörk í gær þegar Essen
hafði betur í síðari leiknum,
23:22, eftir að Eistarnir höfðu
haft eins marks forskot í leikhléi,
10:9.
Létt hjá
Essen gegn
EistunumSPÆNSKA stórliðið Ciudad Realmeð Ólaf Stefánsson í broddi fylk-
ingar átti ekki í vandræðum með
að leggja Zaporoshye frá Úkraínu
að velli í Meistaradeild Evrópu í
handknattleik á Spáni í gær. Ciud-
ad sigraði með níu marka mun,
24:15 og skoraði Ólafur 4 af mörk-
um spænska liðsins. Ciudad Real
gerði nánast út um leikinn í fyrri
hálfleik en staðan í leikhlé var,
15:7. Spænski landsliðsmaðurinn
Talant Dujsebaev og egypski
landsliðsmaðurinn Zaki voru at-
kvæðamestir í liði Ciudad Real
með 6 mörk hver.
Ólafur og félagar hans hafa
byrjað vel í Meistaradeildinni en
um síðustu helgi burstaði Ciudad
Real lið Conversano á Ítalíu,
32:23.
Ólafur með fjögur
fyrir Ciudad Real
DAGUR Sigurðsson, þjálfari og
leikmaður Bregenz, skoraði eitt
mark fyrir sína menn sem töpuðu
fyrir pólska liðinu Wisla Plock,
27:26, í síðari leik liðanna í 2. umferð
Evrópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik. Dagur og félagar komust
áfram, unnu samanlagt, 53:49.
GUÐMUNDUR E. Stephensen,
Víkingi, varð sigurvegari á fyrsta
stigamótinu í borðtennis á keppnis-
tímabilinu. hann lagði bróður sinn
Matthías Stephensen, Víkingi, í úr-
slitaleik í TBR-húsinu í gær 4:0
(11:6, 11:3, 11:6, 11:2).
SYSTURNAR Halldóra og Magn-
ea Ólafs léku til úrslita í kvenna-
flokki og fagnaði Halldóra sigri 4:0.
(11:2, 11:5, 11:6, 11:2).
LÖGREGLAN í Halmstad hafði í
nógu að snúast aðfaranótt sunnu-
dags er stuðningsmenn sænska úr-
valsdeildarliðsins Djurgården hófu
innreið sína í bæinn fyrir leik liðanna
sem fram fór í gær.
TIL átaka kom milli stuðnings-
manna liðanna í miðbæ Halmstad
þar sem hóparnir notuðu steina,
glerflöskur og járnrör í slagsmálun-
um. Lögreglan fékk liðsstyrk frá ná-
grannabæjum Halmstad og notaði
m.a. hunda til þess að koma ró á
mannskapinn.
DJURGÅRDEN varð í kjölfarið
sænskur meistari í knattspyrnu ann-
að árið í röð þegar liðið bar sigurorð
af Halmstad, 3:2, í næstsíðustu um-
ferð sænsku 1. deildarinnar.
SERENA Williams mun ekki
keppa á fleiri tennismótum á þessu
ári en hún hefur ekki leikið á at-
vinnumótaröð kvenna sl. tvo mánuði
vegna hnémeiðsla.
„Ég sakna þess að geta ekki keppt
en ég þarf lengri tíma til þess að ná
þeim styrk sem ég hafði áður, segir
Willams sem er yngri systir Venus
Williams en þær systur hafa verið í
fremstu röð undanfarin misseri.
ROBERTO Carlos og Ronaldo
skoruðu mörk Real Madrid sem
vann góðan sigur á Celta Vigo, 2:0, í
spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.
JUVENTUS er á góðu skriði á
Ítalíu en meistaranir unnu fimmta
sigur sinn í sex leikjum þegar þeir
báru sigurorð af Ancona, 3:2, eftir að
hafa komist í 3:0. Fabrizio Miccoli
skoraði tvö marka Juventus.
ALBERTO Luqe og Sergio
tryggðu Deportivo La Coruna sigur
á Barcelona á útivelli og er kominn
vaxandi þrýstingur á þjálfara Börs-
unga, Frank Rikjard, vegna lélegs
gengi þeirra í deildinni.
LEIKMENN Valencia voru í mikl-
um ham gegn botnliðinu Espanyol
og skoruðu 4 mörk gegn engu. Val-
encia er á toppi spænsku deildarinn-
ar. Mista skoraði tvívegis, Ruben
Baraja og Vicente bættu við mörk-
um en Espanyol á enn eftir að vinna
leik í spænsku deildinni.
FÓLK