Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 11
ÚRSLIT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 B 11 ÍÞRÓTTIR Við vitum hvað við getum ogstefnum upp á við eftir slæma byrjun,“ bætti Gréta við en fyrir þennan leik hafði KR-liðið tapað báð- um leikjum sínum á meðan Keflavík var ósigrað. Íslands- meistararnir byrjuðu leikinn betur, náðu ellefu stiga forskoti strax í fyrsta leikhluta og héldu yfirhönd- inni þegar flautað var til hálfleiks. Í þriðja leikhluta hljóp mikið kapp í heimamenn og leikur þeirra breytt- ist til batnaðar. Varnarvinnan var mjög góð og á köflum yfirspiluðu þær Keflvíkingana í sókninni. Um miðjan leikhlutann höfðu þær jafnað og undir lok hans voru þær komnar sjö stigum framúr. Sunnanstúlkur bjuggust greinilega ekki við þessari mótspyrnu og virtust ráðalausar gegn frískum heimasætum. Ekkert gekk né rak hjá gestunum í síðasta leikhlutanum og þegar upp var stað- ið hafði KR-liðið unnið verðskuldað- an tíu stiga sigur. Voru hálfvankaðar „Það var augljóst mál að KR-ing- arnir vildu sigurinn frekar en við. Þær voru tilbúnar í leikinn og lögðu sig allar fram, hirtu fráköst og alla lausa bolta. Það var eiginlega borð- liggjandi hvernig færi,“ sagði Hjört- ur Harðarson, vonsvikinn þjálfari Keflavíkurliðsins. „Við vorum eigin- lega bara dasaðar og náðum aldrei að sýna okkar rétta andlit. Okkur vant- aði baráttu og við verðum að mæta tilbúnar í leiki. Það þýðir ekkert að vera hálf vankaður inni á vellinum.“ Verðskuldaður sigur KR-stúlkna „OKKUR tókst loks að sýna hvað við getum. Við erum með breytt lið frá í fyrra og erum enn að stilla saman strengina,“ sagði Gréta María Grétarsdóttir, þjálfari KR-stúlkna, eftir að lið hennar bar sig- urorð af Íslandsmeisturum Keflavíkur í DHL höllinni á laugardag- inn. Lokatölur urðu 79:69 en í hálfleik höfðu gestirnir yfir, 33:38. Þetta var kærkominn fyrsti siguren eftir jafntefli gegn Stjörn- unni og tap gegn Breiðabliki, HK og ÍR var nauðsynlegt að sigra. Þetta átti hins vegar ekki að vera svona erfitt en Selfyssingar keyrðu upp hraðann í þessum leik og við réð- um ekki við að spila á þeirra tempói, það var of hratt. Þá höfum við alltaf verið að detta niður um miðbik seinni hálfleiks í öllum okkar leikjum og það gerðist einnig í dag, sérstaklega varnarlega, en í þetta sinn bjargaðist það fyrir horn. Ég tel að við höfum unnið þennan leik á góðri vörn í fyrri hálfleik, en það verður að segjast að Basti hélt þeim algerlega inni í leikn- um,“ sagði markvörður ÍBV og fyrr- um Selfyssingur, Jóhann Ingi Guð- mundsson, í leikslok. Aðspurður um það herbragð Sel- fyssinga að setja fyrrum lærisvein Jóhanns til fjögurra ára, Andra Má Kristjánsson, sem er á yngra ári í þriðja flokki inn á völlinn til að taka vítin, sagði Jóhann að það hefði heppnast vel. „Selfyssingar voru búnir að misnota tvö víti og ég varði eitt. Þegar strákurinn kom loksins á vítapunktinn fóru vítin að ganga upp hjá þeim. Hann hefur líklega einum of oft tekið á mig vítaköst í þessu fjögur ár sem ég þjálfaði hann.“ Það er engum ofsögum sagt að Sebastian Alexandersson, markvörður og þjálf- ari Selfoss, hafi haldið þeim inni í leiknum en hann varði samtals 26 skot. Mikil breyting hefur orðið á leik Selfyssinga og virðist vera sífelldur stígandi í liðinu. Þjálfarinn var hins vegar ekki sáttur við tapið og sagðist fara í alla leiki til að vinna þá. „Það sem er að fara með þessa leiki okkar eru síðustu 10 mínúturnar í seinni hálfleik en við náum einhvern veginn alltaf að koma til baka þrátt fyrir að lenda nokkrum mörkum und- ir. Í dag vantaði herslumuninn en við náðum aldrei þeim áfanga að jafna og ef það hefði gerst hefðum við klárað þennan leik að mínu mati. Ljósi punkturinn er þó að við erum að bæta okkur leik frá leik.“ Í liði heimamanna var Sebastian langbestur sinna manna en einnig áttu þeir Ívar Grétarsson, Guðmund- ur Eggertsson og Hjörtur Leví Pét- ursson góðan leik. Þá var Andri Már ískaldur á vítapunktinum og gaman að sjá svo ungan strák geta axlað þá miklu ábyrgð sem lögð var á herðar honum. Í liði ÍBV átti Jóhann traustan leik í markinu. Þá voru Davíð Óskarsson og Kári Kristjánsson góðir og þegar mest þurfti á að halda í seinni hálfleik reif Róbert Bognar sig upp og tryggði ÍBV sigurinn með góðum mörkum. Létt stig yfir lækinn Stjarnan ætlaði sér að sækja tvölétt stig yfir lækinn þegar þeir héldu í heimsókn í Kópavog á sunnu- dag og mættu Breiðabliki. En heimamenn voru ekki á því að leikurinn yrði eitthvert léttmeti fyr- ir Stjörnumenn. Þrátt fyrir mjög ein- beittan vilja til góðra verka dugði það þó ekki grænklæddum Blikum og Stjörnumenn fóru úr Smáranum með stigin tvö eftir 24:28 sigur. „Strákarnir eru búnir að vera í stóru liðunum og hafa ef til vill haldið að þeir geti tekið Breiðablik og pakk- að því saman, en á móti svona liðum koma þeir vakandi í leikinn gera ekki þessi aula mistök sem þeir gera svo í lokin. Einbeitingin hjá þeim heldur ekki eins lengi og hjá okkur. Við kom- um einbeittir í seinni hálfleikinn og þá skilur á milli liða,“ sagði Sigurður Bjarnason, þjálfari Stjörnunnar, í leikslok. Stjarnan skoraði fyrsta mark leiksins en Blikarnir jöfnuðu í sinni fimmtu sókn í fyrri hálfleik og áttu í framhaldi af því 15 mjög góðar mín- útur þar sem þeir höfðu eins til tveggja marka forskot og héldu Garðbæingum fullkomlega við efnið. Stjörnumenn fundu samt smátt og smátt að brestir voru í leik Blikanna, þeir gengu á lagið og leiddu með tveimur mörkum í leikhléi. Seinni hálfleikurinn var allur í eigu Stjörnunnar, þeir náðu fljótlega fimm marka forskoti sem þeir héldu og ríflega það lengst af hálfleiksins. Sigurður Bjarnason, þjálfari Stjörnunnar, var ekki sáttur við leik sinna manna en ánægður með að hafa náð í þau stig sem í boði voru. „Þjálf- ari er aldrei sáttur, maður sér alltaf eitthvað sem mætti betur fara. Við erum alltaf að reyna að bæta okkar leik. Núna reyndi á hausinn og þeir hafa vonandi lært það af þessum leik að hausinn skiptir líka máli,“ sagði Sigurður. Einar Logi hetja KA-manna Dramatíkin var allsráðandi á Sel-tjarnarnesi í gærkvöld þegar heimamenn í Gróttu/KR lutu í lægra haldi fyrir KA, 32:33. Sigur KA-manna gat vart tæpari verið því hetja gestanna, Ein- ar Logi Friðjónsson, skoraði sigurmarkið fjórum sekúnd- um fyrir leikslok, en heimamenn náðu vart að taka miðju áður en loka- flautið gall. Þetta var fyrsti ósigur Gróttu/KR á Íslandsmótinu og um leið missti liðið af tækifæri til að tylla sér á topp norðurriðils. „Loksins gekk þetta hjá mér. Það var lítið búið að ganga hjá mér fram að þessu og kominn tími til að setja hann og það skipti verulegu máli,“ sagði Einar Logi vígmóður en sigur- reifur í leikslok. „Við börðumst vel og gáfumst ekki upp,“ svaraði Einar þegar hann var inntur eftir því hvað hefði ráðið úrslitum í leiknum. Óhætt er að taka undir þau orð því KA- menn voru lengst af einu til tveimur mörkum undir í leiknum en reyndust sterkari á lokasprettinum sem var æsispennandi. Grótta/KR skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins en þá vöknuðu norð- anmenn til lífsins og með harðfylgi tókst þeim jafna 5:5 þegar tíu mín- útur voru liðnar. Það sem eftir var af fyrri hálfleik var jafnt á flestum töl- um en Grótta/KR hafði yfir 18:17 þegar flautað var til leikhlés. Eins og tölurnar bera með sér var lítið var um varnir hjá liðunum en þeim mun meira af fallegum sóknarfléttum. Snemma í síðari hálfleik brugðu KA-menn á það ráð að taka leik- stjórnanda Gróttu/KR, Litháann Savukynas Gintaras, úr umferð og við það riðlaðist sóknarleikur heima- manna í nokkurn tíma. Það nýttu KA-menn sér og komust yfir. Heima- menn gáfust hins vegar ekki upp og með öguðum sóknarleik náðu þeir að teygja vel á vörn KA-manna og ná tveggja marka forystu, 26:24, þegar síðari hálfleikur var ríflega hálfnað- ur. Þeim tókst hins vegar ekki að hrista KA-menn af sér þar sem Arn- ór Atlason reyndist þeim óþægur ljár í þúfu og skoraði hvert glæsimarkið á fætur öðru ásamt því að eiga góðar sendingar á samherja sína. KA-menn komust svo yfir þegar ein mínúta var eftir, 31:32, og þrátt fyrir að Stelmok- as væri rekinn út af og Grótta/KR jafnaði gáfust þeir ekki upp og vel út- færð lokasókn færði þeim stigin þrjú. Óhætt er að hrósa KA-mönnum fyrir baráttu og eljusemi sem á end- anum skilaði sigri. Arnór Atlason og Andrius Stelmokas voru atkvæða- mestir og unnu vel saman en athygli vekur að markverðir liðsins vörðu að- eins fimm skot og það er ekki á hverj- um degi sem leikir vinnast á slíkri markvörslu. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/ KR var gríðarlega vonsvikinn í leiks- lok. „Mér fannst við hafa leikinn í hendi okkar en það vantaði einhvern neista og vilja í að klára hann. Við átt- um bara ekki skilið að sigra miðað við hvernig við lékum í vörninni auk þess sem við nýttum okkur það ekki nógu vel þegar við vorum einum fleiri,“ sagði Ágúst. Í liði heimamanna bar mest á Þorleifi Björnssyni og Brynj- ari Hreinssyni í annars jöfnu liði Gróttu/KR Kærkominn sigur hjá Eyjamönnum EYJAMENN fögnuðu sínum fyrsta sigri á Íslandsmóti karla í hand- knattleik á laugardaginn, er þeir gerðu góða ferð til Selfoss, þar sem þeir lögðu heimamenn að velli, 29:27. Leikurinn var mjög kaflaskiptur en mest náðu Eyjamenn sex marka forskoti í upphafi seinni hálfleiks. Selfyssingar voru þó hársbreidd frá að jafna leik- inn, en þeir náðu með mikilli seiglu að minnka muninn mest niður í eitt mark, 23:24, þegar 10 mínútur voru eftir. Helgi Valberg skrifar Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar Björn Gíslason skrifar HANDKNATTLEIKUR Íslandsmót karla RE/MAX-deildin, suður- riðill: Vestmannaeyjar: ÍBV - FH..................19.15 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Kennaraháskóli: ÍS - UMFG................19.30 Í KVÖLD Andri Karl skrifar - 25,000. AC Milan - Lazio ................................... 1:0 Andria Pirlo 37. Staða efstu liða: Juventus 6 5 1 0 16:7 16 AC Milan 6 5 1 0 12:3 16 Roma 6 4 2 0 14:3 14 Parma 6 3 2 1 10:7 11 Modena 6 3 1 2 8:4 10 Lazio 6 3 1 2 11:8 10 Udinese 6 3 1 2 7:4 10 Frakkland Bastia – Lens ..........................................3:1 Bordeaux – Toulouse..............................1:2 Lille – Ajaccio .........................................0:1 Lyon – Sochaux.......................................1:1 Metz – Nantes.........................................1:3 Montpellier – Guingamp ........................2:0 París SG – Le Mans ...............................5:1 Rennes – Nice .........................................0:0 Mónakó – Auxerre ..................................1:1 Strasbourg – Marseille...........................4:1 Staða efstu liða: Mónakó 10 7 2 1 19:9 23 Marseille 10 7 0 3 17:9 21 París SG 10 6 1 3 16:10 19 Nantes 10 6 1 3 12:6 19 Holland Nijmegen – Breda ..................................0:3 Roda – Feyenoord ..................................0:0 Twente – Groningen ...............................5:3 Utrecht – Alkmaar .................................0:3 Zwolle – Den Haag .................................1:2 PSV Eindhoven – Heerenveen ..............2:0 Roosendaal – Willem II .........................1:1 Waalwijk – Vitesse .................................2:2 Ajax – Volendam.....................................5:1 Staða efstu liða: Ajax 8 7 0 1 24:8 21 PSV Eindhoven 8 6 1 1 21:6 19 Alkmaar 8 6 1 1 16:5 19 Heerenveen 8 5 0 3 8:7 15 Feyenoord 8 4 2 2 12:8 14 Belgía Genk – Cercle Brugge............................3:1 Standard Liège – Gent...........................2:0 Beerschot – Beveren ..............................2:1 Charleroi – Anderlecht .........................0:1 Club Brugge – Westerlo ........................4:0 Lierse – La Louviere..............................1:1 Lokeren – Heusden-Zolder ...................3:0 Moeskroen – St-Truiden ........................2:1 Mons – Antwerpen .................................1:0 Staða efstu liða:: Anderlecht 9 8 1 0 27:6 25 Genk 9 6 2 1 19:8 20 Club Brugge 9 5 3 1 21:8 18 Danmörk AB – AaB.................................................0:3 AGF – Bröndby.......................................1:2 Midtjylland – Herfølge...........................0:2 Viborg – Esbjerg ....................................1:2 Frem – Nordsjælland.............................5:1 København - OB..................................... 2:2 Staða efstu liða: Bröndby 12 8 2 2 20:8 26 Esbjerg 12 7 3 2 20:13 24 AaB 12 7 2 3 18:13 23 København 12 6 4 2 19:11 22 Svíþjóð AIK – Sundsvall......................................2:1 Halmstad – Djurgården .........................2:3 Malmö – Gautaborg................................1:3 Staða efstu liða: Djurgården 25 17 2 6 56:25 53 Malmö 25 14 6 5 50:22 48 Hammarby 24 14 5 5 47:29 47 Örgryte 24 12 3 9 39:39 39 Noregur Rosenborg – Stabæk ..............................1:6 Brann – Bryne ........................................3:0 Odd Grenland – Lyn...............................1:1 Sogndal – Lilleström ..............................2:1 Viking – Bodö/Glimt ...............................1:2 Ålesund – Molde .....................................1:1 Staðan: Rosenborg 24 18 4 2 64:25 58 Bodö/Glimt 24 12 5 7 38:28 41 Stabæk 24 10 9 5 47:31 39 Odd Grenland 24 11 5 8 44:36 38 Sogndal 24 9 8 7 41:40 35 Viking 24 7 10 7 41:32 31 Brann 24 8 7 9 41:46 31 Lilleström 24 8 7 9 27:35 31 Molde 24 8 4 12 28:37 28 Lyn 24 7 6 11 33:42 27 Tromsö 23 7 5 11 29:48 26 Vålerenga 23 5 10 8 26:29 25 Ålesund 24 6 7 11 27:40 25 Bryne 24 7 1 16 33:50 22 Sheff. Wed. 14 6 5 3 20:15 23 Port Vale 13 7 2 4 21:17 23 Bournem. 14 6 5 3 16:13 23 Bristol City 14 5 7 2 17:9 22 Barnsley 13 6 4 3 16:15 22 Plymouth 13 5 6 2 27:16 21 Hartlepool 14 5 6 3 25:18 21 Luton 14 6 3 5 25:23 21 Oldham 14 5 5 4 26:21 20 Swindon 14 5 5 4 23:20 20 Colchester 14 5 4 5 16:19 19 Wrexham 12 5 3 4 11:12 18 Rushden & D. 14 5 3 6 21:23 18 Blackpool 13 5 3 5 19:22 18 Grimsby 14 5 3 6 18:22 18 Brentford 13 5 2 6 14:21 17 Tranmere 14 3 5 6 15:25 14 Stockport 14 2 6 6 17:24 12 Peterborough 13 2 5 6 15:20 11 Notts County 14 2 4 8 13:25 10 Chesterfield 14 1 6 7 11:21 9 Wycombe 14 1 4 9 15:28 7 Skotland Aberdeen - Dundee Utd. ......................... 0:1 Celtic - Hearts .......................................... 5:0 Dunfermline - Kilmarnock ...................... 2:3 Dundee - Partick ...................................... 1:0 Hibernian - Livingston ............................ 0:2 Motherwell - Rangers.............................. 1:1  Celtic er efst með 25 stig, Rangers 22, Dundee 14, Hearts 14. Þýskaland 1860 München – Frankfurt...................1:0 Benjamin Lauth 90. víti. - 26,000. Bremen – Stuttgart ...............................1:3 Angelos Charisteas 60. - Imre Szabics 31., Kevin Kuranyi 34., Christian Tiffert 90. - 41,100. Dortmund – Hannover ..........................6:2 Ewerthon 34. 76., Lars Ricken 42.Sebast- ian Kehl 53., Jan Koller 6578. - Bergantin Vinicius 58., Denis Wolf 80. - 80,500. Gladbach – Bayern München ..............0:0 - 34,500 Hertha – Leverkusen.............................1:4 Fredi Bobic 47. - Francoaldo Franca 11., Dimitar Berbatov 54., Bernd Schneider 72., Marko Babic 85. - 36.638. Köln – Freiburg .....................................1:0 Mustafa Dogan 70. Wolfsburg – Rostock .............................3:1 Diego Klimowicz 31., Francesco Baiano 39., 67. - Rene Rydlewicz 42. - 19,846. Schalke - Bochum ................................. 0:2 Frank Fahrenhorst 65., Mamadou Diab- ang 79. Kaiserslautern - Hamburg................... 4:0 Lucien Mettomo 37., Miroslav Klose 62., 75., Christian Timm 74. Staða efstu liða:: Leverkusen 9 7 1 1 23:7 22 Stuttgart 9 6 3 0 12:1 21 Dortmund 9 6 1 2 19:8 19 Bremen 9 6 1 2 22:12 19 Bayern München 9 5 3 1 21:12 18 Spánn Albacete – Real Sociedad......................3:1 Delporte 67., David Sanchez 75., Carlos Aranda 77. - Nihat 71. - 15,000. Barcelona – Deportivo ..........................0:2 Alberto Luque 40., Sergio 70. - 68,000. Celta Vigo – Real Madrid......................0:2 Ronaldo 24., Roberto Carlos 54. - 26,000. Bilbao - Villareal................................... 2:0 Ismael Urzaiz 51., Joseba Etxeberria 82. - 34,000. R.Santander - Málaga........................... 4:2 Fernando moran 55., Yossi Benayoun 58., Valle Jonathan 68., Rodolfo Bodipo 80. - Ballesta Silva 18., Ivan Leko 89 - 11,900. Zaragoza - Valladolid........................... 1:0 Bortolini Savio 15. - 30,000 Valencia - Espanyol .............................. 4:0 Miguel Mista 7. 45., Ruben Baraja 44., Rodrigues Vicente 78. - 45,000 Atletico Madrid - Mallorca................... 2:1 Fernando Torres 26., Larena Jorge 90. - Samuel Eto 37. - 50,000 Osasuna - Murcia .................................. 2:1 Ibrahima Bakayoko 11., 83. - Luis Garcia 18. - 13,930. Sevilla - Real Betis................................ 2:2 Antonio Reyes 50., 81. - Denilson 52., Jorge Tote 60. Staða efstu liða:: Valencia 7 6 1 0 13:1 19 Deportivo 7 6 0 1 17:5 18 Real Madrid 7 5 1 1 17:8 16 Osasuna 7 4 2 1 10:6 14 Ítalía Bologna – Perugia .................................2:2 Dalla Bona 76., Fausto Rossini. - Rossini sjálfsmark 47., Jay Bothroyd 75. - 18,000. Chievo – Sampdoria...............................1:1 Arnauri 24. - Aimo Dia Modena – Lecce......................................2:0 Fabio Vignaroli 63., Diomansy kamara 90. Reggina – Siena .....................................2:1 Santos Mozart 21., Julio Cesar 90. - Tore Andre Flo 90. - 20,000. Roma – Parma........................................2:0 Walter Samuel 28., Antonio Cassano 60. - 55,000. Udinese – Empoli ...................................2:0 Nestor Sensini 31., Vincenzo Iaquinta 33. - 12,000. Ancona – Juventus.................................2:3 William Viali 56., Maurizio Ganz 90. - Fabrizio Miccoli 28.,48, Gianluca Zam- brotti 43. - 24,000. Brescia – Inter........................................2:2 Roberto Baggio 21., Andrea Caraccolo 48. - Julio Cruz 63., Christian Vieri vítasp. 87.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.