Morgunblaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 1 0 0 3 FRÉTT ehf. hefur keypt eignir þrotabús DV og réttinn að útgáfu þess af Hömlum og er stefnt að út- gáfu DV í næstu viku og mun blaðið koma út á morgnana, frá mánudegi til laugardags. Starfsfólk DV verður þó ekki allt ráðið aftur en haft verður samband við það á næstu dögum. Ekki hefur verið greint frá kaup- verðinu að öðru leyti en því að Höml- ur fá greitt með nýju hlutafé í Frétt en þó ekki meira en 25% að því er Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Fréttablaðsins, sagði á blaðamanna- fundi. Hann sagði markmiðið vera að koma DV aftur út í næstu viku og sem fyrst og þá væntanlega áfram undir nafni DV. Starfsfólk DV ekki allt ráðið aftur Gunnar sagði að eitthvað af fólkinu verði ráðið aftur en örugglega ekki allt. Fyrir liggi að mikið tap hafi ver- ið á rekstri DV og ekki sé gerlegt að leggja út í jafnumfangsmikinn rekst- ur og var áður. Útgáfa blaðsins verði fyrst um sinn á sama stað og hún var en markmiðið verði þó að flytja alla starfsemi Fréttar á sama stað. „Hugmyndin er sú að nýta sam- legðaráhrif sem eru af því að gefa út tvö blöð af sama útgáfufélagi þannig að dreifing, skrifstofa, auglýsinga- deild, ljósmyndir o.fl. verði sameig- inleg. Það felur í sér betri nýt- ingu á starfsfólki. Við gerum okkur grein fyrir því að til þess að ná blaðinu á flug aftur þarf ákveðna endurnýjun í hópinn.“ Gunnar segir að ekki sé búið að ráða ritsjóra að DV en það verði gert á næstu dögum og þeir verði væntanlega tveir. Hann segir óljóst hvar blaðið verði prentað, haft verði sam- band bæði við Prentsmiðju Morgunblaðsins og Ísafoldar- prentsmiðju sem fyrst og leit- að eftir samningum um prent- un blaðsins. Gunnar segir blaðið verða annarrar tegundar en Morgunblaðið og Fréttablaðið, það verði byggt upp svipað og síðdegisblöð sem séu gefin út í löndunum í kring en mjög mörg þeirra séu nú gefin út á morgnana. „Við trúum því að með því að gefa út gott slíkt blað getum við náð miklum árangri og náð að auka áskrift og lausasölu.“ Frétt ehf. gefur DV út í næstu viku Morgunblaðið/Sverrir Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Frétta- blaðsins, kynnir útgáfu DV undir merkjum Fréttar ehf. á næstunni. MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá Hömlum, dótturfélagi Landsbanka Íslands: „Gengið hefur verið frá samningi milli skiptastjóra þrotabús Útgáfu- félags DV og Hamla hf., sem er dótt- urfélag Landsbanka Íslands, um að Hömlur leysi til sín eignir þrotabús- ins og rekstur félagsins. Þá hafa Hömlur selt Frétt ehf. eignir þrota- búsins og þar með réttinn til útgáfu DV. Landsbanki Íslands hefur frá því að til gjaldþrots Útgáfufélags DV kom sl. þriðjudag lagt á það höfuð- áherslu að framtíðarútgáfa DV verði tryggð með eins skjótum hætti og kostur er. Þannig yrði skaði útgáf- unnar sem minnstur, óvissu starfs- fólks yrði eytt og hagsmunum bank- ans best borgið. Þá gæti endurreisn DV hafist hið fyrsta og blaðið öðlast það hlutverk sem það áður hafði í ís- lensku þjóðlífi og menningu. Útgáfufélögin Frétt ehf. og Árvak- ur hf. höfðu sett sig í samband við Hömlur og sýnt útgáfu DV áhuga. Raunar var áhugi Fréttar ehf. þegar ljós á greiðslustöðvunartímanum þar sem til umræðu var þátttaka þeirra í hlutafjáraukningu Útgáfufélags DV. Þær viðræður leiddu af sér að fyrir lá rammi að samkomulagi um aðkomu Fréttar að útgáfu DV í kjölfar nauða- samningsins. Þegar greiðslustöðvun félagsins rann út, varð hins vegar ljóst að ekki hafði tekist að afla nægi- legs hlutafjár frá öðrum aðilum. Á þeim tíma lá fyrir að Árvakur hafði ekki áhuga á að gerast hluthafi í Út- gáfufélagi DV ehf. Þegar Útgáfufélag DV hafði verið tekið til gjaldþrota- skipta barst bréf frá Árvakri hf. þar sem boðið var upp á viðræður milli bankans og Árvakurs án þess að sett- ar væru fram ákveðnar hugmyndir um með hvaða hætti atbeini Árvakurs að útgáfu DV gæti orðið. Í ljósi þessa þótti líklegt að nokkurn tíma mundi taka í viðræðum við Árvakur á þessu stigi að fullmóta hugmyndir um að- komu félagsins að DV. Í ljósi þess að hagsmunir málsins kröfðust þess að framtíðarútgáfu DV yrði mótaður farvegur eins fljótt og nokkur kostur væri, taldi Hömlur ráðlegast að taka upp þráðinn við fulltrúa Fréttar ehf. fremur en að hefja frá grunni viðræð- ur við Árvakur um málið. Þeim við- ræðum lauk með áðurnefndum samn- ingum Hamla og Fréttar ehf. Landsbanki Íslands óskar DV vel- farnaðar í höndum nýrra útgefenda.“ Yfirlýsing Hamla hf. um samkomulag vegna DV STARFSMENN DV hafa verið í mikilli óvissu um réttarstöðu sína í kjölfar gjaldþrots útgáfu- félags blaðsins. Að sögn Erlings Kristensson, trúnaðarmanns starfsmanna hjá DV, var ekkert rætt við starfsmenn í gær um hvert framhaldið verður en hann segir að útlitið sé þó betra í ljósi þess sem fram hafi komið af hálfu nýrra eigenda í fréttum í gærkvöldi um að rætt verði við starfsfólkið á næstu dögum. Starfsfólk DV hittist í hádeg- inu í gær til að bera saman bæk- ur sínar og fara yfir réttarstöðu starfsmanna með lögfræðingi og framkvæmdastjóra Blaða- mannafélagsins. Að sögn Er- lings fengu nokkrir starfsmenn, sem voru fyrir tilviljun staddir í DV-húsinu í gærmorgun, upp- sagnarbréf frá skiptastjóra. Gera megi ráð fyrir að aðrir fái sent uppsagnarbréf í pósti. Að sögn hans er um rúmlega 70 starfsmenn að ræða. „Það er áframhaldandi óvissa. Fólkið er án atvinnu en vonandi fá allir vinnu áfram á sínu sviði.“ Óvissa starfs- fólks Hann sagðist ekki geta greint frá því á þessari stundu hvað Hömlur greiða fyrir eignirnar. „Þeir voru þeir einu sem sýndu þessu áhuga og það er reyndar kannski skiljanlegt. Landsbankinn, sem á Hömlur, er eini veðhafinn í búinu og á veð í öll- um eigum. Það er því eins og oft á sér stað, að veðhafinn leysir til sín eignir,“ sagði hann Spurður hvernig gætt yrði hags- muna annarra kröfuhafa sagði Þor- steinn að hans hlutverk væri að há- marka eignirnar og koma þeim í sem mest verð til þess að unnt sé að greiða sem mest upp í kröfur. ,,Það verður líka að greiða upp í veðkröf- ur. Það eru einhverjir peningar til upp í aðrar kröfur en væntanlega er það eitthvað óverulegt. Það skiptir hins vegar einnig máli að selja reksturinn, þannig að þetta snúist áfram og þá fá vonandi margir vinnu áfram og ekki verða kröfur um laun í uppsagnarfresti. Þetta spilar allt saman.“ Frestur til að lýsa kröfum í búið er ekki runninn út og sagðist Þor- steinn því ekki hafa nákvæmar upp- lýsingar um hversu háar forgangs- kröfur eru í búið. Áætlar að veðkröfur bankans nemi allt að 300 milljónum kr. Ákveðið hafði verið eftir að Út- gáfufélagið DV var úrskurðað gjald- þrota að gefa blaðið út næstu daga en sl. miðvikudag var hins vegar ákveðið að gera hlé á útgáfu blaðs- ins og kom það ekki út í gær. Spurð- ur um ástæður þessa sagði Þor- steinn það hafa verið ákvörðun veðhafans [Landsbankans], sem réði því. „Búið á enga peninga til þess að reka blað þannig að það var gert af hálfu þess sem mestra hags- muna átti að gæta.“ Eins og fram hefur komið óskaði Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðs- ins, eftir viðræðum við Landsbank- ann um áframhaldandi útgáfu DV sl. þriðjudagskvöld. Þorsteinn segir að Árvakur hafi ekki sóst eftir viðræð- um við sig vegna þessa. Spurður hvort áhugi Árvakurs hafi engin áhrif haft á ákvörðun hans að ganga til samninga við Hömlur um að Hömlur leysi til sín eignir þrotabúsins og rekstur fé- lagsins sagði Þorsteinn: „Það sem ég hafði fregnað var að Árvakur hefði áhuga á að ræða við Lands- bankann um framhaldið. Það var hins vegar ekki rætt við mig af hálfu Árvakurs um mögulega aðkomu þar að, enda kannski mjög erfitt því veð- kröfur eru svo háar að það er bank- inn sem ræður þar ferðinni.“ Þorsteinn segir að ætla megi að veðkröfur í búið nemi allt að 300 milljónum kr. og að Landsbankinn eigi kröfur upp á 500 til 600 millj- ónir kr. Áhersla á að afgreiða launa- kröfur svo fljótt sem verða má Þorsteinn segir spurður um fram- hald málsins á vettvangi skipta- stjóra að hann vinni m.a. að því að segja upp ráðningarsamningum við starfsmenn og samningum um leigu á fasteignum o.fl. í þeim tilgangi að losa búið undan skuldbindingum. „Þá hef ég auglýst eftir kröfum og á að sjálfsögðu eftir að fara yfir þær. Ég mun leggja áherslu á að afgreiða launakröfur eins fljótt og unnt er ef til koma. Það verður síðan haldinn skiptafundur í byrjun febrúar til að fjalla um kröfuskrána.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Starfsfólk DV fór í gær yfir réttarstöðu sína með fulltrúum stéttarfélaga, en flestir eru í Blaðamannafélagi Íslands, VR og Félagi bókagerðarmanna. Öllum starfsmönnum DV sent uppsagnarbréf ÖLLUM starfsmönnum DV var í gærdag og gærkvöldi sent uppsagnarbréf samkvæmt upplýsingum Þorsteins Einarssonar, skiptastjóra þrotabúsins. Spurður um ástæður þess að ákveðið var að semja við Hömlur hf., dótturfélag Landsbankans, um að Hömlur leysi til sín eignir þrotabúsins og rekstur fé- lagsins, sagði Þorsteinn að Landsbankinn hafi verið sá eini sem sýnt hafi áhuga á að kaupa eignir búsins og rekstur félagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.