Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Gissur og Sylvia koma
í dag. Mánafoss og
Skógarfoss fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og
jóga, kl. 14 bingó. Hár-
snyrting, fótaaðgerð.
Litli kórinn í Neskirkju
í kaffitímanum undir
stjórn Ingu Backman
og undirleik Stein-
gríms Þórhallssonar.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16,30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag
í mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
vefnaður og spilað í sal.
föstud. Kl.10 helgi-
stund með sr. Kristínu
Pálsdóttur.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðslustofan
opin, kl. 14 söngstund.
kl. 9–16.30 púttvöll-
urinn opinn þegar veð-
ur leyfir.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, myndlist
o.fl., kl. 9.30 gönguhóp-
ur, kl. 14 spilað.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“ spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 9 og kl.
13 vinnuhópur gler.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9. Leikfimi í Bjark-
arhúsi kl. 11.30, tréút-
skurður og brids kl. 13.
Dansleikur í kvöld kl.
20.30, Caprí Tríó leikur
fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Útvarp Saga
94,3 í dag kl. 12.20.
Þáttur um málefni
eldri borgara. Munið
árshátíð FEB í Ás-
garði, Glæsibæ, í dag
kl. 19.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
10 „gleðin léttir lim-
ina“, létt ganga, í heim-
sókn kemur Benedikt
Davíðsson, formaður
landssambands eldri
borgara, frá hádegi
spilasalur opinn, kl.
13.30 kóræfing. Dans
fellur niður.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga. Kl. 14–15 Gleði-
gjafarnir syngja.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla.
Bingó kl. 14.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–12 postulínsmálning,
kl. 14.30 spænska,
framhald.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
17 hárgreiðsla, kl. 10–
11 boccia, kl. 14 leik-
fimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl.10–11
kántrídans. Kl.13–16
handverkssala, kl.13.30
sungið við flygilinn við
undirleik Sigurgeirs,
kl.14.30 dansað við
lagaval Halldóru.
Vitatorg. Kl. 8. 45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9. 30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
12. 30 leir, kl. 13. 30
bingó.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud. Þriggja
kvölda hrað-
sveitakeppni hefst
þriðjudaginn 11. nóv-
ember. Skráning hjá
Ólafi Lárussyni s.
698 6538.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Sjálfsbjörg, Hátúni 12.
Kl. 19.30 kvöldvaka,
föndur, leiðbeinandi
Elísabet Stefánsdóttir.
Kattavinafélag Ís-
lands, aðalfundurinn
verður haldinn fimmtu-
daginn 13. nóvember
kl. 19 í húsi félagsins að
Stangarhyl 2.
Hrafnista, Reykjavík.
Basar verður á morg-
un, laugard. 8. nóv. kl.
13–17 og mánud. 10.
nóv. kl. 10–15. Til sölu
verður handavinna
heimilisfólks. Stjórn
Ættingjabandsins, fé-
lag aðstandenda heim-
ilisfólksins selur heitt
súkkulaði og vöfflur á
laugardaginn. Sig-
urður Hannesson
hamonikkuleikari
skemmtir.
Í dag er föstudagur 7. nóvember,
311. dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Þess vegna skulum vér, meðan tími
er til, gjöra öllum gott og einkum trú-
bræðrum vorum.
(Gl. 6, 10.)
Gunnlaugur Júlíussonskrifar á framsókn-
arvefinn Hrifla.is um
byggðamál. Gunnlaugur
leggur út af tveimur
greinum í blaði Svarfdæl-
inga, Norðurslóð.
„Hin fyrri var bráð-
skemmtileg grein eftir
Árna Daníel Júlíusson
sagnfræðing sem heitir
„Rokk í Svarfaðardal“.
Hún fjallar um uppvaxt-
arár hans í Svarfaðardal
þar sem hann gerir
ágæta úttekt á tónlist-
arsmekk og rokkstefnum
ungmenna í Svarfaðardal
snemma á 8. áratugnum,“
skrifar Gunnlaugur. „Á
þessum árum var þétt
setinn Svarfaðardalur og
stórir systkinahópar á
flestum bæjum sem höfðu
misjafnar áherslur og
misjafnan smekk á helstu
próföstum í rokkheim-
inum. Félagslíf var mikið
í dalnum, bæði formlegt
og óformlegt og m.a. iðu-
lega farið á milli bæja
þegar fréttist af nýrri
skrautfjöður úr tónlist-
arheiminum. Þetta sam-
félag fóstraði ýmsa
sterka einstaklinga sem
hafa síðar orðið þjóð-
kunnir vegna starfa og
sköpunarhæfileika.“
Seinni greinin hefurannað yfirbragð. Hún
er forystugrein blaðsins
og heitir „Sveit í varn-
arbaráttu“. Nú er öldin
önnur miðað við grein
Árna og það líf sem hann
lýsir. Af þeim 45 bæjum
sem áður var búið á hef-
ur búskapur lagst af á um
20. Þó er Svarfaðardalur
blómleg sveit frá náttúr-
unnar hendi og fé-
lagslega sterkt samfélag.
Hvað veldur? Svarf-
aðardalur er hér tekinn
sem dæmi fyrir þá þróun
sem hefur verið að gerast
í mörgum öðrum sveitum
á Íslandi og í fjölmörgum
sjávarþorpum. Vafalaust
er ekki nein ein skýring á
því en þessi þróun er ein
hliðin á þeim miklu þjóð-
félagsbreytingum sem
við stöndum frammi fyrr,
hvort sem okkur líkar
betur eða verr. Tækni-
framfarir gera mönnum
kleift að leysa viðfangs-
efnin til sjávar og sveita
hraðar og með færri
höndum en áður gerðist.
Meðan svigrúm atvinnu-
greinar vex ekki þá
fækkar því fólki sem get-
ur haft framfæri sitt af
störfum við hana, hvort
sem um er að ræða land-
búnað eða sjávarútveg.
Afleiðingin er að búseta
dregst saman í sveit og
þorpum og þjóðfélagið
allt tekur breytingum.“
Ein af þeim breytingumsem eru að eiga sér
stað í Svarfaðardal, svo
hann sé tekinn sem
áframhaldandi dæmi, er
að fólk er farið að flytja
úr þéttbýlinu inn í sveit-
ina en vinnur áfram úti á
Dalvík. Þannig samnýta
menn kosti dreifbýlisins
og atvinnu í þéttbýlinu.
Landnotkun er því að
breytast frá því sem var
þegar matvæli voru
framleidd hvar sem hægt
var í sveitum landsins,“
skrifar Gunnlaugur Júl-
íusson.
STAKSTEINAR
Svarfaðardalur og þjóð-
félagsbreytingarnar
Víkverji skrifar...
ÞAÐ er kunnara en frá þurfi aðsegja að góðar sögur verða oft
skrautlegri eftir því sem fleiri
segja þær. Svo eru líka dæmi þess
að góðir sögumenn bæti alltaf svo-
lítið við sögur af sjálfum sér eftir
því sem þeir segja þær oftar,
þannig að þær séu að lokum orðn-
ar harla ólíkar upprunalegu útgáf-
unni.
x x x
DÆMI um það síðarnefnda rakstVíkverji á í bandaríska blaðinu
Corvallis Gazette-Times, sem gefið
er út í Oregon. Þar var fyrr í vik-
unni viðtal við fornleifafræðinginn
Dan Mulligan, sem vann sér það
til frægðar í haust að ganga þvert
yfir Ísland, frá Hraunhafnartanga
til Dyrhólaeyjar, á 49 dögum.
Mulligan þessi var í viðtali á
baksíðu Morgunblaðsins 12. októ-
ber síðastliðinn og hafði þar aug-
ljóslega gaman af að segja frá af-
reki sínu. Hann hallaðist þá að því
að hann hefði gengið um 450 kíló-
metra. Í blaðinu, sem gefið er út á
hans heimaslóðum í Corvallis, er
leiðin orðin 400 mílur, eða heilir
640 kílómetrar.
EKKI nóg með það. Aðalatriðiviðtalsins er að Mulligan fót-
brotnaði „í miðri íslenzku eyði-
mörkinni“ og hökti heilar 150 míl-
ur þannig á sig kominn til byggða.
Ekkert kom fram um fótbrotið í
Morgunblaðsviðtalinu, enda virtist
Mulligan við beztu heilsu þegar
blaðamaður ræddi við hann og
bara nokkuð léttur á fæti.
Eftir slysið útbjó Mulligan
hækjur úr göngustöfunum sínum,
segir í bandaríska blaðinu. Þegar
hann áði í veitingaskála var „hækj-
unum“ hins vegar stolið og það
sem verra var; þjófurinn vissi að
hann var slasaður. „Ég var eini
fjallgöngumaðurinn þarna. Þeir
vissu það. Þetta var slæmt,“ segir
Mulligan í viðtalinu.
Í Morgunblaðsviðtalinu kom
hins vegar bara fram að Mulligan
var „stundum mjög illt í fótunum“
en fólkið, sem hann hitti á leiðinni,
„var allt svo vingjarnlegt. Sumir
buðu mér meira að segja kökur.“
x x x
Í Corvallis Gazette-Times er rættvið föður Mulligans, William,
sem segist orðinn vanur því að
sonur hans fari í ævintýraferðir og
komi heim með ævintýralegar sög-
ur í farteskinu. Einu sinni rakst
hann til dæmis á heila hjörð af
elgjum og gekk mitt á meðal
þeirra. Öðru sinni svaf hann á
meðal fjallageita, segir pabbinn –
og ekki gleyma því að hann gekk
240 kílómetra á Íslandi fótbrotinn,
bætir Víkverji við.
Morgunblaðið/Sverrir
Dan Mulligan, göngumaðurinn
skreytni.
Ávinningur neytenda
af einkavæðingu
NÚ hefur verið endurupp-
tekin á Alþingi umræða um
einkavæðingu Landssíma
Íslands, en eins og alþjóð
veit þá mistókst síðasta til-
raun til einkavæðingar
Símans.
Það er vert að staldra
við, og líta á þær einkavæð-
ingar ríkisfyrirtækja, sem
hafa, að nafninu til, tekist.
Það verður hrópleg sú
spurning: Hvaða ávinnings
hefur almenningur orðið
aðnjótandi í kjölfarið?
Fjármálastofnanir taka
nægar tekjur inn á þjón-
ustugjöldunum einum sam-
an til að greiða öll laun og
launatengd gjöld. Útlán til
einstaklinga eru enn
tryggð með fasteignaveð-
um, eða sjálfskuldarábyrgð
aðstandenda. Þrátt fyrir
það, eru vextir enn með því
hæsta, sem þekkist, og vísi-
tölutryggðir í þokkabót.
Hin dreifða eignaraðild,
sem stefnt var að, hefur
ekki gengið eftir, þannig að
milljarðahagnaður hinna
einkavæddu banka rennur í
vasa fárra útvalinna, enda
varð til hugtakið „einka-
vinavæðing“ í þessu sam-
hengi.
Tryggingafélög á Íslandi
komast upp með að hækka
tryggingar um tugi pró-
senta á ári, ár eftir ár, þrátt
fyrir að eiga tugi milljarða í
bótasjóðum, og er nú svo
komið að bifreiðatrygging-
ar á Íslandi eru þrisvar til
fimm sinnum hærri en
gengur og gerist í ná-
grannalöndum okkar.
Þá kemur á daginn að
verðsamráð hefur tíðkast í
áraraðir, og er eitt slíkt mál
nú í rannsókn lögreglu og
Samkeppnisstofnunar, sem
snúist hefur um að halda
verði á eldsneyti sem
hæstu.
Undirrituðum er vonandi
fyrirgefið að sjá hliðstæður
við einkvæðingu ríkisfyrir-
tækja í Rússlandi, sem nú
eru til umræðu í heims-
fréttum.
Í ljósi þessarar reynslu
er vert að spyrja: Hvers er
að vænta af einkavæðingu
Landssíma Íslands? Í dag
er í raun einungis einn sam-
keppnisaðili á fjarskipta-
markaði. Það er hagur
þessa samkeppnisaðila að
halda verðlagi háu, en verð-
samkeppni Landssímans
hefur verið hamlað af ein-
okunarlögum. Það er því
ekki sýnt að einkavæðing
Símans muni verða neyt-
endum til hagsbóta.
Hvað er til ráða? Það er
skoðun undirritaðs að ekki
liggi á sölu Landssíma Ís-
lands, heldur liggi á að
framkvæma opinbera út-
tekt á ávinningi neytenda í
landinu. Í ljósi þeirra
teikna, sem hér hafa verið
tilgreind, þá gæti vel hugs-
ast að sterkasti leikurinn
væri að stofna ríkisolíu-
félag, og ríkistrygginga-
félag, til að veita þeim að-
hald, sem freistast til að
skara um of eld að eigin
köku.
Sigurður Ingi Jónsson.
Dýrahald
Jakob er týndur
HANN er gulur og hvítur
geldur fress, mjög gæfur.
Hann týndist úr Jakaseli í
Breiðholti sl. sunnudag.
Hans er sárt saknað. Hann
er eyrnamerktur en ólar-
laus. Fólk er beðið að at-
huga geymslur og skúra í
hverfinu. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 695 6673.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
LÁRÉTT
1 tvístígur, 4 hestur, 7
kátt, 8 hnötturinn, 9
ræktað land, 11 skrifaði,
13 skot, 14 allmikill, 15
droll, 17 aðstoð, 20 skellti
upp úr, 22 snákar, 23
blíða, 24 hinar, 25 missa
marks.
LÓÐRÉTT
1 ástæður, 2 hálfbráðinn
snjór, 3 stekkur, 4 áköf
löngun, 5 lágt hitastig, 6
trjágróður, 10 skapvond,
12 hreinn, 13 rösk, 15
lægja, 16 trylltar, 18 ör-
grunnur hellir, 19 hagn-
að, 20 ósoðinn, 21 ólest-
ur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 munnharpa, 8 regns, 9 laxar, 10 tía, 11 karri,
13 rýran, 15 flagg, 18 halar, 21 efi, 22 riðli, 23 kúgun, 24
munstruðu.
Lóðrétt: 2 ungar, 3 nesti, 4 aflar, 5 pexar, 6 þrek, 7
grön, 12 róg, 14 ýja, 15 forn, 16 auðnu, 17 geims, 18 hik-
ar, 19 lagið, 20 renn.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16