Morgunblaðið - 07.11.2003, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 11
á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050
Póstsendum
Frábærar ullarsængur og koddar
- gott fyrir gigtveika
Austurrísk gæðavara
Laugavegi 32 sími 561 0075
20% afsláttur af glerjum í dag og á morgun
fiökkum gó›ar móttökur og
vi›skipti á árinu sem li›i› er sí›an
verslunin okkar brann
Mörkinni 6 • Sími 588 5518
Opið laugardaga
kl. 10-16
Yfirhafnir
í úrvali
Ullarúlpur
Heilsársúlpur
Hattar og húfur
Á FUNDI stúdenta við Háskóla Ís-
lands og þingmanna Framsókn-
arflokks, Frjálslyndra, Samfylk-
ingar og Sjálfstæðisflokki um
hugsanlega upptöku skólagjalda
við skólann kom fram að það er
ekki stefna stjórnarflokkanna að
taka upp skólagjöld við HÍ.
Birgir Ármannsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði mikla
fjölgun nemenda í HÍ á undan-
förnum árum hafa kallað á háar
fjárhæðir og útgjöld til skólans
hefðu því stóraukist undanfarið.
„Auðvitað er alveg ljóst að skóla-
gjöld geta komið til greina við
þennan skóla eins og svo víða ann-
ars staðar. [...] Slíku hlytu að fylgja
ákveðnar aðrar breytingar, svo
sem trygging á því að slík skóla-
gjöld væru lánshæf og hugsanlega
auknir styrkir til nemenda sem
annaðhvort standa fram úr á ein-
hverjum sviðum eða ættu í erf-
iðleikum við að standa straum af
greiðslu skólagjalda.“ Ljóst er að
slík breyting yrði ekki gerð nema
með víðtæku samþykki háskólans,
stúdenta og stjórnvalda, sagði Birg-
ir. Hann ítrekaði að það væri ekki á
stefnu ríkisstjórnarinnar og stjórn-
arflokkanna að taka upp skólagjöld
við HÍ.
Dagný Jónsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks, segist ekki viss
um að skólagjöldin muni skila skól-
anum því sem þeir halda. „Við vilj-
um ekki sjá að háskólanám hér sé
bara fyrir suma og ekki alla.“
Hún ítrekaði að það séu ekki
stjórnvöld sem hófu umræðuna um
skólagjöldin heldur háskólarektor.
„Ég vona innilega að HÍ haldi
skólagjaldakröfunni ekki til streitu
og ég vona að ég muni ekki upplifa
það sem varaformaður mennta-
málanefndar að fá inn erindi frá HÍ
þess efnis að breyta lögum um HÍ
og taka upp skólagjöld. Ég ítreka
það aftur að stefna Framsókn-
arflokksins er jafnrétti til náms fyr-
ir alla og engin skólagjöld.“
Á fundinum sagði Katrín Júl-
íusdóttir, þingmaður Samfylking-
arinnar, að skólagjöld myndu gera
nám að forréttindum hinna efna-
meiri. „Samfylkingin hafnar skóla-
gjöldum í öllu námi í grunn- og
framhaldsskólum og í háskólum
hins opinbera.“
Katrín sagði að upptaka skóla-
gjalda myndi skapa óverulegar
tekjur en myndi auka enn á þunga
skuldastöðu nemenda. Hún gaf ekki
mikið fyrir þau rök að með því að
taka upp skólagjöld væri verið að
efla kostnaðarvitund nemenda, og
sagði nám dýrt fyrir nemendur m.a.
vegna annars kostnaðar en af
skólagjöldum og vegna þess að þeir
hafa ekki tekjur meðan á náminu
stendur.
Nemendur spurðu þingmennina
spjörunum úr, og vildu meðal ann-
ars vita þeirra skoðun á því sem
þeir kölluðu skerta samkeppn-
isstöðu lagadeildar HÍ og hvernig
væri hægt að leiðrétta hana. Birgir
minnti á að HÍ hafi ákveðið sam-
keppnisforskot í formi meira fjár-
magns til rannsóknarstarfsemi,
umfram einkareknu skólana. Hann
sagði að þess vegna þyrfti að bera
saman alla fjármögnun til skól-
anna, ekki bara framlög til kennsl-
unnar.
Skólagjöld ekki á stefnu stjórnvalda
Morgunblaðið/Jim Smart
Um 50 stúdentar við HÍ hlýddu á mál þingmanna og spurðu þá um hugsanlega upptöku skólagjalda.
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn-
ismála hefur að hluta fallist á þá
kröfu hf. Eimskipafélags Íslands að
upplýsingar, sem félagið veitti
Samkeppnisstofnun vegna rann-
sóknar á meintum brotum gegn
samkeppnislögum, teljist trúnaðar-
upplýsingar sem ekki megi kynna
Samskipum hf. Um er að ræða upp-
lýsingar sem tengjast viðskiptum
við bílaumboð en öðrum upplýsing-
um telur áfrýjunarnefndin ástæðu-
laust að leyna.
Málið hófst þegar Samskip kvört-
uðu til Samkeppnisstofnunar á síð-
asta ári yfir því að Eimskip hefði
með ýmsum hætti misnotað mark-
aðsráðandi stöðu sína á markaði
fyrir sjóflutninga til og frá Íslandi.
Samkeppnisstofnun hóf rannsókn á
málinu og sendi m.a. erindi Sam-
skipa til Eimskips til umsagnar.
Með bréfi Eimskips til Sam-
keppnisstofnunar í desember sl.
voru gerðar athugasemdir við er-
indi Samskipa og var farið fram á
að hluti bréfsins yrði meðhöndlaður
sem trúnaðarmál. Samskip gerðu
þá kröfu eftir að hafa fengið bréf
Eimskips til umsagnar, þar sem
felldar höfðu verið út þær upplýs-
ingar sem Eimskipafélagið taldi
njóta trúnaðar, að fyrirtækið fengi
aðgang að þeim upplýsingum. Taldi
Samskip að bréf Eimskips væri
sundurlaust og því væri í mörgum
tilvikum erfitt eða ómögulegt fyrir
fyrirtækið að koma að athugasemd-
um.
Fallist á sjónarmið Samskipa
Samkeppnisstofnun féllst á þetta
sjónarmið Samskipa og með bréfi
stofnunarinnar í janúar var Eim-
skipafélaginu sent afrit af um-
ræddu bréfi félagsins þar sem þær
upplýsingar sem stofnunin féllst á
að nytu trúnaðar voru sérstaklega
auðkenndar. Með bréfum Eimskips
dagsettum í janúar og júlí voru
færð nánari rök fyrir því að upplýs-
ingar sem Samkeppnisstofnun hafði
ekki fallist á að nytu trúnaðar teld-
ust trúnaðarupplýsingar og var að
hluta til tekið tillit til þeirra sjón-
armiða með ákvörðun Samkeppn-
isstofnunar frá 10. september 2003.
Eimskipafélagið sætti sig ekki að
fullu við þá ákvörðun og krafðist
þess að áfrýjunarnefnd samkeppn-
ismála kæmi frekar á móts við kröf-
ur þess en Samkeppnisstofnun hef-
ur þegar gert. Eins og áður sagði
var fallist á þær kröfur að hluta.
Fallist að hluta á
kröfu Eimskips um
upplýsingaleynd
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
Kaupgarð hf. til að standa við hluta-
fjárkaup í Líftæknisjóðnum MP BIO
sem gerð voru á árinu 2000 en þá fór
fram almennt hlutafjárútboð sem
MP Verðbréf sáu um. Kaupgarður
taldi að fullyrðingar sem komu fram
í útboðslýsingu hefðu ekki staðist og
vildi því falla frá kaupunum.
Í málinu var deilt um gildi áskrift-
arloforðs Kaupgarðs sem skráði sig
fyrir hlutafé að nafnvirði 500 þúsund
krónur á genginu 1,5 eða 750 þúsund
að kaupverði. Starfsemi MP BIO,
sem nú heitir Líftæknisjóðurinn,
fólst í að festa fé í lyfja-, líftækni- og
erfðafyrirtækjum. Í útboðslýsingu
kom meðal annars fram að stærsta
eign MP Bio væri eignarhlutur í
bandaríska félaginu BioStratum
Inc., en það félag ætti nokkurn fjölda
einkaleyfa.
Vitað um viðskipti
á hærra gengi
Útboðsgengi í útboðinu var ákveð-
ið 1,5 og kom fram í útboðslýsingu að
vitað væri um viðskipti með bréf fé-
lagsins á verulega hærra gengi.
Kaupgarður byggði einkum á því í
málinu að þessi fullyrðing stæðist
ekki og að MP Verðbréfum hafi
þvert á móti verið kunnugt um við-
skipti með bréfin á lægra verði á út-
boðstímanum. Einnig hafi verið of-
mælt um einkaleyfaeign Bio-
Stratum.
Hæstiréttur taldi, að ekkert hefði
komið fram í málinu sem styddi full-
yrðingar í útboðslýsingu um sölu
hlutabréfa á verulega hærra gengi
en 1,5 en Kaupgarður hefði hins veg-
ar ekki fært sönnur á að hlutabréf í
félaginu hefðu verið seld undir út-
boðsgengi á útboðstímanum. Var tal-
ið að röng lýsing á einkaleyfaeign
BioStratum í útboðslýsingu yrði að
skoðast í því ljósi að Kaupgarður
hefði ekki verið að kaupa hlut í því
félagi.
Meta yrði útboðslýsinguna heild-
stætt, enda hefði þar verið skýrlega
varað við þeirri áhættu sem fælist í
fjárfestingu af þessu tagi og sérstak-
lega tekið fram að tapsáhætta væri
mikil. Í tilboði Kaupgarðs hefði kom-
ið fram að tilboðsgjafi hefði kynnt
sér rækilega öll útboðsgögn og að
hann gerði sér sérstaka grein fyrir
þeim áhættuþáttum sem fylgdu fjár-
festingunni. Var kröfu Kaupgarðs
um sýknu því hafnað.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar
Gíslason, Gunnlaugur Claessen
Markús Sigurbjörnsson og Pétur
Kr. Hafstein. Lögmaður Kaupgarðs
var Hróbjartur Jónatansson hrl.
Lögmenn MP Verðbréfa voru Sig-
urmar K. Albertsson hrl. og Halldór
Backmann hdl.
Kaup-
garði gert
að standa
við hluta-
fjárkaup
PREDRAG Nikolic og Ivan
Sokolov eru efstir og jafnir með
6,5 vinninga í meistaraflokki
Mjólkurskákmótsins en níunda
og síðasta umferðin verður
tefld í dag.
Nikolic sigraði Hannes Hlíf-
ar Stefánsson í áttundu um-
ferðinni í gær og Sokolov sigr-
aði Fransisco Vallejo Pons.
Sokolov og Nikolic mætast í
lokaumferðinni.
Í áskorendaflokki er Tomas
Oral efstur með sex vinninga.
Nikolic
og Sokol-
ov leiða