Vísir - 19.11.1980, Síða 19
Miövikudagur 19. nóvember 1980
19
vísm
Go&sögnin um Elvis iifir stöðugt og ekkert lát virðist vera á vin-
sældum hans jafnvel þótt þrjú ár séu nú iiðin frá þvl hann lést.
Goðsögnin um Elvis lifir:
Stöðugur
straumur
pítagríma
að gröfinni
Þaö grétu margir þeg-
ar rokkkóngurinn Elvis
Presley yfirgaf þennan
heim í ágúst árið 1977.
Og margir gráta enn
þann dag í dag. En eitt
er vist/ að nafn Elvis
mun lifa um ókomin ár.
Plötur hans seljast enn í
milljónum eintaka og
yfir 3000 aðdáenda-
klúbba starfa um allan
heim.
Einn slíkur er í Dan-
mörku en honum stjórn-
ar Presleyaðdáandi einn
sem kallaður er
„Bamse". Bamse hefur
nú skipulagt pilagríma-
ferð til Memphis/ þar
sem heimili Presleys
var og er miðað við að
hópurinn verði við gröf
rokkkóngsins á af-
mælisdegi hans/ 8. janú-
ar 1981/ en þann dag
hefði Elvis orðið 46 ára.
i tilefni þessarar ferðar
hefur danska tímaritiö
Se og Hör efnt til get-
raunar þar sem f jórum
lesendum er gefin kost-
ur á að fara i pilagrima-
ferðina.
Daglega koma þús-
undir ferðamanna til
Graceland í Memphis,
þar sem Elvis bjó og ár-
lega skipuleggja aðdá-
endaklúbbar ferðir
þangað á afmælisdegi
hans. Elvis var vissu-
lega goðsögn i lifanda
lifi og svo virðist sem
dauði hans breyti engu
þar um.
Danski Presieyaðdáandinn
Bamse verður fararstjóri I
ferð danskra pilagrima að
gröf rokkkóngsins.
Þaö vex
eitt blóm
— ný plata á markaðinn
Komin er á markaðinn
ný tveggja laga hljómplata
sem ber heitið „Það vex
eitt blóm". Höfundur laga
og gítarleikari á plötunni
er Guðmundur Árnason og
er hann jafnframt útgef-
andi.
A A-hliö plötunnar er lag við
ljóð Steins Steinars „Það vex eitt
blóm fyrir vestan” en i þvi leika
auk höfundar þeir Kaktus-með-
limir: Arni Askelsson trommur,
Helgi Kristjánsson bassa og Guð-
mundur Benediktsson sem
syngur lagið en hann leikur auk
þess á pianó, Roland strengjavél
og gitar. I þessu lagi leikur einnig
Kristinn Svavarsson á saxafón. A
B-hlið er spilaö lag sem I leika
auk höfundar, Karmel Russel á
selló, Reynir Sigurðsson á vibra-
fón, Gisli Helgason á tenór-blokk-
flautu og Helgi Kristjánsson á
bassa og gitar.
Platan var tekin upp i Hljóðrita
i október sl. og upptökumaöur var
Gunnar Smári.
Guðmundur Benediktsson sem syngur og leikur á ýmis hljóðfæri á plöt-
unni og höfundur laga og útgefandi Guðmundur Arnason.
og Rudy
Julie Andrews syngur
og dansar með ballett-
meistaranum Rudolf
Nureyev i nýjum sjón-
varpsþætti sem verið er
að vinna að um þessar
mundir. — „Rudy dans-
ar vissulega betur en ég
— en ég vona að ég vinni
það upp með þvi að
syngja betur en hann",
— segir Julie um sam-
vinnu þeirra...
Diskómeistari
í Dansstúdíó
,,Ég hitti Gary þegar hann var
að kenna á kennaranámskeiði við
dansskóla Brittu Umark i Kaup-
mannahöfn en ég var þá kennari
við skólann. Þegar ég stofnaði
skóla minn hér heima i haust
fannst mér tilvaliö aö reyna aö fá
hann hingað”, — sagöi Sóley Jó-
hannsdóttir danskennari, sem
rekur dansskólann „Dansstúdfó”,
en skólinn hefur nú fengið tii liös
við sig nafntogaðan Bandarikja-
mann, Gary Kosuda og mun hann
kenna við skólann fram til jóla.
„Ég kom heim i september og
stofnaði skólann i október og
þetta hefur gengiö mjög vel þvi ég
fyllti skólann á tveimur dögum”,
— sagði Sóley ennfremur. Sóley
sagðist aöallega kenna jassballett
og diskópardansa svo og ein-
staklingsdansa og sagði hún að
þetta væri fyrir fólk á öllum aldri,
enda væru nemendur skólans frá
6 ára og upp úr. Sóley sagöi aö
jassballettinn væri til aö mýkja
hreyfingar fólks og miöaöist
kennslan aö þvi aö kenna fólki aö
dansa eins og þaö sjálft langaði
til, — þaö er, aö finna sig I tónlist-
inni. Hún sagöi aö þaö væri mikill
fengur fyrir skólann aö fá Gary til
aö kenna þvi hann væri snillingur
i öllu er lyti aö diskódönskum.
Gary Kosuda hefur aö baki
langtnám og reynslu á sviöi sam-
kvæmisdansa en þó einkum svo-
kallaöra diskópardana Sltkan
dans hefur hann kennt viöa um
Bandarikin siöustu árin og raun-
ar einnig i Kaupmannahöfn.
Hann hefur bæði lært og kennt hjá
hinum viöurkenndu dansskólum
Arthur Murray og Fred Astaire,
Eins og áður greinir mun hann
kenna á vegum Dansstúdió bæöi
diskópardans og einstaklings-
diskódans og hefjast námskeiöin i
þessari viku og er innritun þegar
hafin.
Danskennararnir Gary Kosuda og Sóley Jóhannsdóttir taka snúning á
dansgólfinu i Hoilywood.
(Visismynd: B.G.)