Vísir - 13.12.1980, Qupperneq 16
16 vtsnt Laugardagur 13. desember I«8ft
íetöir og ferðctmtíd
Éf þér byöist vetrarfri í
í skammdeginu virðist
næsta sumar svo óralangt
i burtu með sumarfríi/
ferðalögum og annarri
tilbreytni. Flest okkar
hugsa ekki um frí frá
störfum nema i sumar-
leyfum og vinsælast er að
einn mánuó, hvaö þá?
taka sumarfri í júlí eða
ágúst/ enda veður þá best
hérlendis.
A dögunum hitti ég
kunningja minn sem var
að kikna undan skamm-
deginu og óhóflegri
vinnu. Hann var svo
svartsýnn að hann dró i
efa að honum auðnaðist
að lifa fram á vorið/ ekk-
ert nema myrkur og
streita. Af hverju tekur
þú þér ekki bara frí í
mánaðartíma í vetur?
spurði ég. Hann horfði
þegjandi á mig um stund
og svaraði svo: Hvað í
ósköpunum gæti ég gert í
frii um hávetur, ég sem
fer aldrei á skíði.
En hvað um það, von-
andi tekst honum að
þreyja þorrann og góuna
en ég sló á þráðinn til
nokkurra nafnkunnra
manna og kvenna og
spurði: Hvernig myndir
þú verja tímanum ef þér
byðist vetrarfri í einn
mánuð? Hér eru svörin.
Sr. Halldór Gröndal
í sveit til
að hvilast
Sr. Halldór Gröndal,
sóknarprestur
Það vill nú svo til að ég var ein-
mitt að segja hér heima í gær-
kvöldi að ég myndi gjarnan vilja
komast á góðan sveitabæ hjá
góðu fólki og fá að hvilast þar.
Borða góðan mat ,njóta góðra
samvista ,fara i gönguferðir og
lesa góðar bækur. Hvila mig frá
skarkalanum hér i bænum.
Þetta er kannski af þvi þaö er
svo mikiö að gera i skammdeg-
inu, þá kemur manni i hug að fá
sér hvild. Nei, ég hefi ekki sér-
stakan landshluta I huga en
Borgarfjörðurinn er nú minn
uppáhaldsstaður.
Sigrún Stefánsdóttir
Til Noregs
á skiði
Sigrún Stefánsdóttir
fréttamaður:
Þvi er fljótsvarað: ég færi til
Noregs á skiöi. Það er mitt uppá-
haldsland, fór þangað i fyrravet-
ur i skiöaferð og gæti vel hugsað
mér að fara þangaö aftur. Þá var
ég i 10 daga I Osló og fór út úr
bænum á daginn til skiðaiðkana
en þarna er mikið af góðu skiða-
landi.
Þetta var mjög skemmtilegur
timi og ég hefði gjarnan viljaö
vera lengur.
Auður Haralds
Til Sikil-
eyjar eða
gera
hreint
Auður Haralds, rithöf-
undur:
Ef einhver gæfi mér fyrir ferð
til Sikileyjar eöa Grikklands er ég
næstum viss um að þangað færi
ég. Það er aö visu ekkert mjög
hlýtt á Sikiley á þessum árstima
en nógur hiti fyrir mig.
Annars mundi ég gera hreint
hjá mér, þá á ég við að ég hefði
frið fyrir börnunum, frið fyrir
fólki og friðfyrirsima. Svo mundi
ég lesa og éta, þetta væri mann-
skemmandi þvi ég myndi éta lika,
ég er klár á þvi.
Lesa og
fara i
fjall-
göngur
Gestur ólafsson, arkitekt:
Helst vildi ég verja þessum
mánuði til að lesa allar þær bæk-
ur sem ég hefi ekki komist yfir að
lesa á undanförnum 2-3 árum.
Það er búið að skrifa svo mikið af
áhugavekjandi ritum, bæði skáld-
sögum og greinum um arkitektúr
og skipulagsmál sem ég hefi ekki
komist yfir að lesa að undanförnu,
meöal annars út af þvi að ég hef
verið aö taka við nýju starfi og
endurbyggja húsið hjá mér. Það
liggur á mér eins og farg að ná
þessu upp.
Það siðasta sem ég gerði væri
að fara af landi brott. Helst vildi
^gvera einnmeðGuði óg sjáiíum
mér lesa og hugsa,fara i göngu-
feröir. Það væri nauðsynlegt i
viðbótað fara I fjallgöngur, ég hef
mjög gaman af að ganga á islensk
fjöll.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Vera meira
meö
fjöl-
skyldunni
Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son framkvæmdastjóri
SAÁ:
Ef ég væri hreinlega skikkaður
i fri þá héldi ég mig hér heima.
Sennilega reyndi ég að sinna hús-
byggingunni betur en ég hefi gert
undanfarin tvö ár. Svo færi ég i
gönguferðir og á skiði, en það er
mjög heilbrigð iþrótt jafnvel þótt
maður sé ósköp fákunnandi i
þeirri iþróttagrein.
Svo gæfist mér timi til að vera
meira með fjölskyldunni, það
væri stærsti kosturinn. En þaö
væri lika möguleiki á að ég hrein-
lega hafnaði þvi að fara i fri og
héldi bara áfram aö vinna.
Helga Bachman
Útá land
i nánd
viö jökul
Helga Bachman, leikkona.
Helst vildi ég fara út á land og
vera þar. Gjarnan á sveitabæ i
Hreppum þar sem ég þekki til.
Auðvitað mundi ég reyna að taka
þátt I bústörfunum.
Ef ég færi ekki i Hreppana þá
eitthvað annað út á land einhvers
staðar þar sem ég gæti verið I
nánd við jökul. Ég vil endilega
njóta hvers tima og mér finnst að
það ætti að leika tragediur I
skammdeginu!
Nei, nei. Þetta stendur ekki til,
ég er að þvo gardínur fyrir jólin.
Einar Karl Haraldsson.
Spássera
meö
dótturina
Einar Karl Haraldsson rit-
stjóri Þjóöviljans:
Það vill svo til að ég á inni
þriggja mánaðafri sem ég ætla
að taka á útmánuðum. Þessu frii
ætla ég að verja til endurhæfingar
i barnauppeldi/halda heimili og
ferðalög verða fólgin i spássitúr-
um um Fossvoginn með ungri
dóttur minni.
Ég er mjög ánægður með að
geta varið friinu á þennan hátt,
það er gott að eiga þess kost að
kynnast börnunum og ég állt
þetta vera góða endurhæfingu
fyrir blaðamennskustarfið.
Jú, eflaust getur það reynst
erfitt að slita sig frá vinnunni og
pólitikinni fyrst maður verður I
bænum, en nú á heimilið og
dóttirin að ganga fyrir. Svo er
spennandi að kynnast Fossvogin-
um. Meðan konan var ólétt gekk
hún mikið þarna um og þá hafa
eflaust fleiri veriö á ferð þvi hún
kvaðst vera i Ferðafélagi fram-
settra kvenna.
Sveinn Sæmundsson
Á Kanari
og Héraði
Sveinn Sæmundsson blaða-
fulltrúi Flugleiða:
Hluta af sliku frii mundi ég
helst verja i sól og bliðu á Kanari-
eyjum eða á Flórida. Hinn hlut-
ann vildi ég helst dvelja i kofa
minum austur á Héraði,alveg
sama þótt væri kafsnjór og ófærð.
Þar gæti ég stundað göngur og
skiðaferðir laus við sima.útvarp
og allt daglegt amstur. Konan
sammála? Já, ég tala fyrir munn
okkar beggja i þessu efni, það
held ég sé alveg öruggt.
Sumir vilja helst nota vetrarfri til
skiðaiðkana