Vísir - 22.12.1980, Síða 1
Lausleg áæilun um vlðgerðlr á Hðishúslnu:
Kosla á annan mllliarð
utan alls lausabúnaðar
Ljóst er, að kostnaður við að
gera Viðishúsið þannig úr garði,
að það verði nothæft nemur
hundruðum milljóna króna.
Siðustu áætlanir sem liggja
fyrir i þessu sambandi voru
teknar saman i fyrravetur, af
embætti Húsameistara rikisins
og Innkaupastofnun rikisins.
Þessar áætlanir hefur emb-
ætti Húsameistara rikisins
framreiknað fyrir Visi til verð-
lags dagsins i dag. Þess bera að
geta, að áætlunin hefur verið
framreiknuð yfir á visitölu 539
stig, þ.e. visitölu sem gildir
október, nóvember og desem-
ber. Þessar tölur, sem birtar
verða hér að neðan eru þvi að
veröa úreltar aftur.
Samkvæmt þeim kostar tæpar
300, eða 297 m. kr. milljónir
króna að gera húsið upp að utan.
1 þvi felst að reisa vinnupalla,
skipta um þak, múra og mála
útveggi, skipta um glugga og
gler og ganga frá lóð og bif-
reiðageymslu fyrir aftan húsið
þ.e. við Brautarholt. Taldi
Ragnar Arnaids fjármálaráð-
herra i viðtali við Visi að við-
gerð á þaki myndi kosta riflega
100 millj. króna.
Þá hefur verið tekin saman
önnur áætlun um fullfrágengið
hús að innan. A þetta aðeins við
um þrjár efstu hæðirnar, sem
.menntamálaráðuneytinu er
ætlað að nýta og eru samtals
3000 ferm. að stærð. Það sem
fyrir liggur i þessu efni er svo-
kölluð reynslutala þ.e' . meðaltal
miðað við samsvarandi hús-
næði.
Með einangrun, frágangi út-
veggja að innan, nýjum aðal-
inngöngum, nýjum stigum,
lyftum, endurnýjuðu rafmagns-
kerfi, hitakerfi og hreinlætisað-
stöðu, svo og innveggjum,
myndi kostnaður nema 930 mill-
jónum króna samkvæmt fram-
reikningi. Þarna var ekki stuðst
við tillögur, sem Arkhönn h.f.
hafði gert fyrir menntamála-
ráðuneytið um breytta
herbergjaskipan o.s.frv.
Þá er þess að geta, að i
þessum 930 milljónum er ekki
innifalinn lausabúnaður, þ.e.
gólfdúkar- eöa teppi, glugga-
tjöld, borð vélar og annaö, sem
þarf til að ráðuneytið geti flutt
inn. Þvi segja þessar tölur
aðeins hluta af sannleikanum.
Ekki er gert ráð fyrir Viðis-
húsi i fjárlagafrumvarpi heldur
yrði kostnaöur við hugsanlegar
viðgeröir tekinn af liðnum
„óviss útgjöld”, að sögn fjár-
málaráðherra.
—JSS
Sjá nánar
um Víöis-
húsið í
opnu í
blaði ll
ídag
AUir gluggar á efri hæðum Viðishússins eru ónýtir. Það er ekki nóg með það, þvi flestar rúður eru brotn ar, og sums staðar hefur pappa- eða tréspjöldum verið tildrað fyrir heilu
gluggana. Einkum á þetta þó við um bakhlið hússins. — Visismynd GVA
Mennta mál ar áðuneyllð eingöngu I lelguhúsnæðl:
Greiðir 25 milijónir á ári
Menntamálaráðuneytið er nú
i leiguhúsnæði á þrem stööum i
Reykjavik. Fyrst er að telja
Hverfisgötu 6, þá Ingólfsstræti
5, þar sem skólarannsóknar-
deild er til húsa og i Alþýðu-
húsinu, þar sem bókafulltrúar
hafa aðsetur. Samtals greiðir
ráðuneytið um 25 milljónir
króna i húsaleigu á ári.
„Þvi miður hef ég ekki heyrt
um neitt sem bendir til þess að
hæðir ráðuneytisins verði
teknar i notkun á næstunni”,
sagði Birgir Thorlacius deildar-
stjóri i Menntamálaráðu-
neytinu, er Visir ræddi við hann.
„Námsgagnastofnun á þarna
tvær hæðir, sem fyrirhugað er
að hún taki i notkun. Svo vantar
ákvörðun um hvað gert verði
við hinn hlutann. Það er ekkert
nýtt af þvi að frétta ennþá”.
Visir hafði einnig samband
við Indriða Þorláksson deildar-
stjóra i menntamálaráðuneyt-
inu og spurði hann m.a. um
hvort enn væri unnið að upphaf-
legum hugmyndum varðandi
nýtingu Viðishússins. „Það var
aldrei tekin nein endanleg af-
staða til þeirra hugmynda sem
uppi voru með að nýta 3 efstu
hæðirnar fyrir ýmsa starfsemi
menntamálaráðuneytisins”,
sagöi hann. „Þaö hafði heldur
ekki verið gerð nein fullnaðar-
vinna, þvi það fyrsta sem þyrfti
að gera, er að gera húsið upp að
utan”.
Brynjólfur Sigurðsson hag-
sýslustjóri i Fjárlaga og hag-
sýslustofnun var spurður að þvi
hvort ekki hefði verið veitt fé til
viðhalds eða viðgerða á Viðis-
húsi eftir að það var keypt.
Kvaöst hann ekki minnast þess.
Hins vegar hefði verið veitt fé til
greiðslu af skuldabréfum vegna
kaupanna, þegar þess hefði
gerst þörf. Námsgagnastofnun
hefðisamkvæmt fjárlögum lán-
tökuheimild upp á 50 milljónir
króna til standsetningar á þeim
hluta hússins, sem henni væri
ætlað.
Aöspurður um hvernig þetta
mál stæði fyrir næsta ár, sagöi
Brynjólfur aö tillögur væru um
að laga þak hússins og reyna aö
verja það frekari skemmdum,
en um fjármagn hefði ekki verið
tekin nein ákvöröun.
—JSS
J
I
i
1