Vísir - 17.01.1981, Page 12

Vísir - 17.01.1981, Page 12
VÍSIR Laugardagur 17. janúar 1981 Rod Stewart og hljómsveit hans hefur uppá síökastið verið á hljómleikaferB um Evrópu og kynnt sIBustu afiirð sína, breiB- skifuna Foolish Behavior, sem i lauslegri snörun mætti nefna kjánalega hegðan. Hljómleika- ferBin hefur veriB brösótt. Ekki aöeins hafa raddböndin i Rod veriö duttlungafull, heldur hafa hljómsveitarmeölimir, — sem alla jafna eru taldir hinir prúð- ustu náungar, — gert sig seka um ótrúleg fiflalæti á almanna- færi. Þeir kenna nafni plötunnar um. AB loknum einum hljómleik- um i Þýskalandi efndi hljóm- sveitin til samkvæmis, sem ekki eri' frásögur færandi, i diskóteki nokkru I Hamborg. Vissu hljóm- sveitarmeölimir ekki fyrr til en þeim haföi veriö sparkaö út úr eigin samkvæmi og þótti aö von- um súrt i brotiö. Héldu þeir næst i rokkklúbb nokkum og þar fór allt á sömu lund. Þessu næst fóru þeir á enn annan klúbb, helltu ótæpilega áfengi i andlit sér og var að lokum vippaö út fyrir fullum og vitlausum. „Þaö hlýtur aö vera nafniö á plötunni.éger klár á þvi,” segir Carmine Appice trymbillinn i hljómsveitinni. 28 löghljóðrituð. i nóvember 1979 var hafist handa um gerö plötunnar Foolish Behavior og.voru Rod og liösmenn hljómsveitarinnar á einu máli um þaö, aö taka plötuna upp I Bretlandi, fööur- landi Rod Stewarts. En eftir aö hafa reynt þrjú hljóöver á fjór- um vikum var þolinmæöin rokin úti veöur og vind. Hingaö og ekki lengra. Svo komu jól. 1 janúarmánuði hófu þeir upptök- iir i Record Plant hljóðverinu i Los Angeles. Þar luku þeir lika viö hana i október siöastliönum. „Upptökurnar tóku fjarska langan tima,” segir Carmine Appice. „En viö tókum lika upp 28 lög. Mestu erfiöleikamir voru fólgnir i þvi aö plokka tiu lög út og setja ábreiöskifu. Fimm eöa sex lög munu veröa notuö á tvö- falda hljómleikaplötu, sem tek- in veröur upp á Wmbleyleik- vanginum I Lundunum. Hugmyndin er aö hafa eina hliö á annarri plötunni meö þessum stúdlólögum, en þrjár meö lög- um af hljómleikunum”, segir trymbillinn. Rod Stcwart i Mestanpart rokk og ról. Foolish Behavior er fyrsta breiöskifan á löngum og farsæl- um ferli Rods Stewarts þar sem einvörðungu er aö finna lög eftir hann og hljómsveitarmeölimi hans. Rod samdi aö venju alla textana og lögin eru samin i hópvinnu. Þó votti fyrir diskó- og soulfiling á plötunni segir Carmine að mestanpart sé plat- an rokk og ról. „Rod hefur aldrei sungiö betur,” segir hann. „Þið ráöiö hvort þiö trúiö mér eöa ekki, en hann fór i söngtima, læröi aö beita rödd- inni betur. Það er sterkur leikur hjá náunga i þessum klassa, svo ég segi mitt álit. Ég veit ekki hvort ég hef þolinmæði til þess aö fara á trommuleikaranám- skeið.. þegar ég heyrði Rod syngja „Say It Ain’t True” af nýju plötunni fékk ég gæsahúö.. svo frábær var hann... „Næstum hálfdauður úr taugaveiklun” Rod Stewart er glettinn, spaugsamur og sprækur náungi og það upplifðu sænsku blaöa- mennirnir sem hér er vitnaö til. I búningsherbergi i svissneskri hljómleikahöll hitaði Rod upp meö nokkrum léttum leik- fimipfingum, reyndi aö klifra upp veggi, kleip Alönu konu sina i óæöri endann og linaöi sárindin i hálsinum með sérstakri ónefndri söngoliú. „Ég er alltaf næstum hálf- dauður úr taugaveiklun áður en ég fer uppá sviöið”, segir hann. er svo ást- fanginn.. Ian Dury And The Blockheads — Laughter/Stiff SEEZ30 Satt bestaö segja hélt ég að Ian Dury ævintýriö væri úti, — en mikið er gott til þess aö vita aö svo er ekki. Aö ekki sé minnst á fyrirheitin. Dury hóf plötuferil sinn meö miklu ira- fári og platan „New Boots And Panties” var gersemi, gæöapönk sem seint fellur i gleymsku. Svo kom áfalliö meö Do It Yourself plötunni og siöan leiö langur timi án þess aö Kokknikarlinn léti á sér kræla. Það varekkifyrr en undir jól að Hláturinn kom út. Ég tók plötunni með varúö, en þaö reyndist óþarfi. Ég segi ekki aö hún sé* jafn sterk og fyrsta platan, en hún er sterk og vinnur vel á meö hverri hlustun. Trúlega er mikill fengur i komu Wilko Johnson i Þöngulhausana, en annars skipta strákarnir lögun- um bróöurlega á milli sin og ástæöulaustaö gera uppá milli þeirra. Og Dury er nú einu sinni perla á sinn hátt. .. m-mds íMPtfltSAnDOAMce

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.