Vísir - 11.03.1981, Qupperneq 1
Enn um siríðTbúáTHamrábárgi"vTð""=rairikvcemúaneiiiáávggingaáætiiinar:;
Ibúarnir lálnlr grelða gjðld j
ipamkvæmdanetnflapl i
„Ég sé enga ástæöu til þess aö
liggja á þvi.hvernig fariö er meö
okkur ibúðareigendur i Hamra-
berginu i Breiðholti. Þaö er ekki
nógaðvið eigum i útistöðum viö
framkvæmdanef ndina sem
byggði hús okkar, heldur er nú
svo komið, að uppboðum er hót-
að á eignum okkar vegna gjalda.
sem fra mkvæm danefndin á
fyrir löngu að vera búin að
greiða”, sagði Ágúst tsfjörð, en
hann er formaður Húseigenda-
félags ibúa i Hamrabergi i
Breiðholti.
Visir skýrði frá þvi á dögun-
um, að frágangi á húsum i
Hamrabergi væri mjög ábóta-
vant og þessa dagana eru deilur
um að fá fram þær lagfæringar,
sem eigendur telja nauðsynleg-
ar til þess að verandi sé i húsun-
um. En nú hefur nýtt mál risið,
mál, sem er mikið hitamál frá
hendi ibúanna.
„Éggetsagt þér þá sögu, sem
að mér snýr”, sagði Ágúst.
„Þannig er, að maður að nafni
Rúnar Þ. Hermannsson sem býr
i Vesturbergi 2, en á ibúð i
Hraunbergi 11. kom til min með
tilkynningu um uppboð á
Hamrabergi 11, sem af ein-
hverjum ástæðum hafði verið
send honum, og hafði nafn hans
verið vélritað ofan i nafn Fram-
kvæmdanefndar bygginga-
áætlunar. Hann afhenti mér
þessa tilkynningu og sagði mér
jafnframt, að búið væri að aug-
lýsa þetta uppboð i Lögbirtinga-
blaðinu vegna skuldar á fast-
eignagjöldum, sem féllu i ein-
daga i mai á siðasta ári.
„Það gerðist næst, að upp-
boðsauglýsing er send frá
borgarfógetaskrifstofunum um
uppboð á Hamrabergi 11 og er
tilkynningin send á mitt nafn,
þótt ég sé ekki eigandi að ibúð-
inni, heldur kona min, Kristin
Einarsdóttir, ég fékk þessa til-
kynningu senda express i lok
febrúar, en uppboðið átti að fara
fram 10. mars.
„Ég sneri mér til fram-
kvæmdanefndarinnar og talaði
þar við Rikharð Steinbergsson
og viðurkenndi hann að fram-
kvæmdanefndin ætti að greiða
þessi gjöld, enda þau gjaldfallin
áður en konan min keypti i
Hamraberginu. Hann ætlaði að
hafa samband við mig eftir 20
minútur um þetta mál”.
„Þetta var á miðvikudegi og
ekkert heyrðist frá Rikharði.
Fór ég þvi i Gjaldheimtuna á
fimmtudeginum og greiddi
skuldina og var siðan tilkynning
send til borgarfógeta um, að
hún væri greidd. En samt sem
áður og þrátt fyrir loforð um að
slikt myndi ekki gerast, birtist
auglýsingum nauðungaruppboð
á Hamrabergi 11 i Visi sl.
laugardag, og á minu nafni, þótt
ég væri búinn að taka það skýrt
fram i Gjaldheimtunni, að það
væri kona min, Kristin Einars-
dóttir, sem ætti þessa ibúð og
við erum skuldlaus við Gjald-
heimtuna.
„Þetta er rosalegt ástand. Ég
veit, að það er búið að gera fjár-
nám i nokkrum ibúðum út af
þessu, og sumir hafa reyndar
farið eins að og ég að greiða
þessa skuld framkvæmda-
nefndarinnar við Gjald-
heimtuna til aö losna við, að
nauðungaruppboð væri auglýst.
Þetta sýnir, hvernig farið er
með okkur. Við erum látin
svara fyrir gjöld, sem voru
komin i eindaga áður en við
keyptum af framkvæmda-
nefndinni. Það er ekki sumt,
sem er að i samskiptum okkar
við framkvæmdanefndina; þaö
er allt”, sagði Agúst.
gk-.Jj
Marina Sidorova og Uri Vladimirov ræöa viö blaðamann. Ljóshærða stúlkan er túlkurinn og heitir Julia Karsavina, en hún er dóttir Vladimirs
Jakubs, sem er prófessor i islensku og mörgum tslendingum kunnur. Vlsismynd: EÞS
„Akveö
mótsstað í
næstu viku”
- segip Friðrik
„Talsmenn Karpovs virtust
ekki vera á þvi, að það þjónaði
nokkrum tilgangi að reyna aö
semja um einvigisstaðinn og ég
lit svo á,að þar með hafi mér ver-
ið falið að úrskurða þar um, þar
sem keppendur voru ekki sam-
mála í óskum sinum”.
Þetta sagði Friðrik Ólafsson,
forseti FIDE, i samtali við blaða-
mann Visis i morgun, en i gær
ræddi Friðrik við fulltrúa
Karpovs.
Friðrik sagöi, að sér hefði virst
Alban Brodbeck, fulltrúi Korts-
nojs.vilja, að viðræöur færu fram
milli aðila og þvi hafi hann boriö
það undir talsmenn Karpovs, en
þeir sem sé tekiö þvi fálega.
„Ég mun halda til Las Palmas i
fyrramálið til þess aö kynna mér
aðstæöur þar, og á laugardaginn
fer ég til Merano i sömu erinda-
gjörðum. Ég býst svo við að
kveða upp Urskurð á fimmtudag
eða föstudag i næstu viku. Viö þá
ákvörðun mun ég taka tillit til
allra keppnisaðstæðna, auk þess
sem ekki verður hjá þvi komist aö
hafa verðlaunaupphæðirnar i
huga eins og þær voru tilgreindar
i upphaflegu tilboðunum”, sagði
Friðrik. —P.M.
Jfcr er niytt - en nvassti
- sagði Uri Vlaflimirov. sólðdansari irá Boisoj, við komuna tii fslands
„Við erum undrandi á þvi.hvaö
hér er hlýtt. Það er óiikt kaldara i
Moskvu á þessum árstima en
reyndar ekki eins hvasst”, sagði
Uri Vladimirov, sólódansari frá
Bolsoj ballettnum i Moskvu, en
hann, ásamt Marinu Sidorovu eru
stjörnurnar i sovéska ballett-
flokknum sem sýnir i Þjóðleik-
húsinu i kvöld.
t flokknum, sem kom frá Dan-
mörku i gærdag, eru 30 manns,
þar af 25 dansarar — allt valdir
dansarar frá balletthúsunum i
Kiev, Talin, Bolsoj og fleirum.
„Þetta er i annað skiptið. sem
ég kem til islands; ég kom hingað
með blönduðum flokki dansara
áriö 1973”, sagði Vladimirov og
tók það fram, að sér likaöi ágæt-
lega að dansa i Þjóðleikhúsinu.
Marina Sidorova, sem einnig
kemur frá Bolsoj, hefur hins veg-
ar aldrei komið til andsins áður.
„Það var fallegt að lenda á
Keflavikurflugvelli, hér virðist
vera fögur náttúra”, sagði Mar-
ina.
Hvorugt þeirra sagöist kannast
við islenska dansara né vita
nokkuð um islenskan ballett.
„Það er vegna þess, að
Islendingar hafa aldrei sótt ráð-
stefnur og mót fyrir dansara i
Sovétrikjunum, þannig að við
höfum ekki fengið tækifæri til að
kynnast þeim. Vonandi rætist
fljótlega úr þvi — það er til dæmis
ráöstefna hjá okkur i júni”, sagði
Marina Sidorova.
Dansflokkurinn er aö koma úr
ferð um Noröurlöndin og hefur
hann sýnt i Danmörku, Noregi og
Sviþjóð, en i Sviþjóð hafði flokk-
urinn 20 sýningar á 21 degi. Hér
eru ákveðnar fjórar sýningar og
liklega verður aukasýning á
laugardag. Fyrsta sýningin verö-
ur i Þjóðleikhúsinu i kvöld klukk-
an 20. —ATA