Vísir - 17.03.1981, Blaðsíða 1
HÆSTI VINNIN6UR í ISLENSKUM 6ETRAUNUM:
„ÉG TITRABI OG
FÉKK HJARTSLATT"
SE6IR KRISTÍN ÁRNAD6TTIR SEM VAR EIN MEÐ ALLA LEIKI
SEÐILSINS RÉTTA 66 HLAUT 95 ÞÚSUND KRÚNUR FYRIR
„Ég titraöi og fékk hjartslátt
þegar mér var tilkynnt um það i
gærkvöldi að ég hefði hlotiö
fyrsta vinning” sagði Kristin
Arnadóttir er Visir heimsótti
hana á vinnustað i Plastprenti i
morgun, en Kristin hlaut i gær
hæsta vinning i islenskum Get-
raunum frá upphafi.
Hún var ein með 11 leiki rétta,
eða alla leiki seðilsins, og hlaut
fyrir það 85.710 krónur. Einnig
var hún með 4 raðir með 10 rétt-
um þannig að heildarvinningur
hennar nemur kr. 94.890.
„Þetta er eitthvað svo óraun-
verulegt og ég ætlaði varla að
trUa þessu” sagði Kristin, ,,ég
hélt að það væri verið að gera at
i mér. Ég hef einstaka sinnum
tekið þátt i getraunum áður, en
hef ekkert einasta vit á þessu og
hef aldrei hlotið vinning áður”.
— Kristin keypti getrauna-
seðil sinn sém var svokallaður
16 raða reðill hjá Bridgedeild
Vikings og notaði eldspitustokk
við aðfylla hann Ut. Kastaði hUn
stokknum upp og er ákveðin hlið
hans kom upp þýddi það ákveðið
merki á seðilinn.
HUn sagöist ekki vera bUin að
ákveða hvernig hUn myndi
verja þessum peningum, en það
væri alltaf hægt að nota pen-
inga. Þá sagðist hUn ekki hafa
uppi nein áform um aukna þátt-
töku i Getraunum þótt hún hefði
dottið i lukkupottinn að þessu
sinni. gki.
Frlhafnarmállð:
Fjöldamörg
atriði rann-
sökuð nánar
Framhaldsrannsókn á toll-
svikamálinu i Frihöfninni á
Keflavikurflugvelli, þar sem
starfsmenn rufu innsigli á Utihurð
og voru grunaðir um að hafa flutt
varning Ur byggingunni, gengur
vel, að sögn Þorgeirs Þorsteins-
sonar lögreglustjóra á Kefla-
vikurflugvelli. Þorgeir treysti sér
ekki til þess að segja á hvaða stigi
málið væri, þar sem fjöldamörg
atriði þyrfti að rannsaka frekar.
Að öðru leyti varöist hann allra
frétta.
Þegar málið var i fyrstu sent
frá lögreglustjóra til rikissak-
sóknara, höfðu nokkrir starfs-
menn viðurkennt að hafa rofið
innsigli hurðarinnar, en höfðu
neitaö þvi aðhafa flutt stolinn
varning út um dyrnar. Þvi skýrði
framburður þeirra ekki hina
myklu rýrnun, sem átti sér stað á
vörum Frihafnarinnar á siðasta
ári.
-AS
„Punklur, punkt-
ur. komma. slrlk”
Sfá bls. 27
Kristin á vinnustað i morgun með seðilinn góða, sem færði henni tæplega 95 þúsund krónur i verölaun.
(Visismynd EPS.)
YflriæknlsmállD á selfossi:
LÆKNAFÉLA6ID LEITAR
Læknafélag tslands
hefur tekið að sér að
hafa forgöngu um
lausn þeirrar deilu sem
upp hefur komið i sam-
bandi við stöðu yfir-
læknis á Sjúkrahúsi
Suðurlands á Selfossi.
Stjórnarmenn Ur Læknafélag-
inu fóru austur að Selfossi i sið-
ustu viku og ræddu við máls-
aðila, en ekkert liggur fyrir enn-
þá um árangur af þeirri við-
leitni.
Það sem siðast gerðist i þessu
máli var að Daniel Danielsson,
yfirlæknir á SjUkrahUsi Selfoss,
sendi rekstrarstjórn nýja
sjUkrahUssins bréf seinnipart-
inn i siðustu viku, þar sem hann
hvetur stjórnina til þess að taka
upp samvinnu við starfsfólk
gamla sjUkrahUssins um undir-
bUning fyrir rekstur þess nýja. ®
Daniel segir einnig i bréfinu að ■
hann sé reiðubúinn til þess að ■
ræða endurskoðun starfssamn- ■
ings sins i tengslum við breytt ■
starfssvið. ■
■
Sjá nánar viðtöl á bls. 11. |
—P.M. ■
Kúðurnar, sem voru brotnar, eru
á bakhlið Stjórnarráðshússins.
Vísismynd: Friðþjófur
Braut 18
rúöur f
stjörnar-
ráðshúsinu
Þrjátiu og fimm ára gamall
maður lagði leiö sina niður að
stjórnarráði rétt fyrir klukkan 02
i nótt, dró grjóthnullunga upp Ur
poka, sem hann hafði haft með
sér og lét grjóthriðina dynja á
rUðum stjórnarráðsins.
Þegar vaktmaður hUssins varð
var við hávaðann, og gerði lög-
reglu viðvart, hafði maðurinn
brotið 18 litlar rUður á bakhlið
stjórnarráðsins. Lögreglan kom
fljótt á vettvang og handtók
manninn, sem reyndist vera litið
sem ekkert ölvaöur. Ekki er full-
ljóst hvert tilefni árásarinnar
var, en maðurinn gistir nú vistar-
verur lögreglunnar við Hverfis-
götu.
— AS
Sterling:
Neitaö um
Möltuflug
Samvinnuferðir og Sterling
Airways fengu synjun frá Stein-
grimi Hermannssyni samgöngu-
ráðherra við beiðni um leiguflug
með farþega frá Islandi til Möltu
gegnum Kaupmannahöfn. Þegar
afstaða ráöherra var ljós, dró
Sterling umsókn sina um þetta
flug til baka.
Hins vegar var Samvinnuferð-
um og Sterling veitt formlegt
leyfi I gær til að fara 14 leiguferðir
milli Islands og Danmerkur á
sumri komanda.
-SG
Eru íslendlngar
olbeldishnelgð-
arl en aðrir?
9,2% af 706 manns, er svöruðu
könnun um viðhorf til lögreglu og
ýmsa afbrotaþætti, á vegum
dómsmálaráöuneytisins, sögðust
hafa oröiö fyrir ofbeldi á siöustu
12mánuðum, er könnunin náöi til.
Þetta er mun hærri tala en kemur
Ut Ur sambærilegum könnunum i
Noregi, þar sem 3% Norömanna
höföu orðið fyrir slikri reynslu.
Ofbeldi það, sem hér er átt við
var, þegar stjakað var við mönn-
um, gripiö i þá, þeim haldið, þeir
slegnir eða annað i þeim dúr.
-AS