Vísir - 17.03.1981, Blaðsíða 17

Vísir - 17.03.1981, Blaðsíða 17
Þriöjudagur 17. mars 1981 vtsm ! Skagstrendingar og nýi togarinn „Hvers vegna talar enginn um togarana, sem er verið að smiða innanlands?” spurði Steingrimur Her- mannsson sjávarút- vegsráðherra ítrekað i umræðum um Þórs- hafnartogarann. Vissulega er full ástæða til að gera þá að umræðuefni, og alls ekki siður en þann fyrr- nefnda Þórshafnar- j togara. Menn hafa i gerðist hann búralegur og drýldinn og sagði að menn mættu leika sér að tölum að vild, en þetta væri tóm vitleysa. Það er ekki laust við að menn fái ónotalega tilfinningu fyrir einhverju misjöfnu, þegar þeir, sem ráða yfir þekkingunni, fara svo dult með hana. Reynist ágiskun manna um verðið vera rétt, við getum sagt 65 milljónir, jafngildir það 100.000 krónum UO milljónum staðarins er eitt það best nýtta á landinu og annar þó ekki að vinna allan afla, sem berst á land. Um þessár mundir er afli linubátanna saltaður. Fallandi króna. 1 þjóðhagslegu tilliti verður hið nýja skip til skaða, af mörg- um og augljósum ástæðum. Þessar eruhelstar: Fiskiskipa- stóllinn er of stór og hvert nýtt skip dregur úr aflamöguleikum og þar með rekstrarmöguleik- um þeirra sem fyrir eru. Bein afleiðing er hækkaður fram- leiðslukostnaður afurðanna, minna verður til skipta fyrir áhöfnina, minna verður eftir til að greiða f rystihúsafólki laun og gengissig og verðbólga herðir beint umræðunni meira að honum en öðrum af þeirri ástæðu fyrst og femst,, að svo margar brotalamir eru á meðferð þeirra skipa- kaupa, að þau eru vel til þess fallin að vekja almenna athygli og umræðu um stærsta hagsmunamál okkar íslendinga, sjávarút- veginn. Meiri stórmennskan það. Þessi Þórshafnartogari er svo lýsandi dæmi um tilviljana- kennd vinnubrögð i þjóðmálum okkar, að annað var hreinlega óafsakanlegt en að upplýsa al- menningum starfsaðferðirnar. Nú er þeim málum, svo komið að þeir fulltrúar þjóðarinnar, sem falið er að annast mál af þessu tagi, standa ráðalausir, hringsnúast „með allt niðrum sig” og flestir virðast hræddir við að taka ákvörðun um að þrifa upp eftir sig. Meiri er stór- mennskan ekki. En nú er athygli manna vakin á þessum málum, og þá er sjálf- sagt að verða við tilmælum ráð- herra og ræða um fleiri skip. Af nógu er að taka, þvi mörg skip erusmiðuðum þessar mundir á Islandi, og stöðugt eru fluttar hjartnæmar ræður um stórfeng- leik þeirrar miklu blessunar, að nýtt skip skuli bætast i flotann. Væntanlega hefur það ekki farið framhjá neinum að þeim skipum, sem til eru i landinu veitist ákaflega létt verk að veiða allan þann afla, sem fiski- stofnarnir viðlandið gefa af sér, og geta aukin heldur tekið sér góðar hvildir frá þvi verkefni. Það fæst ekki beini meira hvað sem skipunum fjölgar mikið og hvað sem þau verða tæknilega fullkomin. Búralegur forstjóri. Við skulum lita til Skaga- strandar. Slippstöðin h.f. á Akureyri er að smiða togara fyrir Skagstrendinga. Forstjóri Slippstöðvarinnar var nýlega spurður hvert umsamið verð fyrir smiðina væri, en hann varðist allra frétta um það, talaði um óstöðugleika krón- unnar, verðbólgu og annað, sem gat drepið málinu á dreif. Ýmsir hafa látið sér detta i hug að sennilega muni skipið kosta fullbúið um 60-70 milljónir króna og er þá miðað við verð á skipum, sem verið er að ljúka við um þessar mundir og þróun peningamála i landinu að und- anförnu. Þegar forstjórinn var spurð- ur, hvort sú upphæð gæti staðist, Unnið er að smiði Skagastrandar eyri. Vlsismynd: GS/Akureyri. gömlum) á hvert mannsbarn staðarins, en ibúar Skaga- strandar eru 650. Skip til skaða. Og svo er það þörfin fyrir nýja togarann. t fjárhagslegu tilliti er hún tviþætt. í atvinnu- legu tilliti fyrir staðinn er hún engin. 1 þjóðhagslegu tilliti er skipið til skaða. Hinn tviþætti fjárhagslegi ávinningur Skagstrendinga er sem hér segir. I fyrsta lagi felst hann i þvi að forðast greiðslu opinberra gjalda. Fyrirtækið Skagstrendingur h.f. á og gerir út skuttogarann Arnar HU-1. Arnar er smiðaður árið 1973 og þess vegna eru afskriftir af honum orðnar mjög litlar. Það hefur i för með sér reiknings- leganhagnað af útgerðinni, sem er auðvitað skattskyldur. Allir vita að nýr skuttogari getur ekki staðið undir afborgunum og vöxtum af stofnverði sinu, eins og fiskveiði- og fjármálum okkar er nú háttað. Hins vegar má nota hagnaðinn af Arnari til að greiða tapið á nýja skipinu og koma reikningum útgerðarinn- ar þannig i skattlaust jafnvægi. Tveir fyrir einn. Hitt fjárhagslega atriðið byggist á „stefnu” okkar i fisk- veiðimálum, þar sem hvert skip má veiða þorsk i ákveðinn dagafjölda. Vilji Skagstrend- ingar eða aðrir auka þlutdeild sina i heildaraflanum, er eina ráðið að fjölga skipum. Þannig heldur hringrásin áfram, hver staður eykur sinn flota og dreg- ur þannig úr aflaþeirra skipa, sem fyrir eru. Þess vegna má gera ráð fyrir að innan skamms veiði Skagstrendingar svipaðan afla með sinum tveim togurum og einn veiðir nú. 1 atvinnulegu tilliti hefur þetta skip ekki þýðingu fyrir Skag- strendinga vegna þess að á Skagaströnd er atvinna næg. Togarinn Arnar er meðal afla- hæstu togara á Norðurlandi og auk þess eru gerðir út frá Skagaströnd fjórir linubátar auk trillubáta. Frystihús ogarans I Slippstöðinni á Akur- skriðinn. Nú er nýtt frystihús i byggingu á Skagaströnd til að taka við afla þessa aukna flota staðarins og um leið er dregið úr nýtingu annarra frystihúsa landsins og atvinnu við þau. Trúlega þarf siðan að flytja inn erlent starfsfólk til að vinna við nýja húsið á Skagaströnd. Þótt þessi mynd sé alldökk, er hún þó alls ekki sú svartasta sem hægt er að hugsa sér, fyrir þjóðarbúið. Fróðir menn full- yrða að hið nýja skip verði út- buið til að geta fullunnið aflann um borð og muni sigla með afl- ann. Einnig er upplýst að samn- ingaumleitanir standi yfir við Blönduósbúa um að taka við hluta af Skagastrandaraflan- um, um tima, eða þangað til nýja frystihúsið er komið upp. Engin fiskvinnsla er nú á Blönduósi enda eru hafnarskil- yrði þar slæm. Er fráleitt að láta sér detta i hug að I kjölfarið komi krafa um fiskiskipahöfn á Blönduósi, byggingu frystihúss og siðar, þegar Skagstrendingar þurfa ekki lengur að landa þar„ komi krafan um togara fyrir Blöndu- ós? Dugandi menn. Skagstrendingar hafa á sið- asta áratug byggt upp blómlegt atvinnulif staðarins, sem var nánast i kaldakoli, af miklum dugnaði Þeim er auðvitað ekki láandi að þeir skuli taka þátt i þvikapphlaupi sem stefnuleysi okkar i fiskveiðum býður uppá. Enda er ekki erindi þessa fréttaauka að sakast við þá. Hér er við þá menn að sakast, sem taka aðsér aðhafa stjórn á þjóðarbúinu en gera það ekki og það er gert að ósk sjávarútvegs- ráðherra, eins og fyrr er vikið að. Hvers vegna stemma stjórn- völd ekki stigu við svo hóflausri hleðslu kostnaðar á framleiðsl- una? Og hvernig er það með laun- þegana, gera þeir sér ekki grein fyrir hvaða áhrif þetta hefur á kjör þeirra? —SV. L. Danski rithöfundurinn MARIA GIACOBBE segir frá Sardiníu og sýnir litskuggamyndir þriðjudag 17. mars kl. 20,30 Verið veikomin IMorræna húsið Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík Aðalsafnaðarfundur verður haldinn i Frí- kirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 22. mars kl. 3 e.h., strax á eftir messu. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lagabreytingar varðandi prestkosningar o.f I. 3. önnur mál. Safnaðarstjórnin. AUGLÝSING frá félagsmálaráðuneytinu LISBETH F. BRUDAL/ sálfræðingur, flytur fyrirlestur um norræna rannsókn um Fæðingarstofnanir á Norðurlöndum. Starfsreglur er snerta feður og systkini í Norræna húsinu miðvikudaginn 18. mars kl. 20.30. nOj Samkeppni skólabarna 3 S S' í Reykjavík um gerð I ■ V auglýsingaspjalda í tilefni 50 ára afmælis Strætisvagna Reykjavfkur Tilefni: Reykjavíkurvika 17.-23. ágúst 1981. Kynntar verða þrjár borgarstofnanir, S.V.R., B.ú.R. og slökkvilið. Sérstaklega verður minnst 50 ára afmælis Strætisvagnanna. Enn- fremur verður athygli vakin á starfsemi æskulýðsráðs. Listviðburðir verða á Kjarvals- stöðum og sitthvað gert til skemmtunar. Undirbúningur og framkvæmd: I samráði við myndmenntakennara í grunn- skólum borgarinnar er ákveðið að efna til samkeppni nemenda um gerð auglýsinga- spjalds fyrir Reykjavíkurvikuna 1981 og skal efni þess tengt 50 ára afmæli Strætisvagna Reykjavikur. Stærð auglýsingaspjaldsins skal vera 85 x 60 cm. Texti á auglýsingaspjaldinu á að vera „STRÆTÓ I 50 AR — REYKJAVIKURVIKA 1981". Þátttakendum er heimilt að gera tillögu um einhvern stuttan hnyttinn viðbótartexta tengdan efninu. Þátttakendur hafa að öðru leyti frjálsar hendur um gerð myndanna, nema hvað skjaldarmerki borgarinnar skal vera á henni. Allir grunnskólanemendur í Reykjavík hafa rétt til þátttöku í samkeppninni. Myndverkum nemenda verður skipt í þrjá flokka (6-9 ára, 10-12 ára og 13-15 ára), þegar þær verða metnar. Skilafrestur: Myndum sé skilað í síðasta lagi 20. maí n.k. Dómnefnd: i dómnefnd eigi sæti fulltrúar stjórnar Reykjavikurviku, fulltrúi S.V.R., fulltrúi fræðsluskrifstofu ásamt fulltrúum kennara. Dómnefnd lýkur störfum 30. maí. Verðlaun: 1. verðlaun: Vandað reiðhjól: Aukaverðlaun, 1.-5. sæti: Fríkort í strætis- vagna i eitt ár. Kennarar grunnskólanna í Reykjavík eru vin- samlegast beðnir að hvetja nemendur til þátt- töku í þessari teiknisamkeppni. Framkvæmdanefnd Reykjavikurviku.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.