Vísir - 17.03.1981, Blaðsíða 16

Vísir - 17.03.1981, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 17. mars 1981 MEBAL SKOPUN ARVERKA GUBS Davið Björnsson skrif- ar. Hér eru nokkrar myndir af kisu okkar, drottningunni frá Topaz (kattarandaheimi), og músunum tveimur sem hún veiddi án þess að meiða þær nokkuð. Við eigum einnig hamstur en páfagaukur- inn, sem við vorum búin að eiga i nær 4 ár, flaug út um gluggann i fyrrasumar og hefur ekki sést siðan. Þegar við vorum i Bandarikj- unum áttum við fallegan, hrein- ræktaðan Keeshond (hollensk ættaður) sem hafði aldrei átt hvolpa en tók litla máttfarna kettlinginn okkar á brjóst og ól hann upp. Og þegar kötturinn óx úr grasi verndaði hann svæðið i kringum húsið okkar eins og hann væri hundur. Á meðan á fiutningunum stóð, aftur til Islands, voru dýrin okkar geymd i kennels úti, þar til við gátum fengiö innflutningsleyfi fyrir þau. En þegar það kom loks- ins i gegn eftir 6 mánaða stans- lausabaráttu við yfirvöldin, voru heimilisdýrin okkar ekki lengur á lifi. Ég skil ekki fólk sem bannar meðbræðrum sinum sjálfsagðan og eðlilegan hlut eins og sam- skipti manns og dýra náttúrunnar og það sérstaklega við tryggasta vin hans — hundinn. Það hlýtur að vera meira en litið bogið við slikt þjóðfélag. Og ég mun þakka Guði minum fyrir þann dag sem hann leyfir mér að fara héðan aftur til lands þar sem maður telst enn meðal sköpunarverka Guðsen ekki vélmenna rikisins — fámenns hóps andlegra örkumla sjálfsdýrkenda sem stjórna land- inu eftir þvi. Hver var það nú aftur sem á að hafa sagt: „Það er erfitt að halda niður i manni þegar það sýður upp úr.”? Ólíkum dýrum getur komiö mjög vel saman. Eitthvað leynist undir tðnnunum Hneykslaður á hneyksl- aðri móður: Hvernig er þetta orðið eiginlega meö siðferðið á Islandi? Þetta annars ágæta land er að verða aö örugustu Sódómu, engu er leynt lengur, ekki einu sinni argasta óeðli i skoöunum manna. Það verður að taka tillit til þess að landið byggja enn menn með óbrenglaða siðferðisvitund. Við lásum i Visi þann 4. mars bréf frá „hneysklaðri móður”, sem þó var ekki hneykslaðri en svo að hún hneykslaði okkur meö þvi að gefa grænt ljós á það að sýnd yrðu i blöðum hné og axlir. Nei, hné og axlir eiga hvergi heima nema i skitugum klámrit- um, eins og i ýmsum hérlendum blöðum. Við þykjumst ekkert sérstak- lega siðvandir, við höfum til dæmis ekkert á móti andlitum á fallegu fólki, og að stöku sinnum sjáist móta fyrir tönnum en þó i mesta hófi. Munið þið að það get- ur veikt siðferðisþrótt barna að þau uppgötvi að eitthvað spenn- andi leynist undir tönnunum. RANGFÆRSLUR UG ÆSISKRIF Athugasemdir frá bæjarfógetanum i Ólafsfirði um æsiskrif Jónasar Haraldssonar, blaðamanns i Dagblaðinu 5 mars s.l. um lausn lögreglumanns úr starfi i Ólafsfirði. Hér er um furðulegar rang- færslur og æsiskrif að ræða og m.a. óheimila myndbirtingu, sem er sett upp á meiðandi og óvirð- andi hátt. Varöandi efni blaðsins um lausn lögreglumannsins úr starfi skulu nokkrar staðreyndir settar hér fram. I ólafsfirði hafa starfað 2 fast- ráðnir lögreglumenn. Starfa þeir sem jafnsettir lögreglumenn, þótt annar hafi haft laun sem varð- stjóri vegna starfsaldurs. Þessum lögreglumönnum er al- gerlega óheimilt aðfá menn i sinn stað, er þeir eru að sinna starfs- skyldum sinum. Athygli vekur samt aðflest þaö, sem lögreglumanninum er gefið að sök er beint og óbeint viður- kennt i skrifum Dagblaðsins, þótt reynt sé eftir mætti að gera litið úr ásökunum. Það er greinilegt að blaðamað- urinn hefur ekki gert sér nokkra grein fyrir staðreyndum og eðli málsins, hvað þá heldur reynt að kynna sér hlutlægt málsatriði. Hvar eru nú siðareglur blaða- mannsins? Hafa þær e.t.v. týnst i hita augnabliksins. ólafsfirði 9. mars 1981 Barði Þórhallsson bæjarfógeti „Ég satt best að segja trúi þvf ekki að „flestir” roðni af blygöun og feimni, þegar til umfjöllunar er jafn stórkostlegt málefni, sem mannlegar tilfinningar”, segir Valhildur Þú getur kall að mig draum ðramann Kópavogi 13.03. ’81 Valhildur M. Jónasdóttir skrifar. Eftir lestur bréfs þins i Visi, miðvikudaginn 11. þ.m., kom mér i hug, að niðurlagsorðin, „bylur hæst i tómri tunnu o.s.frv.”, hefðu verið heppilegri sem undirskrift. Þúheldurþvi fram ibréfiþinu, að þú skrifir sem fulltrúi stórs hóps manna — þ.e. „flestra” sem tæki- færi hafa til að horfa á þættina „Húsið á sléttunni”. Hefði ekki verið viðkunnanlegra að for- svarsmaður alls þessa fjölda skrifaði undir nafni? En nóg um það og þinar skoöanir i bili. „Húsið á sléttunni” er fallegt hús. Það er að visu bæði litið og lágreist og byggt úr viði, en til þess að það veiti ibúum sinum skjól og öryggi er það þétt meö ást, umhyggju, skilningi og öðr- um þeim góðu dyggðum sem ósk- andi væri að hvern mann pryddu. Þessir þættir gætu verið okkur fyrirmynd ef við kærðum okkur um. Fyrirmynd að samskiptum við börnin okkar, og við þá sem við erum samferða hverju sinni. I heimi þeim er við byggjum i dag, þar sem kjarnorkusprengjan vofir yfir og enginn hefur tima fyrir fjölskyldu sina, hvað þá heldur náungann, er sannariega ljúft að láta sig dreyma um það, að ef til vill getum við einhvern- tima lifað saman i trausti og ást hvert á öðru. Ég satt best að segja trúi þvi ekki, að „flestir”, roðni aí blygð- un og feimni, þegar til umfjöllun- ar er jafn stórkostlegt málefni, sem mannlegar tilfinningar. Þvi vona ég, að einhver geti tekið undir með John Lennon i orðum þeim er ég vil nú gera að minum lokaorðum. „You may call me a dreamer but I’m not the only one I hope some day you’ll join us and the world will live as one.” (Mjög lausleg þýðing: „Þú getur kallaðmig draumóramann/ en ég er ekki einn um það/ ég vona þú verðir með / og heimurinn verður einn.”) I LEIT AD PENNAVINUM Anette Grood Faagelstensvaagen 212 u3 700 Lindome Sverige leitar að 13 ára stúlkum til pennavinskapar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.