Morgunblaðið - 12.01.2004, Side 9

Morgunblaðið - 12.01.2004, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 9 Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–16.00. Engjateigi 5, sími 581 2141. Stórútsalan í fullum gangi Útsala útsala Seltjarnarnesi, sími 561 1680 Kringlunni, sími 588 1680. iðunn tískuverslun Útsala útsala Útsala — Útsala Laugavegi 84, sími 551 0756 TILBOÐSDAGAR á völdum vörum - 10-30% afsláttur VERSLUNIN PAUL & SHARK Bankastræti 9 ÚTSALA Nóatúni 17 • sími 562 4217Gullbrá Sendum í póstkröfu Útsala 20-50% afsláttur Silkitré, silkiblóm og gjafavara Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) sími 551 2040 ( it tí i ) í i ÚTSALA - ÚTSALA Dæmi um verð: Áður: Nú: Peysa m/gata mynstri 5.900 1.800 Peysa m/kaðlaprjóni 5.900 1.900 Jakkapeysa 5.900 1.900 Dömuskyrta 4.600 900 Skyrta m/bróderíi 5.500 1.700 Toppur m/bróderíi 5.500 1.600 Denimkápa m/loðkraga 7.900 2.900 Mittisjakki m/loðkraga 4.900 1.400 Dömubolur 2.600 900 Kjóll 6.500 2.600 Sítt pils 4.700 900 Dömubuxur 4.200 900 Satínbuxur 6.700 900 ...og margt, margt fleira 60—90% afsláttur Opið frá kl.10.00-18.00 Stærðir 34-52 Ótrúlega lágt verð Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík. Símar 561 1525 og 898 3536. Upplýsingar og innritun kl. 16-21 alla daga. Málað með olíu, vatnslitum og akrýl. Teiknun. Byrjendahópur — Framhaldshópur — Fámennir hópar. frá fæðingardegi barnsins þar til fjöl- skyldan fluttist til Íslands rúmum mánuði síðar. Bar að tryggja að eðlilegar upplýsingar lægju fyrir Úrskurðarnefndin taldi ekki vera hægt að byggja á undanþáguákvæði í reglugerðinni um að greiða konunni fæðingarstyrk sem námsmanni. Um- boðsmaður Alþingis telur að þar sem nefndin hafi kosið að fjalla efnislega um réttarstöðu konunnar á grund- velli undanþáguheimilda reglugerð- arinnar, þrátt fyrir að umsókn um greiðslur hafi ekki ekki verið sér- staklega byggð á því að hún væri námsmaður, hafi nefndinni borið að tryggja að nægar upplýsingar lægju fyrir um hvort skilyrði ákvæðisins væru uppfyllt. Telur umboðsmaður að þar hafi nefndin ekki gætt að 10. gr. stjórnsýslulaga sem kveður á um að stjórnvald skuli sjá til þess að mál séu nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í þeim. Er þeim tilmælum beint til úr- skurðarnefndinnar að taka mál kon- unnar fyrir að nýju, óski hún þess, og taka þá mið af sjónarmiðum í áliti umboðsmanns. UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að úr- skurðarnefnd fæðingar- og foreldra- orlofsmála hafi ekki farið að stjórn- sýslulögum er konu var synjað um greiðslu til hennar í fæðingarorlofi. Jafnframt gagnrýnir umboðsmaður tafir sem urðu á því að úrskurða í máli konunnar og beinir þeim tilmæl- um til úrskurðarnefndarinnar að málum ljúki innan lögmælts frests. Konan kvartaði yfir úrskurði nefndarinnar þar sem synjun Trygg- ingastofnunar á greiðslu til hennar í fæðingarorlofi var staðfest. Kom m.a. fram í úrskurðinum að konan hefði ekki uppfyllt ákveðin skilyrði reglugerðar um greiðslur úr Fæð- ingarorlofssjóði, sem heimilar að vik- ið sé frá öðrum skilyrðum í sömu reglugerð um lögheimili hér á landi við fæðingu barns og síðustu 12 mán- uði þar á undan. Vísaði úrskurðar- nefndin til þess að konan hafði átt lögheimili erlendis frá 1992 og fram til loka júní 2001. Mánuði fyrr hafði konan eignast barn í Svíþjóð en vegna náms þar í landi hafði hún ekki áunnið sér rétt til greiðslu fæðing- ardagpeninga í Svíþjóð. Hún fékk hins vegar greiddan fæðingarstyrk Úrskurðarnefnd gætti ekki að stjórnsýslulögum STJÓRN Læknafélags Reykjavíkur (LR) segir Garðar Garðarsson, for- mann samninganefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og for- seta kjaradóms, blekkja bæði al- menning og stjórnmálamenn lands- ins með málflutningi sínum í fjölmiðlum. „Þar fer hann vísvitandi með rangfærslur er hann greinir frá afstöðu samninganefndar Lækna- félags Reykjavíkur. Það er grund- vallarkrafa að starfsmenn hins op- inbera hafi sannleikann að leiðarljósi og fjalli á málefnalegan hátt um viðkvæm deiluefni. Það er einnig óeðlilegt að formaður samn- inganefndar heilbrigðisráðherra haldi leyndum upplýsingum um op- inbera samninga fyrir sjúklingum sem tryggir þeim þjónustu með greiðsluþátttöku ríkisins,“ segir í fréttatilkynningu LR. Stjórn læknaráðs LSH gerir at- hugasemd við frétt á vef Trygginga- stofnunar ríkisins frá 31. desember sl. en í henni sagði m.a. að þeim sem þyrftu á læknisaðstoð að halda á næstunni væri bent á þjónustu heilsugæslustöðvanna og Lækna- vaktina á Smáratorgi, göngudeildir sjúkrahúsa og Barnalæknaþjón- ustuna í Domus Medica. Í ályktun læknaráðsins segir að ljóst sé að þessar stofnanir búi ekki yfir nema litlum hluta af þeirri sérfræðiþekk- ingu sem veitt var samkvæmt samn- ingi LR og TR. „Það verður því að reikna með að hér sé fyrst og fremst verið að ræða um að sjúklingum verði bent á göngudeildir sjúkrahús- anna. Stjórn læknaráðs LSH er tjáð að ekki hafi verið haft samráð við stjórnendur LSH um þessa ráðstöf- un. LSH stendur nú frammi fyrir þeim vanda að þurfa að skerða þjón- ustu og segja upp starfsfólki. Ekki verður skilið hvernig veita eigi meiri sérfræðilæknisþjónustu á göngu- deildum LSH á þessum tímum sam- dráttar. Þá er ljóst að göngudeildir LSH búa við verulegt aðstöðuleysi og eru dreifðar víða um spítalann. Aukin læknisþjónusta á göngudeild- um krefst því töluverðs undirbún- ings, meðal annars með bygginga- framkvæmdum.“ Formað- urinn blekk- ir almenning og stjórn- málamenn ÚTLIT er fyrir að bensín hjá Atlantsolíu muni klárast á næstu dögum vegna mikilla við- skipta, en Hugi Hreiðarsson hjá Atlantsolíu segir að viðtök- urnar sem bensínsala fyrirtæk- isins hefur fengið séu ævintýri líkastar. Áætlað var að þær bensín- birgðir sem komu til landsins myndu duga í þrjár vikur, en gert var ráð fyrir að sala á út- sölustað fyrirtækisins á Kópa- vogsbraut myndi fimmfaldast frá því sem áður var. Ljóst er að salan hefur meira en tutt- ugufaldast, samkvæmt upplýs- ingum Huga. Fram kemur að engin leið hafi verið fyrir forráðamenn Atlantsolíu að sjá slíkar viðtök- ur fyrir, en nú þegar hafi verið gerðar ráðstafanir til að flýta afhendingu á næsta bensín- farmi, en þó sé ljóst að tíu dag- ar muni líða áður en hann ber- ist til landsins. Bensínbirgð- ir Atlantsolíu að klárast

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.