Morgunblaðið - 12.01.2004, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 29
Þarftu að losna við gömul hús-
gögn, ísskáp, þvottavél og fleira.
Sæki þér að kostnaðarlausu.
Húsaviðgerðir, sími 697 5850.
Útsala - Útsala - Útsala
30-50% afsláttur af speglum,
myndum og málverkum.
Innrömmun - fljót og góð
þjónusta. Erum flutt í Faxafen 10.
Gallerí Míró innrömmun,
sími 581 4370.
Áramótin liðin
Bókhald og uppgjör fyrir lögaðila,
einstaklinga og félög. Vönduð
þjónusta. Hafið samband,
Forsvar ehf. www.forsvar
S. 455 2500, f. 455 2509.
Bílskúrshurðir. Hurðamótorar,
öll bílskúrshurðajárn og gormar.
Iðnaðarhurðir og allt viðhald við
bílskúrs- og iðnaðarhurðabúnað.
Bílskúrshurðaþjónustan -
HallDoors - s. 892 7285.
Útsala á margskonar vörum
- ótrúlegt verð - Snyrtivörur -
Fatnaður - Gjafavara - Búsáhöld
- Skartgripir o.fl. o.fl.
Verslun Kays B. Magnússon,
Austurhrauni 3, Gbæ,
s. 555 2866.
Útsala — Útsala
Dömuskór stærðir 42-44.
30-50% afsláttur.
Herraskór stærðir 47-50,
50% afsláttur.
Margrét, sími 897 4770.
www.storirskor.is
Viltu vinna heima? Leitum að
fólki sem vill vinna heima. Góðar
tekjur fyrir rétta fólkið. Hlutastarf
- Fullt starf. Starfsþjálfun í boði.
Edda Borg, s. 896 4662 -
www.eddaborg.com
Viltu léttast hratt og örugglega?
Anna Heiða léttist um 30 kg,
Ægir um 7,5 kg. á 6 vikum.
Ég um 25 kg og Dóra um 15 kg.
www.diet.is Hringdu núna!
Margrét, s. 699 1060.
Nýtt á Paradís: Gelneglur og
styrking á eigin neglur. Nýjar og
spennandi nuddmeðferðir.
Opið til kl. 20.00 á kvöldin.
Snyrti- og nuddstofan Paradís,
Laugarnesvegi 82, s. 553 1330.
Til sölu Nissan Patrol GR (okt.
'01), ek. 44 þ., 38" br., loftd., loft-
læs., drifhlutf., spilbiti, tölvuk.,
stereógr., bassabox, talst., film-
ur, toppgr. o.fl. Toppeint. V. að-
eins 4,3 m., áhv. 2,8. Afb. 68 þús.
á mán. Bein sala. Sími 820 8096.
Til sölu Cherokee Laredo
4,0 l ´88. Nýskoðaður, góður bíll.
Rafmagn, spólvörn, powercontr-
ol. Uppl. í símum 867 9263 og
587 3215 á kvöldin.
SKIPTI Á BÍL EÐA ÍBÚÐ
Til sölu lúxusjeppi (verð 4,790
þús.) Skipti koma til greina á 2ja
til 3ja herb. íbúð á höfuðborgar-
svæðinu (verðhugmynd 7 til 11
millj.). Áhugasamir hafi samband
í síma 893 2550.
Dodge. Nýr Dodge Ram 3500 (ek.
300 km) Larami, Cummings Ho
305hp, sjálfsk., leður, rafmagns-
sæti, 8 feta pallur, 6 manna. Einn
með öllu. Verð 4.550 þús. stgr.
Sími 699 8065.
Dodge Dakota, árg. 1992, 4x4,
til sölu. Ekinn aðeins 77 þús. míl-
ur, sjálfskiptur, 8 cyl., 318 cc.
Langur pallur. Gott ástand.
Kaldasel ehf.,
s. 544 4333 og 820 1071.
VOLVO 850 GLE ÁRG. 1994
5 cyl., 20 ventla, sjálfsk., spól-
vörn, abs-bremsur, tölva, drátt-
arkr., sumard. á álfelgum, vetr-
ard. nýleg, bíll í toppviðhaldi, ek.
161 þús km. V. 730 þús. S. 893
2550.
Bílaperur
H4, 12 v, 60/55, kr. 360.
Xenon H4, 12 v, 60/55, kr. 600.
Xenon H7,12 v, 55, kr. 700.
Xenon perur gefa 30% ljósmagn.
GS varahlutir,
Bíldshöfða 14, sími 567 6744.
4 vélsleðar til sölu/Björgunar-
sveit Hafnarfjarðar er með 4
Yamaha Ventura 700 vélsleða til
sölu. Tveir eru árg. 2000, eknir
2.300 km og tveir árg. 2002, eknir
1.100. Sleðarnir eru með farang-
ursgrind og kössum, ásamt
negldum beltum og brúsagrind-
um. Nánari uppl. í s. 570 5070.
ALMENN DYRASÍMA- OG
RAFLAGNAÞJÓNUSTA
Set upp ný dyrasímakerfi og geri við eldri.
Endurnýja raflagnir i eldra húsnæði
ásamt viðgerðum og nýlögnum.
Fljót og góð þjónusta
Geymið auglýsinguna
Sími 893 1733 og 562 6645
JÓN JÓNSSON
löggiltur rafverktaki
jon@netpostur.is
Útsala - útsala
Kristalsskartgripir.
Slovak Kristall, Dalvegi 16b,
Kópavogi, s. 544 4331.
Veislubrauð
Matarbrauðsneiðar • Pinnamatur
Snittur • Brauðtertur • Samlokur og fleira
í 17 ár
Brauðstofa
Áslaugar
Búðargerði 7
Sími 581 4244 og 568 6933
OPIÐ: Virka daga frá kl. 8-15
og laugardaga frá kl. 9-13
Útsala - útsala
Tékkneskar postulínsstyttur.
Slovak Kristall, Dalvegi 16b,
Kópavogi, s. 544 4331.
Útsalan er hafin.
Föndurmarkaður DecoArt
Lyngási 1, Garðabæ,
sími 555 0220.
Skatta- og fjármálaþjónusta.
Einyrkjar og aðrir sjálfstætt starf-
andi. Lækkið skattana með stofn-
un ehf. um starfsemi ykkar. Til-
valið að byrja um áramót.
Taxlaw, sími 663 4141.
FRÉTTIR
UNNUR Anna Valdimarsdóttir
varði doktorsritgerð sína hinn 28.
maí 2003 við Karolinska Institutet í
Stokkhólmi. Andmælandi við dokt-
orsvörnina var
dr. Colin Murray
Parkes frá Bret-
landi og próf-
dómari Timo
Hursti, dósent
við Uppsalahá-
skóla. Leiðbein-
endur Unnar
voru þeir Ásgeir
R. Helgason,
dósent í heilsusálfræði, og Gunnar
Steineck, prófessor í krabbameins-
lækningum, báðir við Karolinska
Institutet. Ritgerðin ber nafnið The
loss of a husband to cancer: addi-
tional and avoidable psyhological
traumata sem þýða má á íslensku
„Að missa eiginmann úr krabba-
meini: áhættuþættir langvarandi
kvíða- og þunglyndiseinkenna“.
Ritgerðin byggist á rannsókn sem
gerð var í Svíþjóð á landsvísu á
konum sem misst höfðu mann sinn
úr krabbameini í þvagblöðru eða
blöðruhálskirtli. Faraldsfræðileg
aðferðafræði var notuð til að greina
langvarandi sálræn einkenni ekkn-
anna 2–4 árum eftir fráfall manns-
ins og hvaða þættir frá sjúkdóms-
tímabilinu hefðu áhrif þar á. Meðal
annars kom í ljós að ekkjurnar
voru líklegri en giftar jafnöldrur
þeirra til þess að þjást af einkenn-
um þunglyndis og kvíða, svefntrufl-
unum og sykursýki. Of stuttur vit-
undartími (sá tími fyrir dauðsfallið
sem konan er sér meðvitandi um
að maður hennar er dauðvona) og
sálræn einkenni sjúklingsins á síð-
ustu mánuðum í lífi hans juku lík-
urnar á langvarandi kvíða- og
þunglyndiseinkennum ekknanna
2–4 árum eftir andlátið. Upplýs-
ingar frá læknum og aðgengi
kvennanna að sálfræðilegum stuðn-
ingi síðustu mánuðina í lífi sjúk-
lingsins juku líkurnar á lengri vit-
undartíma. Einnig kom í ljós að
þótt sjúklingar virtust hafa haft
mikið aðgengi að meðhöndlun
vegna líkamlegra einkenna höfðu
þeir minna aðgengi að meðhöndlun/
stuðningi vegna sálrænna þjáninga.
Í ritgerðinni eru niðurstöðurnar
ræddar út frá því hlutverki sem
heilbrigðisstarfsfólk gegnir í að
draga úr líkunum á langvarandi
sálrænum einkennum þeirra sem
missa ástvin úr krabbameini.
Unnur starfar nú við rannsóknir
og önnur fræðistörf („post doc“) við
Karolinska Institutet í Stokkhólmi.
Eiginmaður hennar er Pétur Mar-
teinsson. Ritgerðin er tileinkuð for-
eldrum Unnar, þeim Valdimari
Steingrímssyni og Guðrúnu Jóns-
dóttur sem búsetttt eru á Ólafs-
firði.
Að missa
eiginmann
úr krabba-
meini
ÖKUMENN í þýska sambandsrík-
inu Nordrhein-Westfalen geta nálg-
ast upplýsingar um umferð á stærsta
hraðbrautakerfi Þýskalands á vefn-
um. Hugbúnaðurinn spáir einnig um
umferðarþungann á næstu 30 eða 60
mínútum og er þetta afkastamesti
rauntíma-umferðarhermir veraldar
að sögn dr. Sigurðar F. Hafstein.
Nota mörg hundruð þúsund manns
þessar upplýsingar á vefnum á degi
hverjum til að sjá umferðarþungann
á vegunum.
Sigurður hlaut Heinz Billing-verð-
laun Max Planck-stofnunarinnar
2003 nýverið ásamt tveimur sam-
starfsmönnum sínum fyrir hönnun
og forritun umferðarhermisins, sem
kallast OLSIM. Er þetta í fyrsta
skipti sem þessi virtu verðlaun eru
veitt aðilum utan Max Planck-stofn-
unarinnar fyrir notkun á tölvutækni
í vísindum.
Fjögur þúsund mælar
„Meira en fjögur þúsund segul-
lykkjumælar greina hvað margir
bílar keyra yfir þá, hversu þungir
þeir eru og hve hratt þeir fara,“ segir
Sigurður. „Þessum gögnum er safn-
að saman og þau send á mínútu fresti
og mötuð inn í herminn. Þessar upp-
lýsingar eru notaðar til að mæla um-
ferðarþungann rétt og síðan erum
við með gögn síðustu þriggja ára,
sem eru notuð til að spá um hvernig
umferðarástandið verður.“
Hann segir marga vera með að-
gang að vefnum í vinnunni og athuga
hvernig ástandið á hraðbrautunum
sé og hvort ráðlegt sé að halda heim.
Þá geti ökumenn frestað brottför
eða valið aðrar leiðir á áfangastað.
Ástandið á hraðbrautunum sé oft
skelfilegt og inn í þetta kerfi sé líka
bætt upplýsingum um vegafram-
kvæmdir, lokanir og slys.
Umferðarhermirinn hefur verið í
notkun síðan í september 2002 en þá
var ekki hægt að nálgast spár um
umferðarþunga fram í tímann. Sig-
urður segir spárnar reynast vel því
mjög oft sé það sama sem gerist á
hraðbrautunum. Ferðamunstrin á
mánudögum séu t.d. álíka, þá sé um-
ferð á þriðjudögum, miðvikudögum
og fimmtudögum með svipuð sér-
kenni og á föstudögum sé þriðja
munstrið. Hann segir erfitt að segja
hvort hegðun ökumanna hafi breyst
með tilkomu hermisins en auðvitað
er gert ráð fyrir því þegar mörg
hundruð þúsund ökumenn nota vef-
síðuna á degi hverjum.
Aðrir hafa áhuga
Sigurður segir að næsta sam-
bandsríkið við hliðina sé með kerfið í
prófun en það sé ekki komið á vefinn
ennþá. Aðrir hafi sýnt þessu áhuga
en séu kannski byrjaðir að þróa sín
eigin kerfi. Engum hafi þó tekist að
koma með álíka lausn og felist í OL-
SIM, sem sé á vefnum og virki.
Íslendingur verðlaunaður fyrir hönnun umferðarhermis
Fólk nálgast spár um um-
ferðarþunga á vefnum
Kurt Kremer prófessor hjá Max-
Planck rannsóknarmiðstöðinni til
vinstri afhendir Sigurði F. Hafstein
Heinz-Billing verðlaunin.