Morgunblaðið - 12.01.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 12.01.2004, Blaðsíða 31
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 31 Fást í verslunum um land allt H. Blöndal ehf. Sími 517 2121 www.hblondal.com Purga-T sjálfvirku slökkvitækin fyrir sjónvörp • Alltaf á vakt • Slekkur eldinn strax • Fullkomlega öruggt H rin gb ro t LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRA- HÚS SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000. BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050. BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími 543 1000. BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími 543 4050. NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími 543 2085. EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222. ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085. LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upplýsingar í s. 563 1010. LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn- arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá- tíðir. Símsvari 575 0505. APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8– 24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101. LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. NEYÐARÞJÓNUSTA BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep- urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar- og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að- standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek- ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif- stofutíma. NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar- hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112 ÚTIBÚ KB banka í Hveragerði og körfuknattleiksdeild Hamars í Hveragerði hafa gert með sér samkomulag um stuðning KB banka við körfuknattleiksdeildina. Samkomulagið felur í sér að körfuknattleiksdeildin tekur að sér að kynna bankann hvar sem því verður við komið. KB banki auglýsir einnig framan á bún- ingum meistaraflokks næstu tvö árin. Einnig verða settar upp aug- lýsingar bankans á gólf og veggi íþróttahússins hér í Hveragerði. Auglýsingar verða settar á tvenns konar búninga, hvíta sem notaðir verða á heimaleikjum og bláa sem notaðir verða á útileikjum. Þetta er gert samkvæmt nýjum reglum um búninga þar sem segir að lið skuli klæðast ljósum búningum á heimaleikjum og dökkum á úti- leikjum. Að sögn Ingibjargar Guð- jónsdóttur, útibússtjóra KB banka, er þetta fyrsti formlegi samning- urinn sem bankinn gerir við körfuknattleiksdeildina, en bank- inn hefur styrkt körfuboltann í gegnum tíðina með einum eða öðr- um hætti. Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Samkomulag milli KB banka og Hamars KB banki og körfuknatt- leiksdeild Hamars und- irrita samkomulag RÖNG mynd birtist í Morgun- blaðinu í gær vegna fréttar um and- lát sænsku leikkonunnar Ingrid Thulin. Á myndinni sem birtist var leikkonan Gunnel Lindblom, sem er síður en svo látin og leikur enn í kvikmyndum. Um leið og röng myndbirting er hörmuð birtist hér rétt mynd af Ingrid Thulin. LEIÐRÉTTING VIKUBLAÐIÐ Fréttir í Vest- mannaeyjum hefur haft þann sið síðustu þrettán ár að veita við- urkenningar í byrjun árs þeim sem hafa skarað fram úr á einhverju sviði á nýliðnu ári. Fór athöfnin fram á mánudaginn og varð Páll Zóphóníasson tæknifræðingur, fyrrverandi bæjarstjóri og skáta- foringi, valinn Eyjamaður ársins. Í umsögn Ómars Garðarssonar ritstjóra Frétta segir að hann hafi alla tíð frá því hann flutti til Eyja árið 1972 verið í stóru hlutverki í bæjarlífinu. Hann var ekki búinn að vera lengi í starfi bæjartæknifræð- ings þegar Heimaeyjargosið hófst og gegndi hann stóru hlutverki í þeim átökum við náttúruöflin. Hann var framkvæmdastjóri Við- lagasjóðs í sjö mánuði og tók svo við sem bæjarstjóri í lok janúar 1976. Því starfi gegndi hann til 1982. Þá stofnaði hann Teiknistofu Páls Zóphóníassonar sem hann rek- ur enn. Páll hefur verið fé- lagsforingi skátafélagsins Faxa í Vestmannaeyjum frá því árið 1986 og hefur hann unnið mikið og óeig- ingjarnt starf í þeirri vinnu. Aðrir sem fengu viðurkenningu voru Gísli Valur Einarsson sem þótti sýna framtak ársins þegar hann hætti útgerð og keypti hót- elrekstur í Eyjum. Hefur hann unn- ið markvisst að stækkun hótelsins ásamt því sem nýstárlegt hótel hef- ur hafið göngu sína, Hótel mamma, beint á móti aðalhóteli Gísla, Hótel Þórshamri. Margrét Lára Viðarsdóttir, hin bráðefnilega knattspyrnukona, fékk einnig viðurkenningu en hún þótti bjartasta von Vestmannaeyja á íþróttasviðinu. Vestmannaeyjar hafa lengi talist mikill íþróttabær og voru veittar nokkrar viðurkenningar í þeim geiranum. Ingibjörg Jónsdóttir og Vigdís Sigurðardóttir fengu blóm- vönd fyrir framlag sitt til handbolt- ans síðustu ár en þær lögðu báðar skóna á hilluna eftir síðasta keppn- istímabil. Þá var Unnur Sigmars- dóttir heiðruð en hún var þjálfari Íslandsmeistaraliðs ÍBV í kvenna- flokki síðasta vetur. Heimir Hall- grímsson var annar þjálfari sem var heiðraður en hann hefur verið aðaldriffjöður kvennaknattspyrn- unnar í Eyjum síðustu ár og náði sínum besta árangri síðasta sumar þegar liðið hafnaði í öðru sæti deildarinnar og komst í bikarúrslit. Ingi Sigurðsson var heiðraður en hann náði þeim áfanga í sumar að spila sinn tvö hundraðasta leik fyrir ÍBV í efstu deild og er leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi. Hann hefur nú lagt skóna á hilluna. Það var svo Bergþóra Þórhalls- dóttir sem tók við blómvendi fyrir hönd VISKU, fræðslu- og símennt- unarmiðstöðvar Vestmannaeyja sem var stofnuð á árinu og hefur farið gríðarlega vel af stað. Páll er Eyjamaður ársins Gísli Valur Einarsson sem þótti sýna framtak ársins, Margrét Lára Viðars- dóttir bjartasta vonin og Eyjamaður ársins, Páll Zóphóníasson. Morgunblaðið/Sigurgeir Þau fengu sérstaka viðurkenningu, Ingi Sigurðsson, Heimir Hallgrímsson, Vigdís Sigurðardóttir, Ingibjörg Jónsdóttir og Unnur Sigmarsdóttir. Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.