Morgunblaðið - 12.01.2004, Side 32

Morgunblaðið - 12.01.2004, Side 32
DAGBÓK 32 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag eru væntanleg Stefnir ÍS og Goðafoss. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag er Brúarfoss væntanlegur. Mannamót Aflagrandi 40. Vinnu- stofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10, kl. 14 fé- lagsvist. Hársnyrting, fótaaðgerð. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 10 söngstund, kl. 13–16.30 smíðar, útskurður, kl. 13–16.30 handavinna, kl. 13.30 félagsvist, kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–16 handavinna, kl. 9– 12 bútasaumur, kl. 9– 17 fótaaðgerð, kl. 10– 11 samverustund, kl. 13–16 bútasaumur, kl. 15 boccia. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fótaaðgerð kl. 10. Skrifstofan er opin í dag kl. 10–11.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 10 leikfimi, kl. 13 brids. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin, kl. 10–13 verslunin opin, kl. 11–11.30 leikfimi. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Bað kl. 9– 12, opin vinnustofa, kl. 9–16.30, félagsvist kl. 13.30, hárgreiðsla kl. 9–12. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Stólaleikfimi kl. 9.30, kvennaleikfimi kl. 10.20 og 11.15. Gler- bræðsla kl. 13. Skrán- ing stendur yfir í nám- skeið í símum 525 8590 og 820 8553. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Opnað kl. 9, dagblöðin, rabb og kaffi. Pútt í Hraun- seli kl. 10–11.30. Billj- ardsalurinnn opinn til 16. Tréútskurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Snyrtinámskeið kl. 13, kóræfing Gaflarakórs- ins kl. 17. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handavinna, kl. 9.30 gler og postu- lín, kl. 13 skák, kl. 20 skapandi skrif. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Leikfélagið Snúður og Snælda, æf- ing kl. 10. Brids í dag kl. 13. Handmennt, spjall og kaffi kl. 13.30. Línudanskennsla fyrir byrjendur kl. 18, kennsla í samkvæm- isdönsum, framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. Kennari Sig- valdi. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Í dag, kl. 9- 16.30 vinnustofur opn- ar. Kl. 9.30 sund- og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug. Frá hádegi spilasalur op- inn. Kl. 15.15 dans hjá Sigvalda. Veitingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi Bergi. Allar uppl. á staðnum og í síma 575 7720. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin virka daga frá 9- 17. Hraunbær 105. Kl. 9 postulín, keramik og fótaaðgerð, kl. 10 bænastund, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 13 hár- greiðsla, kl. 13.30 skrautskrift. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–15 handmennt, kl. 9– 10 og kl. 10–11 jóga, kl. 13–16 spilað. Fótaað- gerðir virka daga, hár- snyrting þriðju- og föstudaga. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun, þrið. er sundleikfimi í Graf- arvogslaug kl. 9.30. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16 fótaaðgerð, kl. 10– 11 ganga, kl. 13–16.45 opin vinnustofa, mynd- list. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9–10 boccia, kl. 9–12 mósaik, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 9.30–10.30 boccia, kl. 11–12 leik- fimi, kl. 12.15–13.15 danskennsla, kl. 13–16 kóræfing. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband, búta- saumur og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og boccia, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla og spilað. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Opið frá kl. 9–16. Kl. 13.30 opið hús, m.a. söngur, fé- lagsvist. Félag eldri borgara Suðurnesjum. Bingó í Selinu Vallarbraut 4, Njarðvík, öll mánu- dagskvöld kl. 20. Gullsmárabrids. Bridsdeild FEBK Gullsmára spilar í fé- lagsheimilinu, Gull- smára 13 mánu- og fimmtud. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Brids kl. 19. Í dag er mánudagur 12. janúar 12. dagur ársins 2004. Orð dags- ins: Hinir óguðlegu flýja, þótt enginn elti þá, en hinir réttlátu eru öruggir eins og ungt ljón. (Ok.. 28, 1.)     Helga BaldvinsdóttirBjargardóttir skrif- ar pistil á frelsi.is undir fyrirsögninni Eftirlits- stofnun Manneldisráðs.     Helga segir: „Algengter að fólk fríi sig af ábyrgð á eigin lífsstíl. Ef maður fitnar er það aldrei manni sjálfum að kenna. Sökudólgarnir geta verið býsna margir; lélegir einkaþjálfarar, skyndibitastaðir sem vara mann ekki við því að mikil neysla á ham- borgurum og pizzum auki hættuna á auka- kílóum, auglýsendur sem gera gosdrykki og annað sælgæti svo girni- legt og ómótstæðilegt.“     Eins fáránlegur ogþessi hugsunarháttur kann að virðast þá er hann alls ekki úr takti við pælinguna að baki hinu svokallaða Mann- eldisráði,“ skrifar Helga. „Ráðið sam- anstendur af teymi sér- fræðinga sem eiga að sjá um að ákveða og fræða Íslendinga um það hvernig þeir geti til- einkað sér holla og heilsusamlega lífshætti. Það skal gert í samræmi við fögur markmið stjórnmálamanna og að sjálfsögðu fyrir fé skatt- greiðenda.     Í kennslustund um dag-inn lýsti ung kona áhyggjum sínum yfir því að markmiðum manneld- isráðs og reglugerðum þar að lútandi væri ekki framfylgt. Að hennar mati vantaði eftirlit með því að markmiðunum væri náð og reglugerð- unum fylgt eftir.     Að auki hef ég heyrtþví fleygt fram, meira í gríni en alvöru, að það ætti að skatt- leggja fólk eftir BMI stuðli. Þannig ætti fólk í kjörþyngd að borga minni skatta af því að það, með sínu heilbrigða líferni, hefði minni kostnað vegna lækn- isþjónustu í för með sér fyrir þjóðfélagið. Þeir sem væru í yfirþyngd skyldu aftur á móti borga hærri skatta þar sem mun meiri líkur eru á að ýmsir sjúkdómar herji á þann hóp af fólki.     Já það er einmitt þaðsem við þurfum, nokkurs konar eftirlits- stofnun sem passar upp á að allir hafi nú rétt hlutfall af grænmeti á disknum sínum. Ef við svo, einhverra hluta vegna, erum óánægð með útkomu eigin líf- ernis þá er hægt að skella skuldinni á eft- irlitsstofnunina sem aug- ljóslega var ekki að standa sig. Stofnuninni má svo fylgja eftir með refsingum eða skattlagn- ingu því eins og allir vita er yfirvofandi refs- ing og ótti við yfirvöld besta leiðin til að fá fólk til að breyta rétt.“ STAKSTEINAR Manneldi Víkverji skrifar... Víkverji er lagstur í jólabækurnar.Hann var að ljúka við að lesa „Öxin og jörðin“ eftir Ólaf Gunn- arsson sem er sagnfræðileg skáld- saga um Jón biskup Arason og syni hans. Víkverji telur þetta vel heppn- aða bók. Saga Jóns Arasonar er í meira lagi dramatísk og þótt Vík- verji teldi sig þekkja hana sæmilega hefur hann nú fengið nýja sýn til þessara tíma. Ólafur Gunnarsson setur feril og örlög þeirra feðga í ákveðið pólitískt samhengi og þykir Víkverja sú nálgun mjög áhugaverð og sannfærandi. Slíkar bækur á að nýta í menntakerfinu að mati Vík- verja. Víkverji gat ekki varist þeirri hugsun við lestur bókar Ólafs Gunn- arssonar að hún myndi henta vel sem efniviður í kvikmyndahandrit. Víkverji ætlar að leyfa sér að spá því að þessi saga verði kvikmynduð. x x x Tveir vinir Víkverja hafa á und-anliðnum dögum dottið í hálk- unni og slasað sig. Annar þeirra brotnaði illa þegar hann datt fyrir framan elliheimili eitt í Reykjavík. Þar var bílastæðið eitt gler, sandi eða salti hafði ekki verið dreift þar yfir. Gamla fólkið var ef til vill ekki á ferðinni í ófærðinni en hefði ekki mátt ætla að einhver kynni að kíkja í heimsókn? Þegar færðin í Reykjavík verður svo erfið sem raun ber vitni að und- anförnu þarf að bregðast hratt við. Víkverji efast ekki um að starfs- menn borgarinnar vinni starf sitt af dugnaði og samviskusemi. En Vík- verja sýnist að þjónusta borgarinnar hafi versnað að þessu leyti. Alltjent tók hann eftir því að lengri tíma tók nú en áður að ryðja götur nærri heimili hans. Gangstéttir voru ekki ruddar og sandi var ekki dreift fyrr en mesta hættan var liðin hjá. Slík ófærð er bein ógnun við heilsu manna og velferð. Snarpra viðbragða er þörf og Víkverja sýnist sem Reykjavíkurborg þurfi að end- urskoða viðbúnað sinn þegar slíkar aðstæður skapast. Er borgin ekki einfaldlega orðin svo stór að endur- skoða þurfi þessa þjónustu? x x x Víkverji er einn þeirra sem töldusig vera að kjósa um skattana þegar blásið var til þingkosninga í vor. Skattarnir hafa sem kunnugt er hækkað en Víkverji misskildi stjórn- málamennina svo hrapallega að hann hélt að þá ætti að lækka. En auðvitað er skýring á þessu eins og öðru. Samtök atvinnulífsins benda á það í nýju fréttabréfi, að starfsfólki í einkageiranum hafi fækkað um 4% á milli áranna 2001 til 2002. Á sama tíma fjölgaði opinberum starfs- mönnum um 5%. „Báknið“ heldur áfram að þenjast út og niðurstaða Víkverja er sú að engu skipti hver ræður yfir því. Morgunblaðið/Þorkell Til varnar Davíð DETTUR aldrei neinum Íslendingi til hugar að taka upp hanskann fyrir Davíð Oddsson? Við hvað eru menn hræddir? Vinstri elít- una? Er það ekki þaðan sem óttinn kemur? Það eru allir orðnir dauðhræddir við eineltistilburði nokk- urra manna í þessu þjóð- félagi gagnvart forsætis- ráðherranum og skoðunum hans. Hann er tekinn í gegn í þætti eftir þætti í sjón- varpsstöðvum og dagblöð- um og séð til þess að oftast eru 2-3 á móti einum í við- talsþáttum. Besta fólk tek- ur þátt í leiknum og hæðist að Davíð fyrir hvaðeina sem hann segir eða gerir. Augljóst er að eineltisgaur- unum er að verða nokkuð ágengt. Ágætur maður sagði ný- lega í sjónvarpi eitthvað á þá leið, að fjölmiðlarnir töp- uðu svo miklum fjármunum að þeir þyrftu að beita öll- um meðulum til að tóra, þ.á m. sorpblaðamennsku. Ég leyfi mér að segja, að þótt ókeypisblaðið reyni að vera ráðsett inn á milli þá birtist í því ótrúlegt níð í garð Davíðs Oddssonar en það eru einmitt aðferðir manna sem stunda einelti. Aldrei hefur birst á skjá stærri skeifa, þyngri brúnir eða reiðilegra andlit en hjá spyrlinum í enda Krydd- síldarinnar á gamlársdag enda er stöð hans búin að hefna sín grimmilega í þrjá daga í röð: Í fréttum, í Ís- landi í dag og í Silfri Egils. Er ekki mál að linni? Ó.Á. Hrafn Gunnlaugsson SÍFELLT er verið að rægja Hrafn Gunnlaugsson í fjölmiðlum og vegna ný- legrar umfjöllunar þeirra um Hrafn og mynd hans, Opinberun Hannesar, vil ég koma á framfæri að Hrafn fékk lánað hús föður míns á Langholtsvegi fyrir myndatökur og kom Hrafn alltaf fram við föður minn, sem nú er látinn, af mikilli virðingu og stóðst allt sem hann sagði.. Björk Sigurðardóttir. Tapað/fundið Myndavél í óskilum PREMIER myndavél með átekinni filmu fannst um verslunarmannahelgina í fyrra við Úlfljótsvatn. Upp- lýsingar í síma 848 2542. Leðurjakki tekinn í misgripum STUTTUR mittisleður- jakki með vínrauðu fóðri var tekinn í misgripum á Broadway á gamlárskvöld. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 866 9425. Fundarlaun. Myndavél týndist SAMSUNG stafræn myndavél tapaðist í eða við Magadanshúsið í Skipholti 13. desember sl. Skilvís finnandi hafi samband í síma 664 0530. Fundarlaun. Stálarmbandsúr týndist JAEGER La Coultre stál- armbandsúr, 46 ára gamalt týndist, sennilega í Foss- vogskirkjugarði sunnan- verðum eða í nágrenni við Austurver við Háaleitis- braut. Ýmsir aðrir staðir geta verið mögulegir. Úrið er frekar minjagripur held- ur en nothæfur tímamælir vegna aldurs. Skilvís finn- andi hafi samband við Jó- hannes í síma 588 6929. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 skortir næringu, 8 fað- ir, 9 mastur, 10 kvendýr, 11 böggla, 13 ákveð, 15 flaug, 18 svera, 21 sund, 22 kút, 23 trylltir, 24 getuleysi. LÓÐRÉTT 2 aðhlynning, 3 hafna, 4 knáa, 5 ótti, 6 fita, 7 vegg, 12 þreyta, 14 eign- ist, 15 vers, 16 ráfa, 17 skessum, 18 glæsileg, 19 látnu, 20 forar. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hopar, 4 búkur, 7 renni, 8 rokið, 9 fót, 11 naut, 13 iðna, 14 ódæll, 15 barm, 17 lugt, 20 hal, 22 teppa, 23 ormur, 24 runni, 25 tolla. Lóðrétt: 1 hóran, 2 pontu, 3 reif, 4 burt, 5 kákið, 6 riðla, 10 ófæra, 12 tóm, 13 ill, 15 bátur, 16 ræpan, 18 urmul, 19 torfa, 20 hani, 21 lost. Krossgáta  6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.