Morgunblaðið - 12.01.2004, Page 33

Morgunblaðið - 12.01.2004, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 33 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake STEINGEIT Afmælisbörn dagsins: Þú leggur mikið upp úr hefð- bundnu gildismati og siðferði. Þú hellir þér yfirleitt út í það sem þú tekur þér fyrir hendur og því skiptir starfsframi þinn þig miklu máli. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú getur sennilega bætt að- stæður þínar í vinnunni með einhverjum hætti á árinu. Þú getur annaðhvort fengið betri vinnu eða bætt aðstæður þín- ar á núverandi vinnustað. Naut (20. apríl - 20. maí)  Leggðu drög að því að fara í gott frí síðar á árinu. Það eru skemmtanir, ástarævintýri og sköpunargleði í stjörn- unum þínum. Börn skipa einnig stóran sess í lífi þínu á þessu tímabili ævi þinnar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Einkahagir þínir ættu að batna á árinu. Þetta á sér- staklega við um fjölskyldulíf þitt og heimilisaðstæður. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Hugsanir eru til alls fyrstar og því verðum við að gæta vel að hugsunum okkar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Tekjur þínar munu að öllum líkindum aukast á árinu. Það er þó ekki þar með sagt að þú munir hafa meira á milli handanna því útgjöld þín munu sennilega aukast að sama skapi. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Hinn heppni Júpíter verður í merkinu þínu fram í sept- ember og því ættu næstu mánuðir að verða mjög hag- stæðir fyrir þig. Notaðu tæki- færið. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Margar vogir munu öðlast nýjan skilning á því hvað skiptir mestu máli í lífinu á þessu ári. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Vinsældir þínar hafa aukist að undanförnu og þær munu halda áfram að aukast á þessu ári Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Júpiter hefur mikil áhrif á stjörnukortið þitt næstu mánuði. Þetta veitir þér ný tækifæri í vinnunni. Vertu stórhuga og mundu að draumar þínir geta ræst. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Á næstunni muntu fá tæki- færi sem tengjast ferða- málum, menntun og lögfræði. Fólk er farið að taka þig al- varlega. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú munt sennilega fá gjöf eða arf á þessu ári auk þess sem þú munt njóta greiðasemi annarra á margvíslegan hátt. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nánasta samband þitt mun örugglega batna á þessu ári. Þú munt einnig ná betri tök- um á samskiptum við ókunn- uga og það mun gera þau ár- angursríkari og ánægjulegri. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÍSLAND Ísland, farsælda frón og hagsælda, hrímhvíta móðir, hvar er þín fornaldar-frægð, frelsið og manndáðin bezt? Allt er í heiminum hverfult, og stund þíns fegursta frama lýsir sem leiftur um nótt langt fram á horfinni öld. Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart. – – – Jónas Hallgrímsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 100 ÁRA afmæli. Ídag, mánudaginn 12. janúar, er 100 ára Svein- björg Pálína Vigfúsdóttir frá Flögu í Skaftártungu, Sóltúni 2, Reykjavík. Hún tekur á móti ættingjum og vinum í Sóltúni 2 í dag milli kl. 16 og 18. Tæknilega þenkjandi spilarar finna fljótt réttu leiðina í fimm tíglum suð- urs. Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠986 ♥D8 ♦ÁK105 ♣D872 Suður ♠ÁKDG ♥6 ♦G9743 ♣Á65 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 tígull Pass 2 tíglar 2 hjörtu 2 spaðar 3 hjörtu Pass Pass 5 tíglar Pass Pass Pass Vestur spilar út hjartaás og aftur hjarta á kóng aust- urs. Þú trompar, spilar tígli á ásinn og þá fellur drottn- ingin úr austrinu. Hvernig er best að halda áfram? Því miður benda sagnir til þess að austur eigi lauf- kónginn. En tæknilega besta leiðin er þó vafalaust sú að taka þrisvar tromp, alla spaðana, og spila svo laufás og laufi á drottn- inguna. Þá er samning- urinn unninn ef vestur á laufkóng eða austur kóng annan: Norður ♠986 ♥D8 ♦ÁK105 ♣D872 Vestur Austur ♠10432 ♠75 ♥ÁG52 ♥K109743 ♦862 ♦D ♣93 ♣KG104 Suður ♠ÁKDG ♥6 ♦G9743 ♣Á65 Spilið er frá annarri um- ferð Reykjavíkurmótsins síðastliðinn miðvikudag og lá ekki til vinnings. Vissu- lega er sá „skítugi séns“ fyrir hendi að spila laufi undan ásnum og setja átt- una úr borði ef vestur sefur á verðinum og lætur lítið lauf. En þegar búið er að taka spaðaslagina og ekk- ert er eftir nema lauf ætti vestur að vera með stöðuna á hreinu og stinga upp ní- unni. Betri leið er sennilega að spila vestur upp á Gx í laufi. Þá er mikilvægt að leggja snemma niður lauf- ásinn (til dæmis í þriðja slag), svo vestur átti sig ekki á nauðsyn þess að af- blokkera. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. c4 e5 2. g3 Rf6 3. Bg2 Bc5 4. e3 Rc6 5. Rc3 O-O 6. Rge2 He8 7. O-O b6 8. a3 Bb7 9. b4 Bd6 10. d4 exd4 11. Rxd4 Hb8 12. Bb2 Re5 13. Bxb7 Hxb7 14. De2 c5 15. Rf5 Db8 16. Had1 Bf8 17. Rb5 He6 18. f4 Rc6 19. bxc5 Bxc5 20. Bd4 Rxd4 21. Rfxd4 Bxd4 22. Rxd4 He8 23. Rb5 Re4 24. Dd3 He7 25. Rd4 Da8 26. Rc6 He8 27. Re5 Rf6 28. g4 He7 29. g5 Re8 30. g6 hxg6 31. Dd5 Rf6 32. Df3 Db8 33. Hd2 Dc7 34. Hfd1 Dc8 35. h4 Dc7 36. Hg2 d6 37. Rc6 Hd7 38. f5 gxf5 39. Dxf5 Dxc6 40. Dxf6 Staðan kom upp á alþjóðlegu unglinga- móti sem Taflfélagið Hellir hélt fyrir skömmu. Hall- gerður Helga Þorsteins- dóttir (1265) gat hér snúið á Benedikt Örn Bjarnason (1325) með snotrum hætti. 40... g6?? 40... Dxg2+! 41. Kxg2 gxf6 hefði unnið hrók. 41. h5 Dxc4 42. h6! og svartur gafst upp enda fátt til varnar. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Táp ehf. Sjúkraþjálfun og æfingastöð Hlíðasmára 14, 200 Kópavogi, sími 564 5442 Leikfimi fyrir konur sem þjást af áreynsluþvagleka Leikfimin hefst fimmtudaginn 15. janúar kl. 17. Skráning stendur yfir. Nánari upplýsingar hjá starfsfólki Táps í síma 564 5442. HLUTAVELTA ÞESSIR duglegu krakkar héldu tombólu og söfnuðu þau kr. 3.400 til styrktar Rauða krossi Íslands. Þau eru Andri Hahl, Julia Hahl og Alexandra Höskuldsdóttir. SUNNA Kristinsdóttir, tíu ára stúlka á Bakkafirði, safnaði peningum fyrir Rauða kross Íslands með óvenju hug- myndaríkum hætti. Hún bjó til blað með krossgátu, þraut- um og gríni sem hún ljósritaði og seldi svo. Ágóðinn var rúmlega 3.600 krónur sem hún afhenti Rauða krossinum. Féð rennur allt til stuðnings fötluðum börnum í Afganist- an. FRÉTTIR ÍTREKAÐ hefur verið brotist inn í skip hjá Ólafi Arnberg Þórðarsyni, skipstjóra á Eldhamri GK, og stolið deyfilyfjum úr lyfjakistu skipa hans, en slíkt hafði alvarlegar afleiðingar fyrir skemmstu þegar engin deyfilyf voru tiltæk þegar skipverji missti fót í vinnuslysi um borð. Lyfjaþjófnaður úr skipum hefur verið þrálátt vanda- mál og segir Ólafur að efla verði lög- gæslu til að fyrirbyggja slíkt. Svo virðist sem þjófar viti vel eftir hverju er að slægjast í lyfjakistum, því þrívegis hefur verið reynt að brjótast inn í lyfjakistu Sjómanna- skóla Íslands að sögn Jóns B. Stef- ánssonar skólastjóra. Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, segir skipstjóra varnarlausa gagnvart lyfjaþjófnuðum og helst verði að setja upp þjófavarnarkerfi til að stemma stigu við skipainnbrotum. Útgerðarmaður eða skipstjóri tryggi fullbúna lyfjakistu Í reglugerð frá 1998 um heilbrigð- isþjónustu, lyf og læknisáhöld um borð í íslenskum skipum er kveðið á um að útgerðarmaður eða skipstjóri skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggt sé að skip hafi um borð fullbúna lyfjakistu. Samkvæmt reglugerðinni skal skipstjóri sjá um að lyfjakistan sé í góðu ástandi og að innihald hennar sé endurnýjað svo fljótt sem auðið er. Skal eftirlit með lyfjakistum fara fram árlega eða oft- ar ef þörf krefur. Meðal fjölmargra lyfja í lyfjakist- um skipa er deyfilyfið lídókaín, auk adrenalíns, morfíns, díazepam og pensilíns. Morfín er þó ekki geymt í smærri skipum, en þess í stað petid- ín, sterkt verkjalyf í sprautuformi, og er það helsta lyfið sem þjófar sækjast eftir. Einkum eru það smærri skip sem verða fyrir barðinu á þjófum, en togarar sleppa þar sem þeir eru vaktaðir í landlegum. „Ef stolið er úr skipum þá verða menn að koma sér upp þjófavarn- arkerfi,“ segir Hilmar Snorrason skólastjóri. „Það er enginn hultur nema að tryggja sig eftir mætti og þetta er ein leið til þess. Verði menn varir við grunsamlega umgengni um skip sín, er rétt að kanna rækilega hvað hafi verið gert um borð og hvort átt hafi verið við lyfjakistuna.“ Ítrekuð innbrot í lyfjakistur skipa Úrslitin í enska boltanum beint í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.