Morgunblaðið - 12.01.2004, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 37
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Stórbrotin og mögnuð kvikmynd
sem enginn Íslendingur má missa af.
HJ. MBL
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára.
KEFLAVÍK
Kl. 8.
„Fantavel leikin
eðalmynd“
ÞÞ Fréttablaðið
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
KEFLAVÍK
Kl. 10.
KEFLAVÍK
Kl. 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
Kvikmyndir.is ÓHT. Rás2
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.30 og 9.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Frá
framleiðendum
FourWeddings,
Bridget Jones
& Notting Hill
GH. Kvikmyndir.com HJ.MBL Kvikmyndir.is
AKUREYRI
kl. 10.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30 OG 8.
Sjáið eina athyglisverðustu
og mest sláandi mynd ársins.
Magnþrungin erótísk
spennumynd með
Meg Ryan eins og þið
hafið aldrei
séð hana áður.
Tónlist myndarinnar er eftir
Hilmar Örn Hilmarsson
MEG RYAN
MARK RUFFALO
JENNIFER JASON LEIGH
Nýjasta mynd leikstjóra „THE PIANO“
a film by JANE CAMPION
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
BIC Atlantis penni
Verð 90 kr/stk
PILOT SUPER GRIP
Verð 75 kt/stk
Ljósritunarpappír frá 359 kr/pakkningin og upp í 397 kr
Skilblöð númeruð,
lituð, stafróf eða eftir
mánuðum.Geisladiskar þar sem gæðin skara framúr í 10-25-50 og 100 stk einingum
NOVUS
B 425
4ra gata, gatar 25 síður.
Verð 2.925 kr
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 339 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003
Ljósritunarglærur,
100 stk í pakka.
Verð 1.594 kr/pk
Bleksprautu
50 stk í pakka 2.694 kr/pk
STABILO BOSS
Verð 78 kr/stk
HEIMIR Björgúlfsson er með af-
kastameiri tónlistarmönnum og það
þó tónlistin hafi að miklu leyti vikið
fyrir myndlistinni. Heimir býr í Hol-
landi en brá sér hingað til lands í
hefðbundið jólafrí og tók þá með sér
nýútkominn disk, eins og svo oft áð-
ur. Að þessu sinni er hann með í far-
teskinu diskinn Fur Your Bears
Only sem hann gerir með sænska
tónlistarmanninum Jonas Ohlsson,
Bjarnarplötuna eins og hann kallar
hana, en Bottrop-Boy gefur út.
Taktfastari en forðum
Þeir Heimir og Ohlsson hafa áður
gert plötu saman, en að þessu sinni
byrjaði allt með því að gera átti eitt
lag fyrir safn-
plötu. Ekkert
varð úr þeirri
safnplötu og þá
ákváðu þeir fé-
lagar að skeyta
saman öðrum
lögum sem þeir
höfðu verið að
vinna og gera
heila plötu.
Heimir segir að
tónlistin á plöt-
unni sé unnin á
mismunandi
stöðum og tímum
á árunum 2001 til
2002. „Þetta er unnið á löngum tíma
en svo settumst við yfir það undir
það síðasta til tryggja að úr yrði
heilsteypt plata.“
Í framhaldi af Fur Your Bears
Only gerðu þeir félagar svo eina
plötu til sem kemur sennilega út á
næsta ári, en Heimir segir að þeir
séu einmitt að semja um úgáfuna um
þessar mundir.
Aðspurður um muninn á þeim
þrem plötum sem þeir Ohlsson hafi
gert saman segir Heimir að tónlistin
á þeim sé rökrétt þróun. „Við erum
alltaf að leita að einhverju nýju, vilj-
um ekki sífellt velta okkur upp úr
því sama.“ Á disknum sem kemur út
núna sé tónlistin til að mynda takt-
fastari en forðum, en leysist síðan
upp í óvissu í lokin, en á væntanleg-
um disk sem þeir tóku upp á þessu
ári er stór hluti mun aðgengilegri en
það sem þeir hafa áður gert svo
dæmi séu tekin.
Tónleikaferð um Þýskaland
og Danmörku
Heimir er með fleiri járn í eld-
inum. Hann er einn af hljómsveit-
ardrengjunum kátu í Vacuum Boys,
plata tilbúin og tónleikaferð fram-
undan. „Við vorum einmitt að ljúka
við Space Breakdance Challenge,
sem endaði sem EP-plata vegna
þess að hún tók svo langan tíma í
eftirvinnslu, en framundan er tón-
leikaferð undir yfirskriftinni „Ca-
ribou Hatari, Vacuum Boys Safari
Adventure“ um
Þýskaland og
Danmörku.“
Þessu til viðbótar
er Heimir svo að
taka upp tónlist
fyrir sólóskífu og
er að auki að
vinna frumeintak
að tónleikaplötu
sem hann hyggst
koma út fljót-
lega. „Ég á eftir
að melta hana að-
eins, var að klára
að setja hana
saman og þarf að
hlusta meira. Ég á líka eftir að finna
réttan útgefanda, þetta er svolítið
frábrugðið því sem ég hef áður gert
og því vil ég finna nýjan útgefanda.“
Heimir hefur einmitt unnið með
fjölmörgum útgefendum á síðustu
árum og hann segir að hann velji út-
gefanda eftir því hvernig tónlist
hann sé að vinna að í hvert skipti.
„Þetta er annað en ef ég væri í
hljómsveit sem gæfi út plötu fyrir
jólin á tveggja ára fresti og í raun
alltaf að spila sömu tónlistina. Það
er rétt að velja útgefanda sem skilur
tónlistina og hefur áhuga á henni til
að tryggja að hann sinni henni sem
best. Ég gæti ekki hugsað mér að
vera á föstum samningi hjá ein-
hverri einni útgáfu,“ segir hann að
lokum.
Heimir, Ohlsson
og Bjarnarplatan
Heimir Björgúlfsson og Jonas
Ohlsson eru sprækir tónlistarmenn.
SPENNUTRYLLIRINN In the Cut
eftir nýsjálensku leikstýruna Jane
Campion, sem á að baki myndir á
borð við An Angel At My Table og
The Piano var frumsýndur við
sérstaka viðhöfn á fimmtudag.
Ástæða þess að meira tilstand var
í kringum frumsýningu þessarar
erlendu myndar en gengur og
gerist er sú að Hilmar Örn Hilm-
arsson samdi tónlistina við mynd-
ina en hún skartar í aðal-
hlutverkum nokkrum af helstu
stjörnum Hollywood, á borð við
Meg Ryan, Jennifer Jason Leigh
og Mark Ruffalo.
Hilmar Örn var að sjálfsögðu
viðstaddur frumsýninguna sem
var haldin fyrir fullum sal í Há-
skólabíói en til að samgleðjast
honum og óska honum til ham-
ingju með árangurinn var margt
góðra manna, og nægir þar að
nefna Ólaf Ragnar Grímsson for-
seta Íslands.
In the Cut þykir óhefðbundinn
spennutryllir í meira lagi og hef-
ur hvarvetna vakið sterk við-
brögð vegna hispurslausra efn-
istaka. Myndin er sýnd í
Háskólabíói og Sambíóunum.
Handboltakappar í Háskólabíói: Gömlu félagarnir
úr Víkingi Gunnar Gunnarsson og Guðmundur
Guðmundsson voru á frumsýningu In the Cut.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Samúel Jón Samúelsson básúnuberserkur og
Bjarni Brynjólfsson ritstjóri Séð og heyrt voru
að spá í In the Cut, Hilmar Örn og Meg Ryan.
Hilmar Örn og
Meg Ryan frumsýnd
Ólafur Ragnar Grímsson forseti mætti til að samgleðjast landa sínum Hilm-
ari Erni og njóta góðrar kvikmyndagerðar.