Morgunblaðið - 12.01.2004, Síða 40

Morgunblaðið - 12.01.2004, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI LIFANDI VÍSINDI Áskriftarsími 881 4060 ÞESSARI litlu snót, Karitas Dís, lá heldur betur á að komast í heiminn og segja má að foreldrarnir, Sig- urjón Þór Sigurjónsson og Karitas Þráinsdóttir úr Kópavogi, hafi síst vitað hvaðan á sig stóð veðrið þeg- ar þau lögðu upp í ökuferð á föstu- dagskvöld sem rennur þeim seint úr minni. „Þetta byrjaði bara hérna heima. Við vorum að horfa á Idol-ið þegar ég fæ rosalega verki og við hringj- um strax upp á spítala til að at- huga hvort okkur sé óhætt að koma. Ljósmæðurnar sögðu mér að slaka á, síðan líða einhverjar mín- útur og þá er ég komin með svo rosalega verki að við gátum ekki beðið og hringjum aftur og það má segja að við höfum verið með þær í símanum frá þeim tíma,“ segir Karitas Þráinsdóttir, nýbökuð móðir. „Rétt áður en við hlupum út segi ég við manninn minn: „Ætlarðu að taka íþróttatöskuna,“ því mynda- vélin var í henni, sem var aðal- atriðið hjá mér. Ég henti henni á milli fótanna á mér þegar ég kom út í bíl og við keyrðum af stað,“ segir hún, en taskan sem í voru barnaföt átti eftir að koma í góðar þarfir. Ökuferðinni miðaði hins vegar hægt enda voru hríðirnar hjá Karitas það miklar að Sigurjón varð nokkrum sinnum að stoppa bílinn á leiðinni. Þegar þau nálg- uðust Bústaðaveginn var ljóst að hann yrði að stöðva bílinn og hlúa aftur að konu sinni. „Þá var barnið á leiðinni út. Þannig að við lendum í því að þurfa að rífa mig úr buxunum.“ Sigurjón stöðvaði bílinn úti í veg- arkanti skammt frá Bústaðavegi og var í stöðugu símasambandi við fæðingardeildina sem hvatti þau hjónin raunar til að halda ökuferð- inni áfram. „Þetta var alveg ótrúlegt. Þegar barnið kemur út þá var enginn til að taka á móti því og það bók- staflega flaut áfram í vatninu og beint ofan í töskuna,“ segir Karitas sem segist enn vera að átta sig á atburðarásinni. Stúlkubarnið, Kar- itas Dís, sem vó 12 merkur, fékk mjúka lendingu í íþróttatöskunni og varð ekki meint af innan um barnafötin. Tveir sjúkrabílar komu skömmu seinna og farið var með þau á fæðingardeildina þar sem Sigurjón klippti á naflastrenginn. Karitas segir að læknarnir hafi sagt henni að barnið hafi að öllum líkindum verið sitjandi þegar það fæddist því engin ummerki voru á höfðinu sem bentu til annars. Daginn eftir fóru þær mæðgur heim og heilsast báðum vel, að sögn Karitasar. Fæddi barn ofan í íþróttatösku Foreldrarnir lögðu upp í öku- ferð sem rennur seint úr minni Morgunblaðið/Þorkell Fjölskyldan í Efstahjalla ásamt nýjasta fjölskyldumeðliminum. Frá vinstri: Karitas, litla Karitas Dís, Valdís Björk, Sigurjón og Brynjar Már. ÞÓR Sigfússon, framkvæmda- stjóri Verzlunarráðs Íslands, bendir á það í grein á miðopnu í blaðinu í dag að án sérstakrar um- ræðu eða almennrar athygli hafi sífellt fleiri stoðum verið rennt undir þá þróun að Ísland geti orðið að fjölmyntahagkerfi. Markaðs- hlutdeild krónunnar fari þannig minnkandi. Þór nefnir nokkrar nýlegar breytingar, eins og heimild til ís- lenzkra fyrirtækja að gera fjármál sín upp í erlendri mynt, aukna möguleika einstaklinga til lántöku vegna bílakaupa og annarra fjár- festingarvara í erlendri mynt eða með fjármögnunarleigusamning- um sem grundvallaðir eru á er- lendri mynt og tilboð bankanna í byrjun ársins um lán til húsnæðis- kaupa í erlendum gjaldmiðlum. Hluti launa í erlendri mynt? „Í framhaldi af því að einstak- lingar og fyrirtæki eru í auknum mæli að fjármagna sig með erlend- um lánum er eðlilegt að spyrja hvort ekki séu líkur á því að hluti launa verði í auknum mæli greidd- ur út í erlendri mynt og þannig verði dregið úr gengisáhættu,“ segir Þór. „Vel má hugsa sér að næsta stig í fjölmyntaþróun hér- lendis verði einmitt á þann veg að útflutnings- og útrásarfyrirtæki semji við starfsmenn sína um að hluti launagreiðslna sé í evrum eða dölum, allt eftir því hvernig út- flutningi fyrirtækisins er háttað. Tekjusveiflurnar minnka og jafn- vægi milli hagsmuna launagreið- enda og launþega eykst. Við þessar aðstæður geta launþegar sparað sér vaxtamun milli Íslands og svæða evru eða Bandaríkjadals án þess þó að taka gengisáhættu.“ Þór segir að þessar breytingar geti haft áhrif á hagstjórnina. „Stýrivextir Seðlabanka munu eðlilega hafa minna vægi en áður þar sem í raun er búið að flytja stýrivextina í auknum mæli til stærri gjaldmiðlasvæða.“ Aukin notkun erlendra gjaldmiðla á Íslandi Markaðshlutdeild krónunnar minnkar ÞRJÁR B757 þotur Icelandair eru nú í við- haldsstöðinni á Keflavíkurflugvelli, ein vegna viðgerðar og tvær eru í svokallaðri C-skoðun sem fram fer eigi sjaldnar en á 18 mánaða fresti. Fjórar vélar geta verið í skýli stöðv- arinnar í senn og segir Valdimar Sæmundsson, framkvæmdastjóri Tækniþjónustunnar í Kefla- vík, eins dótturfélags Flugleiða, að veturinn sé annatími í stöðinni, þá fari fram þessar um- fangsmiklu skoðanir meðan minna er um að vera í fluginu. Starfsmenn viðhaldsstöðv- arinnar eru 185, þar af 125 flugvirkjar. Ljósmynd/Hilmar Bragi Annatími í viðhaldsstöðinni á Keflavíkurflugvelli LANGFLESTIR virðast telja að börn hafi ekki nein áhrif á mögu- leika karla á vinnumarkaði en liðlega sex af hverjum tíu telja að barn- eignir hafi almennt neikvæð áhrif á möguleika kvenna á vinnumarkaði. Þá virðist um helmingur kvenna sem fer í atvinnuviðtal vera spurður um hagi barna sinna, s.s. aldur þeirra, heilsufar og fyrirkomulag gæslu á vinnutíma en hjá körlum er þetta hlutfall aftur á móti ekki nema 8%. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun í B.A. ritgerð Henný Hinz hagfræðings en könnunin hefur vak- ið nokkra athygli og m.a. verið greint frá henni á vef Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur. Könnunin var gerð á meðal 200 fé- lagsmanna í Félagi viðskipta- og hagfræðinga, og leggur Henný áherslu á að í ljósi þess hve úrtakið sé einsleitt og lítið megi ekki taka niðurstöðunum of bókstaflega; þær eigi þó að gefa mikilvæga vísbend- ingu um hvað þurfi til þess að fólk geti samhæft betur vinnu og einka- líf. Athygli vekur hve oft konur eru spurðar um hugsanlegar barneignir þegar þær eru í atvinnuviðtali eða ein af hverjum fimm en aðeins 3% karla. Henný segir niðurstöðurnar í heild gefa sterklega til kynna að barneignir hafi mun meiri áhrif á konur á vinnumarkaði en karla. Þetta eigi bæði við um möguleika þeirra, viðhorf vinnuveitenda og hugmyndir kvennanna sjálfra um samhæfingu vinnu og fjölskyldulífs og árekstra þar á milli. Morgunblaðið/Jim Smart Helmingur kvenna spurð- ur um hagi barnanna  Barneignir/6 DRENGUR sem vó rúmlega 25 merkur eða um sex og hálft kíló, fæddist á fæðingardeild Landspít- alans annan í jólum og er annað af tveimur börnum sem vegið hafa meira en sex kíló við fæðingu á Ís- landi sl. tíu ár. Meðalfæðing- arþyngd íslenskra barna er um 3.814 grömm og meðallengd um 52,5 sm en drengurinn var 63 sm. Fæðingarþyngd barna hefur aukist hér á landi á síðustu ára- tugum sem og annars staðar í heiminum en íslensk börn þykja engu að síður óvenju stór þegar þau líta dagsins ljós. Reynir Tóm- as Geirsson, yfirlæknir á kvenna- deild LSH segir einkum tvennt hafa áhrif á stærð barna. „Annars vegar að Íslendingar eru stærri en til dæmis fyrir hundrað árum. Síðan eru leynd eða þekkt syk- urefnaskiptavandamál orðin al- gengari og þá oft í tengslum við að konur eru of þungar.“ . Vó 25 merkur við fæðingu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.