Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 15. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
ÞAÐ fór ekki svo að Íslendingar kæmu ekki að
ferð ómannaðra geimfara til reikistjörnunnar
Mars. Dr. Ari Kristinn Jónsson, sérfræðingur á
sviði gervigreindar, sem starfað hefur hjá banda-
rísku geimvísindastofnuninni, NASA, í sjö ár,
stýrði hönnun og hugbúnaðarþróun á forriti sem
notað er þegar geimförin Spirit og Opportunity
fara í könnunarleiðangra um Mars.
Undirbúningur geimferðanna hefur verið eitt
helsta verkefni Ara síðustu þrjú árin og hefur
hann unnið með stórum hópi starfsmanna NASA
á sviði gervigreindar. Vonast Ari til að fá tæki-
færi til að fylgjast með því hjá NASA, þaðan sem
geimförunum er stjórnað á jörðu niðri, hvernig
ferðalagið á yfirborði Mars tekst og hvernig for-
ritið virkar við notkun ómönnuðu geimfaranna.
Ari segir m.a. í samtali að grunnhugmyndin á
bak við forritið sé að setja saman betri aðgerða-
áætlanir, sem skili vísindamönnum NASA von-
andi meiri og betri gögnum úr geimferðinni. /35
Reuters
Útsýnið á Mars, eins og það blasti við geimfarinu
Spirit er það losnaði frá lendingarstað í gær.
Íslendingur for-
ritaði geimförin
ROVANIEMI, höfuðstaður Lapplands í Norður-
Finnlandi, býður nú nýja þjónustu og sendir
textaboð í farsíma þegar norðurljós eru á lofti.
Hálf milljón ferðamanna kemur árlega til bæj-
arins og margir þeirra vilja sjá norðurljósin. Þau
sjást yfirleitt þegar frost er mikið og ferðamenn
hafa því þurft að norpa úti í kuldanum til að vera
öruggir um að missa ekki af þeim. Nýja tæknin
byggist á tölvutengdum ljósnema og sendir tölv-
an áskrifendum SMS-boð þegar norðurljósin
braga. Áskrift kostar 440 ísl. kr. á dag.
Áskrift að
norðurljósunum
Helsinki. AFP.
STJÓRNENDUM lyflækninga-
sviðs Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss hefur verið gert að
spara 200 milljónir á þessu ári.
Er það hluti af þeim sparnaðar-
aðgerðum sem nú standa yfir
innan LSH. Lækningaforstjóri
spítalans, Jóhannes M. Gunn-
arsson, staðfesti þetta í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Aðspurður vildi hann þó ekki
tilgreina nánar hvað hverri deild
undir lyflækningasviði væri gert
að spara mikið. Hann sagði að
önnur svið spítalans hefðu einn-
ig fengið fyrirmæli um ákveðinn
sparnað en vildi heldur ekki
upplýsa nánar um það. Hann
sagði að þetta myndi allt skýrast
innan tíðar. Lyflækningasvið
LSH er stærsta svið innan spít-
alans.
Á annað hundrað starfsmenn
spítalans sóttu fund með trún-
aðarmönnum þeirra stéttar-
félaga sem starfa á sjúkrahúsinu
í gær þar sem niðurskurði á
spítalanum og boðuðum upp-
sögnum var harðlega mótmælt.
Hvatti fundurinn ríkisstjórnina
til að endurskoða fyrri ákvörðun
um fjárveitingar til LSH með
þeim orðum að núverandi
ákvörðun myndi valda þjóðinni
óbætanlegum skaða.
Starfsmenn sögðust finna fyr-
ir miklu óöryggi, óvissu og reiði.
Enn væri óljóst hvar uppsagn-
irnar kæmu niður og óttast að
þær yrðu handahófskenndar.
Lyflækningasvið LSH
á að spara 200 milljónir
Morgunblaðið/Eggert
Uppsögnum
mótmælt
Óöruggir/10
Þungt hljóð var í fólki á starfsmannafundinum í gær.
ÁBÚANDI á bænum Bakka í
Ólafsfirði fórst er stórt snjóflóð
úr Bakkahyrnu féll á bæinn síð-
degis á þriðjudag að því er talið
er. Hinn látni fannst snemma í
gærmorgun. Vegna atburðarins
hefur forsætisráðherra skipað
rannsóknarnefnd til að rannsaka
orsakir og afleiðingar snjóflóðs-
ins.
Snjóflóðið er talið hafa fallið
milli klukkan 16 og 20 á þriðjudag
og tók íbúðarhúsið að Bakka af
grunninum. Ekkert stendur eftir
nema suðurgafl hússins. Snjóflóð-
ið rann um 100 metra niður fyrir
húsið, að fjárhúsunum.
Jón Konráðsson lögregluvarð-
stjóri sagði snjóflóðið mjög stórt
en það rann um 700–800 metra
niður fjallið áður en það stöðvað-
ist fyrir neðan íbúðarhúsið.
„Flóðið kom niður gilið og var
gríðarstórt, um 250 til 350 metra
breitt og allt að þrír metrar á
dýpt. Aðkoman var hræðileg,“
sagði Jón við Morgunblaðið.
Eftir að björgunarsveitarmenn
komu á staðinn með leitarhunda,
eftir erfiða ferð, tókst fljótlega að
finna bóndann, Kára Ástvalds-
son, og var hann úrskurðaður lát-
inn. Ekki mun hafa orðið mann-
skaði í snjóflóðum í Ólafsfirði
síðan um miðja 19. öld.
Alls tóku 117 björgunarsveita-
menn með fjóra leitarhunda þátt í
aðgerðum við Bakka.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra hefur skipað sérstaka nefnd
til að rannsaka orsakir og afleið-
ingar snjóflóðsins. Nefndin er
skipuð í samræmi við lög um varn-
ir gegn snjóflóðum og skriðuföll-
um og er formaður hennar Björn
Friðfinnsson.
Morgunblaðið/Kristján
Rúnar Kristinsson og Ragnar Björnsson, vélsleðamenn úr Ólafsfirði, skoða verksummerki á Bakka eftir snjóflóðið. Suðurgafl hússins stendur á
grunni sínum en gríðastórt flóðið hreif aðra útveggi og þak íbúðarhússins með sér tugi metra áður en það stöðvaðist við fjárhúsin.
Fannst látinn eftir snjóflóð
Aðkoman hræðileg/34
CAROL Moseley Braun, eina
konan í hópi demókrata í
Bandaríkjunum sem keppa um
að verða forsetaefni, dró sig í
hlé í gær og lýsti yfir stuðningi
við Howard Dean, fyrrverandi
ríkisstjóra Vermont.
Forkosningar verða í Iowa á
mánudag og hafa keppinautar
Deans nú sótt í sig veðrið. John
Kerry öldungadeildarþingmað-
ur er með 22% stuðning í könn-
un Zogby’s sem birt var í gær og er kominn upp
fyrir Dean sem hlaut 21%. Fulltrúadeild-
arþingmaðurinn Dick Gephardt fékk einnig
21%.
Kosið verður í New Hampshire 28. janúar og
hefur Wesley Clark bætt mjög stöðuna. Hann
fær nú 20% en Dean hefur hrapað niður í 29%.
Styður Dean
Des Moines, Washington. AFP.
Carol
Moseley Braun
Í leit að
lífi – ekki list
Morten Harket úr a-ha á röltinu í
Reykjavík | Fólk í fréttum 64
Safnarar
með sýniþörf
Ellefu áráttusafnarar á sýningu
í Gerðubergi | Daglegt líf 26
Fólkið í dag
MH-ingar setja upp Lísu í Undralandi
Kúltúr og kassagítar Umdeildur
hvítur karlmaður Hvað gerist eftir
miðnætti? Heimsborgari í London