Morgunblaðið - 16.01.2004, Side 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MIKILL NIÐURSKURÐUR
Stjórnendum lyflækningasviðs
Landspítala – háskólasjúkrahúss,
sem er stærsta svið innan spítalans,
hefur verið gert að spara 200 millj-
ónir króna á árinu, en þetta er hluti
af þeim sparnaðaraðgerðum sem nú
standa yfir innan LSH. Niðurskurði
á spítalanum og boðuðum uppsögn-
um var harðlega mótmælt á fjöl-
mennum fundi í gær.
Fórst í snjóflóði
Ábúandi á bænum Bakka í Ólafs-
firði fórst er stórt snjóflóð úr Bakka-
hyrnu féll á bæinn síðdegis á þriðju-
dag að því er talið er. Hinn látni
fannst snemma í gærmorgun. Vegna
atburðarins hefur forsætisráðherra
skipað rannsóknarnefnd til að rann-
saka orsakir og afleiðingar snjó-
flóðsins.
Aukin spenna í Iowa
Nýjar skoðanakannanir í Iowa og
New Hampshire í Bandaríkjunum
benda til þess að Howard Dean,
fyrrverandi ríkisstjóri Vermont, sé
að missa flugið. Forkosningar demó-
krata í Iowa verða á mánudag en þar
er nú öldungadeildarþingmaðurinn
John Kerry kominn upp fyrir Dean
og í New Hampshire saxar Wesley
Clark, fyrrverandi hershöfðingi, á
fylgi Deans sem er þó enn efstur
þar.
Vitnaleiðslum lokið
Vitnaleiðslum yfir Mijailo Mijail-
ovic, sem hefur viðurkennt að hafa
orðið Önnu Lindh, utanríkisráð-
herra Svíþjóðar, að bana í fyrra,
lauk í Stokkhólmi í gær. Vinkona
Lindh, Eva Franchell, sem var með
henni í búðarferðinni örlagaríku í
september, sagðist hafa orðið mjög
hrædd þegar Mijailovic ruddist fram
hjá henni til að ná til Lindh sem
hann stakk með hnífi. Lindh lést
daginn eftir af sárum sínum.
Kaup innherja gagnrýnd
Á vefritum greiningardeildar KB-
banka og Íslandsbanka í gær voru
gagnrýnd kaup stjórnarmanna og
annarra innherja í Eimskipafélaginu
á hlutabréfum í félaginu.
Y f i r l i t
Kynningar – Blaðinu í dag fylgir
Dagskrá vikunnar. Blaðinu er dreift á
landsbyggðinni.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 38
Viðskipti 12/13 Minningar 38/48
Erlent 16/18 Bréf 52
Höfuðborgin 20 Dagbók 54/55
Akureyri 22 Kirkjustarf 55
Suðurnes 23/24 Íþróttir 56/59
Landið 25 Leikhús 60
Daglegt líf 26/27 Fólk 61/65
Listir 28/29 Bíó 62/65
Umræðan 31/33 Ljósvakamiðlar 66
Forystugrein 34 Veður 67
* * *
Upphafs-
punkturinn
er tómið
TÍMARIT
MORGUNBLAÐSINS
FYLGIR MORGUNBLAÐINU
Á SUNNUDAG
47 ÁRA karlmaður, Kári Ástvalds-
son, fórst er snjóflóð féll á heimili
hans að Bakka í Ólafsfirði síðdegis á
þriðjudag að því er talið er. Kári var
fæddur 11. júlí árið 1956 og lætur
eftir sig unnustu og tvö stjúpbörn.
Fórst í
snjóflóði
ANDRI Teitsson, framkvæmda-
stjóri Kaupfélags Eyfirðinga á Ak-
ureyri, tók í gær alla innstæðu fyr-
irtækisins út af tékkareikningi
númer 5 í Landsbankanum á Akur-
eyri og tilkynnti forráðamönnum úti-
búsins að KEA væri hætt viðskipt-
um við bankann.
„Við gerum þetta vegna óánægju
með vinnubrögð Landsbankans [við
sölu Útgerðarfélags Akureyringa];
að okkur skyldi ekki gefið tækifæri
til að fylgja erindi okkar eftir,“ sagði
Andri í samtali við Morgunblaðið.
„Bankinn óskaði eftir því að þeir sem
hefðu áhuga á viðræðum [um kaup á
fyrirtækinu] sendu inn hugmyndir,
við gerðum það en fengum svo ekk-
ert svar fyrr en málið var búið.“
KEA hefur að sögn Andra verið í
viðskiptum við Landsbanka Íslands
frá upphafi. Bæði fyrirtækin voru
stofnuð 1886.
Alls voru á þriðja hundrað millj-
ónir króna varðveittar á tékkareikn-
ingi númer 5 í Landsbankanum þar
til í gær en þá upphæð færði Andri á
reikning í Sparisjóði Norðlendinga
um leið og hann færði viðskipti KEA
þangað.
KEA hættir viðskiptum
við Landsbankann
Akureyri. Morgunblaðið.
FLAGGSKIP færeyska flotans, nýja
farþegaferjan Norræna, sem kostaði
útgerðina rúmlega 700 milljónir fær-
eyskra króna, lenti í gær í dýru
óhappi. Ferjan var að koma til Þórs-
hafnar frá Seyðisfirði og var á leið að
bryggju þegar mikill vindstrengur
olli því að skipið rakst á röð skerja
við hafnargarð og göt komu á byrð-
inginn bakborðsmegin.
Rættust hér spár þeirra sem
sögðu á sínum tíma að nýi hafnar-
garðurinn í Þórshöfn, sem var gerð-
ur handa Norrænu, væri ekki á
heppilegum stað inni í sjálfri höfn-
inni. Menn með sérþekkingu á hlut-
unum gerðu ráð fyrir að þetta mikla
skip myndi einhvern tíma í slæmu
veðri lenda í því að erfitt yrði að
stýra því að hafnarbakkanum vegna
þess að plássið væri of lítið. Norræna
er um 163 metrar að lengd.
Erfitt að finna skipasmíðastöð
Skipið var ekki komið alla leið inn í
höfnina þegar öflugur vindsveipur
bar það að skerjunum. Gatið á skip-
inu eftir áreksturinn er um tveggja
metra langt. Það rakst síðan á annan
hafnargarð þegar gerð var ný tilraun
til að sigla í höfn og aftur kom gat
sömu megin, enn stærra eða um 10
metra langt en ekki er þó alveg ljóst
hvernig atburðarásin var.
Kári Duurhus, talsmaður Smyril
Line, sem gerir út Norrænu, segir að
vindhraðinn hafi farið í um 22 metra
á sekúndu þegar óhappið varð. Ann-
að gatið er við vélarrúm Norrænu og
er við sjólínu, talsverður sjór
streymdi þar inn í skipið.
Skömmu eftir óhappið tókst að
lyfta skipssíðunni svo hátt upp að
gatið er nú ofansjávar. Slökkviliðs-
menn úr Þórshöfn aðstoðuðu við að
dæla mestöllum sjónum úr ferjunni,
einnig voru dælur skipsins notaðar.
En það er nú nær vélarvana.
Norræna siglir á milli Danmerk-
ur, Noregs, Íslands, Hjaltlands og
Færeyja. Um borð voru um 80
manns, farþegunum 25 og 33 skip-
verjum var þegar bjargað um borð í
lítið, færeyskt áætlunarskip og þeir
fluttir í land. Fram kemur í frétta-
tilkynningu Smyril Line að fólkið
hafi aldrei verið í neinni lífshættu og
það hafi fengið gistingu á Hótel
Føroyar. Þar var fólkinu boðin að-
stoð sálfræðings.
Talsmaður útgerðarinnar sagðist
ekki geta tjáð sig enn þá um það hve
mikið tjónið væri í peningum. „En
þetta er að sjálfsögðu mjög slæmt.
Við erum nýbyrjaðir á vetraráætl-
uninni,“ sagði Duurhus. Haldinn var
fundur í gærkvöldi til að ákveða hvar
gert yrði við skipið. Það er svo stórt
að erfitt getur orðið að finna skipa-
smíðastöð sem getur tekið að sér
verkið.
Ljósmynd/Dimmalætting/Kalmar
Tvö göt, tveggja og tíu metra löng, komu á skipið við áreksturinn.
Norræna sigldi á
sker við Þórshöfn
Þórshöfn. Morgunblaðið.
TÍU Íslendingar voru meðal far-
þega Norrænu þegar skipinu
hlekktist á í innsiglingunni í Þórs-
höfn.
Herdís Hjörleifsdóttir, sem er
frá Egilsstöðum, var ein þeirra.
Hún segir að ekkert ami að farþeg-
um eða áhöfn ferjunnar. „Það sem
var verra var ferðin í nótt. Það var
ofboðslega mikill veltingur og læti.
Það var allt á tjá og tundri um
borð.
Þegar við komum inn í innsigl-
inguna var það mikill hliðarvindur
að skipið tók að reka og rakst að-
eins stjórnborðsmegin utan í hafn-
argarðinn. Þegar verið var að snúa
ferjunni við skall hún í tvígang
bakborðsmegin utan í og það eru
tvö göt á skipinu.“
„Allt á tjá
og tundri“