Morgunblaðið - 16.01.2004, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 16.01.2004, Qupperneq 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 9 Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–16.00. Engjateigi 5, sími 581 2141. Ullarkápur og úlpur á stórútsölu Bankastræti 14, sími 552 1555 Útsala 30-70% afsl. Nýjar peysur 10% afsl. MUNIÐ ÆGISKLÚBBFÉLAGAR, munið þorrablótið á Gullöldinni 31. janúar. Miðaverð aðeins kr. 2.900. Tryggið ykkur miða fyrir 22. janúar á netfanginu gullold@islandia.is eða í síma 822 5299 og 822 2158. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Nánari upplýsingar á http://www.seglagerdin.is Verið velkomin Glæsibæ – Sími 562 5110 Útsala í fullum gangi Allt að 80% afsláttur VANDAMÁLIÐ við reglur sem eiga að koma í veg fyrir ólöglegt samráð og einokun er að þær koma oft í veg fyrir aukna samkeppni og hefta framgang viðskiptalífsins. Þetta kom m.a. fram í framsöguerindi Sig- þrúðar Ármann sem starfar hjá Verslunarráði Íslands, á hádegis- verðarfundi Heimdallar í gær sem var undir yfirskriftinni: Frjáls mark- aður – án undantekninga – hvers vegna engin ástæða er til að setja lög um hringamyndun eða eignarhald á fjölmiðlum. Auk Sigþrúðar var Hall- dór Karl Högnason, stjórnarmaður í Sambandi ungra sjálfstæðismanna, með framsöguerindi. „Besta leiðin til að koma í veg fyrir að fyrirtæki misnoti markaðsráðandi stöðu er að tryggja aðgengi nýrra aðila inn á markaðinn,“ sagði Sig- þrúður og bætti við að lykilatriði væri að markaðurinn hér á landi væri opinn. „Til að geta staðið undir auknum kröfum um bætt lífskjör verðum við að bæta samkeppnis- stöðu íslensk atvinnulífs.“ Sigþrúður sagði að aldrei fyrr hefðu fleiri fyrirtæki haft fjármagn til efnahagslegra framkvæmda hér á landi. „Það getur verið vafasamt fyr- ir fámenna þjóð að taka löggjöf stórra þjóða til fyrirmyndar. Við þurfum að huga að sérstöðu okkar.“ Sigþrúður benti á að eftirlitsstarf- semi hins opinbera væri þegar til staðar, t.d. í samkeppnislögum. „Það er undirstöðu atriði í samkeppnislög- gjöf að hún á fyrst og fremst að leita eftir að skapa forsendur fyrir sam- keppni á markaði. Löggjöfin á hvorki að velja einhverja til að vegna betur eða refsa þeim sem ná ár- angri.“ Sagði hún að löggjöfin mætti ekki hamla samruna sem leiddi til aukinnar hagkvæmni og lækkunar á kostnaði í atvinnulífinu sem oft skil- aði sér til viðskiptavinanna. „Allt eft- irlit miðar að því að vernda einhverja hagsmuni, yfirleitt hagsmuni neyt- enda. Neytendurnir sjálfir eru án efa kröfuhörðustu eftirlitsaðilarnir.“ Val einstaklinga sér til þess að breytingar verði „Hvað eiga Kveldúlfur, Hagkaup, Samband íslenskra samvinnufélaga og hinn svokallaði kolkrabbi sameig- inlegt?“ spurði Halldór Karl Högna- son, stjórnarmaður í SUS, í upphafi erindis síns um eignarhald á fjöl- miðlum. „Jú, allt voru þetta fyrir- tæki sem á einhverjum tímapunkti náðu gríðarlegri markaðshlutdeild á sínu sviði. Öll voru þau á einhverjum tíma talin ósigrandi [...] Með öðrum orðum þá hafa á Íslandi risið upp við- skiptablokkir sem virðast óhaggan- legar, öllu ráða og allt eiga. Undan- tekningalaust hafa þær hins vegar þurft að víkja fyrir nýjum aðilum fyrr eða síðar. Þar þurfti hvorki að koma til lagasetningar af hálfu rík- isins um eignarhald eða vopnaðar byltingar. Val einstaklinga á frjáls- um markaði sá til þess að breytingar urðu.“ Sagði Halldór að margir teldu Fréttablaðið og DV, sem eru í eigu sama aðila, minna á gömlu flokks- blöðin. Hann benti á að það hefði verið mikið áhyggjuefni ef blöðin tvö hefðu orðið gjaldþrota eins og allt stefndi í á sínum tíma. „Það er út af fyrir sig ánægjulegt að einkaaðilar séu yfir höfuð reiðubúnir í rekstur ljósvakamiðla í samkeppni við hið opinbera,“ sagði hann um söluna á Norðurljósum. Ekki hægt að einoka upplýs- ingar í frjálsu samfélagi Halldór benti auk þess á að ekki væri hægt að einoka upplýsingar í frjálsu samfélagi. „Fréttaflutningur er eins og hver önnur þjónusta. Ef fréttir eru sagðar með hlutdrægum hætti eða reynast einfaldlega rangar er þjónustan slök. Fréttamiðill sem ekki veitir góða og heiðarlega frétta- þjónustu uppfyllir ekki kröfur fólks og með því myndast eftirspurn eftir vandaðri miðli.“ Sagði Halldór að þótt staðan á fjölmiðlamarkaði væri um margt óvenjuleg væri nú sem endranær hægt að treysta á frjálst val einstak- linganna í landinu. Rætt um hringamyndun og eignarhald á fjölmiðlum Morgunblaðið/Þorkell Fundargestir hlýða á framsöguerindi á fundi Heimdallar í Iðnó. Neytendur kröfuhörð- ustu eftirlitsaðilarnir SJÖFN Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, segir að ágreiningur sé milli Starfsmannafélagsins og Reykjavík- urborgar um túlkun á kjarasamn- ingi félagsins. Félagið vilji að ákvæði samningsins um hæfnislaun komi þegar í stað til framkvæmda en borgin sé ekki tilbúin til þess. Sjöfn segir að gríðarleg óánægja sé innan félagsins með þær tafir sem orðið hafi á framkvæmd kjarasamn- ingsins og menn séu að missa þol- inmæðina. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd- viti Sjálfstæðisflokksins spurði Þór- ólf Árnason, borgarstjóra, um stöðu þessara mála á fundi borgarstjórnar í gær. Borgarstjóri sagði alvarlega stöðu komna upp í þessu máli og dráttur hafi orðið á lausn þess þar sem það sé mun yfirgripsmeira en fyrirséð var í byrjun. „Ég tel að málið sé í þeim eðlilega farvegi sem það á að vera í en tek undir að þetta er hugsanlega farið að skaða mjög Reykjavíkurborg og starfsanda hjá okkar starfsmönnum. Og það er mjög miður,“ sagði Þórólfur og þá sé markmið kjarasamningsins farið að snúast upp í andhverfu sína. Endurmeta stöðuna Ákvæði kjarasamnings Starfs- mannafélagsins og Reykjavíkur- borgar, sem gerður var í ársbyrjun 2001, um starfsmat, átti að koma til framkvæmda 1. desember 2002. Vinna við starfsmatið reyndist hins vegar umfangsmeiri og tímafrekari en upphaflega var áætlað. Þegar ljóst varð að ekki reyndist mögulegt að ljúka starfsmatinu fyrir þann tíma sem samningurinn gerir ráð fyrir, varð um það samkomulag, sem undirritað var í lok nóv. 2003, að fresta launatengingu starfsmats- ins og setja endurnýjaðan kraft í vinnu við matið til að ljúka því fyrir haustmánuði 2003. Að þessu sam- komulagi við Reykjavíkurborg stóðu, auk Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Efling stéttar- félag og Kjarafélag tæknifræðinga, en öll eru þessi félög með sambæri- legan kjarasamning við borgina. Sjöfn segir að formenn framan- greindra stéttarfélaga hafi gengið á fund borgarstjóra fyrir jól með er- indi þar sem settar eru fram hug- myndir eða tillögur um hvernig megi bæta félagsmönnum þær tafir sem orðnar eru á framkvæmd kjara- samningsins. Hún segir að félagið líti svo á að ákvæði kjarasamningsins um svo- kölluð hæfnislaun, sem m.a. byggj- ast á starfsaldri og þátttöku starfs- manns í símenntun, skuli þegar koma til framkvæmda þó starfsmati sé ekki lokið. Við gerð kjarasamn- ingsins hafi ekki verið rætt um, að ákvæði um starfsmat og hæfnislaun séu algjörlega samtengd. Gildistökuákvæði samningsins gera ráð fyrir að allir þessir þættir tækju gildi samtímis og vissulega hefði verið betra ef hægt hafi verið að halda sig við það. Menn verði að endurmeta stöðuna og hefja greiðslu hæfnislauna þegar í stað. Starfsmannafélag Reykjavíkur og borgaryfirvöld Óánægja með fram- kvæmd kjarasamnings PÓST- og fjarskiptastofnun hefur ákveðið að frá og með 1. október nk. verði notendum heimilt að skipta um þjónustuveitanda í far- símaþjónustu án þess að þurfa að skipta um númer eins og verið hefur fram að þessu. „Sú takmörkun að þurfa að fá nýtt númer þegar skipt er um þjónustuveitanda er samkeppnis- hindrun auk þess sem breytingum á númeri fylgir oft kostnaður, sér- staklega hjá fyrirtækjum. Í þeim löndum þar sem opnað hefur verið fyrir þennan möguleika hefur samkeppni aukist í kjölfarið og má búast við svipuðum viðbrögðum hér á landi,“ segir m.a. í frétta- tilkynningu frá Póst- og fjar- skiptastofnun. Frá september 2000 hafa sím- notendur í fastanetsþjónustu get- að flutt númer sín á milli þegar skipt er um þjónustuveitanda og ef notendur hafa flutt aðsetur sitt á milli svæða eða landshluta. Flytja má farsíma- númer eftir 1. október
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.