Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.01.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ FUNDUR starfsmanna og trúnað- armanna þeirra stéttarfélaga sem starfa á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi samþykkti síðdegis í gær ályktun þar sem niðurskurði á þjón- ustu og uppsögnum innan heilbrigð- isþjónustunnar er harðlega mót- mælt. Er í ályktuninni varað við afleiðingum þessara aðgerða til lengri og skemmri tíma. „Fyrirhug- aðar fjöldauppsagnir á stærsta sjúkrahúsi landsins munu óhjá- kvæmilega bitna illilega á sjúkling- um auk þess sem þetta mun hafa þær afleiðingar í för með sér að þjón- usta sem veitt hefur verið á vegum sjúkrahússins verður flutt út fyrir veggi þess,“ segir í ályktuninni. Beindi fundurinn þeim eindregnu til- mælum til ríkisstjórnarinnar að taka þegar í stað til endurskoðunar fyrri ákvörðun um fjárveitingar til LSH. „Núverandi ákvörðun mun valda þjóðinni óbætanlegum skaða.“ Á annað hundrað manns; starfs- menn LSH og trúnaðarmenn þeirra sóttu fundinn, sem haldinn var í mötuneyti sjúkrahússins við Hring- braut. Á fundinum voru einnig for- ystumenn stéttarfélaganna Alþýðu- sambands Íslands, Bandalags háskólamanna, Bandalags starfs- manna ríkis og bæja og Læknafélags Íslands. Einar Oddsson, formaður starfsmannaráðs LSH, sagði í sam- tali við Morgunblaðið eftir fundinn að starfsmenn sjúkrahússins fyndu fyrir miklu óöryggi vegna boðaðra fjöldauppsagna. Aðrir þeir fundar- menn sem Morgunblaðið ræddi við voru sama sinnis; þeir sögðu starfs- menn bæði óörugga og reiða. Enn væri óljóst hvar uppsagnirnar myndi bera niður og þá hefðu margir á til- finningunni að uppsagnirnar yrðu handahófskenndar og ekki í sam- ræmi við neina framtíðarstefnumót- un. Í ályktun fundarins segir að boð- aðar fjöldauppsagnir undirstriki enn og aftur mikilvægi þess að hafist verði handa um heildarskoðun á heil- brigðiskerfinu, sem m.a. miði að því að endurskoða og skýra verkaskipt- ingu milli heilsugæslunnar, sjúkra- húsanna og sérfræðilækna. „Land- spítali háskólasjúkrahús er stærsta og tæknivæddasta sjúkrahús lands- ins. Með stórfelldum kröfum um nið- urskurð gerir ríkisstjórnin því aðför að hátækni heilbrigðisþjónustu landsmanna. Það ber vott um skammsýni. Uppbygging þróaðs há- tæknisjúkrahúss byggist á margra ára starfi færustu sérfræðinga og annars starfsfólks. Uppbyggingar- starfið er erfitt en eyðileggingin auð- veld.“ Stefna verði mörkuð Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, sagðist harma yfir- vofandi uppsagnir og ítrekaði þá skoðun ASÍ að í stað uppsagna þyrfti að endurskoða verkaskiptinguna milli heilsugæslunnar, sjúkrahús- anna og sérgreinalækna. „Handa- hófskenndar aðgerðir eins og þær að segja upp 200 starfsmönnum á þessu sjúkrahúsi breyta litlu í þeim vanda sem við búum við.“ Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM, sagði að fresta ætti uppsögn- unum í bili, því menn ættu að komast að einhverri niðurstöðu varðandi framtíðina „áður en þeir færu ómarkvisst að segja upp fólki“. Hún tók fram að uppsagnirnar miðuðust við um 200 ársverk en það þýddi að fleiri yrði sagt upp; jafnvel hátt í 300 manns. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sagði að félagið myndi ekki horfa aðgerðalaust á þá aðför sem nú væri gerð að sjúkrahúsinu. „Við er- um reiðubúin að taka þátt í öllu starfi sem snýr að skynsamlegri ráðstöfun fjármuna.Við viljum svo sannarlega að ráðdeild sé sýnd en stjórnendur þurfa jafnframt að sýna sanngirni og framkvæma af yfirvegun.“ Skoraði hann á ríkisstjórnina að sýna þann „manndóm að endurskoða ákvarðan- ir sínar nú þegar fram kæmi hve al- varlegar afleiðingar þær hefðu í för með sér“. Að lokum sagði Jón Snædal, vara- formaður Læknafélags Íslands, að stjórnendur sjúkrahússins og stjórn- völd hlytu að þurfa að tala saman. „Það er ekki boðlegt annað en að þessir aðilar ræði saman, marki stefnu og spyrji okkur – þannig að eitthvert vit verði í þeirri stefnu.“ Á annað hundrað starfsmenn LSH komu saman á fundi í gær vegna fjöldauppsagna Óöruggir og reiðir Morgunblaðið/Eggert Fjölmenni var á fundi starfsmanna og trúnaðarmanna þeirra stéttarfélaga sem starfa á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi í gær þar sem samþykkt var ályktun þar sem niðurskurði á þjónustu og uppsögnum innan heilbrigð- isþjónustunnar er harðlega mótmælt og varað við afleiðingum þessara aðgerða til lengri og skemmri tíma. EYDÍS Sveinbjarnardóttir, sviðs- stjóri hjúkrunargeðsviðs Landspít- ala – háskólasjúkrahúss, LSH, segir að komi til lokunar á Arnarholti, heimili fyrir geðsjúka, verði reynt að koma vistmönnunum fyrir á stöðum sem henti þeim best. „Við munum skoða hvern einstakling með tilliti til hans þarfa,“ útskýrir hún en um 40 vistmenn eru á Arnarholti. Björn Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík, segir að með lokun Arn- arholts sé verið að vísa vandanum annað. „Ef heilbrigðiskerfið er að spara með því að draga saman seglin á einu sviði hlýtur það að lenda á öðrum að leysa vandann,“ segir hann. „Fólk verður ekki heilbrigt þótt stofnanir séu lagðar niður.“ Eydís bendir á, í samtali við Morgunblaðið, að Arnarholt hafi upphaflega verið hugsað sem end- urhæfingardeild fyrir geðsjúka en þrátt fyrir það hafi margir vistmenn búið þar í fjöldamörg ár. „Spítali á ekki að vera heimili fólks til margra ára,“ segir hún og telur tímabært að hugað verði að viðeigandi búsetuúr- ræði fyrir geðsjúka. Það eigi þó að gera í samráði við sjúkrahúsið. Björn Sigurbjörnsson segir að svæðisskrifstofan sé vissulega tilbú- in til að gera allt sem í hennar valdi standi til að koma til móts við þá ein- staklinga sem þurfi á búsetu að halda. Hann segir að það þurfi þó að gera í samstarfi heilbrigðisráðu- neytisins og félagsmálaráðu- neytisins, þar sem svæðisskrifstofur fatlaðra heyri beint undir félags- málaráðherra. „Við erum tilbúin til að fara í samstarf og skoða hvernig hægt er að hjálpa þessum ein- staklingum. En til þess þurfum við fjármagn.“ Hann bendir á að enn séu langir biðlistar hjá svæð- isskrifstofunni í Reykjavík eftir bú- setu. Hugsanleg lokun Arnarholts Vandanum vísað annað SVEINN Magnússon, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar, segir að félagið viti til þess að aðstandendur og vistmenn á Arnarholti, sem er heimili fyrir geðsjúka, séu orðnir mjög óöryggir vegna hugmynda stjórnenda Landspítala – háskóla- sjúkrahúss um að loka heimilinu. „Við erum í sjálfu sér ekki á móti breytingum í hagræðingarskyni en við höfum áhyggjur af því hvað verð- ur um þá einstaklinga sem eru á Arnarholti,“ útskýrir hann. Sveinn bendir á að haft hafi verið eftir Eydísi Sveinbjarnardóttur, sviðsstjóra hjúkrunargeðssviðs LSH, í Morgunblaðinu á miðvikudag að óvíst væri hvort segja þyrfti upp starfsfólki í Arnarholti verði af lokun heimilisins. „En ég spyr á móti verð- ur geðsjúkum sagt upp?“ segir hann og ítrekar að það verði að taka tillit til þeirra einstaklinga sem búa á Arnarholti. Hann leggur þó áherslu á að ekki sé ekki búið að taka end- anlega ákvörðun um að loka heim- ilinu. Í því sambandi vísar hann til yfirlýsinga Jóns Kristjánssonar heil- brigðisráðherra. „Ráðherra hefur sagt að Arnarholti verði ekki lokað.“ Sveinn vekur að lokum athygli á þeim orðum Eydísar í Morg- unblaðinu á miðvikudag að starfs- mannavelta á geðsviðinu sé hröð. Hann segir að sú staðreynd sé áhyggjuefni út af fyrir sig. „Af- hverju er starfsmannaveltan svona mikil? Er það vegna þess að vinnu- aðstaðan er bágborin? Ef svo er kann það ekki góðri lukku að stýra fyrir skjólstæðinga geðsviðsins.“ Sveinn Magnússon hjá Geðhjálp Verður geð- sjúkum sagt upp? IÐNFYRIRTÆKI innan Samtaka iðnaðarins áætla að á næstu þrem- ur árum sé þörf fyrir 2.252 nýja starfsmenn með iðn- eða starfs- menntun og 1.292 nýja starfsmenn með háskólamenntun, þar af 771 með raungreina-, tækni- eða verk- fræðimenntun. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem IMG Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins á þörf fyrir atvinnutengda menntun í iðnfyrirtækjum innan samtakanna. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á Menntadegi iðnaðarins í gær. Samkvæmt könnuninni er mest þörf fyrir nýja starfsmenn með menntun í málmiðnaði eða um 1.049 næstu þrjú árin. Þörf er á 598 nýj- um starfsmönnum með menntun í byggingariðnaði, 299 með menntun í rafiðnaði og 117 nýja starfsmenn með menntun í matvælaiðnaði. „Þörf fyrirtækjanna okkar fyrir aukna iðnmenntun og raungreina- menntun á háskólastigi er viðvar- andi,“ segir Ingi Bogi Bogason hjá Samtökum iðnaðarins. Nauðsynlegt að fjölga ungu fólki í verk- og tæknigreinum „Samtökin hafa undanfarin miss- eri bent á nauðsyn þess að fjölga ungu fólk í verk- og tæknigreinum. Iðnaðurinn hefur verið í viðvarandi þörf fyrir iðnmenntaða, verkfræð- inga og tæknifræðinga. Þessi könn- un staðfestir að hér er um alvöru- mál að ræða.“ Ingi Bogi segir að þörfin fyrir starfsfólk í geiranum sé töluvert umfram þann fjölda sem verið er að útskrifa núna úr þessum greinum. „Það þarf átak og ásetn- ing til að fjölga í þessum greinum. Við höfum verið að beita okkur í þessu máli. Við höfum t.d. beitt okkur fyrir því að fyrirkomulag vinnustaðakennslu verði gert nú- tímalegra og að það sé litið á fyr- irtæki sem kennslufyrirtæki. Það er lagt á herðar fyrirtækjanna að sinna vinnustaðakennslunni en það eru hvorki gerðar skýrar kröfur af hálfu stjórnvalda til þeirra né fá þau greitt fyrir að sinna þessu hlut- verki. Þessu viljum við breyta.“ 44,8% þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í könnuninni eru nú með nema í starfsþjálfun og 25,4% hafa auk þess verið með nema á sl. fimm ár- um. Tæplega 45% forsvarsmanna fyr- irtækjanna telja mikla þörf á end- ur- og símenntun en tæplega 20% telja hana litla. Könnunin var framkvæmd dag- ana 5. desember -12. janúar og tóku 400 fyrirtæki úr félagaskrá Sam- taka iðnaðarins þátt í henni. Valin voru 200 fyrirtæki af 300 stærstu fyrirtækjunum innan samtakanna og 200 af öðrum fyrirtækjum, þó ekki einyrkjar. Svarhlutfall var 71,3%. Vantar 2.252 iðnmenntaða starfsmenn næstu þrjú árin                                                !"#  $ % &'(()  *  *  *  * Morgunblaðið/Eggert Niðurstöður könnunar á menntunarþörf fyrirtækja innan Samtaka iðn- aðarins voru kynntar á Menntunardegi iðnaðarins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.