Morgunblaðið - 16.01.2004, Side 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VERÐ hlutabréfa í Eimskipafélagi
Íslands hækkaði um 7,2% í rúmlega
976 milljóna króna viðskiptum í
Kauphöll Íslands í gær. Á miðviku-
dag námu viðskipti með félagið 1.115
milljónum. Bréf félagsins hafa hækk-
að um tæp 15% frá áramótum.
Í gær var tilkynnt til Kauphallar-
innar að Samson Global Holdings,
eigendur þess eru félög í eigu Björg-
ólfs Guðmundssonar, Björgólfs
Thors Björgólfssonar og Magnúsar
Þorsteinssonar, hefðu keypt tæplega
101 milljón hluti í Eimskipafélaginu á
miðvikudag. Eftir kaupin á Samson
Global Holdings 10,39% í Eimskipa-
félaginu. Ef miðað er við lokaverð fé-
lagsins í Kauphöllinni á miðvikudag
þá var kaupverðið 767,7 milljónir.
Þórður Magnússon, stjórnarmað-
ur í Eimskipafélaginu og eigandi
Eyris fjárfestingarfélags, keypti 50
milljón hluti í Eimskipafélaginu í gær
á genginu 7,74 og er kaupverðið því
387 milljónir króna. Þórður á nú um
3% hlut í félaginu.
Baldur Guðnason, stjórnarmaður í
Eimskipafélaginu og eigandi Eignar-
haldsfélagsins Stíls, keypti 8 milljón
hluti í Eimskipafélaginu í gær. Bréf-
in voru keypt á genginu 8,15 og er
kaupverðið því 65,2 milljónir króna.
Aftur á móti seldu Haraldur Stur-
laugsson 15 milljón hluti á miðviku-
dag og Sturlaugur Sturlaugsson tæp-
lega 11 milljón hluti á genginu 7,6.
Kaup á skipafélagi gera
viðskipti tortryggileg
Greining Íslandsbanka gagnrýndi
í Morgunkorni sínu í gær kaup
stjórnarmanna og annarra innherja í
Eimskipafélaginu að undanförnu.
Greiningardeild KB-banka tekur í
svipaðan streng í Hálffimmfréttum í
gær. „Í kjölfar sölu Eimskipafélags-
ins á HB og ÚA á yfirverði hafa inn-
herjar keypt töluvert magn í dag.
Þetta verður að teljast sérstaklega
bagalegt í ljósi þess að fremur litlar
upplýsingar hafa verið gefnar um
söluna, t.d. vita markaðsaðilar ekki
hversu mikið af skuldum félagsins
fylgja hinum seldu hlutum. Raunar
verður að teljast undarlegt að félagið
skuli ekki vera á athugunarlista
Kauphallarinnar, þar sem ómögulegt
er að átta sig á hvernig félag Eim-
skipafélagið verður í framtíðinni og
hvort yfir höfuð það verður til, eftir
umfjöllun undanfarinna daga.“
Í lok dagsins barst tilkynning til
Kauphallarinnar um að Eimkip hafi
keypt fyrirtæki í Noregi.
Í leiðbeinandi tilmælum FME 2/
2001 segir „Velji útgefandi að af-
marka „lokuð tímabil“ þar sem öll
viðskipti starfsmanna eða innherja
eru óheimil skal það koma fram í
reglunum. Útgefanda er í sjálfsvald
sett hvort hann velur þá leið að af-
marka „lokuð tímabil“. Greiningar-
deild er ekki kunnugt um að Eim-
skipafélagið sé með slík tímabil,
þannig að það er ekkert við dagssetn-
ingu viðskiptanna að athuga heldur
fremur nánd þeirra við fréttir af
rekstri fyrirtækisins,“ að því er segir
í Hálffimmfréttum KB-banka. Grein-
ingardeild KB-banka segist ekki
telja að viðskipti gærdagsins séu
Eimskipafélaginu til framdráttar og
að þau hljóti að vera því hvatning til
að setja skýrari reglur um viðskipti
innherja, að því er segir í Hálffimm-
fréttum KB-banka.
Í Morgunkorni Íslandsbanka í gær
kemur fram að salan á HB og ÚA séu
stór viðskipti og breyta mjög ásýnd
Eimskipafélagsins. „Það er þess
vegna miður hve takmarkaðar upp-
lýsingar hluthafar og fjárfestar fá um
viðskiptin. Kaupverð hefur komið
fram og áætlaður bókaður söluhagn-
aður Eimskipafélagsins en fátt um-
fram það. Ekki liggur ljóst fyrir hvað
var selt, hvernig greiðslum til Eim-
skipafélagsins verður háttað eða
hvernig Eimskipafélagið hyggst
verja afrakstri sölunnar, t.d. til
greiðslu skulda. Það er því ekki með
góðu móti hægt að leggja mat á
hvernig efnahagur félagsins mun líta
út eftir viðskiptin,“ að því er segir í
Morgunkorni Íslandsbanka.
Vekur tortryggni og
skaðar félagið
Þar kemur einnig fram að hluthafa
og fjárfesta skorti því mikilvægar
upplýsingar til að leggja mat á verð-
mæti Eimskipafélagsins. „Hins veg-
ar hafa stjórnarmenn og aðrir inn-
herjar í Eimskip nýverið átt aðild að
umtalsverðum viðskiptum með bréf í
félaginu. Hér vakna spurningar um
hvort innherjar og aðrir fjárfestar
hafi sömu upplýsingar um stöðu og
framtíðarmarkmið Eimskips. Það er
mat Greiningar Íslandsbanka að á
meðan Eimskip tekur jafn miklum
breytingum og nú standa yfir og upp-
lýsingar þar að lútandi hafa ekki ver-
ið gerðar opinberar nema að tak-
mörkuðu leyti, veki það tortryggni og
skaði félagið að stöðutökur innherja
skuli eiga sér stað,“ að því er fram
kemur í Morgunkorni Íslandsbanka.
Stjórnin fékk lögfræðiálit
Magnús Gunnarsson, stjórnarfor-
maður Eimskipafélagsins, segir að
engar sérstakar reglur gildi um við-
skipti innherja hjá Eimskipafélagi
Íslands aðrar en þær almennu reglur
sem um þau gildi um félög sem skráð
eru í Kauphöll Íslands. Stjórn félags-
ins hafi leitað til lögfræðinga um
hvort kaup fruminnherja félagsins
brytu gegn þeim reglum og sam-
kvæmt áliti lögfræðinga væri svo
ekki.
Hins vegar færi að styttast í að
uppgjör félagsins yrði birt, 26. febr-
úar, og því yrði væntanlega lokað fyr-
ir viðskipti innherja með bréf fé-
lagins á næstu dögum.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, segir að Kaup-
höllin hafi velt fyrir sér hvort setja
ætti Eimskipafélagið á athugunar-
lista en talið að þess þyrfti ekki þar
sem upplýsingagjöf félagsins hafi
verið fullnægjandi.
Samkvæmt upplýsingum frá Fjár-
málaeftirlitinu liggur ekkert fyrir um
athugun á innherjaviðskiptum með
bréf Eimskipafélagsins af þess hálfu.
Verð hlutabréfa í Eimskipafélaginu hækkar um 7,2%
Innherjaviðskipti gagn-
rýnd af greiningardeildum
Morgunblaðið/Jim Smart
● GENGIÐ hefur verið frá kaupum
Eimskips ehf. á meirihluta hlutafjár
í norska flutningafyrirtækinu CTG
AS (Coldstore & Transport Group)
sem sérhæfir sig í flutningum og
geymslu á frystum og kældum sjáv-
arafurðum ásamt tengdri þjónustu.
Kaupin eru gerð með fyrirvara um
áreiðanleikakönnun.
Fyrirtækið var stofnað árið 1985
undir nafninu Vesterålen Shipping
en var endurnefnt CTG árið 1997
og hefur síðan verið rekið undir því
nafni. CTG starfar á alþjóðlegum
vettvangi en höfuðstöðvar fyrirtæk-
isins eru í Sortland í Noregi. Velta
CTG undanfarin ár hefur verið um
900 milljónir íslenskra króna á ári
og hefur fyrirtækið skilað góðum
hagnaði, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Eimskip.
Hjá CTG starfa rösklega 20
manns og munu núverandi stjórn-
endur fyrirtækisins og annað starfs-
fólk starfa áfram hjá fyrirtækinu.
Kaupverð Eimskips á eignarhlutn-
um er trúnaðarmál fyrst um sinn,
en ljóst er að þessi fjárfesting mun
styrkja bæði rekstur og efnahag
Eimskips.
Verður rekið sem
dótturfélag Eimskips
Flutningakerfi CTG samanstendur
nú af um tíu frysti- og kæliskipum
og sex frystigeymslum í Noregi. Að
sögn Erlendar Hjaltasonar, fram-
kvæmdastjóra Eimskips, munu
frystiskip sem Eimskip er með í
rekstri flytjast til CTG. Að hans
sögn eru þau að meðaltali þrjú tals-
ins.
Segir Erlendur að mikil samlegð-
aráhrif muni nást með kaupunum
og þau styrkja stöðu Eimskips í
flutningum og geymslu á frystum og
kældum sjávarafurðum. CTG verður
rekið sem dótturfélag Eimskips.
Á síðasta ári voru heildarflutn-
ingar CTG liðlega 200 þúsund tonn.
Til samanburðar var heildarútflutn-
ingur frystra og kældra sjávarafurða
frá Íslandi um 350 þúsund tonn á
árinu 2003. Heildarútflutningur
sjávarafurða frá Noregi er um 2
milljónir tonna.
Erlendur segir að Eimskip og CTG
hafi um nokkurra ára skeið verið í
samstarfi á ýmsum sviðum. Í fram-
haldi af kaupunum verður starfsemi
Eimskips og CTG í Noregi og víðar
efld.
Eimskip
kaupir
norskt flutn-
ingafélag
HÓLMI ehf. hefur eignast 71,12% hlutafjár í sjávarútvegs-
félaginu Eskju hf. á Eskifirði. Að rekstri eignarhaldsfélags-
ins Hólma standa Elfar Aðalsteinsson, forstjóri Eskju, Þor-
steinn Kristjánsson, stjórnarformaður félagsins, og
Kristinn Aðalsteinsson stjórnarmaður.
Þeir þremenningar tóku í gær við Hólma af Aðalsteini
Jónssyni og Guðlaugu Stefánsdóttur, sem þeir eru allir
tengdir fjölskylduböndum. Hólmi hefur verið stærsti ein-
staki hluthafinn í Eskju og átti fyrir þessi viðskipti 37,5%
hlut í félaginu. Þá hefur Hólmi keypt alla hluti Trygginga-
miðstöðvarinnar í Eskju, en félagið átti 9,55% hlut, Skelj-
ungs (5,0%), Lífeyrissjóðsins Framsýnar (4,9%), Lífeyris-
sjóðs Austurlands (1,6%) og fleiri smærri hluthafa.
Að sögn Elfars mun Hólmi gera öðrum hluthöfum í Eskju
yfirtökutilboð á genginu 8,0, sem er viðskiptagengið í und-
angengnum viðskiptum. Þá segir hann að í framhaldinu sé
stefnt að afskráningu Eskju úr Kauphöllinni.
Markaðsvirði 71,12% hlutar Hólma í Eskju er liðlega 2,5
milljarðar króna sé miðað við gengið 8,0 krónur á hlut.
Elfar segir að þessi kaup markist að vissu leyti af þeim
miklu hræringum sem nú séu á hlutabréfamarkaði. ,,Eskja
er bæði gott og sterkt sjávarútvegsfyrirtæki og teljum við
gríðarlega mikilvægt að standa vörð um hagsmuni starfs-
fólks og hlutverk félagsins í uppbyggingu atvinnulífs í
Fjarðabyggð. Þess vegna höfum við ákveðið að fara í skuld-
setta yfirtöku á félaginu nú,“ segir Elfar.
Hlutabréf í Eskju voru færð á athugunarlista í Kauphöll
Íslands í gær.
Eskja verður
afskráð úr
Kauphöll Íslands
BREYTINGAR sem orðið hafa í íslensku
viðskiptalífi síðustu misseri hafa að mestu
verið til góðs, að sögn Valgerðar Sverris-
dóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Þetta kom fram í erindi sem hún flutti á að-
alfundi Samtaka fjárfesta í gær. Hún sagði
þó að allt væri ekki eins og það ætti að vera.
Aukin hagræðing og hraðar breytingar á
eignarhaldi fyrirtækja hefðu leitt til meiri
samþjöppunar og minni samkeppni í ein-
stökum atvinnugreinum. Þá hefðu ýmis við-
skipti á verðbréfamarkaði vakið spurning-
ar um hvort stjórnunarhættir hlutafélaga
væru með þeim hætti sem best gerðist.
„Ég tel að við þau tímamót sem orðið
hafa að undanförnu með sölu banka í eigu
ríkis og breytingum á eignarhaldi fyrir-
tækja á markaði sé nauðsynlegt að líta yfir
farinn veg og leggja drög að frekari stefnu-
mótun um umhverfi íslensks viðskiptalífs,“
sagði Valgerður. „Það verður gert með fag-
legum hætti á næstu mánuðum. Það verður
að vanda til verks enda væri betur heima
setið en að fara með óðagoti af stað með
breytingar sem sköpuðu fleiri vandamál en
þær leystu.“
Valgerður sagði að mörgum þætti sem
hagsmunir smærri fjárfesta hefðu verið
fyrir borð bornir í stórviðskiptum við-
hafa ákveðnum skyldum að gegna við upp-
byggingu markaðarins,“ sagði Valgerður.
Viðburðaríkt ár í fyrra
Fram kom í máli Vilhjálms Bjarnasonar,
formanns Samtaka fjárfesta, á aðalfundin-
um að samtökin væru hagsmunasamtök
þeirra sem hefðu áhuga á frjálsum sparnaði
og að einstaklingar verði efnahagslega
sjálfstæðir. Hann sagði að árið 2003 hefði á
margan hátt verið viðburðaríkt fyrir þá
sem hefðu þetta áhugamál. Ekki yrði þó
sagt að allir viðburðir hefðu verið ánægju-
legir fyrir fjárfesta.
Hann vék að launagreiðslum til stjórn-
enda fjármálafyrirtækja og sagði að þau
eigi að endurspegla árangur þeirra í starfi.
„Fjárfestar, viðskiptavinir fjármálafyrir-
tækja, nutu sjaldnast þess árangurs sem
átti að endurspeglast í launum stjórnend-
anna. Ég set stórt spurningarmerki við það
að stjórnendur fjármálafyrirtækja byggja
upp sína eigin einkaverðbréfasjóði, sem
nema tugum og hundruðum milljóna, á
meðan viðskiptavinir sömu fyrirtækja
þurfa að bera úr býtum verulega neikvæða
ávöxtun ár eftir ár. Fyrir hvaða ráðgjöf og
þjónustu er verið að greiða?“ spurði Vil-
hjálmur.
skiptajöfranna. Álitaefni væri hvenær þeir
væru tryggðir með fullnægjandi hætti,
samkvæmt lögum um hlutafélög og verð-
bréfaviðskipti. Hún nefndi þrjú atriði sem
hefðu verið í umræðunni um þessi mál. Í
fyrsta lagi skipti miklu máli fyrir almenn-
ing og viðskiptavini að geta treyst því að
ekki væru til staðar hagsmunaárekstrar
innan bankanna. Í annan stað hefði stund-
um komið upp gagnrýni frá smærri hlut-
höfum um hvernig staðið væri að yfirtök-
um, sér í lagi hvaða verð yfirtökuaðilinn
byði. Hún sagðist telja að þessi gagnrýni
ætti rétt á sér og nefnd hefði verið falið að
fara heildstætt yfir yfirtökureglur.
Þriðja atriðið sem Valgerður nefndi sem
sérstakt hagsmunamál smærri fjárfesta
var kostnaður við að eiga litla hluti í fé-
lögum. Hún sagði að mikil hagræðing hefði
orðið af því þegar rafræn eignarskráning
verðbréfa hefði leyst pappírsbréfin af
hólmi. Fyrstu árin hefði ekki verið tekið
gjald fyrir geymslu bréfa á rafrænum
reikningi en nú hefðu einstaka bankar hafið
slíka gjaldtöku. Sagði hún augljóst að
gjaldtaka hvetti almenning ekki til þátt-
töku á verðbréfamarkaðnum. „Bankar
þurfa því að gæta þess að missa ekki litlu
hluthafana út af verðbréfamarkaði og þeir
Allt ekki eins og það á að vera í viðskiptalífinu segir ráðherra
Umhverfið skoðað faglega