Morgunblaðið - 16.01.2004, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.01.2004, Qupperneq 16
ERLENT 16 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ LÖGREGLUMENN í Madhya Pradesh- héraði á Indlandi fá greitt sérstaklega fyrir að láta sér vaxa skegg. Yfirmenn þeirra telja að með skegginu vaxi mynd- ugleiki lögregluþjónanna, fólk beri meiri virðingu fyrir þeim og fyrir vikið nái þeir meiri árangri í starfi. Tíu lögreglumenn í héraðinu eru þegar farnir að fá 30 rúpíur á mánuði, eða um 40 krónur, fyrir rækt- arsemi sína. Hefð er fyrir því í dreifbýl- inu á Indlandi að menn láti sér vaxa myndarlegt skegg til að leggja áherslu á karlmennsku sína. Óvenjuleg refsing Bandarísk kona sem varð manni að bana er hún ók á hann verður að bera á sér mynd af líki hans í líkkistu. Í dóm- sátt sem náðist í málinu var ákvæði um að konan, Jennifer Langston, skyldi bera á sér mynd af manninum sem hún banaði, Glenn Clark. Fjölskylda Clarks lét hana hafa mynd af honum þar sem hann lá í líkkistunni en Langston neitaði að bera þá mynd. Dómari í málinu kvað hana ekki eiga neins úrkosti, og er þetta í samræmi við nýja stefnu í banda- rísku réttarkerfi þar sem lögð er áhersla á frumlegar refsingar. Langston var ölvuð og að tala í farsíma þegar hún ók á bíl Clarks, sem var á ferð með barnshafandi konu sinni. Konan hans er nú í dái, og sonur þeirra, sem tekinn var með keisaraskurði, elst upp hjá ætt- ingjum. Lestu smáa letrið! Notkunarleiðbeiningarnar með nýja Nokia 6080 GSM-símanum eru óvenju víðtækar. „Ekki tala í farsímann undir stýri,“ segir m.a. í þeim. „Gefðu stefnu- ljós áður en þú skiptir um akrein, stöðv- aðu á rauðu ljósi og hafðu auga með því hvort nokkurstaðar nálægt séu börn að leik.“ Þarna eru líka leiðbeiningar í lífs- leikni: „Ef þú átt enga vini mun enginn hringja í þig. Ef þú notar gemsann þinn á veitingastöðum reyndu þá að tala lágt til að fólk verði ekki pirrað. Og fáðu þér salat … Hættu að reykja og drekktu minna.“ Rúsínan í pylsuendanum: „Það myndi nú varla drepa þig þótt þú hringd- ir öðru hvoru í mömmu þína.“ Talsmaður Nokia, Pekko Isosomppi, segir tilganginn með þessum óvenjulega leiðarvísi vera að höfða til ungra borgarbúa með gott skop- skyn. Ekki opna of mikið Læknar í bænum Arusha í norðurhluta Tansaníu skáru fyrir skemmstu upp 54 ára gamlan mann sem hafði óvart gleypt tannbursta. Maðurinn var að bursta í sér tennurnar þegar hann missti burstann, sem rann niður í kokið á honum og þaðan alla leið ofan í maga. Í uppskurðinum var tannburstinn fjar- lægður úr görnum mannsins. Skeggið vex og virðingin með AP Japanska fyrirsætan Emi Inoue horfir kát á nýjustu græjuna frá leikfangaframleiðandanum Takara, en þar er um að ræða sérstaka draumagerðarvél, og segir fram- leiðandinn að með henni geti not- endur ákveðið fyrirfram hvað þá muni dreyma á meðan þeir sofa. Þeir eiga að horfa á mynd af því (eða þeim) sem þeir vilja að þá dreymi um, og gefa vélinni sögu- þráð. Ennfremur beitir drauma- gerðarvélin ljósum, tónlist og ilmi til að stýra draumum notandans. Vélin verður sett á markað í Japan í maí og kostar sem svarar um tíu þúsund krónum. Draumagerðarvélin ÞETTA GERÐIST LÍKA VITNALEIÐSLUM í réttarhöldunum yfir Mij- ailo Mijailovic, sem viðurkennt hefur að hafa ban- að Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, lauk í Stokkhólmi í gær en á mánudag flytja Anita Blid- berg saksóknari og Peter Althin, verjandi Mijailovics, lokaræður sínar. Fyrir rétt- inn í gær kom náin vinkona Lindh, Eva Franchell, en hún var með Lindh hinn örlaga- ríka dag í september þegar Mijailovic réðst á ráðherrann og stakk hana margsinnis með hnífi. Lýsti hún því hvernig verslunarferð vinkvennanna í NK-verslunarmiðstöðina í mið- borg Stokkhólms breyttist skyndilega í harmleik. Eva Franchell var aðalvitni saksóknara í mál- inu gegn Mijailovic. Sagði hún réttinum að hún hefði hitt Lindh síðdegis 10. september 2003 til þess að fara með henni að velja föt fyrir kapp- ræður í sjónvarpinu vegna yfirvofandi þjóðarat- kvæðagreiðslu um upptöku evrunnar sem gjald- miðils í Svíþjóð. Franchell sagði að létt hefði verið yfir þeim vinkonum og að ekkert hefði gefið vís- bendingar um það sem í vændum var. „Við hlóg- um mikið og töluðum saman,“ sagði hún. Í sama mund og þær virtu fyrir sér treyju nokkra ruddist að þeim maður, sem hvorug þeirra hafði tekið eftir áður, og tróð sér á milli þeirra. „Út undan mér sé ég mann koma æðandi í áttina til okkar. Ég skynjaði að hætta gat verið á ferðum,“ sagði Franchell. „Ég varð mjög hrædd“ Við réttarhöldin í gær horfði Franchell ekki á Mijailo Mijailovic á meðan hún talaði fyrr en hún var beðin um að staðfesta að hann væri árás- armaðurinn. „Ég upplifi þessa mynd af honum þar sem hann kemur æðandi fram hjá mér aftur og aftur í martröðum mínum,“ sagði hún. „Hann æddi fram hjá mér, nei, tróðst snögg- lega fyrir aftan mig til þess að komast að Önnu,“ sagði Franchell. „Ég varð mjög hrædd.“ „Hann stökk á hana og ýtti henni upp að fata- rekka. Það var eins og hann væri að kýla hana í kviðinn. Það líktist í raun skuggaboxi [þ.e. þegar viðkomandi slær út í loftið án raunverulegs and- stæðings, innsk. blm.]. Kringumstæðurnar voru ótrúlega skelfilegar og ógnandi.“ Að sögn Evu Franchell reyndi hún að ýta árás- armanninum í burtu og Anna Lindh reyndi að verja sig með hliðartösku sem hún var með en árásin var alltof kröftugt til þess að þær kæmu nokkrum vörnum við. „Hún var mjög hörkuleg,“ sagði Franchell. „Anna sagði ekkert, hún var ákveðin á svip en hrædd, nei, kannski stjörf,“ lýsti Franchell at- burðarásinni. „Hvern andskotann ertu að gera?“ sagðist Franchell hafa hrópað um leið og hún lamdi árásarmanninn í handlegginn og reyndi að ýta honum frá vinkonu sinni. Franchell sagði að fyrst hefði Anna staðið uppi. Hún hefði ekki hnigið niður fyrr en eftir eina eða tvær sekúndur þegar hún féll á gólfið. Spurð hvenær hún hefði fyrst áttað sig á að vinkona hennar væri særð sagðist hún hafa litið á hana en ekki áttað sig á alvarleika málsins strax. Hún hefði hins vegar spurt Lindh hvernig henni liði. „Ég var stungin.“ Samstundis hefði hún séð blóðið á kviði vinkonu sinnar. Kvaðst Franchell minnast þess að Mijailovic hefði ekki sagt eitt ein- asta orð meðan á árásinni stóð. Banvæn stunga í lifrina Mijailo Mijailovic stakk Önnu Lindh nokkrum sinnum í kvið, bringu og handleggi og lést hún af sárum sínum nóttina eftir á sjúkrahúsi eftir að læknar höfðu barist fyrir lífi hennar í um hálfan sólarhring. Gaf réttarmeinafræðingurinn Henrik Druid réttinum í gær ítarlegar upplýsingar um hvað dró Önnu Lindh til dauða. „Það þurfti mik- inn kraft til þess að stinga í gegnum framhand- legg hennar,“ sagði Druid. Hann sagði að sárið sem að lokum dró Önnu Lindh til dauða hefði ver- ið banvæn stunga í lifrina. Hætt var við að yfirheyra breska sérfræðing- inn Paul Whitaker sem rannsakaði hnífinn sem Mijailovic notaði við árásina. Var ekki talin þörf á að kalla Whitaker fyrir. Mijailovic neitaði sjálfur að svara spurningum saksóknara í gær. „Ég ætla ekki að svara fleiri spurningum,“ sagði hann og horfði síðan í gólfið. Dómarar spurðu hins vegar hvort hann hefði ekki áður gerst sekur um glæp. „Jú, gegn föður mín- um,“ svaraði Mijailovic. „Ég stakk hann. Við ræð- umst ekki mikið við.“ Í fyrradag hafði Mijailovic, sem er 25 ára gam- all og af serbnesku bergi brotinn, lýst því hvernig hann réðst á Lindh í verslunarhúsi í Stokkhólmi 10. september síðastliðinn. Sagði hann raddir í höfði sér hafa stjórnað gerðum sínum en sjálfur hefði hann ekki ætlað að verða Lindh að bana. Einkavinkona Önnu Lindh bar vitni í réttarhöldum yfir Mijailo Mijailovic Lýsti því hvernig verslun- arferð breyttist í harmleik Reuters Ljósmyndari náði þessari mynd af Mijailo Mijailovic í réttarsalnum en myndataka var ekki leyfð á meðan á vitnaleiðslum stóð. Vitnaleiðslum í málinu er lokið, lokaræður fluttar á mánudag Stokkhólmi. AFP. Anna Lindh ÍRAKAR mótmæltu í gær í borginni Basra fyrirætlunum Bandaríkjamanna varðandi fyrirkomulag vals á þjóðþingi sem ætlað er að taki senn til starfa til bráðabirgða. Þeir héldu á lofti myndum af ýms- um sjía-múslímaklerkum, þ.á m. Ajatollah Ali al-Husseini al-Sistani (lengst til hægri), en hann er æðsti trúarleiðtogi sjíta í Írak. Al-Sistani hefur krafist þess að þingið verði kosið beint af írösku þjóðinni en fyrirætlanir Bandaríkja- manna gera ráð fyrir að fulltrúar á því verði kosnir í eins konar forvali í hverju héraði Íraks fyrir sig.AP Sjítar í Basra mót- mæltu ALLAR líkur eru á því að bandaríska dómsmálaráðuneyt- ið beini næst spjótum sínum að Jeffrey Skilling, fyrrverandi að- alframkvæmdastjóra orkurisans Enron, en nú stendur yfir lög- reglurannsókn á gjaldþroti fyr- irtækisins fyrir tveim árum, sem er umfangsmesta gjald- þrotamál í sögu Bandaríkjanna. Dagblaðið Houston Chronicle hefur í gær eftir verjendum ákærðra í málinu að þeir hafi búist við því mánuðum saman að Skilling yrði ákærður, og telji nú að líklega verði úr því innan fárra vikna eftir að annar fyrrverandi háttsettur yfirmað- ur í Enron, fjármálastjórinn Andrew Fastow, játaði sig sek- an um víðtækt svindl og þjófnað samkvæmt dómssátt í máli hans í fyrradag. Framburður Fastows mun ekki síst koma saksóknurum að notum við að höfða mál á hend- ur Skilling og Kenneth Lay, sem var stjórnarformaður í Enron. Samkvæmt dómssátt- inni lofaði Fastow að aðstoða yfirvöld við að koma höndum yfir aðra fyrrverandi yfirmenn í Enron. Bæði Skilling og Lay hafa ítrekað lýst yfir sakleysi sínu. Heimildarmenn Houston Chronicle segja, að þótt án efa verði rannsóknin á aðild Lays að málinu nú hert séu meiri lík- ur á að Skilling verði ákærður. Skilling er líklega næstur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.