Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 18

Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 18
ERLENT 18 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ VÍSINDAMENN og geimrann- sóknastofnanir fögnuðu í gær því frumkvæði sem George W. Bush Bandaríkjaforseti tók í fyrrakvöld er hann kynnti nýja geimferðaáætlun sem m.a. gerir ráð fyrir því að geim- farar verði sendir til tunglsins og Mars. Gagnrýnisraddir heyrðust hins vegar einnig og m.a. var bent á að þessi áætlun myndi kalla á gíf- urleg fjárútlát. Flestir repúblikanar fóru fögrum orðum um áætlun Bush. Demókrat- ar lýstu hins vegar efasemdum. „Þó að ég telji jákvætt að stjórnin sýni geimferðaáætluninni aftur áhuga þá er áhugi hennar ekki í samræmi við fjárhagslegan veruleika dagsins í dag eða þá skipulag mála hjá NASA og stöðu stofnunarinnar,“ sagði öld- ungadeildarþingmaðurinn Ernest Hollings. Bæði The Washington Post og The New York Times tóku í sama streng. „Við þessari þjóð blasir gíf- urlegur fjárlagahalli, mikil þörf er á úrbótum í mennta- og heilbrigðis- málum, og alþjóðleg hryðjuverkaógn er til staðar. Það er því undarlegt að efna til verkefnis af þessari stærð- argráðu, sem gæti vel mætt afgangi, á þessari stundu,“ sagði m.a. í leiðara The Washington Post. Skiptar skoðanir um geimferðaáætlunina Washington. AFP. #$ %&' (') *+ $  ,    )       (-   ,       )  .   $/ $  0  0.,                          1 2   -               1#                    %    3    (-, 2 % #         %   %       1   # #      4 ..  0 3-4-                         ',   4 1             &5        1     %                                !     "  "   5 6     $ 7 2    2 # !           ! 8*  $    $     9 :;<3=#4#5!38;#>43#85>?@#A>=8=>=@1>"',  ,    3!5! % " !          !    &         ! '           " ()*       '  3   #+ "       ,           3    - &  &  + " ! #"   ! /     .&  ,        ,     "   ! /    0   1     $ &        B     02#34 !  & ,   ,        ! $ +  +     & 02#34 !  %      ,      "       % ,      ! 502#346 EINN af þingmönnum Forza Italia, flokks Silvios Berlusconis, forsætis- ráðherra Ítalíu, hefur höfðað mál á hendur Dario Fo fyrir meiðyrði vegna nýs leikrits leikskáldsins um forsætisráðherrann. Í leikritinu er Marcello Dell’Utri, þingmaður Forza Italia í öldungadeildinni, sakaður um tengsl við mafíuna og eitur- lyfjasmygl. Dell’Utri segir ekkert hæft í þess- ari ásökun og krefst þess að Dario Fo greiði honum sem svarar 49 millj- ónum króna í bætur. „Þetta er ekki háðsádeila,“ segir lögmaður Dell’Utri, Pietro Federico. „Þetta eru ofsóknir. Háðsádeilur eiga að fá fólk til að hlæja að raunverulegum stað- reyndum. En Dario Fo veitir rangar upplýsingar.“ „Ég hef skrifað háðsádeilur í 40 ár,“ svarar Dario Fo, sem fékk Nób- elsverðlaunin í bókmenntum 1997. „Þetta er þverstæða og fáránlegt.“ „Þetta fólk vill þagga niður í öll- um,“ hafði dagblaðið La Repubblica eftir eiginkonu Fo, Franca Rame. Leikritið heitir „Tvíhöfða af- brigðið“. Fo fer þar með hlutverk Berlusconis og Rame leikur eig- inkonu forsætisráðherrans. Fo leikur smávaxinn og feitan mann, sem líkist leikbrúðu, patar í sífellu og kvartar yfir vandræðum sínum við konu sína. Vinur hans, Vladímír Pútín, dvelur í sveitasetri á Sikiley en tétsenskir uppreisnarmenn skjóta hann til bana. Berlusconi særist og til að bjarga lífi hans þarf að græða hluta af heila Pút- íns í forsætisráðherrann. Berlusconi breytist þá í ráðvilltan mann, sem tal- ar rússnesku, drekkur vodka og hef- ur áhyggjur af mönnum sem eru lok- aðir inni í kafbáti á hafsbotni, að því er fram kemur í The Guardian. Dario Fo lögsóttur Hæðist að Berlusconi forsætisráðherra í nýju leikriti ÚTLIT er fyrir að Þjóðveldisflokk- urinn tapi umtalsverðu fylgi í þing- kosningum sem haldnar verða í Fær- eyjum 20. þessa mánaðar. Samkvæmt skoðanakönnun, sem blaðið Sosialurin birti í vikunni, hefur nærri fimmti hver kjósandi flokksins í síðustu kosningum ákveðið að greiða öðrum flokkum atkvæði sitt nú. Samkvæmt könnuninni bæta Sam- bandsflokkurinn og Jafnaðarflokkur- inn við sig fylgi og gætu náð meiri- hluta á Lögþinginu eftir kosningar. Samkvæmt könnuninni fær Sam- bandsflokkurinn 28,5% atkvæða og tíu þingmenn, bætir við sig tveimur mönnum, og Jafnaðarmannaflokkur- inn fær 22,1% og átta átta þingmenn, bætir við sig einum manni. Þjóðveld- isflokkurinn fær 19,4% og sex þing- menn, tapar tveimur, Fólkaflokkur- inn fær 19,8% atkvæða og sex þingmenn, tapar einum. Sjálfstýris- flokkurinn og Miðflokkurinn fá einn þingmann hvor. Í könnuninni voru þátttakendur spurðir hvaða flokk þeir hefðu kosið síðast og hvaða flokk þeir ætluðu að kjósa nú. Fram kom að um fimmt- ungur kjósenda Þjóðveldisflokksins ætlar að kjósa aðra flokka nú, flestir Fólkaflokkinn. Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær- eyja og formaður Fólkaflokksins, rauf þing og boðaði til kosninga í byrjun desember þegar Þjóðveldis- flokkurinn lýsti vantrausti á hann. Að færeysku landstjórninni stóðu fjórir flokkar: Fólkaflokkurinn, Þjóðveldis- flokkurinn, Miðflokkurinn og Sjálf- stýriflokkurinn. Fólkaflokkurinn í sókn í Færeyjum Í IÐANDI, óreiðukenndri umferð- inni í Lima, höfuðborg Perú, má sjá fjöldann allan af litlum gulum bílum þjóta um göturnar, þetta eru Ticos, algengustu leigubílarnir í borginni. Þessi smávaxni fjögurra dyra kór- eski bíll er oft keyrður í klessu. Í götublöðunum í Lima má gjarnan sjá blóðugar myndir frá skelfilegum Tico-slysum þar sem líkamar liggja kramdir í brakinu. Tico kom fyrst til landsins 1994 en nú, tíu árum síðar, hefur rík- isstjórnin ákveðið að setja nýjar reglur um þennan ókrýnda konung leigubílanna sem gætu þýtt að hann hverfi af götunum. Samkvæmt þeim verða bílar að vega a.m.k. tonn til að mega notast sem leigubílar en Tico er minna en 900 kg að þyngd. „Tico er ekki hannaður sem leigu- bíll,“ segir Lino de la Barrera, sérfræð- ingur í umferðaröryggismálum og höfundur nýju reglnanna. „Hættan á dauðaslysum er mun meiri í Tico.“ Leigubíll hinna fátæku Ekki eru til sérstakar tölur um slysatíðni Tico en eigendur þeirra segjast þurfa að borga 20% meira fyrir tryggingar en eigendur ann- arra bíla. Fólk í milli- og hástétt hæðist að Tico sem það kallar dauðagildru á hjólum. Hann er leigubíll fátæka fólksins enda ódýr- ara að ferðast með honum en ann- ars konar leigubílum. Tico er líka afar mikilvæg tekjulind fyrir tug- þúsundir leigubílstjóra sem borga 630 krónur fyrir tólf tíma leigu á Tico en keyra síðan eins og brjál- æðingar til að ná upp í leigupening- inn og jafnvel græða dálítið á þessu. „Breytingarnar eru óréttlátar en ég held ekki að þeim verði fram- fylgt,“ segir Carlos Tiburcio þar sem hann situr undir stýri á gula Tico-bílnum sínum sem hann keypti fyrir sjö árum. „Vandamálið er ekki að Tico sé veikburða; vandamálið er að fólk hérna kann ekki að keyra.“ Bílaframleiðandinn Daewoo hætti að framleiða Tico árið 2000 en fjöldi notaðra Tico-bíla er samt sem áður enn fluttur til Perú. Þeir eru nánast eingöngu notaðir sem leigu- bílar þrátt fyrir að fæstir séu þeir skráðir sem slíkir, að sögn Manuel Neyra, framkvæmdastjóra stofn- unarinnar sem fer með umferð- armál í Lima. Hann kveðst ekki sammála því að hönn- unin geri Tico hættu- legan heldur skellir hann skuldinni á reynsluleysi leigubíl- stjóranna sem flestir eru ungir að árum. „Hvaða krakki sem er getur tekið bíl föð- ur síns og byrjað að vinna sem leigubíl- stjóri án þess að fá nokkra þjálfun eða kunna umferðarreglurnar,“ segir Neyra. Vinsæll flóttabíll Kannski er það vegna þess að vél- in í þeim er spræk og á þeim er á ör- skotsstundu hægt að hverfa í fjöldann allan af sams konar litlum bílum að Tico er sérlega vinsæll flóttabíll hjá glæpamönnum sem þurfa að komast í burtu í skyndi eft- ir vopnuð rán og þjófnaði. Leigubíl- stjórinn Jesus Moreno tók eitt sinn upp í bílinn tvo, að því er virtist, venjulega stráka. Sá sem settist í framsætið dró upp skammbyssu, á meðan sá í aftursætinu tók hann hálstaki og ógnaði honum með hnífi. Þeir tóku Tico og hurfu. „Daginn eftir komst ég að því að þeir höfðu notað leigubílinn minn til að ræna tvær bensínstöðvar,“ segir hann. AP Tico er ókrýndur konungur leigubílanna í Lima. „Dauðagildrur á hjólum“ bannaðar Yfirvöld í Perú hyggjast herða reglur um rekstur leigubíla Perú. AP. ’ Vandamálið erekki að Tico sé veikburða; vandamálið er að fólk hérna kann ekki að keyra. ‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.